Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Qupperneq 2
* Forsíðumyndina tók Ómar Óskarsson.
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Mannskepnan hræðist það sem
hún þekkir ekki. Spákonur, miðl-
ar, skyggnigáfa og hinn andlegi
heimur verður okkur ávallt hug-
leikið fyrirbæri. Hins vegar
þekkjum við þetta fyrirbæri nú
flest enda mikið rætt um þennan
heim hér á landi. Sögur af ýmsum
spámiðlum og læknamiðlum
ganga manna á milli um allt land.
Flestir bera þeim söguna vel.
Sumir eftir að hafa jafnvel fengið
innsýn í framtíðina, styrk eða
hjálp. Aðrir eru gjarnan sagðir
fúskarar standist þeir ekki vænt-
ingar.
Það sem er áberandi í viðtölum
við nokkra þekkta miðla hér á
landi í blaðinu í dag er það að
lengi vel voru þau ósátt við að
hafa þessa óumbeðnu skyggni-
gáfu. Í mörgum tilfellum tók það
sinn toll og tíma að sætta sig við
sitt hlutskipti áður en þau hættu
að streitast á móti. Ætla mætti að
það væri síður en svo auðvelt að
burðast með slíkt á lífsleiðinni og
er miðlum gjarnan feimnismál.
Oft heyrist hátt í efasemd-
aröddum þegar spákonur og miðl-
ar ber á góma og trompið dregið
fram, vísindin. Að vísu vilja sumir
miðlar meina að þessir tveir
heimar, hið veraldlega og hið and-
lega, séu að sameinast. Ekki
verður lagður dómur á það hér.
Skiptar skoðanir eru á þessum
málum og skiljanlegt að fólk hafi
efasemdir. En hvort sem fólk trú-
ir á hið andlega eður ei er aldrei
verra að víkka sjóndeildarhring-
inn, enda er það ríkt í landanum
að trúa því að fleira leynist í
heiminum en það sem augað nem-
ur.
Engin einhlít skýring er á til-
gangi lífsins og enginn veit hvort
það er líf eftir dauðann. Sennilega
fáum við aldrei nein svör við því.
Hvers vegna ættum við þá ekki
að taka hlutunum með opnum
huga?
RABBIÐ
Dularfulli heimur andans
Gunnþórunn Jónsdóttir
Sjaldan er Leifur heppni, frægasti íbúi Skólavörðuholtsins, tilkomumeiri en í ljósaskiptunum en við þau skilyrði sótti Árni Sæberg, ljósmyndari Morg-
unblaðsins, einmitt að honum í vikunni. Að baki honum er helsta kennileiti borgarinnar, Hallgrímskirkja. Styttuna færðu Bandaríkjamenn Íslendingum að
gjöf í tilefni af Alþingishátíðinni 1930. Skólavörðuholt hét upphaflega Arnarhólsholt þar sem það er fyrir ofan Arnarhól og var stórgrýttur melur með
jökulurð og gott berjaland áður en þar var byggt. Vesturhlíð hæðarinnar er kölluð Þingholt eftir bæ sem þar stóð áður fyrr. Núverandi nafn sitt fékk
holtið eftir að Skólavarðan var reist þar árið 1793 en hana reistu skólapiltar úr Hólavallarskóla.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LEIFUR STENDUR VAKTINA
EKKI ER OFSÖGUM SAGT AÐ HEPPNIN HAFI ELT LEIF EIRÍKSSON LANGT ÚT FYRIR GRÖF OG DAUÐA. Í LIFANDA
LÍFI VAR HANN KENNDUR VIÐ HEPPNI OG NÚ TÆPUM ÞÚSUND ÁRUM SÍÐAR STENDUR HANN MEÐ ALVÆPNI
Á HÆSTA PUNKTI Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR, SKÓLAVÖRÐUHOLTINU, OG HORFIR YFIR LIFENDUR OG DAUÐA.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Útskriftarsýn-
ing Ljósmyndaskólans.
Hvar? Lækn-
ingaminjasafn Við
Nesstofu á Seltjarn-
arnesi.
Hvenær? Laugardag
kl. 15.
Nánar: Fimmtán nemendur útskrifast
úr ljósmyndaskólanum og sýna verk sín.
Sýna verk sín
Hvað? Spilakaffi –
tveggja manna spil.
Hvar? Gerðubergi.
Hvenær? 15. janúar
kl. 20-22.
Nánar: Opið spila-
kvöld þar sem fólk getur komið saman
og spilað undir skemmtilegri leiðsögn.
Spilakvöld í Gerðubergi
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Origami-kennsla.
Hvar? Borgarbókasafn Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15.
Hvenær? Sunnudag kl. 15.
Nánar: Origami Ísland leiðbeinir börn-
um að gera origami. Þemað er fuglar.
Origami fyrir börn
Hvað? Bergþórutón-
leikar.
Hvar? Salurinn,
Kópavogi.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.30.
Nánar: Ragnheiður Gröndal, Pálmi
Gunnarsson, Svavar Knútur og fleiri
taka lagið á árlegum tónleikum þar sem
flutt eru nokkur af þekktustu lögum
Bergþóru Árnadóttur. Verð: 3.900 kr.
Árlegir tónleikar
Hvað? Donnie Darko.
Hvar? Bíó Paradís.
Hvenær? Sunnudag kl. 20.
Nánar: Donnie Darko verður sýnd á
Svörtum sunnudegi í Bíó Paradís.
Svartur sunnudagur
Hvað? Þúsundkrónamarkaður til
styrktar Barnaspítala Hringsins.
Hvar? KEX hostel, Skúlagötu 28.
Hvenær? Laugardaginn 15. febrúar kl.
11-17.
Nánar: Markaður með ýmsum varn-
ingi. Allar vörur kosta einungis 1.000 kr.
og rennur allur ágóði til Barnaspítala
Hringsins.
Þúsundkrónamarkaður