Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Stundum er fullyrt að mikiðgangi á á stöðum sem heim-
ilisfastir haldi nafla alheimsins en
aðrir láti sig litlu skipta átök og erj-
ur.
Valdabarátta í neðanjarðarbyrg-inu í Berlín á vormánuðum
1945 var þekkt dæmi, en hún geis-
aði á meðan allt var sprengt í rúst
uppi á yfirborðinu.
Skömmu áður en Sovétríkinhrundu gerðu nokkrar fylli-
byttur í Æðstaráðinu byltingu, lok-
uðu Gorbasjef inni í sumarhúsi sínu
og létu nokkra skriðdreka hlunkast
í hringi á Rauðatorginu svo Len-
ínvaxmyndin hafði ekki svefnfrið í
grafhýsi sínu.
Sagt er að þegar jólasveinar hafaþraukað í 11 mánuði að bíða
eftir jólunum sé skapið orðið illt og
Bjúgnakrækir saki Hurðaskelli um
kjötát og Stúfur segist illa þola
vistina innan um smámennin. Lætin
á þinginu minna á þetta.
Þar á formsins vegna að sam-þykkja að aðildarumsóknin að
ESB, sem varð bráðkvödd í síðustu
kosningum og sjálfdauð skömmu
síðar, verði lögð til hinstu hvíldar.
Verður henni komið fyrir í kistunni
þar sem andi tæru vinstristjórn-
arinnar hvílir ásamt stjórnlaga-
ráðinu, Icesave, skjaldborginni og
öðru því líku einskisverðu drasli.
En við kistulagninguna urðu gaml-
ar kempur eins og umskiptingar og
náði móðursýkin hámarki þegar
svikabrigslin hófust.
Voru þau fullkomnuð þegarSvikahrappur mesti hóf sjálfur
þátttöku. Þá þótti áhorfendum það
borðið fulldekkað.
Lítil sjón að sjá
STAKSTEINAR
V M - F É L A G V É L S T J Ó R A O G M Á L M T Æ K N I M A N N A
STÓRHÖFÐA 25 - 110 REYKJAVÍK - 575 9800 - WWW.VM.IS
Nánari upplýsingar á heimasíðu VM, www.vm.is.
Dagskrá:
Miðlunartillaga
Ríkissáttasemjara
REYKJAVÍK
Mánudaginn
3. mars kl. 20:00
að Stórhöfða 25, 3. hæð
Fundurinn verður
sendur út gegnum
fjarfundarbúnað. Þeir sem
vilja fylgjast með fundinum
sendi beiðni þar um ásamt
símanúmeri á gudnig@vm.is.
Hægt verður að senda inn
fyrirspurnir á gudnig@vm.is
á meðan fundi stendur.
ATH. KOSNING UM TILLÖGUNA STENDUR
NÚ YFIR - ÞITT ÁLIT SKIPTIR MÁLI.
FÉLAGSFUNDUR VM
Veður víða um heim 27.2., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 6 skúrir
Ósló 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 5 þoka
Stokkhólmur 2 þoka
Helsinki 1 skýjað
Lúxemborg 3 skúrir
Brussel 6 skýjað
Dublin 6 skúrir
Glasgow 3 léttskýjað
London 8 léttskýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 6 skýjað
Hamborg 10 léttskýjað
Berlín 10 heiðskírt
Vín 8 léttskýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 15 skýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -27 skýjað
Montreal -8 snjóél
New York -1 alskýjað
Chicago -13 léttskýjað
Orlando 11 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
28. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:39 18:43
ÍSAFJÖRÐUR 8:49 18:42
SIGLUFJÖRÐUR 8:33 18:25
DJÚPIVOGUR 8:10 18:11
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Akraneskaup-
staður mótmælir
áframhaldandi
gjaldtöku í Hval-
fjarðargöngum
eftir að Spölur
afhendir þau rík-
inu árið 2018, en
það ár er gert
ráð fyrir því að
skuldir vegna
ganganna verði uppgreiddar. Þetta
kemur fram í bókun bæjarráðs á
Akranesi, sem samþykkt var í
gær.
Þar kemur fram að mikilvægt sé
að huga þegar að tvöföldun Hval-
fjarðarganga í því skyni að auka
öryggi vegfarenda. Bæjarráðið tel-
ur hins vegar að íbúar og forsvars-
menn fyrirtækja á Akranesi og
Vesturlandi geti ekki einir lands-
manna búið við sérstakar álögur
vegna nauðsynlegra úrbóta í sam-
göngumálum.
Frá því að Hvalfjarðargöng voru
opnuð hafi átt sér stað úrbætur í
vegamálum víða á landinu, m.a.
með tvöföldun Reykjanesbrautar
og undirbúningi að breikkun Suð-
urlandsvegar. Íbúar á þessum
svæðum hafi ekki þurft að greiða
sérstakt gjald fyrir þær fram-
kvæmdir.
Fagna Sundabraut
„Akraneskaupstaður fagnar
framkominni þingsályktunartillögu
um að setja Sundabraut aftur á
samgönguáætlun. Lagning Sunda-
brautar skiptir miklu máli fyrir
íbúa á Akranesi þar sem hún stytt-
ir vegalengdina til Reykjavíkur um
tíu kílómetra. Þá hafa bættar sam-
göngur áhrif á núverandi atvinnu-
starfsemi og uppbyggingaráform á
Akranesi og í nágrenni,“ segir í
bókuninni.
Mótmæla
áformum
um frekari
gjaldtöku
Úrbætur annars
staðar án gjalds