Morgunblaðið - 20.02.2014, Page 48
48 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014
Mörg, og jafnvel
flest, óskum við okkur
líklega í undirmeðvit-
undinni, svona innst
inni, þegar allt kemur
til alls, að komast í
himnaríki þegar yfir
lýkur. Fá aðgang að
hinum dýrðlegu sölum
eilífðar og hitta þar fyr-
ir ættingja, vini og
samferðamenn. Og fá
að vera með þeim utan tíma og rúms
á grænum grundum í fullri gnægð
við gyllta strönd eilífðarinnar. Að
ekki sé nú talað um að fá litið sjálfan
Guð og fá svör við spurningunum
sem á okkur brenna og gátum
lífsins.
Nú sjáum við aðeins svo sem í
skuggsjá, í ráðgátu, en þá munum við
sjá auglitis til auglitis og allt verða
opinbert. Þá mun hið fullkomna taka
við og sú tíð líða undir lok sem er í
molum.
Því að ég er þess fullviss að ævinn-
ar ljúfustu og bestu stundir séu að-
eins sem forrétturinn að þeirri veislu
sem koma skal og lífið raunverulega
er og okkur hefur verið búið á himn-
um.
Kanntu ekki boðorðin?
Sagan segir að eitt sinn hafi maður
komið hlaupandi til Jesú og spurt
hann hvað ætti að gera til að öðlast
eilíft líf? Jesús spurði hann þá hvort
hann kynni ekki örugglega boðorðin?
Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt
ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela,
þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt
ekki pretta, þú skalt heiðra föður
þinn og móður og svo framvegis.
Þessi einföldu en þó
jafnframt flóknu grund-
vallaratriði í mann-
legum samskiptum sem
við erum svo gjörn á að
klikka á. Gaurinn taldi
sig nú aldeilis vera með
allt á þurru og sagðist
hafa gætt alls þessa frá
unga aldri. Þá sagði
Jesús honum að fara og
selja allar eigur sínar
og gefa fátækum og
hann þá myndi fjársjóð
eignast á himni. Mað-
urinn varð þá dapur í bragði og fór
burt hryggur enda átti hann miklar
eignir. Þá leit Jesús í kringum sig og
sagði að auðveldara yrði fyrir úlfalda
að fara í gegnum nálarauga en fyrir
auðmann að komast inn í himnaríki.
Hver getur þá orðið hólpinn?
Lærisveinar og vinir Jesú urðu
steini lostnir og sögðu: Hver getur þá
eiginlega orðið hólpinn? Jesús horfði
þá á þá og sagði vingjarnlega að
menn hefðu engin ráð til þess, en
Guði væri ekkert um megn. Hann
hefði áætlun til að gera þá hólpna
sem vildu. Áætlun sem varir til eilífs
lífs. Nokkuð sem enginn maður getur
unnið sér inn fyrir eigin verðleika eða
getur miklast af með nokkru móti
fyrir að gera eitthvað.
Upprisan og lífið
Jesús sagðist sjálfur vera upprisan
og lífið. Þeir sem tryðu á hann
myndu lifa þótt þeir dæju. „Hver
sem lifir og trúir á mig mun aldrei að
eilífu deyja. Trúir þú þessu?“ spurði
hann, og spyr okkur enn í dag.
Hann sagðist vera vegurinn, sann-
leikurinn og lífið sjálft. Að enginn
kæmist til föðurins nema vegna hans.
Hann væri dyrnar að himnaríki,
brauð lífsins, hin eilífa lind sem sval-
aði lífsþorsta okkar. Í rauninni öll sú
andlega fæða sem við þyrftum til
þess að komast af.
Guð sendi Jesú nefnilega ekki í
heiminn til þess að dæma okkur held-
ur til þess að frelsa okkur. Opna okk-
ur leið inn til hins eilífa lífs ljóma á
himnum, þangað sem hið raunveru-
lega föðurland okkar er.
Vinir og samverkamenn
Og hann kallar okkur ekki þræla
eða þjóna. Heldur vinir sína og sam-
verkamenn. Bræður sína og systur
og hann vill að við stöndum saman
þótt ólík séum með misjafnar skoð-
anir og að við ræktum með okkur þá
æðstu dyggð að elska hvert annað.
Hann vill fá að gera okkur að sam-
erfingjum sínum að hinni himnesku
dýrð sem okkur er fyrirbúin vegna
upprisu hans frá dauðum. Hann hef-
ur sigrað dauðann í eitt skipti fyrir
öll. Og sigurinn er tileinkaður þér.
Eins og galdur
Ást Guðs er nefnilega óskiljanlegt
kraftaverk. Eiginlega líkt og galdur
sem við skiljum ekki en getum upp-
lifað. Megum meðtaka og þiggja,
hvíla í og njóta um alla eilífð.
Lifi lífið!
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Ég er þess fullviss að
ævinnar ljúfustu og
bestu stundir séu aðeins
sem forréttur að þeirri
veislu sem koma skal og
lífið raunverulega er.
Höfundur er rithöfundur.
Aðild að himnaríki
Lítið sem ekkert
hefur birst um þessi
merku tíðindi í ís-
lenskri bókmennta-
sögu, og því skrifa ég
þetta.
Árið 1966 birtist
bók eftir Guðberg
Bergsson, sem olli
straumhvörfum í ís-
lenskum bók-
menntum. Þetta var
aðeins fimm árum eft-
ir að fyrstu bækur Guðbergs birt-
ust, en hann var 34 ára þegar þessi
bók birtist, Tómas Jónsson met-
sölubók.
Bókin varð skjótt ófáanleg. Hún
var endurútgefin óbreytt 1986, en í
árslok 2012 kom loks endurskoðuð
útgáfa. Þar eru sem betur fer litlar
breytingar, fáeinar viðbætur, og
jafnan til að gera textann skarpari
eða skýrari. Góð var bókin og betri
er hún. Bæði er hún miklu þrosk-
aðra og máttugra verk en fyrri
bækur höfundar, og auk þess rauf
hún hefðina, einkum að því leyti, að
þar var „söguþræðinum gefið á
kjaftinn svo hann ruglast í hænu-
haus lesandans“, eins og Guðbergur
sagði. Vart er hægt að tala um at-
burðarás í þessari löngu bók. Hún
segir frá einstökum atvikum í lífi
karlskröggs, birtir hugsanaflaum
hans. Og tímaröð er vendilega rugl-
að; ýmist er karlinn karlægur og
hálfblindur í súrefnistæki, eða í
fullu fjöri fyrr á árum.
Öllu ægir saman í hugarflaumi
Tómasar, og er oft stokkið fyr-
irvaralaust úr einu í annað. Hér er
rækilega gerð grein fyrir hvers-
dagslegustu líkamsstarfsemi hans,
ekki síst útferð hans af hrákum,
saur, þvagi og sæði. Þetta var nýj-
ung í íslenskum bókmenntum, fyrir
utan frægt dæmið í Bréfi til Láru,
og vakti mikla andúð þegar TJM
birtist. Þessi karl montast af fal-
legri skrift sinni eins og hann væri
á barnaskólastigi menntunar. En
raunar hefur hann tekið stúdents-
próf utanskóla, og er óvenjuvíðles-
inn í heimsbókmenntunum. Hann
fer þar eigin leiðir, vitnar ekki að-
eins í fræg skáld frá fyrri hluta 19.
aldar, t.d. Goethe, Stendhal og
Grím Thomsen, heldur líka í ítölsk
Endurreisnarskáld á frummálinu,
Dante, Petrarca, og einhvern forn-
an skáldskap á próvensölsku og
fornportúgölsku, að hætti t.d. Ezra
Pound í Cantos. Þetta stangast á
við nísku karlsins og fáfengileg
áhugamál, sem eru einkum hvers-
dagslegar kjaftasögur. En í heild
miðla þessar andstæður okkur
mynd af manni af holdi og blóði, og
anda; sem mótast af samtíma sínum
innanlands og utan og af fortíðinni,
menningararfleifð vesturlanda. Víða
bryddir á hugleiðingum um lífsgildi,
og nærtækt er að bera Tómas sam-
an við aðrar persónur bókarinnar,
sem mannblendnari eru. En síst
verður séð að þær skrípamyndir lifi
auðugara lífi. Þær eru allar fastar í
einhverjum almennum mynstrum
sem verða fáránleg, einmitt and-
spænis tómi Tómasar. Svo þröngur
sem heimur hans er, takmarkast við
íbúð hans, leigjendur,
vinnufélaga og þá sem
eru með honum í mötu-
neyti, þá má þetta þó
heita heimur í hnot-
skurn, því í lýsingu
persónanna er lögð
áhersla á hið dæmi-
gerða. Leigjendurnir
og fremri stofan í
mötuneytinu er alþýðu-
fólk, sem hefur einkum
áhuga á að fá sem
mesta aukavinnu. Ekk-
ert samband er á milli þessara
vinnudýra og hins samfélagshóps-
ins; það eru vinnufélagar Tómasar í
bankanum og innri stofa mötuneyt-
isins, sem eru allt þröngsýnir smá-
borgarar. Verkfræðingar sem tala
aldrei um annað en skólaárin, rót-
tækur alki í síendurteknu sama
þrasinu við íhaldssaman félaga sinn,
það þras er allt upp úr dagblöð-
unum; ennfremur pjattrófur sem
pískra um einkamál náungans. Yf-
irleitt ríkir tilgerð, heimska og
frekja í samskiptum persónanna,
þar er allt ömurlegt eða fáránlegt.
Athyglisvert er, að frá og með 17.
bók (síðustu 45 bls.) verður meira
um tilfinningar, en við það verður
einsemd Tómasar og annarra þeim
mun tilfinnanlegri, þetta er einkon-
ar ályktun af því sem á undan fer,
magnar það og undirbýr lokin. En
þau stinga gersamlega í stúf við
mestalla bókina í því, að þar verða
samskipti fólks með hlýju, þar sem
tveir karlmenn í sóðalegum lúkar
veltast um í faðmlögum og tungu-
kossum, heita báðir Tómas.
Miklar skopstælingar eru hér á
hverskyns bókmenntum, sem vin-
sælda nutu á Íslandi þegar TJM
birtist; á sveitasögum, þroskasög-
um, þjóðlegum fróðleik, ævisögum,
o.s.frv. Eftirfarandi klausa gæti
hafa verið tínd saman úr dagblöðum
á fimmtán ára skeiði (bls.181):
„Hér birtist stutt skrá yfir helstu
hættur sem steðjað hafa að hinni fá-
mennu íslensku þjóð allt frá 1939 til
Marshallhjálparinnar: […] sérhver
ný vörutegund í búðum vissi á
heimsendi, plokkun og útrýmingu
íslenska kynstofnsins. Kaupmenn
og prangarar íhaldsins stefndu að
því I) Með brillantíni, að gera alla
Íslendinga sköllótta eins og útlend-
inga; II) að brenna innan magann í
fólki með sinnepi og tómatsósu; III)
Að auka ropa og vindspenning í
fólki með grænmeti; IV) Að drepa
ferðafólk í tjöldum með dósaeitri í
dósamat; V) Skafa að innan hausinn
á fólki með útvarpinu; VI) Flytja
inn kynsjúkdóma og lauslæti með
erlendum gopanærfötum […] VII)
Auka botnlangaköst með innflutn-
ingi á rándýrum rúsínum með stein-
um.“
Eftir Örn Ólafsson
Örn Ólafsson
»Merk tíðindi urðu
í árslok 2012 með
endurútgáfu einnar
merkustu skáldsögu
20. aldar.
Höfundur er bókmenntafræðingur
í Kaupmannahöfn.
Tómas Jónsson
metsölubók
endurútgefin
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Söngskólinn íReykjavík
Næsta 7 vikna námskeið
vetrarins hefst 3. marsSÖNGNÁMSKEIÐ
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10-16 alla virka daga•www.songskolinn.is
Allir geta fundið eitthvað
fræðandi og skemmtilegt
við sitt hæfi!
Hvert námskeið stendur
í 7 vikur og lýkur
með prófumsögn
og tónleikum.
• Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
Tómstundagaman fyrir söngáhugafólk á öllum aldri
• Kennslutímar:
Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
• Söngtækni:
Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
• Tónmennt:
Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur
Sendu pöntun ámbl.is
eða hafðu samband í
síma 569-1100
ER ÞÍN
AUGLÝSINGIN
ÞAR?
Alla þriðjudaga fylgir
Morgunblaðinu
sérblað umBÍLA
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn. Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu.