Morgunblaðið - 20.02.2014, Page 70

Morgunblaðið - 20.02.2014, Page 70
70 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Torfi Björn Kristleifsson er lærður kjötiðnaðarmaður en í ár munhann útskrifast sem matreiðslumaður frá Menntaskólanum íKópavogi. Í starfshluta námsins hefur hann starfað á Icelandair Hotels en hann segir heillandi við matreiðsluna að þó að dagarnir séu keimlíkir, séu matreiðslumenn alltaf að fást við eitthvað nýtt. Torfi seg- ir afar mikilvægt að fylgjast með stefnum og straumum í matreiðslu úti um allan heim en sjálfur er hann áhugamaður um betri nýtingu matar. „Ég hef mikinn áhuga á því að fullnýta allt hráefni. Íslendingar eru mjög dulegir við að henda mat, sem er algjör óþarfi, því við hendum jafnvel hlutum af dýrum sem eru mjög auðnýtanlegir í eitthvað gott,“ segir Torfi. „Og ef ég get vakið áhuga einhvers á því að nýta eitthvað sem er venjulega ekki nýtt, þá er það eitthvað sem er mjög jákvætt.“ Torfi kemur úr mikilli skátafjölskyldu en foreldrar hans eru bæði skátar og segist hann hafa misst af undir tíu landsmótum frá fæðingu. Hann segir skátastarfið lífsstíl. „Þetta snýst um að umgangast náttúr- una af virðingu og vera virkur þegn í samfélaginu; vera tilbúinn til að taka þátt í samfélaginu,“ segir hann en alltof algengt sé að fólki láti sér fátt um finnast um allt og alla. Torfi segist oftar en einu sinni hafa lent í því að þurfa að færa afmælið sitt til vegna veðurs. „Ég hef nokkrum sinnum lent í því að það er glampandi sólskin tveimur dögum áður, en á afmælisdaginn minn fer að snjóa og allt er ófært,“ segir hann. Það kem- ur þó ekki að sök í dag, þar sem hann verður fastur í eldhúsinu fram undir kvöld. holmfridur@mbl.is Torfi Björn Kristleifsson er 34 ára í dag Saman Torfi, Erna Rún og börnin Kristjana Pálína og Viktor Logi. Hendum auðnýt- anlegu hráefni Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Kolbrún Klara fæddist 24. júní kl. 23.05. Hún vó 3.650 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Unnur Björk Hjartardóttir og Jón Þor- kell Gunnarsson. Nýir borgarar Reykjavík Vaka Austmann fæddist 28. september kl. 14.36. Hún vó 4.600 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Edda Harðardóttir og Gunnar Jóhannsson. H erdís fæddist í Reykjavík 20.2. 1974 en ólst upp í Garða- bæ. Hún gekk í Flataskóla og Garðaskóla, flutti til Reykjavíkur á unglingsárunum, var í Hlíða- skóla síðustu þrjú ár grunnskól- ans, lauk stúdentsprófi frá MR 1994 en var skiptinemi í Bólivíu 1991-92. Herdís lauk prófi sem leið- sögumaður frá Leiðsöguskóla Ís- lands 1996, B.Sc.-prófi í jarðfræði við HÍ 2000 og var þá síðasta misserið við háskólann á Sval- barða. Hún stundaði doktorsnám í jarðefnafræði við Cornell Univers- ity í Íþöku í New York-ríki í Bandaríkjunum 2003-2011 og lauk þar doktorsprófi. Að doktorsnámi Herdís Helga Schopka, sérfræðingur í umhverfismálum – 40 ára Leiðsögumaðurinn Herdís Helga kynnir staðhætti í fyrsta stoppi í Laugahrauni, í Laugavegsgöngu sumarið 2013. Doktor og ferðagarp- ur með ævintýraþrá Á Svalbarða Herdís með starfsfélögum við leiðsögn á Camp Mansfield, 2002. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.