Morgunblaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.02.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 yrði það sama og árið 2013, það er 38,3 milljarðar króna, auk verð- bóta. Skilningur á mikilvægi „Heilbrigðismálin voru í fókus umræðunnar þegar fjárlaga- frumvarpið var lagt fram. Það hjálpaði okkur. Skilningur reyndist vera á mikilvægi góðrar heilbrigð- isþjónustu og stjórnvöld áttuðu sig á því hvaða fjármuni þarf svo þjón- ustan sé fyrsta flokks, segir Páll. Við afgreiðslu fjárlaga var gefið í og framlög til sjúkrahússins aukin um þrjá milljarða, auk verðbóta. Af þeim peningum verður 300 milljónum kr. varið til viðhalds húsnæðis, 1,0 milljarði kr. verður ráðstafað til tækjakaupa og 1,7 milljarðar kr. fara beint inn í rekstur, í að styrkja starfsemi sjúkrahússins og hefja uppbygg- ingu eftir mörg mögur ár. Í því sambandi nefnir Páll sér- staklega það áherslumál sitt að bæta starfsumhverfi á spítalanum og gera betur við starfsfólk og nema. Ákjósanleg vinnuaðstaða, gott mötuneyti, bætt búnings- aðstaða og starfsmannafatnaður skipta þar máli, en einnig að bæta mönnun þar sem hún er slæm og taka á alls kyns vandamálum. Á síðasta ári var keyptur svo- nefndur línuhraðall fyrir krabba- meinslækningadeild sjúkrahússins. Næstu stóru viðfangsefnin í tækja- búnaði eru m.a. kaup á nýjum hjarta- og æðaþræðingatækjum og kjarnarannsóknarstofu, sem er eins konar flæðilína. „Þetta eru tæki sem kosta hundruð milljóna kr,“ segir Páll. „Ávinningurinn er þó margþættur. Með nýjum rann- sóknartækjum eykst skilvirkni. Niðurstöður verða fyrr aðgengileg- ar sem flýtir því að sjúklingur geti fengið þá meðferð sem þarf, segir Páll sem telur tal um erfitt ástand á spítalanum ekki alveg sann- gjarnt. „Vissulega eru krísueiningar, þar sem við erum að taka á vanda- málum, sem getur þó tekið tíma. Hins vegar eru langflestar ein- ingar á þessum stóra spítala öflug- ar og mikilvirkar þjónustu- og rannsóknareiningar þar sem ástandið er gott. Það þykir hins vegar ekki fréttnæmt,“ segir Páll. Sem dæmi um krísueiningar í vet- ur nefnir hann að mikið álag hafi verið á lyflæknissviði, til dæmis deildum krabbameins- og nýrna- lækninga. „Samt er þar að rætast úr. Sú staðreynd að 25 læknar hafa sótt um tólf lausar stöður á lyflækn- issviði sýnir að Landspítalinn er á ný að verða eftirsóknarverður vinnustaður. Nýting sjúkrarúma er í botni Að undanförnu hafa komið álagspunktar í starfsemi sjúkra- hússins, svo sem á bráðasviði. Hefðbundinn inflúensufaraldur út- mánaðanna hafi haft mikil áhrif. „Helmingur sjúklinga okkar er fólk 67 ára og eldra. Þetta fólk er mis- jafnlega á vegi statt og þyrfti margt að komast inn á hjúkr- unarheimili, þar sem ekki hafa ver- ið pláss. Þetta höfum við hér á sjúkrahúsinu kallað fráflæðisvnda. Því er mikil bót t.d. að öldr- unardeild á Vífilsstöðum, sem tek- ur 42 sjúklinga, hefur verið opn- uð,“ segir Páll og heldur áfram: „Í flensufaröldrum, eins og und- anfarið hefur nýting sjúkrarúma oft farið yfir 100%. Það stafar af því að meðaltalsnýting sjúkrarúma á bráðadeildum LSH er að stað- aldri um 95%. Nýting þyrfti hins vegar að vera að hámarki 80-85% svo unnt væri að mæta betur álag- stoppum eins og þeim sem nú er að ganga yfir. Þegar nýtingin er í botni verður álagið á starfsfólk mikið, kostnaðarsömum aukavökt- um fjölgar og allt verður erfiðara viðfangs. Síðustu daga hefur verið gengið í verkefnin á bráðadeild- unum eins og þau blasa við hverju sinni. Fundin er stysta leiðin í land. Hins vegar verður að hugsa málin í stærra samhengi til fram- tíðar. Skoða þarf fráflæði og tryggja að hjúkrunarsjúklingar komist sem fyrst af Landspít- alanum, því það er best fyrir þá og ódýrara fyrir þjóðfélagið. Aðflæði sjúklinga og efling heilsugæsl- unnar er annað mál sem er ár- íðandi að líta á til lengri tíma.“ Nýtt hús eftir sex ár Það er afar aðkallandi að styrkja grunngerð eða „infrastrúktúr“ sjúkrahússins segir Páll. Álagið undanfarið segir hann sýna svart á hvítu mikilvægi þess að endurnýja húsakost Landspítalans. Ótækt sé að bráðadeildir sjúkrahússins séu á tveimur stöðum, það er í Fossvogi og við Hringbraut. Í því sambandi beri að taka fram að áform um endurnýjun bygginga við Hring- braut séu allt önnur og minni en fyrir hrun. Nú sé rætt um að reisa rúmlega 70 þúsund fermetra bygg- ingar, fyrst og fremst meðferðar- og rannsóknakjarna. Mikilvægt sé að þessar byggingar hafi risið og starfsemi þar hafin eftir sex til sjö ár hið mesta Höfum tækifæri til viðspyrnu  Þriggja milljarða kr. viðbót eflir sjúkrahúsið  Kaup á æðaþræðingatækjum og rannsóknarkjarni næstu stórverkefni  Krísueiningar teknar fyrir  Bætt starfsumhverfi er áherslumál forstjórans Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjúkrahús „Heilbrigðismálin voru í fókus umræðunnar og það hjálpaði,“ segir Páll Matthíasson. Forstjórinn tekur stöðuna á hjartaskurðdeild. Lilja Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur og Bjarni Torfason yfirlæknir til hægri. Páll Matthíasson er geðlæknir og starfaði sem slíkur í áraraðir. Þrátt fyrir að hafa einkum og helst sinnt stjórnun síðustu ár er hann þó áfram á vaktinni. Er einn dag í viku á göngudeild geðsviðs. „Mér finnst mikilvægt að starfa áfram á mínu sérsviði og halda mér við. Fyrir stjórn- anda er líka nauðsynlegt að vera á gólfinu, nálægt starfsem- inni og finna hvernig landið liggur,“ segir Páll. Sem stjórnandi geðsviðsins beitti Páll sér fyrir marg- víslegum breytingum. Má þar nefna lokun langlegudeilda, nýja réttargeðdeild og opnun geðgjörgæsludeildar fyrir allra veikustu sjúklingana. „Nálgunin var sú að hafa skýra sýn á kjarnahlutverk starfseminnar og byggja upp samstarf við aðr- ar stofnanir velferðarþjónust- unnar um einfaldari þætti. Einn- ig að veita þjónustuna sem mest á göngu- og dagdeildum og að koma til móts við sjúk- lingana umhverfi sínu utan spít- alans. Það fyrirkomulag hefur gefið góða raun, sparað fjár- muni og aukið ánægju sjúk- linga, segir Páll. Starfar áfram á geðdeildinni í hjáverkum FJÖLHÆFUR FORSTJÓRI Aðgangskort Sérfræðilæknirinn er á þessu korti. Hitt er merkt forstjóra. VIÐTAL Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Eftirspurn eftir þjónustu Land- spítalans, það er innlagnir, aðgerð- ir og önnur þjónusta, mun aukast um í kringum 20% fram til ársins 2025. Þessu ræður mikil fjölgun eldra fólks sem sem fyrirsjáanleg er á næstu árum. Aukin fjár- framlög til spítalans, bæði til al- menns rekstrar, tækjakaupa og al- menns viðhalds eru því afar nauðsynleg. Að gefið var í með auknum fjárveitingum er því skref í rétta átt og gefur tækifæri til við- spyrnu. Jafn mikilvægt er þó að haldið verði áfram á sömu braut í næstu framtíð, en uppsafnaður sparnaður í starfseminni frá 2007 er rúmlega 40 milljarða króna. Þetta segir Páll Matthíasson, starf- andi forstjóri Landspítalans. 240 þúsund á göngudeild „Árleg fjárframlög til sjúkra- hússins eru alls um fjörutíu millj- arðar og sparnaður sex síðustu ára þýðir í rauninni að sjötta rekstar- árið á niðurskurðartímanum var ríkinu frítt,“ segir Páll. – Til að setja fyrirsjáanlega aukningu á álagi á Landspítalanum í samhengi má nefna að 2013 voru skráðar innlagnir á sjúkrahúsið um 27 þús- und, komur á göngudeildir voru um 240 þúsund og 80 þúsund manns komu á dagdeildir. Þá leita um 98 þúsund manns til bráða- deilda spítalans á ári – eða tæp- lega 300 manns á dag. Í vikulokin rennur út umsókn- arfrestur um starf forstjóra sjúkrahússins, sem Páll Matthías- son ætlar að sækja um. Áður var hann framkvæmdastjóri geðsviðs og kom þannig að yfirstjórn spít- alans. Við forstjórastarfinu tók hann fyrirvaralítið í októberbyrjun í fyrra þegar Björn Zoëga lét af störfum. Á þeim tímapunkti var út- lit var fyrir að rekstrarframlag ríkisins til reksturs sjúkrahússins Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottu útliti. Fataframleiðandi fagfólksins BRAGARD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.