Morgunblaðið - 28.02.2014, Síða 22
SKOÐANAKÖNNUN
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Listi fólksins í bæjarstjórn Akureyr-
ar fengi aðeins einn mann kjörinn ef
gengið væri til kosninga í dag. Þetta
er niðurstaða nýrrar skoðanakönn-
unar sem Félagsvísindastofnun Há-
skóla Íslands gerði fyrir Morg-
unblaðið. Listi fólksins hefur nú 6
bæjarfulltrúa sem er hreinn meiri-
hluti. Fylgi hans í kosningunum árið
2010 var 45% en er nú 13,1%. Sam-
kvæmt könnuninni dreifist þetta
fylgi á aðra flokka nema Bæjarlist-
ann sem þurrkast út og Samfylk-
inguna sem tapar nokkru fylgi. Mest
er fylgisaukning Sjálfstæðisflokks-
ins sem fengi 23,2% atkvæða og 3
bæjarfulltrúa en hefur aðeins einn
núna og var með 13,3% fylgi í sveit-
arstjórnarkosningunum 2010.
VG með byr í seglin
Niðurstöður könnunarinnar eru
að öðru leyti þær að Vinstri hreyf-
ingin – grænt framboð og Björt
framtíð eru jafnstórir flokkar, með
16,7% og 16,6% fylgi sem gefur
hvorum flokki tvo bæjarfulltrúa. VG
hefur einn fulltrúa í bæjarstjórn,
fékk 10,4% atkvæða í síðustu kosn-
ingum, en Björt framtíð var ekki í
framboði 2010.
Framsóknarflokkurinn er fjórði
stærsti flokkurinn á Akureyri með
14,7% fylgi. Í kosningunum fyrir
fjórum árum fékk hann 12,8% at-
kvæða og einn bæjarfulltrúa. Fylgið
í könnuninni dugar fyrir tveimur
fulltrúum.
Listi fólksins sem í dag hefur
hreinan meirihluta í bæjarstjórn
tapar fimm af sex fulltrúum sínum.
Hrapið er mikið, úr 45% atkvæða ár-
ið 2010 sem fyrr segir í 13,1% nú.
Samfylkingin nýtur minnsts
stuðnings þeirra flokka sem fá full-
trúa kjörna í bæjarstjórn samkvæmt
könnuninni. Fylgi hennar er 8,7%
sem dugar fyrir einum bæjarfull-
trúa, en er minna en í kosningunum
2010 þegar flokkurinn fékk 9,6% at-
kvæða.
Píratar eiga einnig fylgi á Ak-
ureyri. 3,9% mundu styðja framboð
þeirra ef kosið yrði nú. Það nægir
ekki til að koma að fulltrúa í bæj-
arstjórn.
Bæjarlistinn sem í kosningunum
2010 fékk 8,7% atkvæða og einn full-
trúa nýtur nú aðeins stuðnings 1,2%
kjósenda. Listinn fengi ekki mann
kjörinn.
Þetta er önnur könnunin sem Fé-
lagsvísindastofnun gerir í vetur fyrir
Morgunblaðið á fylgi flokka á Ak-
ureyri. Í könnun sem birt var 23.
nóvember í fyrra voru niðurstöður
mjög svipaðar og nú eins og sjá má í
meðfylgjandi súluriti. Tala fulltrúa
framboðslista í bæjarstjórn er
óbreytt á milli kannana. Breytingar
eru þær helstar að Sjálfstæðisflokk-
urinn eykur fylgi sitt úr 20,7% í
könnuninni í nóvember í 23,2% nú og
Samfylkingin tapar fylgi, fer úr 11%
þá í 8,7%. Þá sígur Framsókn-
arflokkurinn aðeins niður, fer úr
15,6% í 14,7%.
Könnunin var gerð dagana 18. til
23. febrúar. Spurt var: Ef sveit-
arstjórnarkosningar væru haldnar á
morgun, hvaða flokk eða lista mynd-
ir þú kjósa? Tvær leiðir voru notaðar
til að ná til kjósenda á Akureyri.
Annars vegar var hringt í 229 manna
tilviljunarúrtak úr þjóðskrá meðal
fólks 18 ára og eldra. Hins vegar var
send netkönnun til 371 manns úr-
taks úr netpanel Félagsvísindastofn-
unar. Alls fengust 338 svör frá svar-
endum á aldrinum 18 til 95 ára. Var
svarhlutfall 60%. Vigtaður svar-
endafjöldi var sömuleiðis 338.
Konur vilja Bjarta framtíð
Þegar rýnt er í niðurstöður könn-
unarinnar með tilliti til kynferðis
þátttakenda kemur í ljós að fylgi
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins er nokkru meira meðal
karla en kvenna. Þessu er öfugt farið
hjá Bjartri framtíð þar sem stærsti
hluti stuðningsmanna er kjósenda.
Ætla 27% kvenna að kjósa flokkinn
en aðeins 8% karla.
Verulegur munur er einnig á
stuðningi við Bjarta framtíð eftir
aldri þátttakenda. Nýtur flokkurinn
mests stuðnings meðal yngstu kjós-
endanna, á aldrinum 18 til 29 ára,
eða 33%. Skipting aldurshópanna er
jafnari hjá öðrum framboðum.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
á flesta stuðningsmenn úr hópi kjós-
enda 60 ára og eldri, 25%.
Kjósendur sem aðeins eru með
grunnskólanám að baki eru fjöl-
mennastir meðal stuðningsmanna
Bjartrar framtíðar og Lista fólksins.
Meðal fólks með háskólamenntun
nýtur Sjálfstæðisflokkurinn mests
stuðnings, 27%.
Atkvæði Bæjarlistans til
Sjálfstæðisflokksins
Stuðningur við flokkana skiptist
einnig nokkuð eftir tekjum þátttak-
enda. Meðal lágtekjufólks nýtur
Björt framtíð mests stuðnings, 34%
Meðal hátekjufólks, fólks með 600
þúsund krónur eða meira í mán-
aðarlaun, er mestur stuðningur við
Sjálfstæðisflokkinn, 38%, og Fram-
sóknarflokkinn, 35%.
Athugun á því hvernig þátttak-
endur kusu í bæjarstjórnarkosning-
unum 2010 leiðir í ljós að flestir sem
kusu Bæjarlistann þá, 46%, ætla
núna að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
23% þeirra ætla að kjósa Framsókn-
arflokkinn. Þá ætla 27% þeirra sem
kusu Lista fólksins síðast nú að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Athygli vekur að 22% þeirra sem
kusu Samfylkinguna í bæjarstjórn-
arkosningunum á Akureyri árið
2010 styðja nú Sjálfstæðisflokkinn.
Meirihlutinn á Akureyri fallinn
Ný könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið á fylgi flokka á Akureyri Listi fólksins
tapar 5 af 6 bæjarfulltrúum Mest fylgisaukning hjá Sjálfstæðisflokknum VG með byr í seglin
Píra
tar
Sjá
lfst
æð
isfl.
Fylgi stjórnmálaflokka á Akureyri
samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 18.-23. febrúar 2014
vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014
Bjö
rt f
ram
tíð
?
Ann
að
Svör alls: 338 Svarhlutfall: 60%
Nefndu einhvern flokk: 219
Veit ekki: 87 Skila auðu/ógildu: 10
Ætla ekki að kjósa: 14 Vilja ekki svara: 9
1 1
13,3%
20,7%
10,4%
16,0% 16,0%
12,8%
15,6%
45,0%
13,5%
9,8%
11,0%
2,1%
8,7%
1,7% 3,4%
23,2%
16,7% 16,6%
14,7% 13,1%
8,7%
3,9%
1,2% 1,9%
3 2
Sam
fylk
ing
1 1
List
i fó
lksi
ns
6 1
Vin
stri
-græ
n
1 2
Fra
ms
ókn
arfl
.
1 2
Bæ
jarl
isti
nn
Niðurstöður kosninga 2010
Fjöldi bæjarfulltrúa,
eftir síðustu kosningar.
Fjöldi bæjarfulltrúa,
væri gengið til kosninga nú.
Fylgi skv. könnun 18.-23. feb.
Fylgi skv. könnun 15.-23. jan.
Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010)
Fra
ms
ókn
arfl
.
Kýs nú:
Kaus þá:
Vin
stri
-græ
n
Sam
fylk
ing
List
i fó
lksi
ns
Bæ
jarl
isti
nn
Sjá
lfst
æð
isfl.
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Björt framtíð Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylking Píratar Vinstri-græn Listi fólksins Annar flokkur eða framboð
Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis
Myndi
kjósa í
sveitar-
stjórn:
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 18.-23. febrúar 2014.
Fra
ms
ókn
arfl
.
Myndi
kjósa á
Alþingi:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
6%
23%
46%
12%
13%
15%
3% 13% 11%
19%
77%
60%
3% 2% 17% 11%
5%
5%
5%
23%
51%
3%
84%
10%
1%
3%
50%
3%
24%
3%
95%
14%
4%
11%
9%
6%
3%2%
10%
1%
5%
71%
6%
3%
22%
60%
4%
2%
27%
3%
7%
41%
7%
77%
2%
9%
3%
75%
6%
3%
6%
1%
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigurgleði Mikil fagnaðarlæti brutust út á kosningavöku Lista fólksins á Akureyri vorið 2010 þegar tölur bárust
um stórsigur framboðsins.
Könnun á fylgi framboða í
Kópavogi.
Á morgun