Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Page 4
* Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun ogvel upplýstar ákvarðanir.Fyrsta atriðið í grunnstefnu Pírata. ÞjóðmálORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Þegar horft er til nýrra fram-boða í borgarstjórnarkosn-ingum er árangur Besta
flokksins fyrir fjórum árum ein-
stakur en flokkurinn fékk þá sex
menn kjörna. Odd-
viti flokksins, Jón
Gnarr, varð borg-
arstjóri.
Reykjavíkurlist-
inn bauð fyrst
fram árið 1994 og
fékk hreinan
meirihluta, átta
menn. Það framboð var þó annars
eðlis en að því stóðu gamalgrónir
flokkar, Framsóknarflokkurinn, Al-
þýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið
og Samtök um kvennalista, sem all-
ir höfðu boðið
fram áður í borg-
inni. Oddviti fram-
boðsins, Ingibjörg
Sólrún Gísladótt-
ir, varð borg-
arstjóri.
Árið 1970 buðu
Samtök frjáls-
lyndra og vinstrimanna fram í
fyrsta sinn og fengu einn mann
kjörinn. Fjórum árum síðar buðu
Samtökin og Alþýðuflokkurinn
fram sameiginlegan lista og komu
einum manni að.
Konur bjóða fram
Árið 1982 fékk Kvennaframboðið
tvær konur kjörnar í borgarstjórn
en það var undanfari Samtaka um
kvennalista, sem bauð fram fjórum
árum síðar og náði einni konu inn.
Frjálslyndir og óháðir buðu fyrst
fram 2002 og fengu einn mann
kjörinn. Héldu honum fjórum árum
síðar en þá var reyndar boðið fram
undir merkjum
Frjálslynda
flokksins. Borg-
arfulltrúi flokks-
ins, Ólafur F.
Magnússon, var
um tíma borg-
arstjóri á kjör-
tímabilinu.
Eftir að Reykjavíkurlistinn leyst-
ist upp buðu Samfylkingin og
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
fyrst fram til borgarstjórnar árið
2006. Samfylkingin fékk fjóra menn
kjörna en VG tvo.
Fyrst var kosið til borgar-
stjórnar 1962. Frá 1836 til 1958 var
kosið til bæjarstjórnar í Reykjavík.
Einstök
kosning
Besta
flokksins
Þau gefa kost á sér í prófkjör-
inu: Þórgnýr Thoroddsen í 1.
sæti. Halldór Auðar Svansson
í 1. sæti. Arndís Einarsdóttir í
1.-2. sæti. Þórlaug Ágústs-
dóttir í 1.-2. sæti. Óskar Hall-
grímsson í eitthvert af efstu
sætunum. Ásta Helgadóttir í
hvaða sæti sem er. Arnaldur
Sigurðarson í 2. sæti. Björn
Birgir Þorláksson í 2. sæti.
Svafar Helgason í 2.-3. sæti.
Kristín Elfa Guðnadóttir í 3.
sæti. Haukur Ísbjörn Jóhanns-
son í 3.-4. sæti. Þórður Ey-
þórsson í 3.-4. sæti. Perla Sif
Hansen í 3.-5. sæti. Kjartan
Jónsson í 4.-6. sæti. Þuríður
Björg Þorgrímsdóttir í 4.-6.
sæti. Rúnar Björn Herrera
Þorkelsson í 5. sæti.
Frambjóðendafundur verð-
ur í dag, laugardag, kl.
16.00 í MÍR-
salnum, Hverf-
isgötu 105, 101
Reykjavík. Þar fá
félagar í Pírötum í
Reykjavík færi á
að kynnast
frambjóð-
endum
og spyrja
þá spjör-
unum
úr.
P
rófkjör Pírata í Reykja-
vík hófst á föstudaginn
og lýkur á laugardag-
inn eftir viku. Það fer
fram rafrænt á netinu.
Um 70 manns eru á kjörskrá en
Halldór Auðar Svansson, kapteinn
Pírata í Reykjavík, gerir ráð fyrir
að fjölga muni í hópnum meðan á
prófkjörinu stendur en til að taka
þátt þarf fólk að eiga aðild að Pí-
rötum í Reykjavík og búa í höf-
uðborginni. Um 600 manns eru í
Pírötum á landsvísu. Fólk þarf að
hafa verið í Pírötum í a.m.k. þrjá-
tíu daga til að geta tekið þátt í
prófkjörinu. Píratar munu einnig
bjóða fram í Hafnarfirði og
Reykjanesbæ og mögulega víðar.
Niðurstaða úr prófkjörinu mun
liggja fyrir sunnudaginn 23. febr-
úar næstkomandi.
Áhersla á lýðræði
„Kosningabaráttan leggst vel í
okkur. Áhugi er þónokkur og mál-
efnastarfið hefur gengið vel. Við
munum gera grein fyrir sameig-
inlegri sveitarstjórnarstefnu bráð-
lega,“ segir Halldór.
Skoðanakannanir sem birst hafa
undanfarið hafa sýnt Pírata með
mann inni í Reykjavík, jafnvel tvo.
Halldór segir það mikla hvatn-
ingu og með góðri kosninga-
baráttu sé ekki óraunhæft að
stefna á þrjú sæti í borgar-
stjórn.
Halldór segir að stefna
Pírata í borgarmálum verði
kynnt betur síðar en ljóst
sé að áherslan verði á lýð-
ræði, upplýsingagjöf, íbúasamráð,
velferðar- og réttindamál enda
setji hreyfingin þau mál iðulega á
oddinn.
Mikilvægur hópur
Stefanía Óskarsdóttir, lektor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, segir nýjustu skoðanakann-
anir benda eindregið til þess að
grundvöllur sé fyrir framboði Pí-
rata í sveitarstjórnarkosningunum í
maí, alltént í Reykjavík. Erindið
virðist vera minna þegar komið er
út fyrir höfuðborgarsvæðið enda
stefnir ekki í að hreyfingin bjóði
fram þar. „Athygli vekur að Pírat-
ar virðast hafa meira fylgi meðal
ungs fólks en Sjálfstæðisflokkurinn
í Reykjavík, samkvæmt könnun
sem Morgunblaðið birti á dög-
unum. Fyrir stjórnmálaflokkana
eru ungir kjósendur mjög mikil-
vægur markhópur því rannsóknir
sýna að talsverðar líkur eru á að
fólk haldi áfram að kjósa það sama
í framtíðinni. Það er því áhyggju-
efni fyrir hefðbundna stjórn-
málaflokka ef þeim tekst ekki að
höfða til ungra kjósenda,“ segir
Stefanía.
Spurð hvað skýri sterka stöðu
Pírata meðal ungs fólks vísar Stef-
anía til vantrausts í garð hefðbund-
inna stjórnmálaflokka og segir að
ungum kjósendum kunni að þykja
sem flokkarnir svari ekki kalli tím-
ans og séu of lokaðar stofnanir.
„Þá tengja ungir kjósendur, ekki
síst ungir karlmenn, sem eyða
löngum stundum í tölvum og á net-
inu, við málflutning Pírata um net-
frelsi og óheftan aðgang að upplýs-
ingum. Mörgum þeirra finnst
kannski sem slíkt muni auka lífs-
gæði þeirra,“ segir hún.
Stefanía bendir jafnframt á þá
skýringu að töluverður samhljómur
sé með hefðbundnu stjórnmála-
flokkunum á sveitarstjórnarstiginu.
„Lítið er um átök um lausn stórra
mála sem skipta kjósendur veru-
legu máli. Það þýðir jafnframt að
erfiðara er fyrir kjósendur að gera
upp á milli valkosta. Til að vega
upp á móti þessu færist áherslan í
kosningabaráttunni gjarnan á
frambjóðendur frekar en stefnuna.
Þetta kann að draga úr áhuga
fólks á stjórnmálum til lengri tíma
en jafnframt búa til jarðveg fyrir
ný framboð sem hafa eitthvað nýtt
fram að færa.“
Of snemmt að spá
um árangur
Stefanía segir þó enn of snemmt
að segja til um sérstöðu Pírata eða
möguleika á árangri þar sem þeir
eigi bæði eftir að kynna stefnu
sína í borgarmálum og frambjóð-
endur. Hún nefnir einnig að ný
framboð standi oft höllum fæti
gagnvart hefðbundnu flokkunum
þegar komi að kosningastarfi.
„Styrkleiki hefðbundinna stjórn-
málaflokka felst ekki síst í inn-
viðum þeirra, svo sem félags-
mönnum, skipulagi og fjármagni.
Þetta nýtist þeim til að virkja kjós-
endur. Þá má heldur ekki gleyma
því að eldri kjósendur eru líklegri
til að skila sér á kjörstað en þeir
yngri.“
Morgunblaðið/Ómar
ÞAU ERU Í KJÖRI
Stefanía
Óskarsdóttir
(Pí)rata þeir inn?
PRÓFKJÖR STENDUR YFIR HJÁ PÍRÖTUM Í REYKJAVÍK EN HREYFINGIN BÝÐUR NÚ FRAM Í FYRSTA SINN Í BORGINNI. ÞEIR
HAFA HAFT MEÐBYR Í SKOÐANAKÖNNUNUM OG KAPTEINNINN Í REYKJAVÍK SEGIR EKKI ÓRAUNHÆFT AÐ STEFNA Á
ÞRJÁ BORGARFULLTRÚA. STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SEGIR ÁHUGA UNGS FÓLKS Á FRAMBOÐINU ATHYGLISVERÐAN.