Morgunblaðið - 28.02.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þörfin er mikil. Fjöldi fólks er að
leita sér að litlum og ódýrum íbúð-
um til leigu eða kaups þar sem það
hefur ekki tryggingar eða tekjur til
að leigja stærra,“ segir Svanur
Guðmundsson, löggiltur leigumiðl-
ari. Hann stendur að tilraunaverk-
efni um notkun á stöðluðu bygging-
arefni gáma til að byggja litlar og
ódýrar íbúðir.
Fyrirtækin PPP Housing ehf. og
Smáíbúðir ehf. hafa hannað nýjan
valkost á leigumarkaði, í samvinnu
við verkfræðistofu og byggingafyr-
irtæki, og kynntu sýningaríbúð fyr-
ir sveitarstjórnarfólki og fleirum í
gær.
Verðlaunatillaga í Sviss
Hugmyndin að innrétta íbúðir
innan í gámum kemur frá Högna
Auðunssyni sem er að ljúka námi í
hótel- og veitingastjórnun í Sviss.
Upphaflega var ætlunin að nota
gámaeiningarnar til hjálparstarfs í
löndum á Balkanskaganum þar sem
hann vinnur með föður sínum, Auð-
uni Bjarna Ólafssyni. Unnið er að
þróun verkefnisins úti í Sviss þar
sem viðskiptaáætlun sem Högni og
félagar hans gerðu hefur verið
verðlaunuð.
Auðunn Bjarni er að koma hug-
myndinni í framkvæmd hér heima í
samvinnu við Svan Guðmundsson
leigumiðlara sem sér þetta sem
hluta af lausn mikils húsnæðisvanda
á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Svanur bendir á að lítið hafi verið
byggt af íbúðarhúsnæði frá hruni
og nú sé mesti krafturinn í bygg-
ingu hótela. Hann bætir því við að
sífellt fleiri íbúðir séu leigðar ferða-
fólki.
„Við fáum 5-6 þúsund ungmenni
á hverju ári inn á markaðinn. Það
er ekkert húsnæði til fyrir þetta
fólk,“ segir Svanur. Hann segir sárt
að horfa upp á vandræði fólks sem
til hans kemur í leit að húsnæði.
Hann bætir því við að þótt strax
yrði ráðist í byggingu hefðbundins
fjölbýlishúss tæki það að minnsta
kosti eitt og hálft ár að koma því í
notkun.
„Með smáíbúðunum getum við
komið með nokkuð margar íbúðir á
fáeinum mánuðum,“ segir Svanur.
Íbúðirnar eru 27 og 35 fermetrar
að stærð, eða eins litlar að hægt er
að hafa, samkvæmt bygginga-
reglugerð. Raunar þyrfti að fá und-
anþágu til að hafa snyrtingu heldur
minni en reglur kveða á um, til þess
að losna við að fara í kostnaðarsam-
ari tilfæringar.
Einingarnar eru byggðar innan í
40 feta gámum og hægt að hífa
saman og gera að fjölbýlishúsi, til
dæmis 3ja hæða húsi með samtals
34 íbúðum. Gert er ráð fyrir að þau
verði með utanáliggjandi stiga-
ganga og lyftuhús.
Vegna lögunar gámanna eru
íbúðirnar langar og mjóar en þegar
inn er komið er ekkert sem minnir
á að þær séu byggðar innan í gámi.
„Allt sem við gerum miðast við að
þetta er íbúð sem fólk vill búa í.
Þetta þarf að vera vel gert og hag-
kvæmt því við ætlum að leigja þess-
ar íbúðir út og viljum ekki þurfa að
standa í stöðugum viðgerðum,“ seg-
ir hann. Valið er vistvænt bygging-
arefni og hugað að orkusparnaði.
Ytra byrðið, gámastálið, er vita-
skuld úr gámum sem lokið hafa
hlutverki sínu við vöruflutninga.
Samstarf við sveitarfélög
Auðunn Bjarni vonast til að sam-
starf geti tekist við sveitarfélög um
að koma upp smáíbúðum þar sem
þörfin er mest. Hann bendir á að
fjölbýlishús hafi verið byggð með
þessum hætti um allan heim og sí-
fellt sé verið að framlengja tímann
því íbúarnir og stjórnendur í borg-
unum vilji ekki missa þær og það
mannlíf sem fylgi.
Vilja byggja smáíbúðir til útleigu
Fyrirtæki þróa eins litlar og ódýrar íbúðir og unnt er og bjóða fram sem valkost Leið til að létta
á leigumarkaðnum Einingarnar eru byggðar inni í gámum Hægt að hlaða saman í fjölbýlishús
Morgunblaðið/Þórður
Frumkvöðlar Auðunn Bjarni Ólafsson, Bjarni Tómasson og Svanur Guðmundsson kynna litlar og hagkvæmar íbúð-
ir sem þeir telja að gætu orðið valkostur á leigumarkaðnum. Íbúðirnar eru byggðar inni í gámum.
Eldhús Smáíbúðirnar eru langar og mjóar og minni gerðin aðeins 27 fer-
metrar að stærð. Þar rúmast þó helstu heimilistæki.
Stefnan er tekin á að leigja 27
fermetra íbúðirnar út á 80 þús-
und krónur á mánuði. Svanur
Guðmundsson tekur þó fram að
stofnkostnaður sé umtals-
verður og leiguverðið ráðist að
hluta af þeim tíma sem íbúð-
irnar fái að standa. Hún verði
hærri ef afskrifa þurfi stofn-
kostnaðinn á fáum árum.
Einingarnar eru þannig að
hægt verður að færa íbúðirnar
til ef aðstæður breytast. Þær er
hægt að reisa á skömmum tíma
þar sem þörfin er mest, benda
stjórnendur PEP Housing og
Smáíbúða á. Hentugt getur ver-
ið að nota þær á svæðum sem
ekki er lokið við að deiliskipu-
leggja.
80 þúsund
kr. á mánuði
27 FERMETRA ÍBÚÐ
56
V
er
ð
kr
.
2
.1
9
5
·
Ja
nú
ar
2
0
1
4
Brúðarþáttur
Nýtt, glæsilegt Prjónablaðið Ýr
FERMINGAR
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars.
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins og
verður blaðið í ár
sérstaklega
glæsilegt.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn
7. mars.