Morgunblaðið - 28.02.2014, Page 32

Morgunblaðið - 28.02.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014 ✝ Hulda Haf-steinsdóttir fæddist í Reykjavík 14. september 1946 og lést á gjörgæslu- deild Landspítalans 18. febrúar 2014. Foreldrar Huldu eru Steinunn Sig- urbjörnsdóttir, f. 3.9. 1921 og Haf- steinn Ólafsson, f. 31.8. 1915, d. 19.11. 1987. Systkini Huldu eru Grét- ar, f. 1940, Aðalheiður, f. 1942, Jóna, f. 1943, d. 16.11. 2013, Lilja, f. 1950, Guðlaug, f. 1951, Ólafur, f. 1953, Guðbjörg, f. 1956 og Atli, f. 1959. Hulda gift- ist eftirlifandi eig- inmanni sínum, Agnari Árnasyni, 6.12. 1969. Saman eignuðust þau tvo syni, Steinar Geir Agnarsson, f. 3.4. 1970 og Atla Má Agnarsson, f. 19.1. 1977. Barnabörn Huldu eru Alvin Smári Steinarsson, f. 31.5. 2002, Elmar Sölvi Steinarsson, f. 9.5. 2005 og Agnar Magnús Atlason, f. 19.7. 2013. Útför Huldu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 28. febrúar 2014, og hefst athöfnin kl. 15. Ég vil með nokkrum orðum minnast systur minnar, Huldu eins og hún var ævinlega kölluð. Hugurinn reikar til bernskuár- anna þegar þröngt var í búi og hlutskipti okkar var að deila rúmi saman. Þar sem ég er eldri var Hulda stundum sofnuð þegar ég skreið upp í á kvöldin, minnist ég þess hvað mér þótti hún gott og fallegt barn. Það fór ævinlega vel á með okkur. Við höfðum mikil samskipti og hjálpuðumst oft að, því eins og núna var erfitt að eign- ast eigið húsnæði. Oft fórum við saman í sumarfrí og tókum sum- arbústaði á leigu. Þegar árin liðu og efni jukust vorum við oft saman í fríum erlendis. Eftir að dvöl okk- ar hjóna varð lengri erlendis komu þau hjónin oft til okkar. Þegar hún fór að vera meira heima vegna veikinda töluðum við oft saman daglega í síma og höfð- um við alltaf nóg að tala um. Hulda og Agnar voru nýflutt þeg- ar hún kvaddi, fannst henni mik- ilvægt að vera í hentugra húsnæði og nálægt strákunum sínum, svo að þeir gætu komið við þegar þeir vildu. Hulda var glæsileg kona og mikill fagurkeri. Okkur fannst ótrúlega gaman að fara saman í búðir og gleymdum við okkur tím- unum saman að skoða fallega hluti. Eiginmenn okkar voru oft hissa á hversu langan tíma við dvöldum inni í búðunum. Ég vil þakka Huldu fyrir öll góðu árin og veit að hún fær góðar móttökur. Ég vil biðja Guð og góða vætti að styrkja Agnar og fjölskyldu hans í þessum miklum erfiðleikum sem þau eru að ganga í gegnum. Þín systir Aðalheiður. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem.) Aðalheiður Hafsteinsdóttir. Dýpsta sæla og sorgin þunga, svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga, tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.) Þegar ljóst var að kynni okkar Steinars yrðu varanleg kom að því að hitta tilvonandi tengdaforeldra. Ég kveið þeirri stundu lítillega, enda alls óljóst hverskonar tengdaforeldra maður fær í happ- drætti lífsins. Í ljós kom að ég hafði enga ástæðu til að kvíða hlutskipti mínu, enda var mér tek- ið opnum örmum frá fyrstu stundu af þeim mektarhjónum Agnari og Huldu. Hulda var ein- staklega skemmtileg tengdamóð- ir, hjartahlýr húmoristi sem vildi allt fyrir alla gera. Við náðum sér- lega vel saman í kaldhæðnis- bröndurum okkar og ósjaldan átt- um við samræður í léttu gríni um meint misheppnað uppeldi hennar á syninum sem ég sit uppi með. Tók Hulda ávallt undir allar um- kvartanir mínar í þessum efnum og bætti um betur og svo hlógum við báðar að hótfyndni okkar, enda vissum við báðar að henni tókst afskaplega vel upp í því að koma honum til vits og þroska. Þessara stunda og allra hinna góðu samverustundanna okkar á ég eftir að sakna. Eftir að ég kynntist Huldu kom fljótlega í ljós að hennar æðsti draumur var að verða amma. Við hjónin erum svo lánsöm að hafa getað gefið henni tvo vel heppnaða ömmudrengi, þá Alvin Smára og Elmar Sölva, sem áttu vísan stað í hjarta hennar frá því hún fékk fyrst fregnir af væntanlegri komu þeirra. Hulda reyndist frábær amma sem sýndi drengjunum ein- lægan áhuga og umhyggju í öllu sem þeir tóku sér fyrir hendur og hennar heimili og hennar faðmur var þeim ávallt opinn. Í hvert skipti sem hún sá þá skein stolt og gleði úr augum hennar og fáar ömmur eru stoltari af litlu afleggj- urunum sínum en Hulda var. Hún var þeim afskaplega kær og þeir sóttu mikið í hennar félagsskap og vildu alltaf vera í Fannó og nú síð- ast Hæðó í góðu yfirlæti hjá ömmu „Hundu“. Skarðið sem hún skilur eftir í lífi litlu mannanna minna er því stórt og verður seint fyllt. Þeir eiga erfitt með að skilja hvers vegna amma fær ekki að vera lengur hjá þeim og þeim finnst það sorglegra en tárum taki að hugsa til þess að litli frændi þeirra fær ekki að kynnast þessari frábæru ömmu sem þeir áttu. Kveðjuorðin sem Elmar Sölvi hvíslaði að ömmu sinni voru: „Takk fyrir að vera alltaf svona góð amma, elsku amma mín. Ég elska þig svo mikið og á eftir að sakna því svo mikið og Aggi Maggi mundi segja þetta líka ef hann kunnti að tala.“ Þeir hafa lof- að því að halda minningunni um elskaða ömmu sína á lífi með því að segja frænda sínum frá henni svo hún geti líka haft áhrif til góðs inn í hans líf. Ég er afskaplega þakklát og lánsöm að hafa fengið að hafa hana Huldu í lífi mínu og drengj- anna minna og fyrir allt það góða sem hún af gjafmildi sinni og hlýju veitti okkur. Hvíldu í friði, Hulda mín. Þín minning mun lifa í hjört- um okkar. Þín tengdadóttir, Steinunn. Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér. Því ég er að gráta og kalla eftir þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á haf? Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað? (Höf. ók.) Elsku amma okkar. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Við máttum alltaf koma til þín og fá grjóna- graut, lifrarpylsu og ristað brauð. Við munum líka þegar þú bauðst okkur til Spánar og Elmar kallaði þig „amma Hunda“. Þú varst allt- af glöð og jákvæð þegar við kom- um. Þú sagðir meira að segja afa að sofa í sófanum þegar við gistum hjá þér og fengum martraðir. Við elskum þig voða, voða mikið. Takk fyrir allar góðu minningarnar. Hlökkum til að hitta þig á himn- um. Bless, bless, amma, við lofum að passa afa fyrir þig. Kveðjur, Alvin Smári og Elmar Sölvi. Látin er Hulda Hafsteinsdóttir, mágkona mín, langt um aldur fram. Hulda og Agnar hafa í gegn- um árin verið minni fjölskyldu mikil hjálparhella í gegnum súrt og sætt og vinskapur fjölskyldna okkar hefur þróast á þann hátt að mikil vinátta er okkar á milli. Frá því ég kynntist Huldu í fyrsta skipti fann ég strax að hér var óvenjulega sterkur persónu- leiki á ferð og var ávallt gaman að eiga orðræðu við hana. Hulda var mjög vinnusöm og hafði ávallt allt í röð og reglu og er ég klár á því að þeir vinnuveitend- ur sem hún vann hjá hafi sömu sögu að segja. Fjölskyldur okkar fóru saman í ferðalög bæði innanlands og er- lendis meðan börnin voru ung og eftir að börnin urðu eldri fórum við saman í fjölmargar ferðir. Þessar ferðir voru okkur öllum mikil skemmtun og voru þær frá því að fara í dagsferð innanlands eða til útlanda í lengri eða skemmri tíma. Hulda greindist með krabba- mein fyrir sjö árum og má segja að hún hafi tekið því með undra- verðri yfirvegun og barist hetju- lega við þennan illvíga sjúkdóm. Og svo kom reiðarslagið fimmtudaginn 13. febrúar er Hulda var flutt á Landspítalann og þar lést hún 18. febrúar. Er hennar sárt saknað af öllum þeim sem kynntust henni á hennar lífs- leið og vil ég að lokum senda Agn- ari og fjölskyldu hans hugheilar samúðarkveðjur. Steinn Halldórsson. Það eru margar skemmtilegar minningar sem koma upp í huga mér þegar ég minnist Huldu mág- konu minnar, sem lést eftir bar- áttu við krabbamein. Eitt af fyrstu minningum mín- um var þegar hún gaf mér forláta skyrtunnur sem voru fyrst notað- ar sem borð og stóll en prýða garðinn minn í dag með blómum. Ævintýralegu verslunarferðirnar til Glasgow koma upp í huga minn. Þar sem ég var tíu árum yngri kenndi hún mér að passa uppá peningana, við áttum að eyða þeim en ekki láta ræna okkur. Ég man að þegar ég var að fara út að skemmta mér leitaði maður oft í fataskáp Huldu mágkonu sem alltaf var auðsótt. Hulda var mikill fagurkeri og ber heimili þeirra vott um það. Guð geymi þig, elsku Hulda mín. Agnar minn, Steinar Geir, Atli Már og fjölskyldur, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Helga Haraldsdóttir. Hinn 18. febrúar síðastliðinn kvöddum við systkinin Huldu frænku okkar á gjörgæsludeild Landspítalans. Þegar heim var komið eftir að hafa kvatt hana í hinsta sinn fór hugurinn á flug og við rifjuðum upp kynni okkar af þessari yndislegu konu, ekki bara frænku okkar heldur einnig góðri vinkonu. Það hefur verið mikill samgangur með fjölskyldum okk- ar og lykill að þeim góðu stundum hefur verið hittingur og spjall, þá helst á léttu nótunum enda Hulda með einstaklega skemmtilegan húmor. Fjölskyldur okkar hafa ferðast mikið saman bæði erlendis og innanlands og Hulda með ein- lægan áhuga á okkur systkina- börnum kom í heimsókn til okkar sem höfum búið erlendis. Hún vildi vita að okkur liði vel sama hvar við vorum niður komin. Hún var okkur öllum góð, veitti okkur öryggi og vellíðan. Við minnumst yndislegu stundanna sem við höf- um átt á aðfangadag með þeim hjónum sem hafa alltaf tekið svo vel á móti okkur. Nú síðast stopp- uðum við óvenju lengi og þegar við héldum heim á leið lofuðum við Huldu að koma fljótt aftur. Það var alltaf svo yndislegt að koma til Huldu og Agga og okkur fannst þau svo lánsöm að eiga hvort ann- að að. Þau voru alltaf svo sæt sam- an. Elsku Aggi okkar, hugur okkar er hjá þér, Steinari, Atla og ykkar fjölskyldum. Elsku mamma, þú hefur misst svo mikið, ekki bara systur heldur einnig þína bestu vinkonu. Þið voruð alltaf svo mikill styrkur hvor fyrir aðra. Þið og við öll höfum misst mikið. Við kveðj- um Huldu frænku með þakklæti í huga fyrir yndisleg kynni sem gáfu okkur svo mikið. Ást og umhyggja fylgja skal þér, volgan yl ég sendi frá mér. Í ótta við kveðjulaust ferðlag heim, á sömu stundu á leið út í geim. Ég veit ekki hvað þú hugsar um mig, en eitt veit ég þó, að ég elska þig. (Karen.) Jóhanna Steinsdóttir, Helga Ingólfsdóttir, Halldór Steinsson, Hafsteinn Steinsson og Heiða Rún Steinsdóttir. Þegar ég sit og hugsa til þín er það fyrsta sem kemur upp í hug- ann hvað þú varst glæsileg, alltaf smart og vaktir eftirtekt hvar sem þú komst. Þú varst ljúf og indæl og aldrei heyrði ég þig kvarta þó að þú hafir um árabil glímt við al- varleg veikindi. Tilhugsunin um dauðann er þó einhvern veginn svo fjarlæg og þegar kallið kemur er maður aldrei alveg tilbúinn. Fyrir mér er enn hálf-óraunveru- legt að þú skulir vera farin og til- hugsunin erfið en ég veit að þú ert á góðum stað. Ég er fegin að hafa hitt þig fyr- ir ekki svo löngu síðan þegar þið Agnar voruð að flytja. Við kvödd- umst með faðmlagi, kossi og þess- um orðum:… komdu svo endilega í kaffi fljótlega. Ef ég hefði vitað að þetta væri í síðasta sinn sem ég hitti þig hefði ég notað tímann bet- ur, faðmað þig meira og látið þig vita hvað mér þætti vænt um þig. En minningarnar lifa og ég á alltaf eftir að hugsa til þín með bros á vör þegar ég set í þurrkarann. Elsku Agnar, Steinar Geir, Atli og fjölskyldur, megi Guð gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Þið verðið í huga mínum og bænum. Elín og Karl. Við hjónin kynntumst Huldu fljótlega eftir að Agnar gekk í fé- lagið Akóges í Reykjavík. Í þessi rúmu þrjátíu ár höfum við notið félagsskapar hvert annars í skemmtilegum ferðalögum sem við höfum annað hvort farið með Akóges eða á eigin vegum ásamt öðrum góðum vinum. Einnig eru árshátíðir Akóges og aðrar sam- komur okkar vinanna eftirminni- legar og ekki síst þorrablótin sem við skiptumst á að halda í mörg ár. Hulda var einstaklega þægileg í allri umgengni, glaðlynd, bein- skeytt og bráðskemmtileg. Hún var mjög ákveðin og breytti að- stæðum ef henni sýndist svo, og gott dæmi um það er þegar hún breytti einu þorrablóti í kalkún- aveislu án þess að láta væntanlega þorrablótsgesti vita fyrirfram. Vakti þetta mikla kátínu og gleði. Hún var mjög umburðarlynd við Munda sinn, eins og hún kall- aði Agnar stundum, og er minn- isstætt þegar í ljós kom að tjald- súlurnar höfðu gleymst heima er tjaldað skyldi lengst austur á landi, en ekki skipti hún skapi heldur gerði bara grín að öllu saman. Eða þegar umræður voru um að gott væri að hafa ferðakló- sett með í „rúgbrauðunum“ sem voru okkar ferðabílar á þeim tíma. „Já, væri ekki bara fínt að stilla því upp við hliðina á kæliboxinu, ha?“ skaut hún þá inn í. Þar með var það útrætt mál og mikið hleg- ið. Við hjónin höfum fylgst með veikindum Huldu eins og hægt hefur verið undanfarin ár og við samhryggjumst Agnari, Steinari og Atla og þeirra fjölskyldum inni- lega. Megi minning um mæta konu verða þeim huggun í harmi. Eiríkur og Hulda. Það er svo mikilvægt í lífinu að eiga góða vini. Ég var svo heppin að eiga Huldu að vini í um það bil 50 ár. Við kynntumst fyrst er við unnum saman í mjólkurbúð þá 15-16 ára og síðan fórum við báðar að vinna á skrifstofu Mjólkursamsölunnar. Við leigðum saman íbúð í nokkurn tíma eða þar til hún og Agnar fóru að búa saman. Hún var heppin þegar hún kynntist Agnari eða honum „Guðmundi sínum“ eins og hún kallaði hann stundum. Hann er mikill sómamaður og hefur Hulda Hafsteinsdóttir ✝ Ragnar Sig-urgeirsson fæddist á Akureyri 27. júní 1942. Hann lést á bráða- móttöku Landspít- alans 18. febrúar 2014. Foreldrar hans voru Sigurgeir Guðmundsson, f. 20. júní 1916, d. 3. október 1979, og Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir, f. 7. apríl 1916, d. 13. nóvember 1966. Systkini Ragnars eru Jón- ína Guðbjörg, f. 2. ágúst 1937, Guðjón Ingvar, f. 30. júní 1939, Sigurjón Eðvarð, f. 8. ágúst 1940, Ingunn Elísabet, f. 18. maí 1944, Ólöf Stefanía, f. 20. júní 1945, Hildur Björk, f. 29. janúar 1947, Agnes, f. 6. desember 1948, Ragnheiður, f. 4. nóv- ember 1950, og Sigmundur Brynjar, f. 23. maí 1958. Barns- móðir Ragnars var Margrét Þorláksdóttir, f. 20. desember 1940, d. 18. janúar 1990, en þau áttu saman einn son, Þorlák, f. 12. september 1961. Kona hans er Álfhildur Hjördís Jónsdóttir, desember 1970. Börn þeirra eru Alda Björk, f. 29. júní 1996, og Arnar Logi, f. 26. janúar 2004. Eftirlifandi sambýliskona Ragn- ars er Lilja Tómasdóttir, f. 30. mars 1943. Dætur Lilju af fyrra hjónabandi eru Inga, f. 30. sept- ember 1966, Hrefna, f. 5. febr- úar 1971, og Ásta Jóna, f. 11. maí 1977. Ragnar ólst upp á Akureyri en dvaldi flest sumur á Kálf- borgará í Bárðardal. Hann var lærður vélvirki. Ragnar flutti til Vestmannaeyja árið 1962 þar sem hann starfaði við sjó- mennsku, vélvirkjun og járn- smíði en lengst af starfaði hann sem vélamaður í frystihúsinu Eyjabergi. Einnig var hann með verslunarrekstur í Friðarhafn- arskýlinu í fáein ár. Árið 1982 flutti hann til Reykjavíkur og hóf fljótlega störf í Álverinu í Straumsvík þar sem hann starf- aði í 27 ár, en hætti þar störfum sökum aldurs. Síðstu árin var hann í hlutastarfi í heildverslun sonar síns. Útför Ragnars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 28. febr- úar 2014 kl. 13. f. 4. maí 1944. Dótt- ir þeirra er Mar- grét Erla, f. 10. október 1982. Fyrir átti Álfhildur 4 börn, Helenu, f. 1. janúar 1964, Björg- vin Þór, f. 21. nóv- ember 1965, Einar Óðinn, f. 29. nóv- ember 1971, og Lindu Dögg, f. 27. ágúst 1974. Ragnar kvæntist hinn 3. ágúst 1963 Svanhildi Sigurðardóttur, f. 16. febrúar 1945. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Helena, f. 20. október 1962, búsett í Kaup- mannahöfn. Börn hennar eru Lilja, f. 7. desember 1980, Stef- án Björn, f. 15. október 1994 og Axel Örn, f. 22. janúar 1997, 2) Hjalti Þór, f. 6. apríl 1965. Kona Hjalta er Kristrún Hauksdóttir, f. 14. júní 1964. Börn þeirra eru Davíð Þór, f. 3. júní 1983, Daní- el Þór, f. 14. febrúar 1985, Dag- mar Ýr, f. 29. maí 1987, Svan- hildur, f. 3 júlí 1989 og Danival Snær, f. 15. september 1994. 3) Andri, f. 9. apríl 1968. Kona Andra er Rósa Ólafsdóttir, f. 6. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guð geymi þig, elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Andri, Rósa og börn. Mágur minn og vinur, Ragnar Sigurgeirsson, er látinn eftir erf- ið veikindi og við vinir hans og ættingjar syrgjum óvenju góðan dreng, sem gat glatt okkur og hresst með sínu kraftmikla eðli; hressileika sem átti engan sinn líka. Ragnar var fæddur á Akureyri og var lengi til sjós og fór til Vest- mannaeyja og bjó þar um hríð. Hann var kominn í land þegar gosið mikla kom í Eyjum, en hann fór ekki til fastalandsins eins og flestir heldur varð eftir til að hreinsa og taka til og bjarga verðmætum. Ragnar skilur eftir ótal góðar minningar um óvenju góðan og hjálpsaman dreng, sem var ekki verkhræddur og réðst á verkefn- ið með krafti, sem var oft sam- fara kunnáttu hans og verksviti. Ragnar var góður vinur vina sinna, enda vinmargur og eiga margir góðar minningar um þennan góða dreng. Ragnar hafði áveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hafði unun af að rökræða og gerðist þá oftar en ekki andsnúinn skoðunum við- mælanda síns til að fá fram rök- ræður um hlutina. Við Ragnar horfðum oft á enska boltann saman og fengum okkur stundum bjórglas og höfð- um góða stund. Hann var stuðn- ingsmaður Liverpool en ég fylgdi Man. United. Var oft glatt á hjalla hjá okkur á þessum stund- um. Rangar bjó síðustu árin á Skúlagötu 20, í íbúð sem hann keypti og gerði hlýlega eins og hans var von og vísa. Nokkrum mánuðum eftir að hann hafði keypt þessa íbúð var Ragnar kos- inn í húsnefnd, því menn höfðu fljótlega uppgötvað að þar fór maður sem hafði vit á hvernig ætti að halda húsinu við og hvað þyrfti að laga og eða gera við með sem minnstum tilkostnaði. Þann- ig var Ragnar. Ég sakna Ragn- ars, en geymi ljúfar minningar um góðan dreng. Blessuð sé minning Ragnars Sigurgeirssonar. Gunnar Gunnarsson. Ragnar Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.