Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 4
2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 18.00 00.00 06.00 12.00 18.00 PM10 - Míkrógrömm/m3 Svifryksmengun í Reykjavík 19. febrúar Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Svifryksmengun í Reykjavík mæld- ist hæst rúmlega fjórfalt meiri en hún mældist hæst í Peking miðviku- daginn 19. febrúar. Heilbrigðis- fulltrúi hjá Reykjavíkurborg bendir þó á að ólíku sé saman að jafna þar sem á Íslandi hafi þennan dag svif- rykið verið mestu sandur en í Peking séu ýmis skaðleg efni í svifrykinu sem tengist iðnaði í borginni. „Það er engan veginn raunhæft að bera Reykjavík saman við Peking þegar kemur að loftmengun. Þar eru reykspúandi verksmiðjur og allt aðr- ar aðstæður þegar að þessu kemur,“ segir Kristín Lóa Ólafsdóttir, heil- brigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Svifryk mældist 2.113 míkró- grömm á rúmmetra við Grensásveg klukkan 13.30 umræddan miðviku- dag. Til samanburðar má nefna að á „venjulegum degi“ mælist svifryk undir 20 míkrógrömm á rúmmetra. Í Peking mældist svifrykið hæst 524 míkrógrömm á rúmmetra. 25-30% náttúrulegt svifryk Loftgæði teljast mikil þegar sólar- hringsgildi svifryks mælist 50 mík- rógrömm eða minna á rúmmetra, þau eru sögð miðlungs séu þau 50- 100 míkrógrömm og ef talan fer yfir 100 eru loftgæði sögð lítil. Verði styrkurinn meira en 150 míkró- grömm geta einstaklingar sem ekki eiga við vandamál í öndunarfærum að stríða fundið fyrir óþægindum. Að sögn Kristínar er ástæða þess að svifryksmengun mældist svo mik- il hinn 19. febrúar sú að mikið hefur verið saltað og sandborið í borginni miðað við undanfarin ár og að auki hafi verið mikil þurrkatíð. Svifryksmengun er ólík eftir því hvort hún er náttúrulegs eðlis eða af mannavöldum. Því minni sem agn- irnar eru því meiri er skaðsemin. Í stórum dráttum má segja að fínni svifryksagnir séu flestar af manna- völdum (frá bruna eldsneytis), en þær grófari frá náttúrulegum upp- sprettum á borð við ösku úr eldgos- um. Svifryksagnir eru ekki aðeins ólíkar hvað stærð varðar. Eiginleiki agnanna er breytilegur eftir upp- runa þeirra. Könnun á samsetningu svifryks sýnir að að öllu jöfnu komi 25-35% svifryks í Reykjavík frá nátt- úrulegum uppsprettum. Svifryk af mannavöldum kemur frá allri starf- semi, en mest frá eldsneytisbruna, umferð og iðnaði. Mældist fjórfalt meira en í Peking  Óvenju mikið svifryk í Reykjavík 19. febrúar  Samsetningin önnur í Peking 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Við gerðum kjarasamningana á þessari forsendu, að það voru allar aðstæður til þess að við gætum náð verðbólgunni niður fyrir verð- bólgumarkmið Seðlabankans. Þessir kjarasamningar eru að skila kaupmætti,“ segir Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ, í tilefni af nýrri mælingu Hagstofunnar á hækkun neysluverðsvísitölunnar í febrúar. Verðbólgan hefur verið á hraðri niðurleið að undanförnu og mælist ársverðbólgan í febrúar 2,1%. Hún er komin niður fyrir 2,5% verð- bólgumarkmið Seðlabankans. Benda Samtök atvinnulífsins á að þetta sé í fyrsta skipti í tvö og hálft ár sem verðbólgan mælist undir verðbólgumarkmiðinu. Í umfjöllun greiningardeildar Arion banka segir að ekki hafi mælst jafn lítil hækkun í febrúarmánuði síðan árið 2009. Lítil merki séu um verð- bólguþrýsting um þessar mundir. Lækkun verðbólgunnar var eitt meginmarkmið kjarasamninganna á almenna vinnumarkaðinum sem gerðir voru í desember. „Þetta sýn- ir með ótvíræðum hætti að þetta var hægt og hefur gengið eftir. Verkefnið er að viðhalda stöðugu umhverfi áfram,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir þetta jafnvel enn betri þróun en menn þorðu að vona. Þegar setið var við samn- ingaborðið í desember töldu menn verulegar líkur á að verðbólgan gæti farið niður fyrir 2,5% í febr- úar. ,,Nú hefur það gengið eftir og vel það. Þetta styður mjög vel við kjarasamningana sem gerðir voru og það markmið að þeir skiluðu raunverulegri kaupmáttaraukn- ingu. Verkefnið fram á veginn er að tryggja að við náum að halda okkur í þessu umhverfi áfram. Það er líka gleðiefni í þessu að við sjáum að undirliggjandi verð- bólga án húsnæðis er nær engin. Það er fyrst og fremst húsnæðislið- urinn sem knýr verðbólguna áfram í þessum tólf mánaða takti og það er í sjálfu sér jákvætt fyrir verð- bólguhorfur út þetta ár að kraft- urinn í hækkunum húsnæðisliðar- ins virðist vera heldur minni en gert var ráð fyrir. Það ætti að auð- velda okkur þá vinnu að halda verðbólgunni innan 2,5% marksins á komandi mánuðum,“ segir Þor- steinn. Gylfi telur allar líkur á því að launavísitalan hækki um tæp 4% á þessu ári ef reiknaðar eru bæði umsamdar launahækkanir og und- irliggjandi þættir kjarasamninga á borð við starfsaldurshækkanir. „Það þýðir þá miðað við þetta að kaupmáttaraukningin verði tæp- lega 2%,“ segir hann. Gylfi segir allar forsendur fyrir því að takast megi að halda verð- bólgunni vel undir verðbólgumark- miði Seðlabankans það sem eftir lifir ársins. ,,Við ætlum að reyna að festa þetta í sessi. Það er markmið aðfararsamningsins en mér finnst svolítið skorta á skýrari aðkomu stjórnvalda,“ segir hann. Gylfi bendir á að bæði greining- araðilar og Seðlabankinn spá aukn- um verðbólguþunga á árunum 2015 og 2016 sem sé mikið áhyggjuefni ef það gengur eftir. 11% hækkun flugfargjalda Samkvæmt skýringum Hagstof- unnar á breytingum neysluverðs- vísitölunnar er vetrarútsölum víða lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% milli janúar og febr- úar. Flugfargjöld til útlanda hækk- uðu um 11,0% (0,14% vísitöluáhrif) en verð á dagvörum lækkaði um 0,6%. „Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,1% og vísitalan án húsnæðis hef- ur hækkað um 0,8%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neyslu- verðs hækkað um 0,5% sem jafn- gildir 1,9% verðbólgu á ári (0,4% verðbólgu fyrir vísitöluna án hús- næðis),“ segir í skýringum. Morgunblaðið/Ómar Hægir á Verðbólga hefur ekki verið minni frá í ársbyrjun 2011. Matur og drykkir lækkuðu í febrúar en föt, skór, flugfargjöld og eldsneyti hækkuðu. „Reyna að festa þetta í sessi“  Verðbólgan hefur gengið hratt niður og mælist nú 2,1%  Undirliggjandi verðbólga án húsnæðis er nær engin  Kaupmáttur gæti aukist um tæp 2% í ár Verð á mat- og drykkjarvörum lækkaði frá því í janúar en ASÍ benti í gær á að lítið bóli þó á lækkun á innfluttum matvörum þrátt fyrir mikla gengisstyrkingu undanfarna mánuði og yfirlýs- ingar forsvarsmanna matvöru- verslana um lækkanir á vöruverði. Gylfi Arnbjörnsson bendir á að húsnæðisliðurinn vegur þungt eða meira en helming af þeirri breyt- ingu sem varð á neysluverðs- vísitölunni. Á 12 mánaða tímabili er hækkun hans 7,4% en líta þurfi á fleiri liði s.s. 4,6% hækkun bú- vara miðað við tólf mánaða tíma- bil og 3,7% hækkun opinberrar þjónustu. Æði margir, s.s. opinberir aðilar, landbúnaðarkerfið o.fl. þurfi því að meta stöðu sína og ábyrgð. Menn muni eflaust sökkva sér nið- ur í að greina hvað þarna er á ferð- inni í framhaldinu. Húsnæðið vegur þungt MAT- OG DRYKKJARVÖRUR LÆKKUÐU Í FEBRÚAR Reglur um sölu byggingarréttar í Reykjavíkurborg eru í andstöðu við vaxandi eftir- spurn eftir minni íbúðum en ólíkt því sem gengur og gerist í nágrannasveitar- félögunum mið- ast lóðarverð við fjölda íbúða en ekki fermetrastærð. Þetta kemur fram í tillögu borg- arráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem lögð var fram á borgarráðs- fundi í gær, en þar er lagt til að regl- unum verði breytt þannig að sala byggingarréttar, að meðtöldum gatnagerðargjöldum, miðist við fer- metra fjölbýlishúsa í stað fjölda íbúða. „Við höfum stundum verið að leita skýringa á því hvers vegna upp- bygging á höfuðborgarsvæðinu er meiri utan Reykjavíkur, þ.e.a.s. í ná- grannasveitarfélögunum, og þetta getur verið ein af ástæðunum,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn. Hann bendir á að Samtök iðnað- arins hafi nýlega vakið máls á því hversu ósanngjörn umrædd regla er en í tillögu sjálfstæðismanna kemur m.a. fram að sé íbúðum í fjölbýlis- húsi fjölgað úr 10 í 20, hækki lóð- arverð á íbúð um 2,3 milljónir þrátt fyrir að heildarfermetrafjöldinn sé óbreyttur. Júlíus Vífill segir borgarráðsfull- trúa og starfsmenn borgarinnar, sem hann hefur rætt við, hafa tekið vel í tillöguna. „Það eru allir sam- mála um það í borgarstjórn að liðka til fyrir ungu fólki sem er að koma inn á markaðinn og stofna heimili, en það verður að hafa meira en vilja til þess, það verður að gera eitthvað í því.“ holmfridur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Heima Það vantar fleiri litlar íbúðir. Reglur í andstöðu við eftirspurn  Verð miðast við fjölda í stað stærðar Júlíus Vífill Ingvarsson 2.113 Hæsta gildi svifryks í Reykjavík í míkrógrömmum /m3 19. febrúar. 524 Hæsta gildi svifryks í Peking í míkrógrömmum /m3 19. febrúar. 20 Meðalsólarhringsgildi í Reykjavík í míkrógrömmum /m3. ‹ SVIFRYK › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.