Morgunblaðið - 28.02.2014, Side 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2014
✝ Kristín Kára-dóttir fæddist í
Hveragerði 1. maí
1949. Hún andaðist
á Krabbameins-
deild Landspítalans
við Hringbraut 20.
febrúar 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Kári Sö-
beck Kristjánsson
vélfræðingur,
fæddur 11. ágúst
1928, d. 27. apríl 2013, og Að-
alheiður Ísleifsdóttir húsmóðir,
fædd 17. júní 1928.
Kristín var elst fjögurra
systkina, þau eru: Sigríður
Káradóttir skrifstofumaður, f.
11.1. 1951. Tryggvi Kárason
vélfræðingur, f. 9.12. 1956, og
Trausti Kárason sölumaður, f.
11.1. 1960. Kristín giftist 22.
nóvember 1969 Hlöðveri Ein-
arssyni vélfræðingi, f. 11. nóv-
ember 1945, en hann fórst með
Suðurlandinu á jólanótt 1986.
Börn Kristínar og Hlöðvers eru:
1) Sigurður Helgi Hlöðversson,
auglýsinga- og fjölmiðlamaður,
f. 8. mars 1968, giftur Þor-
björgu Sigurðardóttur ferða-
fræðingi, f. 8. september 1969.
Börn þeirra eru Hlöðver Sig-
urðsson, f. 1989 og Matthildur
Sigurðardóttir, f. 1994. 2) Hlín
Hlöðversdóttir, viðurkenndur
bókari, f. 12. júní 1978, gift
Guðmundi Jóni Tómassyni sölu-
manni, f. 8. nóvember 1969.
Börn þeirra eru Kristín Sól, f.
2002, og Sigurður
Máni, f. 2005. Eft-
irlifandi eig-
inmaður Kristínar
er Albert Sig-
tryggsson sjómað-
ur, f. 22. mars
1948. Börn hans
eru: 1) Sigtryggur
Albertsson skip-
stjóri, f. 19. sept-
ember 1968, giftur
Ragnheiði Sóleyju
Stefánsdóttur kennara, f. 1971,
og eiga þau fjögur börn. 2) Arn-
ar Albertsson sjómaður, f. 22.
nóvember 1969, giftur Ingu
Björg Stefánsdóttur tónlistar-
kennara, f. 1973, og eiga þau
fimm börn. 3) Atli Þór Alberts-
son rekstrarstjóri, f. 10. sept-
ember 1979 og sambýliskona
hans er Anna Ósk Ólafsdóttir
viðskiptafræðingur, f. 1979 og
eiga þau þrjú börn.
Kristín hóf sína skólagöngu í
Þýskalandi en lauk gagnfræða-
námi frá Verkmenntaskólanum
árið 1966. Kristín vann hin
ýmsu störf en þó lengst hjá
Samvinnubankanum frá 1973 til
1985 og þaðan fór hún til Sam-
vinnuferða-Landsýn frá 1985 til
2001. Síðustu árin starfaði hún
svo hjá Isavia ohf. en lét af
störfum þar 2012 sökum veik-
inda.
Útför Kristínar fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
28. febrúar 2014, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Stína litla Kára, hressa og
skemmtilega móðir mín er látin.
Hún var aðeins 18 ára gömul
þegar ég kom í heiminn og allt
mitt uppeldi einkenndist af því að
eiga unga og töff mömmu sem
leyfði nánast hvað sem er. Ekki
var maður alinn upp í ströngu
uppeldi heldur fékk maður bara
að reka sig á veggi og þeir urðu
nú ekki margir. Á okkar heimili
var allt til alls og nóg til af öllu,
pabbi í fraktinni og sigldi heim
með allt sem hugurinn girntist. Á
meðan mamma var að vinna í
Samvinnubankanum og síðar á
Samvinnuferðum-Landsýn þá
vorum við æskuvinirnir að alast
upp í Seljahverfinu og það þótti
alltaf skemmtilegt að koma heim
til mín. Þar var alltaf til tonn af
sælgæti sem ekki var selt í sjopp-
um og við máttum halda heilu
handboltamótin í sjónvarpsholinu
með sokkahnyklum. Við elduðum,
poppuðum og settum heimilið á
hliðina en mömmu var alveg
sama, bara að það væri stuð hjá
okkur.
Mamma hafði einn ókost en
hún var grjótharður stuðnings-
maður Liverpool en ég held með
Manchester United. Þegar þessi
lið áttust við var gjarnan tínt til
ýmislegt góðgæti, hent í heitan
rétt, dregið fyrir gluggatjöldin,
farið í treyjur og hækkað vel í
sjónvarpinu. Svo öskruðum við og
sungum fyrir hvort annað. Þetta
var hitamál á meðan á leik stóð og
ég man oft eftir að dyrabjöllunni
var hringt í miðjum leik og við
fórum ekki til dyra, það var bann-
að að trufla.
Eftir að pabbi minn dó kynnt-
ist hún Alberti sínum og þvílík
Guðsgjöf. Albert hefur borið
móður mína á örmum sér og
gengið litlu systur minni í föður-
stað en hún var aðeins 8 ára þeg-
ar pabbi dó. Mamma og Albert
ferðuðust mikið og ég er afskap-
lega þakklátur fyrir að hafa feng-
ið að njóta þess að ferðast með
þeim seinni ár. Sérstaklega þegar
ég fékk þau loksins til að koma
með mér í dýrðina á Old Trafford.
Hún var yfir sig hrifin og þá
ákvað ég að koma henni á óvart
og bauð henni í sömu ferð óvænt á
leik Liverpool og Chelsea. Ferðin
á Anfield var að öllu leyti frábær,
Never Walk Alone sungið af inn-
lifun, fjögur mörk í jafnteflisleik,
Suarez, uppáhaldið hennar, beit
annan leikmann í bringuna en það
sem stóð upp úr er að ég útvegaði
henni miða í eigu fyrirliða liðsins,
Steven Gerrard og var miðinn
merktur honum. Þennan miða
geymdi hún í veskinu fram á síð-
asta dag og veifaði honum oft
framan í aðra.
Ég dáist af baráttu mömmu við
þann illvíga sjúkdóm sem krabba-
meinið er. Aldrei talaði hún um að
þetta væri ósanngjarnt eða ein-
hver annar ætti þetta skilið. Hún
tók þessu af æðruleysi og barðist
fram á síðustu mínútu.
Móðir mín var mikill gleði-
pinni, jákvæð og alltaf brosandi.
Betri ömmu fyrir börnin mín
hefði ég ekki getað hugsað mér.
Það er stórt skarð sem þessi litla
hressa kona skilur eftir sig.
Takk fyrir að vera mamma
mín. Þinn sonur,
Sigurður H. Hlöðversson.
Elsku mamma. Nú hefur nafla-
strengurinn á milli okkar verið
slitinn. Það er erfiðara en tárum
taki að hugsa um það að ég sé
ekki að fara að koma til þín eða
tala við þig í síma einu sinni til
tvisvar á dag alla daga vikunnar,
allt árið um kring. En eins og þú
sagðir við mig í upphafi veikinda
þinna þá værir þú ekkert að fara
frá mér og ég trúi því að þú verðir
með mér alla daga þangað til við
sjáumst aftur. Á meðan mun ég
varðveita minningarnar um þig
og okkar tíma saman og reyna að
halda á lofti þinni gríðarlegu já-
kvæðni og fallega brosi.
Þú kenndir mér svo margt í líf-
inu og það sem þú prédikaðir
mest fyrir mér var kurteisi og þú
sagðir svo oft „Ímyndaðu þér að
núna sértu í veislu hjá forsetan-
um“, það þýddi að maður átti að
haga sér sérstaklega vel. Þú hafð-
ir eina fallegustu rithönd sem ég
hef séð og varst svo oft fengin til
að skrifa í kort og fleira fyrir
aðra, ég fékk rithöndina með
móðurmjólkinni. Elsku móðir, nú
veit ég að þér líður betur en þú
ert búin að vera algjör hetja í
þessi tvö ár sem þú ert búin að
berjast við veikindin. Þér tókst að
blekkja alla í kringum þig um að
þú værir ekkert veik og það væru
allir aðrir miklu veikari en þú.
Eftir þér var tekið á spítalanum
fyrir glæsileika og hafði fólk oft
orð á því við okkur hvort það gæti
verið að þú værir sjúklingur.
Elsku móðir, takk fyrir allt. Nú
tek ég við keflinu þínu og hugsa
um gamla og litlu ömmuenglana
þína sem eiga eftir að sakna þín
óendanlega. Sælir eru hjarta-
hreinir því þeir munu Guð sjá.
Hlín.
Tengdamóðir mín er fallin frá,
ég kveð hana með söknuði og
þakklæti.
Ég gat ekki verið heppnari
með tengdó, hún var alltaf hress
og kát og ég tala ekki um hve já-
kvæð hún var. Stína var óspör á
fallegu orðin í minn garð og sagði
oft „uppáhaldstengdadóttir mín“
eða „ég elska þig Obbý mín“. Þar
sem Stína mætti var alltaf
stemming, ekkert væl eða böl-
móður, bara mikill hlátur og fífla-
læti.
Eftir að Stína veiktist sagði
hún við mig að við skyldum búa til
minningar og reyna að gera sem
mest saman. Ferðirnar til Man-
chester, Spánar og í sumarhús
eru ógleymanlegar og svo fullar
af fallegum minningum og
skemmtilegum uppákomum.
Á Spáni síðasta sumar sendum
við strákana í golf, komum okkur
fyrir á „happy hour“ við sund-
laugina og áttum heilan dag á
trúnó. Við töluðum og hlógum
stanslaust í sex klukkutíma. Þann
dag geymi ég í mínu hjarta alla
ævi.
Takk fyrir að vera frábær
tengdó og amma. Takk fyrir
Sigga minn og mágkonu mína. Al-
bert minn, takk fyrir að vera
kletturinn hennar Stínu. Ég kveð
með söknuði yndislega konu sem
vildi ekkert nema það besta fyrir
sína nánustu og kvartaði aldrei
sjálf.
Guð blessi Stínu Kára, tengda-
móður mína.
Þorbjörg (Obbý).
Nú þegar komið er að kveðju-
stund hjá okkur Stínu langar mig
að minnast hennar í örfáum orð-
um. Við Stína kynntumst þegar
pabbi og Stína fóru að vera saman
þegar ég var 18 ára. Fljótlega
fluttum við feðgar til hennar og
barna og reynt var að púsla hlut-
unum sem best saman en það hef-
ur án efa verið vandasamt verk
þar sem tvær fjölskyldur tóku
saman. Síðan þá höfum við
ferðast saman, grátið, hlegið og
átt góðar stundir á heimili þeirra.
Með okkur bræðrum, mér, Atla
Þór og Arnari tókust ágæt kynni
við börn Stínu þau Sigurð Helga
og Hlín og hafa þau kynni styrkst
enn frekar á liðnum árum. Stínu
var annt um að fjölskyldan hittist
reglulega og héldu hún og pabbi
alltaf stórveislu á jólum og auðvit-
að 1. maí þar sem allir mættu og
áttu saman góðar stundir. Ég er
þakklátur fyrir þann tíma sem við
áttum og það sem stendur upp úr
eftir öll þessi ár er brosið hennar
og jákvæðni en þannig fór hún í
gegnum lífið þó að vissulega hafi
dregið fyrir sólu á milli. Stína átti
marga góða að sem studdu hana í
gegnum þessa erfiðu baráttu og
þá ekki síst pabba, Hlín og Sigurð
Helga. Stínu þakka ég ótal góðar
stundir, við sem eftir lifum eigum
eftir að halda minningu hennar á
lofti um ókomin ár.
Sigtryggur Albertsson.
Elsku Stína systir mín er farin
langtum aldur fram. Hún andað-
ist á Landspítalanum 20. febrúar
eftir hetjulega baráttu við
krabbamein. Þessa setningu er ég
búin að lesa nokkrum sinnum í
minningagreinum en nú skil ég
þetta eftir að hafa séð þetta í nær-
mynd. Það er sagt að það sé sorg-
legt þegar fólk deyr og hefur
gleymt að lifa lífinu. Stína var að
lifa lífinu á fullu og hefði viðja fá
meiri tíma til þess.
Stína var manneskja lífsgleð-
innar, hressileikinn gustaði af
henni. Hún þoldi ekki depurð eða
leiðindi og fékk ég oft olnbogaskot
frá henni þar sem hún sagði við
mig „vertu ekki með þessi leið-
indi“. Stína var mjög fljótt sjálf-
stæð, fór fljótt að heiman og bjó
með Hlöðveri í fyrstu íbúð þeirra í
Þingholstræti 15. Þetta var þegar
68 kynslóðin var og hét skemmti-
staðurinn var Glaumbær.
Stína vann aðallega á þremur
stórum vinnustöðum þ.e. Sam-
vinnubankanum, Samvinnuferð-
um-Landsýn og nú síðast hjá
Isavia. Þar sem hún var með lífs-
gleðina að leiðarljósi eignaðist
hún marga vini fyrir lífstíð á þess-
um vinnustöðum. Eitt af áhuga-
málunum var ferðalög og þar sem
hún vann hjá ferðaskrifstofu voru
hæg heimatökin.
Nokkrar ferðir eru mér mjög
minnisstæðar með henni og dýr-
mætar þar á meðal ferð til Krítar
með pabba og mömmu, Þýska-
lands að heimsækja gamla vini og
Manchester-fjölskylduferð.
Við systkinin vorum nágrannar
hér í Bryggjuhverfinu þar sem
hún bjó með Alberti seinni manni
sínum þar sem hann ásamt nær-
fjölskyldunni stóð sem klettur hjá
Stínu í þessum veikindum.
Stína skrifaði minningargrein
um föður sinn Kára fyrr um ári og
sagði „takk fyrir að vera faðir
minn öll þessi ár“. Ég segi takk,
Stína, fyrir að vera systir mín
Tryggvi (Diddi) og Guðrún.
Hún Stína, mín elskulega syst-
ir, kvaddi þennan heim eftir
mikla baráttu að kveldi 20. febr-
úar. Það hafa verið mín forrétt-
indi í lífinu að eiga hana sem syst-
ur, á milli okkar myndaðist
sterkur þráður spunninn af vin-
áttu, ást hlýju og miklum kærleik.
Við höfum fylgst að í gegnum lífið
í gleði og sorg, aðallega gleði, og
áttum gott með að geta hlegið
saman.
Hún Stína mín var mikill gleði-
gjafi hvert sem hún kom, alltaf
vinsæl og stórskemmtileg. Á upp-
vaxtarárum okkar bjó fjölskyldan
í Austur-Þýskalandi, þar mynd-
uðust sterk vináttubönd sem við
vorum svo lánsamar að geta end-
urnýjað 40 árum síðar. Sögurnar
af Stínu minni voru ekki gleymd-
ar eftir allan þennan tíma. Stína
skellti sér í 1. maí göngu með
ungliðahreyfingu landsins, enda
hennar afmælisdagur, ekki vildi
hún missa af fjörinu. Æskuljómi
og baráttuandi skein af henni,
mikið var ég stolt af stóru systur
hún gat allt og þorði allt.
Á unglingsárunum kynntist
Stína Kötu, þær voru óaðskiljan-
legar vinkonur, tvíeykið fór á
kostum, ekki minnkaði gleðin,
einfaldlega að vera þar sem þær
voru þar af alltaf gaman. Minn-
ingarnar streyma fram og af
miklu að taka. Stína mín var mik-
ill fagurkeri, heimili hennar og
Alberts hlýlegt og fallegt. Stína
mín var mikið jólabarn, enda jólin
alltaf sérstakur tími hjá fjölskyld-
unni. Jólaskreytingar svo smekk-
legar að okkur þóttu ekki komin
jól, nema koma til Stínu og Al-
berts. Við vorum svo lánsamar að
geta ferðast mikið saman erlendis
ásamt mökum og stundum var
einfaldlega öll stórfjölskyldan
saman í ferð. Stína var mikil fjöl-
skyldumanneskja stolt af börnum
sínum og barnabörnum. Það er
stórt skarð í okkar fjölskyldu við
fráfall elskulegrar systur minnar
og mun ég ávallt minnast hennar
með gleði og glaðværð. Ég er
óendanlega þakklát fyrir þig,
elsku systir mín, og kveð þig með
söknuði.
Sigríður Káradóttir
(Sigga systir).
Það er erfitt að trúa því að ég
sé að skrifa minningargrein um
hana Stínu, hennar tími með okk-
ur var alltof stuttur. Ég kynntist
Stínu fyrir tæpum 25 árum. Ég
var þá 18 ára, nýbúin að kynnast
honum Sidda mínum og tóku
Stína og Abbi mér opnum örm-
um. Þegar ég hugsa um Stínu er
af nógu að taka en upp úr standa
minningar um þétt faðmlög, risa-
stórar marengsbombur, Beni-
dormferðir, Ólsen Ólsen mót,
ferðir í Stínukot og ómótstæðileg-
an hlátur hennar. Hún Stína var
nefnilega ein af þessum mann-
eskjum sem alltaf eru hressar og
kátar, annaðist fólkið sitt af mik-
illi natni og lifði lífinu svo sann-
arlega lifandi. Mér finnst með
ólíkindum til þess að hugsa að það
eru rétt tæp tvö ár síðan að Stína
veiktist, en þrátt fyrir erfið veik-
indi hélt ég alltaf að hún myndi
hafa betur, annað fannst mér
bara óhugsandi. Hún barðist eins
og hetja, með Abba og fjölskyld-
una sér við hlið allt frá upphafi til
enda. Æðruleysi hennar og dugn-
aður var aðdáunarverður og alltaf
hélt hún áfram, en meira að segja
Stína með gleðina að vopni gat
ekki unnið þennan bardaga. Það
er því með sorg í hjarta sem ég
kveð hana Stínu, en elsku Abba,
Hlín, Sigga, Öllu og öðrum ætt-
ingjum votta ég mína dýpstu
samúð, Guð veri með ykkur.
Ragnheiður Sóley
Stefánsdóttir.
Lífsgleði, jákvæðni, kátína og
hlýja eru orð sem svo vel lýsa
elskulegri systur og mágkonu
sem við kveðjum í dag. Það er
sárt að kveðja en við eigum svo
ótal margar ljúfar og góðar minn-
ingar um Stínu, minningar sem
munu fylgja okkur í framtíðinni.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó viði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sig.)
Trausti og Selma.
Það skiptir auðvitað mestu
máli þegar upp er staðið og litið
til baka, að geta ornað sér við
hlýjar og fallegar minningar um
þann sem fallinn er frá. Það á svo
sannarlega við um frænku mína,
Kristínu Káradóttur. Reyndar vil
ég frekar segja systur mína, það
voru 27 dagar á milli okkar, við
vorum geymd í sitt hvorri komm-
óðuskúffunni á Læk fyrstu miss-
erin og vorum síðan að baksa
saman í alls konar skúffum allt líf-
ið.
Og það var ekki leiðinlegt. Ól-
umst upp saman í Kópavoginum,
Stína bjó hjá okkur um tíma, við
gengum í sama skóla og áttum
sama vinahópinn og fylgdumst
náið að. Seinna á ævinni unnum
við saman um árabil svo sam-
skiptin voru mikil og náin.
Það er einkenni á Lækjarætt-
inni sem kölluð er, að eiga hávær
samskipti, frískleg og glaðvær og
Stína sór sig í ættina. Mér er til
efs að hafa yfirleitt hlegið meira
með nokkurri manneskju, enda
var Stína ekki að festa sig í smá-
atriðum. Auðvitað voru skin og
skúrir. Það var bankað upp á hjá
okkur þar sem við vorum öll sam-
an komin á Miklubrautinni á jóla-
dag og tilkynnt að Suðurlandið
hefði farist og Hlöðver, fyrri mað-
ur Stínu, væri látinn. Það tók svo
sannarlega á okkur öll, en treysti
á einhvern hátt böndin líka.
Albert kom í spilið fyrir um 25
árum og allar götur síðan hefur
mikil og einlæg vinátta staðið á
milli okkar. Í hugann koma fjöl-
mörg ferðalög innanlands og ut-
an, sérstaklega til Þýskalands
þar sem Stína átti sér rætur frá
fyrri tíð í Stralsund og svo til sól-
arlanda, en alltaf gat maður undr-
ast þá miklu langlegu sem Stína
gat stundað í sólinni, helst í sem
mestum hita. Að öðru leyti var
Stína ekki mikill útivistarmaður,
en kunni vel að meta íslenska
náttúru út um bílgluggann. Á
lengri ferðum bæði innanlands og
utan, var gjarnan brugðið á það
ráð að setja bjórkassa undir fæt-
urna á Stínu, því hún var ekki há-
vaxin kona og þreyttist í fótunum
á löngum keyrslum þegar hún
náði ekki niður á bílgólfið. Í hug-
ann koma líka glæsileg matarboð
og hörkupartí og samvera um
áramót í áratugi með Abba og
Stínu.
Líf þeirra saman var með mikl-
um eindæma fögnuði. Þau voru
greinilega tengd nánum vináttu-
böndum og umhyggja Abba fyrir
Stínu mikil. Reyndar segir það
alla söguna að í hans huga var
hún allaf „mín“. Það var „mín vill
hafa þetta svona“, eða „mín er að
elda stórsteikur – ætlið þið að
koma?“. Það vissu allir hver
„mín“ var hjá Abba.
Birna, sem Stína kallaði „þessi
húsmæðraskólagengna“, og Stína
voru miklar vinkonur og trúnað-
arvinir og hjálpuðust að við ferm-
ingar, stórafmæli og veisluhöld
og raunar hvað sem upp kom.
Það varð snemma ljóst í veik-
indum Stínu, að hér var alvara á
ferðinni. En það var ekki í boði að
vera með eitthvert væl. Taka
bara á því – eins og Stína hafði
reyndar alltaf gert.
Auðvitað erum við skilin eftir í
mikilli sorg. En í huganum
hljóma líka hlátrasköll og grín og
Kristín
Káradóttir
HINSTA KVEÐJA
Blómið, sem sameinaði
ólíka liti er fallið. Bleika
blómið í vendinum, sem
vinkonur um árabil hafa
skipað.
Minningin um kærleiks-
ríka vináttu mun lifa með
okkur og við þykjumst vita
að nú sitjið þið saman, þú
og Ragga, tvær stjörnur á
næturhimni í „óhlekkjaðri
laglínu“.
Saknaðarkveðja frá
saumó.
Þuríður, Rannveig, Katrín,
Jóna, Jóhanna og Guðrún
Elsku amma Stína,
góða nótt,
sofðu rótt í alla nótt
og láttu Guð og englana passa
þig.
Við elskum þig.
Kristín Sól og
Sigurður Máni.
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.