Morgunblaðið - 20.02.2014, Síða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
SVIÐSLJÓS
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir
Hólmsberg og Gróf í Reykjanesbæ
var kynnt í síðustu viku. Svæðið
geymir mikla sögu því þar liggja
m.a. rætur Keflavíkur í gömlum
bryggju- og pakkhúsum kenndum
við Hans Peter Duus kaupmann.
Elsta húsið, Bryggjuhúsið, var
byggt árið 1877. Duushús er lista-
og menningarmiðstöð Reykjanes-
bæjar og með vorinu verða þar til
fjögur ný sýningarrými í Bryggju-
húsi, sem verið er að ljúka end-
urbótum á. Önnur sérstaða svæð-
isins er smábátahöfnin, sem mun
stækka samkvæmt nýja skipulag-
inu, sem unnið var af JeES arki-
tektum ehf. í Reykjanesbæ.
Að sögn arkitektanna er tillagan
unnin út frá einkennum svæðisins,
sem sé einstakt út frá sögulegu
sjónarmiði en ekki síður vegna
náttúrufegurðar.
„Markmiðið er að tryggja þá eig-
inleika sem fyrir eru og byggja á
þeim en bjóða jafnframt upp á fjöl-
breytta notkunarmöguleika til
framtíðar,“ segir í kynningu tillög-
unnar.
Skipulagið hefur tilvísun í sögu
svæðisins þar sem verslunarsaga
þess liggur, sjósókn Suðurnesja-
manna og fyrstu ár búsetu í Kefla-
vík. Heildarútlit þess minnir á
bryggjuhverfi sem þekkjast vel á
Norðurlöndum sem mörg hver hafa
fengið nýtt hlutverk.
Deiliskipulagið við Hólmsberg
og Gróf miðar að því að skapa
hverfiskjarna í tengslum við smá-
bátahöfnina og það umhverfi sem
liggur að henni. Skipulagið gerir
ráð fyrir stækkun hafnarinnar.
„Með því að tengja saman ólíka
eiginleika svæðisins í eina heild er
hægt að mynda bæjarkjarna sem
skapar tækifæri s.s. fyrir umferð-
armiðstöð, tjaldstæði og viðburði.“
Minni íbúðir og þéttari byggð
Þá nefna arkitektarnir torg og
göngustræti með skjóli fyrir mann-
líf og menningu í tengslum við fjöl-
breytta starfsemi á svæðinu, en
þess má geta að í nágrenni Grófar
er eitt af hátíðarsvæðum bæjarins
þar sem bæði bæjarhátíðin Ljósa-
nótt og þrettándagleði bæjarbúa er
haldin. Í tillögunni er gert ráð fyrir
minni íbúðum, m.a. til að þétta þá
byggð sem fyrir er á Berginu en
einnig getur þar að líta allt að 120
herbergja hótel.
Að sögn Guðlaugs H. Sigurjóns-
sonar, framkvæmdastjóra um-
hverfis- og skipulagssviðs, fellur
tillagan að gildandi aðalskipulagi
Reykjanesbæjar með örlitlum und-
antekningum þó. „Ætlunin er að
breyta aðalskipulaginu samhliða
þessum hugmyndum hér, sem hafa
það að markmiði að vera í takt við
núverandi starfsemi og í anda elstu
húsa Reykjanesbæjar sem eru á
svæðinu. Auk þess að styrkja nú-
verandi byggð á Berginu verður
bætt aðgengi að fallegri göngu-
leið,“ sagði Guðlaugur.
Fjögur ný sýningarrými
Miklar breytingar hafa staðið yf-
ir í Duus-húsum, lista- og menning-
armiðstöð Reykjanesbæjar, sem
standa við smábátahöfnina. Með
vorinu verða opnuð fjögur ný sýn-
ingarrými í nýuppgerðu Bryggju-
húsi, m.a. með afmælissýningu
Byggðasafns Reykjanesbæjar sem
mun spanna tímann frá landnámi
til vorra daga, í tilefni af 20 ára af-
mæli Reykjanesbæjar 11. júní nk.
Þá eru endurbætur hafnar á Fisc-
hersbúð og mun notkun þess í
framtíðinni tengjast menningarlífi
bæjarins. Bæði Bryggjuhús og
Fischersbúð eru friðuð.
Þess má geta að í framtíðarsýn
Reykjanesbæjar til ársins 2015 er
stefnt að því að hægt verði að
flagga Bláfánanum við smábáta-
höfnina á því kjörtímabili sem lýk-
ur senn en Bláfáninn er alþjóðleg
umhverfisviðurkenning sem veitt
er smábátahöfnum og bað-
ströndum fyrir markvissa um-
hverfisstjórnun, góða þjónustu og
vandaða upplýsingagjöf um aðbún-
að og umhverfi og veitt af Land-
vernd hér á landi.
Að sögn Péturs Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra atvinnu- og
hafnasviðs, er unnið að því þessa
dagana að ná ljúka tilskildum verk-
efnum svo hægt verði að draga
Bláfána að húni innan tíðar. Um-
sóknarferli hjá Landvernd sé hafið.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sl.
fimmtudag og var gerður góður
rómur að henni. Hún liggur nú
frammi í Duushúsum og er gefinn
frestur til 7. mars til að koma með
ábendingar og athugasemdir til
umhverfis- og skipulagssviðs
Reykjanesbæjar. Tillagan mun auk
þess fara til umsagnar hjá Skipu-
lagsstofnun og þá í formlegt
vinnsluferli hjá JeES arkitektum.
Reykjanesbær Smábátahöfnin séð frá Hólmsbergi. Duushús er húsaröðin á hægri hlið sem end-
ar í Bryggjuhúsi. Tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins er komin í kynningu.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Höfnin Smábátahöfnin með Hólmsberg í bakgrunni. Skessuhellir ekki langt undan.
Hverfiskjarni með tilvísun í norræn
bryggjuhverfi kominn á kortið
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Hólmsberg og Gróf í Reykjanesbæ fékk góðar viðtökur á íbúafundi
Teikning/JeES arkitektar ehf.
Deiliskipulag Yfirlitsmynd sem sýnir svæðið eins og það kæmi til með að líta út, miðað við fyrirliggjandi tillögu.
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
karl@forsvar.is
Hvammstangi | Söfnuði Hvammstangakirkju var á dög-
unum tilkynnt í messu að borist hefði vegleg gjöf frá
dánarbúi Debóru Þórðardóttur og Ásvaldar Bjarna-
sonar. Þau hjón voru bæði fædd hér á staðnum. Þau
stofnuðu síðar heimili á Hvammstanga og unnu hér
mestallan sinn starfsaldur.
Debóra var fædd árið 1910. Hún tók við símstöðv-
arstjórn árið 1944 eftir föður sinn, Þórð Sæmundsson.
Símstöðin var frá fyrstu tíð á heimili þeirra. Síðar var
embættinu breytt og árið 1962 sameinað póstþjónust-
unni í nýbyggðri Símstöð á Hvammstanga.
Ásvaldur fæddist árið 1923. Vann hann ýmis störf,
m.a. við verslun Kaupfélagsins, en gerðist póstaf-
greiðslumaður árið 1962. Saman unnu þau hjón á Sím-
stöðinni til 1970. Fluttu þau þá til Reykjavíkur, þar
sem þau unnu bæði hjá Pósti og síma til starfsloka.
Þau hjón störfuðu bæði að kirkjumálum meðan þau
bjuggu á Hvammstanga, sungu bæði í kirkjukórnum
og Ásvaldur sat í sóknarnefnd um árabil. Kirkjan var
þeim því mjög hugleikin. Debóra andaðist árið 2010,
þá rétt 100 ára, en Ásvaldur árið 2013, þá rúmlega 90
ára.
Skiptir sköpum fyrir kirkjuna
Þegar erfðaskrá þeirra var kunngerð, kom í ljós að
þau höfðu ánafnað Hvammstangakirkju helming eigna
sinna, sem munu vera umtalsvert fé. Svo vegleg gjöf
hefur ekki borist kirkjunni fyrr.
Jóhannes Kári Bragason, formaður sóknarnefndar,
segir gjöfina skipta sköpum fyrir kirkjuna. Hvamms-
tangakirkja var vígð árið 1957 og sambyggt safn-
aðarheimili var vígt árið 2007. Byggingu þess er ekki
að fullu lokið og er nú stefnt að verklokum þar. Einnig
er horft til lagfæringa á umhverfi kirkjunnar. Kári
segir söfnuðinn ekki vera í skuldum að neinu marki, en
ljóst sé að reksturinn sé knappur og gjöfin muni því
koma að mjög góðum notum til framtíðar.
Þess má geta að í Hvammstangasókn eru þrjú vígð
guðshús; Hvammstangakirkja, Kirkjuhvammskirkja
og Kapellan á Sjúkrahúsinu. Mun það teljast sérstakt í
ekki fjölmennari sókn.
Vegleg gjöf til Hvammstangakirkju
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Hvammstangakirkja Söfnuðinum áskotnaðist nýverið myndarleg gjöf.