Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þörfin er mikil. Fjöldi fólks er að leita sér að litlum og ódýrum íbúð- um til leigu eða kaups þar sem það hefur ekki tryggingar eða tekjur til að leigja stærra,“ segir Svanur Guðmundsson, löggiltur leigumiðl- ari. Hann stendur að tilraunaverk- efni um notkun á stöðluðu bygging- arefni gáma til að byggja litlar og ódýrar íbúðir. Fyrirtækin PPP Housing ehf. og Smáíbúðir ehf. hafa hannað nýjan valkost á leigumarkaði, í samvinnu við verkfræðistofu og byggingafyr- irtæki, og kynntu sýningaríbúð fyr- ir sveitarstjórnarfólki og fleirum í gær. Verðlaunatillaga í Sviss Hugmyndin að innrétta íbúðir innan í gámum kemur frá Högna Auðunssyni sem er að ljúka námi í hótel- og veitingastjórnun í Sviss. Upphaflega var ætlunin að nota gámaeiningarnar til hjálparstarfs í löndum á Balkanskaganum þar sem hann vinnur með föður sínum, Auð- uni Bjarna Ólafssyni. Unnið er að þróun verkefnisins úti í Sviss þar sem viðskiptaáætlun sem Högni og félagar hans gerðu hefur verið verðlaunuð. Auðunn Bjarni er að koma hug- myndinni í framkvæmd hér heima í samvinnu við Svan Guðmundsson leigumiðlara sem sér þetta sem hluta af lausn mikils húsnæðisvanda á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Svanur bendir á að lítið hafi verið byggt af íbúðarhúsnæði frá hruni og nú sé mesti krafturinn í bygg- ingu hótela. Hann bætir því við að sífellt fleiri íbúðir séu leigðar ferða- fólki. „Við fáum 5-6 þúsund ungmenni á hverju ári inn á markaðinn. Það er ekkert húsnæði til fyrir þetta fólk,“ segir Svanur. Hann segir sárt að horfa upp á vandræði fólks sem til hans kemur í leit að húsnæði. Hann bætir því við að þótt strax yrði ráðist í byggingu hefðbundins fjölbýlishúss tæki það að minnsta kosti eitt og hálft ár að koma því í notkun. „Með smáíbúðunum getum við komið með nokkuð margar íbúðir á fáeinum mánuðum,“ segir Svanur. Íbúðirnar eru 27 og 35 fermetrar að stærð, eða eins litlar að hægt er að hafa, samkvæmt bygginga- reglugerð. Raunar þyrfti að fá und- anþágu til að hafa snyrtingu heldur minni en reglur kveða á um, til þess að losna við að fara í kostnaðarsam- ari tilfæringar. Einingarnar eru byggðar innan í 40 feta gámum og hægt að hífa saman og gera að fjölbýlishúsi, til dæmis 3ja hæða húsi með samtals 34 íbúðum. Gert er ráð fyrir að þau verði með utanáliggjandi stiga- ganga og lyftuhús. Vegna lögunar gámanna eru íbúðirnar langar og mjóar en þegar inn er komið er ekkert sem minnir á að þær séu byggðar innan í gámi. „Allt sem við gerum miðast við að þetta er íbúð sem fólk vill búa í. Þetta þarf að vera vel gert og hag- kvæmt því við ætlum að leigja þess- ar íbúðir út og viljum ekki þurfa að standa í stöðugum viðgerðum,“ seg- ir hann. Valið er vistvænt bygging- arefni og hugað að orkusparnaði. Ytra byrðið, gámastálið, er vita- skuld úr gámum sem lokið hafa hlutverki sínu við vöruflutninga. Samstarf við sveitarfélög Auðunn Bjarni vonast til að sam- starf geti tekist við sveitarfélög um að koma upp smáíbúðum þar sem þörfin er mest. Hann bendir á að fjölbýlishús hafi verið byggð með þessum hætti um allan heim og sí- fellt sé verið að framlengja tímann því íbúarnir og stjórnendur í borg- unum vilji ekki missa þær og það mannlíf sem fylgi. Vilja byggja smáíbúðir til útleigu  Fyrirtæki þróa eins litlar og ódýrar íbúðir og unnt er og bjóða fram sem valkost  Leið til að létta á leigumarkaðnum  Einingarnar eru byggðar inni í gámum  Hægt að hlaða saman í fjölbýlishús Morgunblaðið/Þórður Frumkvöðlar Auðunn Bjarni Ólafsson, Bjarni Tómasson og Svanur Guðmundsson kynna litlar og hagkvæmar íbúð- ir sem þeir telja að gætu orðið valkostur á leigumarkaðnum. Íbúðirnar eru byggðar inni í gámum. Eldhús Smáíbúðirnar eru langar og mjóar og minni gerðin aðeins 27 fer- metrar að stærð. Þar rúmast þó helstu heimilistæki. Stefnan er tekin á að leigja 27 fermetra íbúðirnar út á 80 þús- und krónur á mánuði. Svanur Guðmundsson tekur þó fram að stofnkostnaður sé umtals- verður og leiguverðið ráðist að hluta af þeim tíma sem íbúð- irnar fái að standa. Hún verði hærri ef afskrifa þurfi stofn- kostnaðinn á fáum árum. Einingarnar eru þannig að hægt verður að færa íbúðirnar til ef aðstæður breytast. Þær er hægt að reisa á skömmum tíma þar sem þörfin er mest, benda stjórnendur PEP Housing og Smáíbúða á. Hentugt getur ver- ið að nota þær á svæðum sem ekki er lokið við að deiliskipu- leggja. 80 þúsund kr. á mánuði 27 FERMETRA ÍBÚÐ 56 V er ð kr . 2 .1 9 5 · Ja nú ar 2 0 1 4 Brúðarþáttur Nýtt, glæsilegt Prjónablaðið Ýr FERMINGAR : –– Meira fyrir lesendur PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 3. mars. SÉRBLAÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins og verður blaðið í ár sérstaklega glæsilegt. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 7. mars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.