Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
✝ Sigurbjörg Jó-hanna Þórð-
ardóttir fæddist á
Breiðabólsstað á
Fellsströnd í Dala-
sýslu 5. febrúar
1924. Hún lést á
Hrafnistu í Hafn-
arfirði 18. febrúar
2014.
Sigurbjörg var
dóttir hjónanna
Steinunnar Þorgils-
dóttur, húsmóður og kennara,
og Þórðar Kristjánssonar,
bónda og hreppstjóra. Systkini
Sigurbjargar: Ingibjörg Hall-
dóra, Guðbjörg Helga, Friðjón,
Sturla og Halldór Þorgils. Sig-
urbjörg ólst upp á Breiðabóls-
stað ásamt systkinum sínum og
tók þátt í öllum almennum bú-
störfum á stóru heimili. Mennt-
un sína fékk hún hjá Steinunni
móður sinni og hélt síðan til
Reykjavíkur 17 ára gömul og
hóf nám í Kennaraskólanum. Að
námi loknum var hún farkenn-
ari í Fellsstrandar- og Klofn-
ingsskólahéraði í Dalasýslu í
einn vetur, við St. Jósefsskólann
í Hafnarfirði í einn vetur og við
Landakotsskóla í einn vetur.
sambýliskona hans Sigurbjörg
Helga Gunnbjörnsdóttir, börn
þeirra, Freyja Lind og Lilja
Lind og Hlynur Már, kærasta
hans Jóna Sigríður Halldórs-
dóttir. 3) Kristján, f. 8.10. 1960,
skrifstofustjóri búsettur í Kópa-
vogi, kvæntur Guðrúnu Bene-
diktu Elíasdóttur, börn þeirra:
Salóme Mist, Benedikta Gabrí-
ella, gift Jóhanni Agnari Ein-
arssyni, börn þeirra Gabríella
Vilborg og Viktor Frosti, og
Gísli Benóný. 4) Gísli Örn, f.
17.4. 1965, rafvirki búsettur í
Kópavogi, kvæntur Birnu
Bjarnadóttur, börn þeirra
Kjartan Steinar, kærasta hans
Unnur Margrét Unnarsdóttir,
Kristófer Hlífar og Sigurbjörg
Jóhanna, kærasti hennar Sig-
urður Örn Arnarsson.
Sigurbjörg var í fjölda ára
prófdómari við Kársnesskóla í
Kópavogi og síðan kennari sex
ára barna við sama skóla í rúm
20 ár. Sigurbjörg tók þátt í
starfi Kvenfélags Kópavogs og
Kvenfélagasambands Kópavogs
og var formaður þar í nokkur
ár. Sigurbjörg var í Skógrækt-
arfélagi Kópavogs ásamt Gísla
eiginmanni sínum. Hún var í
Breiðfirðingafélaginu og í
Breiðfirðingakórnum. Einnig
var hún í Eftirlaunakór kenn-
ara.
Útför Sigurbjargar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag, 28.
febrúar 2014, kl. 13.
Hún starfaði um
tíma í Bún-
aðarbankanum í
Reykjavík. 1951
giftist Sigurbjörg
Gísla Benóný Krist-
jánssyni, f. 24.4.
1920 á Ísafirði.
Gísli lést 1.5. 2011.
Foreldrar Gísla
voru Kristján
Hannes Magnússon
og Rannveig Sal-
óme Sveinbjörnsdóttir. Sig-
urbjörg og Gísli hófu búskap
sinn í Reykjavík en fluttu í
Kópavoginn 1952 og bjuggu þar
alla tíð. Sl. þrjú ár dvaldi Sig-
urbjörg á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Sigurbjörg og Gísli eiga
fjóra syni, þeir eru: 1) Unnsteinn
Þórður, f. 7.3. 1952, arkitekt,
búsettur í Kópavogi, var kvænt-
ur Guðrúnu Jónsdóttur, börn
þeirra, Sarah, gift Olav Fekkes
og Davíð, kvæntur Evu Björk
Eggertsdóttur, börn þeirra Óli-
ver Breki, Ísak Rökkvi og Álf-
heiður Myrra. 2) Magnús, f. 11.6.
1957, skrifstofustjóri búsettur í
Kópavogi, var kvæntur Elínu
Kristinsdóttur, börn þeirra,
Hrafnhildur Ósk, Halldór Örn,
Hún var há og grönn og fríð,
bar sig vel og var sköruleg í fram-
komu. Það gustaði af henni, hún
var bæði orðheppin og kjarnyrt,
söngvin og hög í höndum. Kenn-
ari af lífi og sál. Hún var gæfu-
manneskja.
Sigurbjörg Jóhanna Þórðar-
dóttir frá Breiðabólsstað, Sigga
móðursystir, er í dag kært kvödd
við lok langrar ævi. Það var henni
líkt að búast til farar rétt eftir að
hafa fyllt níunda tuginn. Góðu
heilli hélt hún sínu andlega at-
gervi. Þegar við bræður heim-
sóttum hana nýlega var það sem
löngum fyrr, margt skemmtilegt
og fyndið bar á góma. Hún gat lit-
ið þakklát yfir farinn veg, þreytt
en æðrulaus, stolt af sínu fólki
enda afkomendahópurinn bæði
stór og glæsilegur.
Sigga hafði dökkt yfirbragð,
brún augu og svart hár, sem sum-
ir kalla keltneskt en einkennir
marga Dalamenn. Hún bar sterk-
an svip af Þórði föður sínum en
minnti mjög á Steinunni móður
sína að öðru leyti, einkum með ár-
unum; skapgerðin var lík, svo og
hugðarefnin. Þau systkin ólust
upp við söng og ást á fögrum
kveðskap, sem reyndist þeim dýr-
mætt veganesti á lífsleiðinni.
Systurnar tvær, Nenný og
Sigga, fluttust báðar suður á
fimmta áratugnum og áttu nána
samleið ávallt síðan. Milli heim-
ilanna lágu gagnvegir. Þótt þær
væru afskaplega ólíkar var samt
svo margt líkt með þeim. Það var
þessi blíði strengur. Í huganum
enduróma löng og skilmerkileg
símtöl, oft í viku, þar sem farið
var vítt og breitt yfir mál dagsins,
hlegið dátt og kveðið fast að orði.
Sigga átti ung í erfiðum veik-
indum, dvaldi á berklahælinu á
Vífilsstöðum en náði bata um síð-
ir. Hún glímdi við ýmsan heilsu-
brest um dagana en alltaf reis
hún upp. Barlómur var fjarri
henni og erfiðleikum mætti hún
af hugrekki. Hún höndlaði gæf-
una, eignaðist góðan og traustan
mann, Gísla Benóný, og stóra fjöl-
skyldu. Það var alltaf hressandi
að koma á heimili þeirra á Þing-
hólsbraut, líf og fjör á bænum og
ósjaldan margt um manninn. Sex-
tíu urðu árin þeirra Gísla.
Þegar hægjast fór um og
yngsti sonurinn hóf skólagöngu
tók við nýr kafli hjá Siggu. Hún
dró fram kennaraprófið sem hún
átti í handraðanum og gerðist
barnakennari við Kársnesskóla.
Þar átti hún langan og farsælan
feril og kenndi ávallt yngstu
bekkjunum. Hitt hef ég gamla
nemendur sem minnast hennar
með mikilli hlýju og finnst þeir
lánsamir að hafa notið hand-
leiðslu hennar. Enda var Sigga
fæddur kennari; metnaðarfull, lét
vel að halda uppi aga en var jafn-
framt blíð og lagin.
Þau Gísli voru samhent í að
láta gott af sér leiða í mannlífi
Kópavogsbæjar þar sem þau
bjuggu alla tíð. Sigga var ákaf-
lega félagslynd og starfaði ötul-
lega með kvenfélaginu um árabil
– flutti eitt sinn ávarp fjallkon-
unnar á 17. júní. Það hlutverk fór
henni óneitanlega vel.
Nú þegar Sigga kveður verða
kaflaskil, langri sögu lýkur en þá
er litið um öxl; maður sér hana
fyrir sér, með ömmu og afa,
systkinunum sem gengin eru og
ættingjunum öllum. Það er verið
að taka lagið, Fjárlögin óma – og
auðvitað í röddum.
Fyrir hönd okkar systkinanna
þakka ég langa samfylgd og vin-
áttu og hugarþelið hlýja.
Blessuð sé minning hennar.
Pétur Ástvaldsson.
Sigurbjörg Þórðardóttir, mág-
kona mín, kvaddi þetta jarðlíf 18.
febrúar sl. Þá rétt orðin 90 ára
Sigga dvaldi síðustu árin á Hrafn-
istu í Hafnarfirði, þar sem hún
naut góðrar aðhlynningar og um-
hyggju starfsfólks. Það var þó lítt
að hennar skapi að vera upp á
aðra komin og geta ekki farið
sinna ferða án aðstoðar, þó að hún
væri þakklát fyrir þá umhyggju
sem hún naut á Hrafnistu. Sigga
var alla tíð sjálfstæð og dugleg
kona rösk og drífandi í verkum
sínum. Systkini Siggu voru fimm,
en elsta systirin, Halldóra lést 17
ára gömul. Sigga ólst upp á miklu
menningarheimili, Breiðabóls-
stað á Fellsströnd. Þar voru
söngur og tónlist í hávegum höfð
og mikið sungið er fólk kom sam-
an. Heimahagarnir og æskuheim-
ilið voru Siggu afar kærir eins og
reyndar systkinunum öllum. Þótt
þau flyttu að heiman var hugur-
inn heima að fylgjast með störf-
um og fólkinu þar. Sigga fór ung í
kennaraskólann og lauk þaðan
prófi eftir þrjú ár. Hún kenndi
síðan í sveitinni sinni einhvern
tíma en veiktist þá af berklum,
sem þá geisuðu í landinu og barð-
ist við þann sjúkdóm í þrjú ár.
Hún var meðal annars send á
heilsuhæli til Svíþjóðar um tíma.
Eftir að hún náði bata hóf hún
störf í Búnaðarbankanum, þar
sem hún kynntist eiginmanni sín-
um Gísla Kristjánssyni frá Ísa-
firði. Þau stofnuðu fljótlega heim-
ili í Kópavogi og áttu þar heimili
sitt alla tíð. Þau eignuðust fjóra
syni sem allir eru dugandi sóma-
menn. Eftir að þeir uxu úr grasi
hóf Sigga störf við Kársnesskóla
og kenndi þar yngstu börnunum.
Sigga var kennari af lífi og sál og
var virtur og vinsæll kennari. Eft-
ir að hún fór á eftirlaun var oft
kallað í hana í forfallakennslu.
Gísli vann lengst af sem skrif-
stofustjóri í prentsmiðjunni
Eddu. Eftir að þau hjón fóru á
eftirlaun tóku þau virkan þátt í
starfi eldri borgara í Kópavogi og
Sigga var þar drifkraftur í margs
konar starfi, t.d. kórstarfi og
þjóðdönsum.
Þau hjón reistu sér sumarhús á
Breiðabólsstað og ræktuðu þar
mikið af trjám svo að nú ber bú-
staðurinn nafn með rentu, hann
var nefndur „Leynir“. Sigga og
Gísli voru áhugafólk um gróður
og skógrækt og bæði virkir fé-
lagar í skógræktarfélagi bæjar-
ins. Sigga var einnig ötul kven-
félagskona í Kópavogi og sinnti
þar margvíslegum störfum. Alltaf
var tekið á móti gestum af gest-
risni og hlýju á heimili Siggu og
Gísla og oft urðu líflegar og
skemmtilegar umræður við kaffi-
borðið.
Sigga var glæsileg kona sem
bjó fjölskyldu sinni fallegt heim-
ili. Alltaf var hún smekklega
klædd og vel til höfð, hún var há-
vaxin og bar sig eins og hefðar-
kona, sem hún vissulega var í allri
sinni framkomu. Ég vil að lokum
senda sonum hennar og fjölskyld-
um þeirra einlægar samúðar-
kveðjur. Með Siggu er horfin af
sjónarsviðinu mikil kjarnakona,
sem gott var að eiga að. Ég vil
þakka henni einlæga vináttu og
samfylgd gegnum meira en hálfa
öld og mæli þar fyrir alla mína
fjölskyldu. Sigga hélt sinni and-
legu reisn allt til loka og kvaddi
sátt við lífið. Með henni er horfin
kona sem setti svip sinn á samtíð
sína. Minning hennar mun lifa
með okkur um ókomin ár. Bless-
uð sé minning hennar.
Þrúður Kristjánsdóttir.
Kveðja frá Höllu- og Jónatans-
börnum.
Tímans rás óðfluga
áfram streymir
árin hverfa
í eilífðar sæ.
Ættarknörrinn
öldurnar klífur
(Sigurbjörg J. Þórðardóttir)
Sigurbjörg Jóhanna hét hún en
Sigga mágkona var hún yfirleitt
nefnd á okkar æskuheimili. Hún
var konan hans Gísla móðurbróð-
ur okkar og ein af þeim sterku
einstaklingum sem tengdust fjöl-
skyldu og afkomendum Kristjáns
móðurafa okkar og Salóme
ömmu. Þótt Gísli og Sigga byggju
í Kópavoginum en við vestur í
Bolungarvík, voru fjölskyldurnar
í góðum tengslum. Ræktarsemi
systkinanna og ekki síður maka
þeirra er eftirbreytni verð. Þótt
ekki sæjumst við sérlega oft á
þessum árum fengum við fréttir
og fylgdumst vel með Siggu, Gísla
og sonunum fjórum og þau með
okkur. Á hverjum jólum kom stór
pakki úr Kópavoginum, gjarnan
vel valdar bækur fyrir hvert okk-
ar fimm systkinanna. Um um-
hyggju og velvilja þurfti aldrei að
efast.
Sigga var mjög hagmælt, orð-
heppin og vel lesin. Hún var öflug
félagsmálamanneskja og starfaði
m.a. ötullega í Kvenfélagi Kópa-
vogs. Hún var afar tónelsk og
unni söng, enda söng hún við ýmis
tækifæri með mörgum kórum og
hópum í gegnum tíðina, spilaði á
píanóið og tók í harmónikku.
Sigga var kennari að mennt. Hún
lagði mikla áherslu á að börn
lærðu vísur og ljóð. Hún taldi það
efla þau og örva með ýmsum
hætti. Börnin myndu öðlast betri
tilfinningu fyrir fallegu máli, auka
við orðaforðann, bæta minni og
læra að bera virðingu fyrir menn-
ingararfinum. Hún tengdi það
einnig söngnum, þekkjandi þá
ánægju sem söngurinn einn getur
veitt.
Sigga og Gísli byggðu sér
heimili á Þinghólsbraut 72. Heim-
ilið var fallegt og hlýlegt og garð-
urinn einstakur. Allt bar merki
um smekkvísi, dugnað og vand-
virkni og þangað var gott að
koma.
Fyrir tæpum þremur vikum
gafst okkur tækifæri til að hitta
Siggu á níræðisafmæli hennar.
Þrátt fyrir veikindi undanfarinna
ára bar hún sig vel og aðdáun-
arvert þótti okkur að hún ynni
enn handavinnu og leysti kross-
gátur þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm.
Tryggðin og vonin
standa í stafni
stefnunni halda
í sólarátt.
(Sigurbjörg J. Þórðardóttir)
Við systkinin, fjölskyldur okk-
ar, faðir okkar og Sigrún þökkum
fyrir trygga og góða samfylgd.
Frændum okkar og fjölskyldum
þeirra sendum við einlægar sam-
úðarkveðjur.
Einar, Ester, Kristján, Elías
og Heimir Salvar Jónatans.
Kveðja frá Kársnesskóla
„Sem ég er að ausa mjöli í föt-
una kemur inn kona svo falleg og
vel tilhöfð að mér finnst að ég hafi
aldrei séð aðra eins. Þetta var
Sigurbjörg, dóttir hjónanna
Þórðar og Steinunnar á Breiða-
bólsstað, Sigga á Breiða. Hún
gengur fram hjá mér og leggur af
stað upp stigann, stoppar svo og
lítur niður til mín þar sem ég
stend við fóðurbætiskistuna og
segir: „Nei, sæll vertu. Þú ert víst
svo ansi duglegur í skólanum.“
Og svo heldur hún áfram upp
stigann án þess að bíða eftir við-
brögðum og það var eins gott því
að það snarleið yfir mig, ég hneig
yfir fötur kúnna. Reis þó brátt
upp. Þetta var reyndar í fyrsta
sinn sem mér hafði verið hælt á
ævinni af vandalausum en hól var
ekki til siðs í mínum uppvexti.“
(SG 2012)
Mér komu í hug þessi orð
Svavars Gestssonar, frænda Sig-
urbjargar Þórðardóttur, þegar ég
las andlátsfregn hennar á dögun-
um. Því þannig var Sigurbjörg,
glæsileg kona og smekkleg og
næm fyrir ungviði og uppvexti í
starfi sínu og umhverfi. Hún
starfaði við Kársnesskóla frá
1971 og vel fram á tíunda áratug-
inn við kennslu sex ára barna. Þar
lagði hún í raun grunn að því mik-
ilvæga starfi í skólanum sem
byrjendakennsla er og nýst hefur
skólanum til þessa dags. Sigur-
björg var traustur starfsmaður,
góður og skemmtilegur félagi og
nánast í guðatölu hjá nemendun-
um ungu.
Við færum fram innilegar
þakkir frá Kársnesskóla þegar
við kveðjum Sigurbjörgu í dag og
sendum ástvinum hennar dýpstu
samúðarkveðjur okkar.
Grétar Halldórsson,
aðstoðarskólastjóri
Kársnesskóla.
Í dag kveðjum við mæta konu,
Sigurbjörgu J. Þórðardóttur
kennara.
Það var fyrir um 30 árum að
samstarf og vinátta okkar Sigur-
bjargar hófst. Hún hafði þá um
nokkurt skeið kennt 6 ára börn-
um í Kársnesskóla við góðan
orðstír og lagt grunn að vel skipu-
lögðu námi 6 ára deilda skólans.
Í Kársnesskóla var lögð mikil
áhersla á lestrarnám og alla móð-
urmálskennslu og þar var nú ekki
komið að tómum kofunum hjá
minni konu. Sigurbjörgu var mik-
ið í mun að börnin í Kársnesskóla
yrðu vel læs, töluðu gott íslenskt
mál og væru vel ritfær. Fjöl-
breyttum kennsluaðferðum var
beitt sem gefa ekkert eftir þeim
aðferðum sem þykja ná sem best-
um árangri í dag. Sigurbjörg var
óhrædd við að fara nýjar leiðir,
opin fyrir nýjungum, en um leið
gagnrýnin á það sem betur mætti
fara.
Eitt af því sem einkenndi ís-
lenskunámið í Kársnesskóla á
þessum tíma voru kvæði, þulur og
ættjarðarljóð. Sigurbjög lagði
ríka áherslu á að börnin kynntust
þessum þjóðararfi og sem dæmi
má nefna að öll sex ára börn í
skólanum lærðu, Hver á sér fegra
föðurland eftir skáldkonuna
Huldu. Fyrsta erindið sungu
börnin síðan stolt fyrir foreldra
sína á vorhátíð sem ávallt var
fastur liður í starfi 6 ára deilda
skólans. Á hátíðinni fluttu nem-
endur einnig leikþætti sem samd-
ir höfðu verið af Sigurbjörgu og
var þá oftar en ekki komið inn á
umgengni við náttúruna og mik-
ilvægi trjáræktar.
Sigurbjörg var mikill náttúru-
verndarsinni og henni fannst
mikilvægt að nemendur lærðu að
bera virðingu fyrir náttúrunni
ekki síður en mannfólkinu. Í dag
er það eftirsóknarvert að vera
Skóli á grænni grein og fá afhent-
an Grænfánann. Umhverfis-
fræðsla á borð við þá sem fram
fór í Kársnesskóla í tíð Sigur-
bjargar hefði eflaust fært skólan-
um fyrr slíkan fána, ef völ hefði
verið á.
Sigurbjörg var ákaflega vel
látin sem kennari, hún hélt uppi
góðum aga, en sýndi jafnframt
nemendum sínum umhyggju um
leið og hún stýrði þeim styrkri
hendi í náminu. Sigurbjörg var
kennari sem vann sitt verk af eld-
móði og sannfæringu, hún var
hafsjór af fróðleik, skemmtileg,
söngelsk og hún reyndi að laða
það besta fram hjá nemendum
sínum.
Að fá tækifæri til að starfa við
hlið Sigurbjargar við kennslu 6
ára barna í Kársnesskóla var á
margan hátt ævintýri líkast. Hún
hreif mann með sér, taldi í mann
kjark, hugmyndir kviknuðu og
farið var á flug. Hlutir sem í
fyrstu virtust óyfirstíganlegir
reyndust síðan framkvæmanlegir
með hana sér við hlið. Að hafa
slíkan lærimeistara var ómetan-
legt.
Það er margs að minnast þegar
hugurinn reikar til baka, en ekki
get ég látið staðar numið án þess
að minnast á jólakortin frá henni
Sigurbjörgu. Kortin hef ég öll
varðveitt, þau eru fjársjóður
minninga, sem sýna alkunna rit-
snilld móðurmálskennarans Sig-
urbjargar J. Þórðardóttur. Lífs-
ganga mikilsmetins kennara er á
enda, en minningin lifir.
Sonum Sigurbjargar og fjöl-
skyldum þeirra votta ég dýpstu
samúð mína.
Hvíl í friði, kæra vinkona.
Sigrún K. Ragnarsdóttir.
Sigurbjörg Jó-
hanna Þórðardóttir
stutt hana dyggilega í veikindum
hennar. Hún var líka heppin með
drengina sína sem hún var alltaf
svo stolt af, sem og tengdadætr-
unum og barnabörnunum. Þessi
hópur var henni allt. Hún hafði
gaman af að segja manni sögur af
ömmustrákunum og tilsvörum
þeirra, enda átti hún gott með að
sjá það spaugilega í lífinu. Hún gat
meira að segja stundum séð eitt-
hvað spaugilegt við sjúkdóminn
sem hún hefur barist við í átta ár.
Hún var algjör hetja í veikindum
sínum, kvartaði aldrei, sagði í
mesta lagi þegar maður spurði
hvernig hún hefði það: „æ, það
gæti verið verra“ kom svo með
einhverja fyndna athugasemd
svona til að létta andrúmsloftið og
eyða áhyggjum.
Það var notalegt að skreppa til
Huldu eftir vinnu. Hún beið þá
eftir mér með dúkað borð, kaffi og
meðlæti og svo var spjallað. Ég
var fyrir löngu búin að gefast upp
á að biðja hana að hafa ekkert fyr-
ir mér, það hafði enga þýðingu,
hún var sannkallaður höfðingi
heim að sækja. Hún var líka ein-
staklega smekkleg kona og hafði
mikla ánægju af að prýða heimilið
sitt, alltaf allt svo fallegt og fínt í
kringum hana.
Fyrir stuttu fluttu Hulda og
Agnar í íbúð við Hæðargarð. Þar
voru þau búin að koma sér svo vel
fyrir, komin í nágrenni við Steinar
Geir og hans fjölskyldu og Huldu
fannst svo gaman að geta fengið
strákana hans í heimsókn eftir
skólann. Því miður fékk hún ekki
lengri tíma til að njóta þess.
Ég kveð vinkonu mína með
þakklæti fyrir samfylgdina í lífinu
og bið Guð að styrkja Agnar,
Steinar Geir, Atla Má og fjöl-
skyldur þeirra.
Sigurveig Helgadóttir.
Í dag kveðjum við með eftirsjá
góðan samstarfsfélaga og vin til
fjölda ára.
Hulda hóf störf hjá Iðju, félagi
verksmiðjufólks, árið 1996 sem
síðar varð Efling - stéttarfélag og
vorum við samstarfsfélagar allt til
seinni hluta árs 2011 en þá varð
hún að láta af störfum vegna
heilsubrests sem hún tókst á við af
miklu æðruleysi. Hulda hafði já-
kvæða lífssýn sem eflaust hefur
hjálpað henni í erfiðum veikindum
en ef maður spurði hvernig hún
hefði það vildi hún sem minnst úr
veikindunum gera og svaraði hún
gjarnan „svona er þetta bara“.
Hulda var nokkuð ákveðin og
skipulögð í öllu sem hún tók sér
fyrir hendur og reyndi oft á þá
hæfileika í hennar starfi. Hún vildi
hafa röð og reglu og skipulags-
leysi var ekki að hennar skapi.
Hulda var frábær vinnufélagi og
alltaf stutt í húmor og hlátur.
Við eigum margar skemmtileg-
ar minningar með þeim hjónum
Huldu og Agnari bæði í ferðalög-
um og frá ýmsum uppákomum í
starfsmannahópnum þar sem
margt var mallað og brallað og
alltof langt mál að tala um hér en á
einni af árshátíðum starfsmanna
var ort um Huldu:
Margir sækja um styrki og menntun
sína auka
úr menntasjóði Starfsafls má krónum
að þeim gauka.
Hulda rækir þetta af heiðarleika og
hlýju
og hún er líka fyndin alveg upp á tíu.
Fjölskyldan var Huldu mjög
dýrmæt og fengum við að fylgjast
vel með hinum ýmsu hamingju-
stundum í fjölskyldunni eins og
þegar barnabörnin fæddust eitt af
öðru og voru þau miklir gleðigjaf-
ar í hennar lífi.
Þær eru margar gleðistundirn-
ar sem við vinnufélagarnir áttum
með Huldu og munu þær lifa með
okkur. Hulda var ávallt jákvæð og
brosandi sama hvað gekk á og sú
minning verður okkar veganesti.
Elsku Agnar, Steinar, Atli og
fjölskyldur, megi góður Guð
styðja ykkur og styrkja á þessum
erfiða tíma.
Fyrir hönd starfsmanna,
Kristjana, Elín K. og Fjóla.