Morgunblaðið - 20.02.2014, Page 71

Morgunblaðið - 20.02.2014, Page 71
loknu vann hún við jarðefnafræði- rannsóknir við Deutsches GeoFor- schungsZentrum í Potsdam í Þýskalandi 2011-2013. Herdís var leiðsögumaður og leiðangursstjóri á Íslandi og á Svalbarða meðfram námi og öðr- um störfum á árunum 1995-2003. Hún var jarðfræðingur á Orku- stofnun 2000-2001 og á Raunvís- indastofnun HÍ 2002-2003 en hef- ur verið sérfræðingur á sviði orkumála og jarðrænna auðlinda í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu frá 2013. Herdís var formaður Fjallsins, félags jarðfræðinema við HÍ, 1999, formaður félags framhaldsnema í jarðfræði við Cornell 2007, situr í stjórn Hins íslenska náttúrufræði- félags frá 2013 og sat í ritstjórn knúz.is, feminísks vefrits, 2012. Herdís hlaut Fulbright-styrk til náms í Bandaríkjunum 2003 og styrk frá Council of Women World Leaders til starfsnáms við um- hverfisráðuneytið í Reykjavík 2010. Fór til Suðurskautslandsins Þegar Herdís segist hafa áhuga á ferðalögum á hún ekki við ísbílt- úra austur í Hveragerði. Hún hef- ur alltaf haft áhuga á fjarlægðum og framandi slóðum og óbyggð- arferðum, hér á landi sem erlend- is: „Þetta er svona sambland af ævintýraþrá og ferðahug. Þess vegna fór ég til Bólivíu sem skipti- nemi á sínum tíma. Síðan tók ég eitt misseri af BSc.-náminu mínu á Svalbarða en þar starfrækja Norðmenn flott há- skólasetur. Þar komst ég í návígi við ísbjörn, sællrar minningar, en varð ekki meint af. Með náminu sinnti ég leiðsögn á Svalbarða í hlutastarfi sem síðan leiddi til þess að ég var leið- sögumaður og leiðangursstjóri þar í þrjú sumur og þrjá vetur. Ég vann svo doktorsverkefnið mitt að hluta til á Hawaii og á Fil- ippseyjum. Ég hef ferðast svolítið um Suður-Ameríku og um áramót- in 2001-2002 fór ég í ævintýraferð til Suðurskaustslandsins. Þá var siglt frá Ushuaia í Argentínu, far- ið í land á bátum, tvisvar til þrisv- ar á dag, gengið þar um og skoð- aðar mörgæsir. Þess á milli voru í boði fræðsluerindi um Suð- urskautslandið um borð í skipinu. Einn daginn sat skipið fast í ís í sólarhring. Það gaf ferðinni svolít- inn ævintýrablæ. En ég hef einnig haft gaman af gönguferðum hér heima. Ég gekk t.d. kringum Langasjó fyrir vestan Vatnajökul í fyrra og fyrir tveim- ur árum fór ég í viku gönguferð um Hornstrandir. Að ferðalögum slepptum snúast áhugamál mín einkum um tónlist, handavinnu, bókmenntir, hlaup og hjólreiðar.“ Fjölskylda Systkini Herdísar eru Júlíus Helgi Schopka, f. 12.6. 1972, kjálkaskurðlæknir í Reykjavík, og Lára Herborg Ólafsdóttir, f. 19.4. 1987, lögfræðingur í Reykjavík Stjúpbræður Herdísar eru Teit- ur Atlason, f. 23.3. 1969, frum- kvöðull, búsettur í Reykjavík, og Auðunn Atlason, f. 4.2.1971, sendi- herra í Vín í Austurríki. Foreldrar Herdísar eru Arndís Herborg Björnsdóttir, f. 27.5. 1945, kennari, búsett í Reykjavík, og Ottó Schopka, f. 4.9. 1941, við- skiptafræðingur, búsettur í Reykjavík. Stjúpa Herdísar er Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir, f. 24.10. 1943, markaðsstjóri og listakona. Úr frændgarði Herdísar Helgu Schopka Herdís Helga Schopka Karolina Mika húsfr. í Sandowitz Johan Gregor Schopka bakaram. í Sandowitz, Efri-Slésíu í Þýskalandi Júlíus Schopka kaupm. og ræðism. í Rvík Lilja Sveinbjörnsdóttir húsfr. í Rvík Ottó Schopka viðskiptafr. í Rvík Anna Ásmundsdóttir húsfr. í Rvík Sveinbjörn Jónsson verkam. í Rvík Guðrún Magnúsdóttir kennari og skáldkona í Rvík Jóhannes Teitsson húsasmíðam. í Rvík Björn Jóhannesson vélstj. í Rvík Oddný Ólafsdóttir kjólameistari í Rvík Arndís Herborg Björnsdóttir kennari í Rvík Sigríður Þorbergsdóttir húsfr. í Rvík Ólafur Hjálmarsson b. og vélvirkjam. frá Látrum í Aðalvík Snemma beygist krókur Herdís skoðar nýtt hraun í Vestmanna- eyjum með Júlla bróður, 1980. ÍSLENDINGAR 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2014 Louisa Matthíasdóttir listmál-ari fæddist í Reykjavík20.2. 1917. Foreldrar henn- ar voru Matthías Einarsson yf- irlæknir og k.h., Ellen Mat- thíasdóttir, systir Haralds, föður Matthíasar Johannessen, skálds og fyrrv. Morgunblaðsritstjóra, og afa Haraldar Johannessen Morg- unblaðsritstjóra. Matthías yfirlæknir var sonur Einars Pálssonar, spítalahaldara og verslunarmanns á Akureyri, bróðir Kristínar, húsfreyju á Hraunum í Fljótum, móður Páls Einarssonar, fyrsta borgarstjórans í Reykjavík. Louisa ólst upp í Höfða sem nú er móttökuhús borgarstjórnar, en þar átti fjölskylda hennar heima til 1938. Louisa gekk í Landakots- skóla, lærði auglýsingateiknun og skreytingarlist í Kaupmannahöfn í þrjú ár, kom heim 1937 en var síð- asta millistríðsveturinn við listnám hjá Gromaire í París, samtímis Nínu Tryggvadóttur. Louisa fór til New York 1942, stundaði myndlistarnám hjá Hoff- mann í Greenwich Village, kynntist þar manni sínum, Leland Bell myndlistarmanni, og var búsett í New York eftir það. Louisa fylkti sér ung í hóp fram- sækinna myndlistarmanna, varð fljótlega kunn í hópi New York- málara sem kenndir eru við fig- úratífa málverkið og er í hópi víð- frægustu og virtustu málara þjóð- arinnar. Myndefni hennar er áberandi íslenskt og hafði hún sér- stak dálæti á íslensku sauðkindinni. Þá málaði hún oft götumyndir frá gömlu Reykjavík, gjarnan niður af- hallandi þvergötur á Vesturgötu eða Laugaveg með útsýn til norð- urs. Í íslenskum umhverfismyndum hennar nýtur sín sérstaklega hin harða og gagnsæja íslenska birta. Louisa og Nína sóttu mikið til Erlendar í Unuhúsi eftir Par- ísarveturinn og kynntust þar m.a. Steini Steinar. Louisa og Steinn voru góðir vinir og bendir margt til þess að hún hafi verið stóra ástin í lífi hans. Louisa lést 26.2. 2000. Merkir Íslendingar Louisa Matthíasdóttir 90 ára Guðrún Guðmundsdóttir 75 ára Elín Birna Daníelsdóttir Elísabet Kristín Ólafsdóttir Sigrún Gunnarsdóttir Svava Ásdís Davíðsdóttir Þóra S. Guðmundsdóttir 70 ára Elísabet G. Pálsdóttir Erla Guðný Svanbergsdóttir Guðrún Árnadóttir Hjalti Nick Zóphóníasson Hörður H. Bjarnason 60 ára Anna Eyrún Halldórsdóttir Héðinn Konráðsson Magnús Haukur Norðdahl Margrét Sigrún Ólafsdóttir Stefán Örn Sigurðsson 50 ára Ásgeir Eiríkur Guðnason Einar S. Guðmundsson Elín Elísabet Jóhannsdóttir Ingvar Jón Jóhannsson Kristinn Snæbjörnsson Pétur Þór Halldórsson Sigurbjörg Th. Stefánsdóttir Þórir Jónsson 40 ára Agnieszka Monika Jaroszewicz Agnieszka Pawlik Alfreð Gísli Jónsson Andrea Ólöf Ólafsdóttir Bryndís Valdimarsdóttir Gerður Halldóra Sigurðardóttir Jóhanna Valgeirsdóttir Pradung Joknak Steinar Orri Sigurðsson 30 ára Adrian Siedlecki Casady Brooke Monroe Daði Kristjánsson Elín Ósk Helgadóttir Grétar Kristófer Sigþórsson Gunnar Þór Hjálmarsson Heiðdís Þóra Snorradóttir Óskar Reynisson Stefán Bonner Sæþór Björn Gunnarsson Weronika Justyna Skibinska Til hamingju með daginn 30 ára Lísa ólst upp í Ólafsvík og er húsfreyja í Njarðvík. Maki: Jón Óskar Magn- ússon, f. 1976, sjómaður. Börn: Alexandra Björk, f. 2001; Guðrún Vigdís, f. 2005, og Sigurður Ragn- ar, f. 2009. Foreldrar: Sigurður R. Lúðvíksson, f. 1958, vigt- arm. hjá Faxaflóahöfnum, og Júlíana Karlsdóttir, f. 1960, starfsm. við dval- arheimilið í Borgarnesi. Lísa Sigurðardóttir 40 ára Ólafur ólst upp í Gilsfjarðarmúla í Gilsfirði en er bóndi í Magnús- skógum í Hvammssveit. Maki: Anna Berglind Hall- dórsdóttir, f. 1980, bóndi. Synir: Björgvin Bragi, f. 2000; Ármann Freyr, f. 2005; Halldór Óli, f. 2007, og Atli Fannar, f. 2012. Foreldrar: Halldór Gunn- arsson, f. 1943, og Ólöf Snorradóttir, f. 1943, d. 2001. Ólafur Bragi Halldórsson 40 ára Vilhjálmur ólst upp í Kópavogi, er búsett- ur í Mosfellsbæ frá 10 ára aldri og rekur verktaka- fyrirtækið Fagverk. Maki: Sigrún Eiríksdóttir, f. 1975, skólaritari. Dætur: Íris, f. 1999; Tinna, f. 2002, og Lísa, f. 2004. Foreldrar: Matthías Ott- ósson, f. 1959, verktaki, og Svanhildur Vilhjálms- dóttir, f. 1960, starfs- maður á Eir. Vilhjálmur Þór Matthíasson Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón GJÖRIÐ SVO VEL!Hafðu það hollt í hádeginu HAFÐU SAMBAND OG FÁÐU TILBOÐ! HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat í hádegi. Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.