Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.02.2014, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 Í vikublaðinu Reykjavík 15. febrúar sl. var frétt að mestu byggð á viðtali við Heiðar Má Guðjónsson fjárfesti um fjárfest- ingar hans og félagsins Ursus I slhf. í grunn- þjónustu samfélagsins. Sagt er að: „félagið hefur það eina mark- mið að eignast fyr- irtæki í grunnþjónustu samfélagsins og hagnast á slíkum kaupum“. Í stofnskrá félagsins er sagt: „Félagið mun fjárfesta með arðsemi hluthafa félagsins að leiðarljósi.“ Fleira at- hyglivert er í fréttinni, svo sem að í hluthafasamkomulagi skuldbinda hluthafar sig til: „ að arðsemi félags- ins sé ávallt hámörkuð“ og hluthafar eigi að fá „bestu mögulegu ávöxtun“ á fjárfestingu sinni. Frétt sem þessi vekur líklega ekki mikla athygli hvað þá að fólk geri sér grein fyrir hvaða áhrif það sem fréttin fjallar um gæti haft á hagsmuni þess. Sókn einkafjármagns inn í grunnþjónustu samfélagsins sem ríki og sveit- arfélög stofnuðu til vegna uppbygg- ingar atvinnulífs og menningar í landinu. Hvers vegna og til hvers sækir einkafjármagn inn í þessi fyr- irtæki? Svarið er: Þetta er örugg- asta fjárfesting sem völ er á. Sam- félagið kemst ekki af án orku- og veitufyrirtækja. Notendur þjónust- unnar neyðast til að greiða uppsett verð. Orku- og veitufyrirtækin hafa verið rekin þannig að verð á þjónustu þeirra standi undir rekstr- arkostnaði og end- urnýjun. Hagnaður fer ekki til einkafjármagns hluthafa. Þessu vill einkafjármagnið breyta. Það vill troða sér inn í þessa innviði samfélagsins. Í krafti eignarhalds er hægt að ráða verði þjónust- unnar. Hækka verð hennar þannig að tekjur verði verulega umfram það sem þarf til reksturs og viðhalds fyr- irtækjanna. Þannig verði fengin sú besta mögulega ávöxtun og arðsemi hlutafjár sem Ursus I slhf. stefnir að og hefur að leiðarljósi. Til þess að ná fram nefndum markmiðum einka- fjármagnsins og Ursus I slhf. þarf skammsýna og einfalda stjórn- málamenn Alþingis og sveit- arstjórna. Eða menn úr þeim hópi sem auðvelt er að fá á mála. Hugs- anlega verður fólk sem hefur alla þessa eiginleika í framboði til sveit- arstjórna í vor. Á Alþingi er nú næg- ur fjöldi skammsýnna stjórnmála- manna sem væru tilbúnir að selja, t.m. Landsvirkjun að hluta eða öllu leyti vegna stundarhags. Það hefur komið fram í málflutningi þeirra. Ekki aðeins þeirra sem eru mál- svarar einkafjármagnsins heldur einnig þeirra sem telja sig málsvara jafnaðarstefnu. Helgi Hjörvar alþm. vildi, samkvæmt greinum í Mbl. í september 2008, selja eða leigja Kárahnjúkavirkjun og aðrar virkj- anir Landsvirkjunar til þeirra sem kaupa orkuna. Það er engin þörf á því fyrir samfélagið eða hagur þess að selja orku- og veitufyrirtæki að hluta eða að fullu. Að selja þau er ígildi þess að selja hluta af sjálfstæði þjóðarinnar. Þetta eru fyrirtæki sem samfélagið stofnaði til framþróunar í landinu. Verðmæti þeirra vex með hverju ári. Það veit einkafjármagnið sem vill þrengja sér inn í orkufram- leiðslu og grunnþjónustu og hagnast þannig á innviðum samfélagsins. Taka meira fé úr vösum almennings. Hagnaðurinn verður ekki sóttur annað. Að hagnast á innviðum samfélagsins Eftir Árna Þormóðsson » Það veit einka- fjármagnið sem vill þrengja sér inn í orkuframleiðslu og grunnþjónustu og hagn- ast þannig á innviðum samfélagsins. Árni Þormóðsson Höfundur er eldri borgari. Valist hefur til þáttastjórnunar hjá RÚV sjónvarpi upp- gjafa pólitíkus þó ekki sé gamall, sem náði ekki tilætluðum árangri í eigin flokki í Reykjavíkurborg, Gísli Marteinn Bald- ursson. Hann varð sér til háborinnar skammar í þættinum sunnudaginn 16. febrúar sl. þegar hann ætlaði heldur betur að láta ljós sitt skína með því að valta yfir for- sætisráðherrann, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, með ómældum dóna- skap og yfirgangi, en tókst auðvitað ekki því hann er ekki maður til þess. Með fádæma leiðindum og rudda- skap réðst hann að forsætisráðherra og t.d. gaf honum ekki ítrekað færi á að klára að svara spurningum og þráspurði hann um sum atriði, sem hann var búinn að fá svör við og steininn tók úr þegar hann oftar en einu sinni lagði forsætisráherra orð í munn. Svona haga alvöru þátta- stjórnendur sér ekki, en Gísla Mar- teini virðast engin takmörk sett í dónaskapnum. Þetta var ekki ólíkt því þegar Kastljóssstjórnandinn ætl- aði að rúlla Sigmundi Davíð upp með offorsi og dónaskap í þætti fyrir síð- ustu alþingiskosningar en hafði auð- vitað ekkert upp úr því nema skömmina svo eftir var tekið. Hafi Gísla Marteini einhvern tíma dottið í hug að hann hefði eitthvað í Sigmund Davíð að gera er það stór misskiln- ingur. Honum hefði verið nær að taka viðtalið á mannlegu nótunum og hefði þá komist betur út úr því, en ekki reyna að slá sig til riddara með dónaskap og upphlaupi þar sem hann átti við of- urefli að etja. Kannski náði hámarki ósvífni Gísla Marteins er hann eitt sinn greip fram í fyr- ir forsætisráherra og lét hann vita að það væri hann, sem stjórnaði þættinum. En steininn tók endanlega úr þegar hann fór að spyrja um Seðlabanka- málið, hvort ætti að ráða tvo banka- stjóra til „höfuðs“ Má Guðmundssyni því það væri fullyrt á Framsókn- armiðlinum Eyjunni. Forsætisráð- herra sagði ekkert ákveðið í þeim efnum og Eyjan væri ekki Fram- sóknarmiðill. En Gísli Marteinn þrá- spurði um það mál og reyndi á mjög ósvifinn hátt að flækja málið þó hann væri búinn að fá greinargott svar eins og efni stóð til. Það sem stóð upp úr þessum óvenjulega og ósvífna þætti, sem þáttastjórnandinn hafði algjörlega misst tök á var auðvitað rómuð frammistaða Sigmundar Dav- íðs Gunnlaugssonar við einstaklega erfiðar aðstæður. Þáttastjórnandinn Eftir Hjörleif Hallgrímson »Ætlaði að valta yfir forsætisráð- herrann, Sigmund Davíð Gunnlaugsson, með ómældum dóna- skap og yfirgangi. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er framkvæmdastjóri. - með morgunkaffinu Í marsmánuði hvert ár er vakin at- hygli á krabbamein- um hjá körlum. Aukning hefur orð- ið í greiningu á krabbameinum í blöðruhálskirtli á Íslandi á síðustu ár- um og í dag grein- ast árlega um 215 ný tilfelli og 50 deyja af völdum þessa sjúkdóms. Ein- kenni vegna krabbameins geta verið þvagtregða og tíðari þvaglát, en oftar fylgja sjúkdómnum lítil sem engin einkenni. Sjúkdómsgangurinn getur verið afar mismunandi og fer það mest eftir útliti krabbameinsfrum- anna og á hvaða stigi sjúkdómurinn er við greiningu. Eins og gildir um önnur krabbamein er mikilvægt að upp- götva blöðruhálskirtilskrabbamein á byrjunarstigi. Hverjir eru í áhættu? Þekkt er að tíðnin eykst mikið með aldri. Karl- menn eldri en 50 ára eru í aukinni áhættu og erfðaþættir skipta máli. Hafi faðir fengið krabbamein í blöðru- hálskirtil aukast líkurnar á því að son- ur hans fái það um allt að helming. Ef bæði faðir og bróðir hafa haft sjúk- dóminn er 4-6 sinnum meiri hætta á að fá sjúkdóminn. Karlar sem eiga nána ættingja sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli eru því líklegri til að fá sjúkdóminn sjálfir og er reglubundið eftirlit með blóðprufu og læknisskoðun æskilegt frá 40-50 ára aldri. Mataræði sem inniheldur mikið magn af dýrafitu og lítið magn af grænmeti, ávöxtum og fiski er talið auka áhættu. Skiptar skoðanir eru á því hvort æskilegt sé að framkvæma hópleit á krabbameini í blöðruhálskirtli og í dag er staðan almennt sú að ekki sé slík hópleit ráðlögð. Rannsóknir hafa hins vegar sýnt fram á að reglubundin PSA-mæling í blóði karla 50-69 ára hefur lækkað tíðni á útbreiddu krabbameini og fækkað dauðsföllum af völdum sjúkdómsins. Helst hefur verið gagnrýnt að meðhöndla þurfi fjölda sjúklinga að óþörfu til að bjarga fáum en með aukinni þekkingu og nýjum meðferðarúrræðum svo sem með betri skurðtækni (skurðþjarka eða róbot) og nákvæmari geisla- meðferð er hægt að klæðskerasníða meðferðarúrræðin betur í þá átt að minnka óþarfa meðferðir og jafn- framt að fækka aukakvillum með- ferðar. Hvernig fer læknisskoðun fram? Kirtillinn er þreifaður og gerð óm- skoðun um endaþarm og leitað eftir stækkun, hnútum eða hersli. Tekin er blóðprufa og mælt s.k. PSA, eða „prostate specific antigen“. Þetta er eggjahvítuefni sem er einungis fram- leitt í blöðruhálskirtlinum og unnt er að greina í blóði karla. Eðlilegt gildi þess er á bilinu 0-4 ng/ml (0-2 hjá körlum < 50 ára). Hóflega hækkað gildi upp í 10 ng/ml tengist yfirleitt góðkynja ástandi eins og góðkynja stækk- un á blöðruháls- kirtli eða blöðru- hálskirtilsbólgu, en það getur einnig verið til staðar á byrj- unarstigi krabbameins og þýðir að frekari rannsókna, svo sem sýnataka úr blöðruhálskirtlinum, sé þörf til að útiloka sjúkdóminn. Ýmsir kostir eru í boði við meðferð á blöðruhálskirtilskrabbameini. Ef um staðbundinn sjúkdóm er að ræða er sjúklingi oftast boðin læknandi meðferð. Við dreifðan sjúkdóm er læknandi meðferð ekki möguleg og er þá sjúklingi oftast boðin lyfjameðferð sem heldur aftur af sjúkdómnum. Val á meðferð er í nánu samráði við sjúk- linga eftir að þeir hafa verið vel upp- lýstir um aukaverkanir meðferðar. Við val á meðferð er tekið tillit til ald- urs sjúklings, útlit krabbameinsfruma og útbreiðslu sjúkdómsins. Hægt er að beita skurðaðgerð, geislun eða hormónalyfjameðferð. Hjá mönnum með „gott“ frumuútlit og staðbundinn sjúkdóm er sjúkdómurinn oft hæg- fara og ekki endilega ástæða til með- ferðar utan reglubundins eftirlits. Ef þú ert karl á aldrinum 50-70 ára ættirðu að ræða við lækni þinn um hvort ástæða sé til að fara í skoðun á blöðruhálskirtli og fara í blóðprufu. Þeir sem eiga föður eða bróður sem hafa greinst með blöðruhálskirt- ilskrabbamein ættu að íhuga að fara í skoðun fyrr eða upp úr 40 ára aldri. Krabbamein í blöðruhálskirtli – vertu vakandi Eftir Guðmund Geirsson, Eirík Orra Guðmunds- son og Rafn Hilmarsson »Karlmenn eldri en 50 ára eru í aukinni áhættu og erfðaþættir skipta máli. Rafn Hilmarsson Höfundar eru þvagfæraskurðlæknar og starfa á Landspítala og á Lækna- stöðinni í Glæsibæ. Guðmundur Geirsson Eiríkur Orri Guðmundsson Það eru 15 ár síðan ég ásamt sveit- arstjórnarmönnum af Vesturlandi og úr Reykjavík biðum með hjartslátt niðri í jörðinni þar sem Hvalfjarðargöng eru í dag. Við héldum niðri í okkur and- anum, síðasta haftið var sprengt og gatið góða kom í ljós. Þetta var mögnuð stund og gleymist seint. Í gegnum göngin fara í dag fimm þúsund bílar á sólarhring og allir þekkja hvað kærkomin sam- göngubót þetta er og ekki þarf að hafa mörg orð um það. Það sem hrjáir mig enn þann dag í dag, eftir að draumurinn rættist, er óttinn við eldneyt- isflutningana, þ.e. bílana sem keyra, að því er virðist, allan dag- inn út og inn. Ég sat í bílaröð ekki alls fyrir löngu norðanmegin gang- anna í þrjátíu mínútur. Ástæðan var óhapp þar sem stór bíll hafði eins og oft áður keyrt niður hæð- arhlið sunnanmegin ganganna. Að bíða gerði mér ekkert til en þegar ég leit fram í röðina sá ég mér til skelfingar að þriðji bíll á undan mér var stór, langur, hvítur bíll. Það var ekki olíubíll heldur bíll hlaðinn gasi – merktur sem slíkur. Það gaus upp í mér gamli óttinn og ég hugsa alltaf: ef það gerist ein- hvern tímann – verður það ég, börnin mín eða einhverjir aðrir sem þar lenda? Bæjarstjórn Akraness skrifaði mörg bréf um þessi mál á sínum tíma þegar göngin voru tekin í notkun. Þessi bréfaskipti fóru ávallt á þann veg að ráðuneyti þessara mála sendu okkur jafnan þau svör að ríkislög- reglustjóri hefði með þessi mál að gera. Þetta mál var þræl- pólitískt og allir sem til þekkja vita hvers vegna það var þannig á þessum tíma. Á þessum tíma fengum við sem sátum í bæj- arstjórninni til okkar vana slökkviðlis- menn, m.a. af Kefla- víkurflugvelli, sem útskýrðu fyrir okkur hvers konar eldur yrði laus ef slys yrði þarna niðri af þessum sökum. Ég vil ekki með þessum skrifum mínum hræða fólk en bið þess í stað alla þá er koma að þessum málum að hugsa vel um hvað er hægt að gera. Þetta snýst auðvitað líka um fjármuni og margir endar lausir en látum ekkert koma í stað- inn fyrir mannslífin. Ég er enn þeirrar skoðunar að þessir flutn- ingar hljóti að geta með ein- hverjum hætti farið um göngin á merktum tíma og fólk í almennri umferð sé ekki statt í göngunum á sama tíma. Mér finnst ég knúin til að koma þessum hugleiðingum mínum á blað. Bíðum ekki eftir að eitthvað gerist. Bíðum ekki eftir að eitthvað gerist Eftir Sigríði Gróu Kristjánsdóttur Sigríður Gróa Kristjánsdóttir » Það var ekki olíubíll heldur bíll hlaðinn gasi – merktur sem slíkur. Það gaus upp í mér gamli óttinn og ég hugsa alltaf: ef það gerist einhvern tímann Höfundur er fyrrv. bæjarfulltrúi á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.