Morgunblaðið - 28.02.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkis-
ráðherra, mælti í gær fyrir þings-
ályktunartillögu sinni um að draga til
baka aðildarumsókn Íslands að Evr-
ópusambandinu. Gunnar Bragi sagði
meðal annars í ræðu sinni að ómögu-
legt væri fyrir ríkisstjórnina að
halda aðildarviðræðum við ESB
áfram og að þjóðin vildi ekki ganga í
ESB. Þá væri nokkuð í það að hægt
væri að uppfylla Maastricht-skilyrð-
in.
Gunnar Bragi sagði einnig að
heimurinn væri stærri en Evrópa og
færði rök fyrir því að Íslandi væri
betur borgið utan Evrópu. Þá hefði
honum verið tjáð af stækkunarstjóra
ESB að Ísland væri velkomið í sam-
bandið þegar og ef það væri tilbúið til
þess. Einnig taldi hann ótal sóknar-
færi vera fyrir Ísland í alþjóðasamn-
ingum og fríverslunarsamningum
víðs vegar um heiminn. Þá lagði hann
jafnframt áherslu á mikilvægi þess
að viðhalda góðum samskiptum við
Evrópu.
Ítrekaði ásakanir um svik
Að lokinni ræðu Gunnars Braga
tók Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, til máls og gagn-
rýndi asann á þessari ákvörðun. Þá
ítrekaði hann einnig ásakanir í garð
stjórnarflokkanna um að hafa svikið
þá stefnu sem þeir boðuðu fyrir síð-
ustu þingkosningar. Gunnar Bragi
vildi hins vegar ekki fallast á þessi
sjónarmið.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, hvatti utanríkisráð-
herra til þess að draga þingsályktun-
artillöguna til baka þar sem hún væri
vond. Því hafnaði ráðherrann.
Þá hefur Katrín Júlíusdóttir, vara-
formaður Samfylkingarinnar, lagt
fram skriflega fyrirspurn til utanrík-
isráðherra þar sem hún spyr að því
hvaða gögn búi að baki staðhæfing-
um hans um að ekki hafi verið meiri-
hlutavilji fyrir þingsályktun sumarið
2009 um að sækja um inngöngu í
Evrópusambandið.
Tillögunni vísað til nefndar
Umræður um þingsályktunartil-
lögu utanríkisráðherra um að draga
til baka aðildarumsókn að Evrópu-
sambandinu hófust í gær eftir að
samkomulag náðist á milli þing-
flokksformanna um áframhald máls-
ins. Fram að því hafði þingfundi
ítrekað verið frestað, en hann hófst
klukkan 10.30 og tóku margir til máls
undir liðnum fundarstjórn forseta.
Samkomulagið á milli stjórnarliða
og stjórnarandstöðunnar gekk út á
að umræða um skýrslu Hagfræði-
stofnunar um Evrópusambandið yrði
frestað og skýrslunni vísað til utan-
ríkismálanefndar Alþingis. Í fram-
haldi myndi Gunnar Bragi Sveinsson
mæla fyrir þingsályktunartillögu
sinni um að aðildarumsóknin að ESB
yrði dregin til baka. Umræðu yrði
síðan frestað og þings-
ályktunartillagan færi í framhaldinu
til utanríkismálanefndar. Þingfundi
var frestað klukkan rúmlega 19 í gær
en umræðu verður haldið áfram 10.
mars að loknum nefndadögum í
næstu viku.
Áframhald viðræðna ómögulegt
Heimurinn stærri en Evrópa Ísland sagt velkomið í ESB þegar það er reiðubúið Vilja að álykt-
unin verði dregin til baka Sakaðir um svik Þingsályktunartillagan næst tekin fyrir 10. mars
Morgunblaðið/Golli
ESB Gunnar Bragi Sveinsson fylgist
með Katrínu Jakobsdóttur í ræðustól.
Sjálfstæðismenn í borginni vilja
kanna þann möguleika hvort nýta
megi borgarstjórnarsalinn í Ráð-
húsi Reyjavíkur sem sýningarsal
fyrir fornrit þjóðarinnar yfir sum-
artímann. „Það er alveg ljóst í
mínum huga að það er ekkert því
til fyrirstöðu af hálfu borgarinnar
að bjóða fram salinn,“ segir Júlíus
Vífill Ingvarsson, oddviti
sjálfstæðismanna, um hugmynd-
ina.
Í tillögu sjálfstæðismanna, sem
Júlíus Vífill lagði fram á borgar-
ráðsfundi í gær, er lagt til að
Reykjavíkurborg bjóði salinn end-
urgjaldslaust fyrir sumarsýningu á
handritunum þá mánuði þegar
borgarstjórnarfundir falla niður og
jafnvel lengur, enda geti borgar-
stjórn haldið fundi sína tímabund-
ið á öðrum stað, ef svo ber undir.
Bókmenntaborg
„Ég verð mjög var við það að
talað sé um að það sé mjög und-
arlegt að þjóð sem byggir arfleifð
sína á handritunum og sögunum
skuli hvergi sýna þau. Og auðvitað
tek ég undir það. Mjög stór hluti
ferðamanna sem hingað koma er
meðvitaður um þessa sögu,“ segir
Júlíus Vífill og bætir því við að lík-
lega hafi alltof fáir Íslendingar
barið handritin augum.
Júlíus Vífill segir eðlilegt að
Reykjavíkurborg leitist við að
standa undir því að vera bók-
menntaborg UNESCO. Borgar-
stjórnarsalurinn sé bæði glæsi-
legur og hentugur, t.d. hvað
varðar öryggi, og sjálfsagt að
skoða þann möguleika að nota
hann undir sýningar á menningar-
arfinum. holmfridur@mbl.is
Vilja bjóða
salinn und-
ir handritin
Stendur tómur
yfir sumartímann
Morgunblaðið/Kristinn
Rúmgóður Júlíus Vífill segir salinn
bæði glæsilegan og hentugan.
Mikið fannfergi er á fjallvegum
og víða ófært um Mývatnsöræfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Birki Fanndal í Mývatnssveit er
t.d. ófært fyrir bíla að bílastæð-
inu við Hveri og hafa ferðamenn
því skilið bílana eftir á þjóðveg-
inum.
Þá hefur Þórhallur Kristjáns-
son unnið á jarðýtu sinni við að
fletja út snjóruðninga meðfram
þjóðveginum á Austurfjöllum,
vestan Jökulsár. Hann segir
mikla ruðninga vera víða á
þeirri leið. Þá er önnur ýta úr
Mývatnssveit austan Jökulsár í
samskonar verkefni á Bisk-
upshálsi.
Þórhallur telur að erfitt gæti
reynst að halda opnum þjóðveg-
inum með venjulegum sköfubíl-
um. Ef ekkert væri aðhafst
nema tvo daga í viku gæti fann-
fergið orðið óviðráðanlegt.
Ryður snjó á
jarðýtu sinni
FANNFERGIÐ MIKIÐ
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Ákveðið hefur verið að fresta fækk-
un snjómokstursdaga á Möðrudals-
öræfum á leiðinni milli Egilsstaða,
Mývatns og Vopnafjarðar til mánu-
dags en ákvörðunin átti að taka gildi
í dag. Margir hafa mótmælt þessari
ákvörðun um fækkun snjómoksturs-
daga og bent á þær neikvæðu afleið-
ingar sem ákvörðunin hefði í för með
sér.
„Þetta er algjörlega óásættan-
legt,“ segir Gunnar Jónsson, formað-
ur bæjarráðs Fljótsdalshéraðs. „Það
er verið að einangra allan fjórðung-
inn með þessu. Við höfum miklar
áhyggjur af öryggi íbúa fjórðungsins
en við vitum aldrei hvenær á þarf að
halda að koma sjúklingum til Akur-
eyrar. Vissulega er flugvöllur á Eg-
ilsstöðum en hann getur líka lokast.
Þá hefur þetta áhrif á atvinnulífið en
frá Seyðisfirði gengur ferja og þang-
að er mikill fiskflutningur. Sá fiskur
kemur að mestu leyti frá Eyjafjarð-
arsvæðinu. Það er verið að fara aftur
um ansi mörg ár ef þetta á að vera
svona,“ segir Gunnar.
Skerðir heilbrigðisþjónustu
Kristín Albertsdóttir, forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Austurlands,
telur þessa ráðstöfun ekki ógna ör-
yggi íbúa svæðisins en hafi hins veg-
ar áhrif á þjónustu stofnunarinnar.
„Þetta hefur einhver áhrif á okkar
þjónustu hvað varðar sjúkraflutn-
inga. Við reynum að keyra þegar
þess er kostur en flestir bráðaflutn-
ingar fara með flugi og þá sérstak-
lega yfir vetrartímann. Þá eigum við
í mjög góðu samstarfi við Vegagerð-
ina sem hefur verið okkur innan
handar þegar á þarf að halda.
Þetta kann hins vegar að hafa
áhrif á sjúkraflutninga milli stofnana
svo sem þegar flytja þarf sjúkling
sem hefur verið í aðgerð á Akureyri
til sjúkralegu og endurhæfingar hér
á umdæmissjúkrahúsinu í Neskaup-
stað. Þá gæti þetta þýtt fleiri legu-
daga á annarri hvorri stofnuninni,“
segir Kristín.
Víðtækar afleiðingar
Breyting þessi hefur víðtækar af-
leiðingar en Strætó hefur í kjölfar
þessa þurft að fækka akstursdögum
á leið 56 úr fjórum í þrjá enda aðeins
fært fyrir strætó þá daga sem mokað
er. Um leið og færð lagast mun
Strætó hefja á ný akstur samkvæmt
leiðarvísi. Þá sendi sveitarstjórn
Skútustaðahrepps frá sér ályktun í
gær þar sem ákvörðun þessi var
hörmuð.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Mývatnsöræfi Þórhallur Kristjánsson við jarðýtu sína, staddur við gatnamót að Hverum austan Námafjalls.
Hafa áhyggjur af
öryggi heimamanna
Fækkun snjómokstursdaga einangrar allan fjórðunginn
Umræður um skýrslu utanríkis-
ráðherra um aðildarviðræður við
Evrópusambandið og um þróun
mála innan sambandsins, stóðu yf-
ir á Alþingi dagana 19., 20. og 24.-
27. febrúar. Ræður þingmanna og
andsvör við þeim voru alls 608 og
stóðu í u.þ.b. 23 og hálfa klukku-
stund, samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Alþingis.
Skiptingin var með þeim hætti
að haldnar voru 80 ræður og
stóðu þær yfir í alls 632 mínútur,
eða 10 og hálfa klukkustund. Þá
veittu þingmenn 528 andsvör í 779
mínútur, eða tæpar 13 klukku-
stundir.
Þessa sömu daga tóku þing-
menn 496 sinnum til máls um
fundarstjórn forseta og töluðu í
samtals 552 mínútur, eða rúmar 9
klukkustundir.
Skýrslan var rædd
í 23 klukkustundir
Alls voru gefin út
3.432 íslensk
vegabréf í sein-
asta mánuði sam-
kvæmt upplýs-
ingum Þjóðskrár
Íslands og voru
þau rúmlega eitt
þúsund fleiri en í
sama mánuði í
fyrra. Í frétt á vefsíðu Þjóðskrár
segir að 2.423 vegabréf hafi verið
gefin út í janúar 2013 og hafi út-
gefnum vegabréfum því fjölgað um
41,6% milli ára.
Þau svör fengust hjá Þjóðskrá í
gær að starfsmenn vissu ekki um
neinar sérstakar ástæður fyrir
þessari aukningu. Fjöldi útgefinna
vegabréfa í janúar var líka mun
meiri en í desembermánuði þegar
gefin voru út 2.553 vegabréf og
fjölgunin er líka mikil ef miðað er
við janúarmánuð sl. þrjú ár.
Útgefnum vegabréf-
um fjölgaði um 42%
Tvö sveitarfélög hafa ákveðið að
taka þátt í tilraunaverkefni um raf-
rænar íbúakosningar. Þann 25. febr-
úar lauk fresti til að tilkynna þátt-
töku í tilraun Þjóðskrár Íslands um
rafrænu íbúakosningarnar sem hafa
verið í undirbúningi.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
skrár buðu tvö sveitarfélög sig fram,
Akranesbær og Rangárþing ytra.
Nokkur mál eru í deiglunni hjá báð-
um sveitarfélögunum sem vilji er til
að kjósa um og verður á næstu vik-
um unnið að því að velja og útfæra
nánar það efni sem kosið verður um.
Bjóða upp á rafræn-
ar íbúakosningar