Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
16
13
SPARNEYTNIR
OG TRAUSTIR
Subaru Outback 2.0TD, sjálfskiptur, dísil
Verð: 6.890.000 kr.
6,3 l / 100 km
í blönduðum akstri
Subaru Forester PREMIUM, sjálfskiptur
Verð: 5.690.000 kr.
6,5 l / 100 km
í blönduðum akstri
Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur
Verð: 5.290.000 kr.
6,6 l / 100 km
í blönduðum akstri
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar / Reykjanesbæ / 420 0400 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622
Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070
IB ehf. / Selfossi / 480 8080
Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur
fyrst upp í hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél
og sítengt fjórhjóladrif með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn
að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5 stjörnur í árekstrarprófunum
EuroNCAP.
GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Íbúðalánasjóður áformar að selja á
þessu ári allt að 1.000 íbúðir, litlar
sem stórar, úr eignasafni sínu.
Gerðar hafa verið áætlanir um
framkvæmd sölunnar, en sjóðurinn
á alls um 2.600 eignir víða um land
og þá eru taldar með eignir sem
færðar hafa verið til leigufélagsins
Kletts.
Allar þessar eignir hefur Íbúða-
lánasjóður leyst til sín vegna van-
halda, það er að lántakendur hafa
ekki geta staðið við þær skuldbind-
ingar sem þeir stofnuðu til.
Víða þörf á húsnæði
„Það verður fyrirsjáanlega hreyf-
ing í eignasafninu næstu misserin,
til dæmis á síðari hluta ársins þegar
nauðungaruppboð hefjast aftur. Þá
gætum við þurft að leysa einhverjar
eignir til okkar,“ segir Sigurður Erl-
ingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs.
„En við þurfum
nauðsynlega að
selja, bæði til að
losa um fjármuni
og einnig er víða
þörf eftir íbúða-
húsnæði og því
markaður að
myndast.“
Íbúðalánasjóð-
ur hyggst selja allar fullnustueignir
sínar. Á Suðurnesjum, til dæmis í
Reykjanesbæ og Grindavík, á sjóð-
urinn um 920 eignir og á þessum
tímapunkti eru um 410 þeirra í
leigu. Aðrar, alls 510 eignir á Suður-
nesjum, eru í sölu. Auk þessa er í
eigu sjóðsins fjöldi eigna til dæmis á
Selfossi, austur á landi og í þeim
hverfum á höfuðborgarsvæðinu þar
sem mest var byggt fyrir hrun.
„Það mun taka einhver ár að selja
allar þessar eignir. Á Suðurnesjum
seljum við bæði stakar eignir en
einnig og jafnvel heil fjölbýlishús.
Þar koma stærri fjárfestar og fast-
eignafélög að málum. Okkar reynsla
er samt sú að áform þeirra ganga
oft ekki upp. Á stundum hafa náðst
samningar og kauptilboð eru í höfn
en ekki tekst að ljúka fjármögnun
kaupanna í bönkunum.“ segir Sig-
urður.
Áratugur í verkefnið
Hjá Íbúðalánasjóði er meðalverð
hverrar fasteignar áætlað um 20
millj. kr. og er þá samanlagt virði
þeirra 1.000 eigna sem selja á í ár
nærri 20 milljarðar króna.
„Auðvitað eru þær eignir misjafn-
ar eins og fjöldinn bendir til. Marg-
ar gætu selst fljótt, en reynslan er-
lendis frá þar sem stofnanir líkar
Íbúðalánasjóði þurfa að losa um stór
eignasöfn er að allt að áratug þarf í
verkefnið í heild sinni,“ segir for-
stjóri Íbúðalánasjóðs.
Reykjanesbær Íbúðalánasjóður hyggst selja allar fullnustueignir sínar. Á Suðurnesjum, til dæmis í Reykjanesbæ og
Grindavík, á sjóðurinn um 920 eignir og á þessum tímapunkti eru um 410 þeirra komnar í útleigu.
Selja 1.000 eignir á árinu
Hreyfing á eignasafni Íbúðalánasjóðs Verðmæti eigna í
sölu er um 20 milljarðar króna Mikið á Suðurnesjunum
Sigurður
Erlingsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt íslenska ríkið til að greiða
hælisleitanda 2.350.000 krónur í
skaðabætur vegna þeirrar með-
ferðar sem mál hans hlaut hjá ís-
lenskum stjórnvöldum. Hann þurfti
meðal annars að sæta gæslu-
varðhaldi að ósekju og var sendur
aftur úr landi án þess að mál hans
fengi efnislega úrlausn hér á landi.
Fallist var á með manninum að
ekki hefði verið gætt réttra reglna
við meðferð hælisumsóknar hans.
Niðurstaða dómsins er sú að mað-
urinn hafi sætt gæsluvarðhaldi í of
langan tíma og af þeim sökum hafi
íslenska ríkið bakað sér bótaskyldu.
Tekið er undir með manninum
varðandi nokkrar ákvarðanir, en
afdrifaríkasta ákvörðunin sem fór
úrskeiðis í meðferð máls stefnanda
hér á landi var talin sú að hafna því
að taka hælisumsókn hans til efnis-
legrar meðferðar og senda hann til
Grikklands.
Maðurinn hefur nú fengið dval-
arleyfi hér á landi af mannúðar-
ástæðum.
Hælisleitandi fær
bætur frá ríkinu
Nefhjólið á erlendri ferjuflugvél
gaf sig við lendingu á Reykjavík-
urflugvelli um klukkan þrjú í gær
og loka þurfti vellinum í stutta
stund. Samkvæmt upplýsingum
frá Isavia hafði flugmaðurinn
tekið eftir að eitthvað væri at-
hugavert við lendingarbúnað vél-
arinnar og bað því um leyfi til
lendingar.
Flugmaðurinn var einn í vél-
inni og sakaði ekki.
Nefhjól ferjuflug-
vélar gaf sig
Hluthafafundur í Vinnslustöðinni hf.
samþykkti í gær að fela stjórn
Vinnslustöðvarinnar (VSV) að hefja
formlegar viðræður um sameiningu
VSV og Ufsabergs-útgerðar ehf.
Meirihluti eigenda VSV samþykkti
sameiningu þessara félaga á hluthafa-
fundi síðla árs 2012 en í mars 2013
dæmdi Hæstiréttur Íslands samrun-
ann ógildan að kröfu Stillu útgerðar
ehf., KG fiskverkunar ehf. og Guð-
mundar Kristjánssonar, sem eru í
eigendahópi VSV. Fulltrúar þessara
hluthafa lögðust gegn tillögu um nýj-
ar sameiningarviðræður á hluthafa-
fundinum í gær.
Þá samþykkti fundurinn að kaupa
nær 93% hlut í fyrirtækinu Eyjaís
ehf., sem framleiðir ís fyrir skip og
báta við Vestmannaeyjahöfn. Efni
kaupsamnings er að öðru leyti trún-
aðarmál, segir í tilkynningu frá
Vinnslustöðinni.
Stjórnarformaður VSV greindi
hluthöfum frá ákvörðun stjórnar fé-
lagsins um að stækka frystigeymslu
VSV á Eiðinu. Geymslurýmið tekur
nú um 4.000 tonn af frystum sjávaraf-
urðum en mun meira en tvöfaldast að
stærð með framkvæmdunum sem
hefjast að öllum líkindum í sumar.
Stækkun frystigeymslunnar er í sam-
ræmi við þá breyttu stefnu VSV að
halda birgðir sínar af frystum afurð-
um hér heima frekar en erlendis. Sú
ráðstöfun er til hagræðingar og
sparnaðar þegar til lengri tíma er lit-
ið.
Á fundinum kom fram að Vinnslu-
stöðin mun innan tíðar efna til lok-
aðrar samkeppni arkitekta og verk-
fræðinga um skipulag á athafnasvæði
sínu með það fyrir augum að reisa þar
nýtt frystihús fyrir uppsjávarafurðir.
Framtíðarskipulag
á hafnarsvæði
Guðmundur Örn Gunnarsson,
stjórnarformaður Vinnslustöðvarinn-
ar, fagnaði því á fundinum að náðst
hefði samkomulag Vestmannaeyja-
bæjar, Vinnslustöðvarinnar og Ís-
félags Vestmannaeyja um framtíðar-
skipulag hafnarsvæðisins í Eyjum.
„Þar er kveðið á um að bæjaryfir-
völd láti vinna nýtt deili- og aðalskipu-
lag fyrir hafnarsvæðið með auknu at-
hafnarými að sunnanverðu í botni
Friðarhafnar. Ísfélagið lætur rífa hús
sitt að Strandvegi 36 og Vinnslustöðin
lætur rífa austurhús Fiskiðjunnar.
Fyrirtækin afhenda bænum síðan
báðar lóðir án kvaða,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Vinnslustöðin
aftur í viðræður
við Ufsaberg
Samkeppni um nýtt frystihús fyrir upp-
sjávarafurðir Frystigeymsla stækkuð