Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Takist ekki samningar gæti
afleiðingin m.a. orðið sú að
andstæðingar Ísraela fái sam-
þykktar efnahagslegar refsi-
aðgerðir gegn Ísrael. En bent
er á annan vanda: Íbúar Ísr-
aels eru nú átta milljónir, þar
af eru um 20% arabar, með
fullan ríkisborgararétt. Um
3,5 milljónir araba búa á
hernumdum svæðum,
talan er þó umdeild.
Mikil viðkoma Pal-
estínumanna gæti
innan fárra ára haft í
för með sé að á öllu
svæðinu yrðu gyðingar
í minnihluta. Yrði þá
hæpið að fjalla
áfram um Ísrael
sem raunverulegt
lýðræðisríki.
P
alestínumenn eru klofn-
ir, annars vegar í
Fatah-samtök Mahmo-
uds Abbas forseta sem
stýra Vesturbakkanum
og hins vegar hryðjuverkasamtökin
Hamas sem stýra Gaza og hafna
öllum samningum. Og þótt Ísraelar
hafi lengi þótt einstaklega þras-
gjarnir í stjórnmálalífi sínu er
margvíslegur klofningur í sam-
félagi þeirra nú djúpstæðari en
dæmi eru um í 65 ára nútímasögu
ríkisins.
Þetta er ekki björgulegt. Samt
gera sumir sér vonir um að samn-
ingaumleitanir sem farið hafa fram
að undirlagi Bandaríkjamanna síð-
an í fyrra geti hugsanlega leitt til
þess að eining náist um grundvöll
að nýjum friðarviðræðum.
Rætt er um að Ísraelar afsali
sér í áföngum yfirráðum á Vest-
urbakkanum, sem þeir hernámu
1967, samið verði um að þeir haldi
ákveðnum landtökubyggðum sem
næst liggja Ísrael. Palestínumenn
fái bætt tap á landi með öðrum
svæðum í Ísrael. Sendimaður
Bandaríkjastjórnar, Martin Indyk,
mun hafa tjáð Ísraelum að um 80%
íbúa landtökubyggða gyðinga fái að
búa þar áfram. Og Abbas er
reiðubúinn að samþykkja að herlið
frá Atlantshafsbandalaginu verði á
landamærunum til að tryggja frið.
Annað mál sem veldur miklu til-
finningaróti er framtíð Jerúsalem-
borgar sem Ísraelar ráða nú yfir.
Harðlínumenn, jafnt úr röðum
múslíma sem gyðinga, vilja í engu
slaka til. Palestínumenn vilja að
austurhluti Jerúsalem, sem er
byggður aröbum, verði höfuðborg
hins væntanlega Palestínuríkis,
Ísraelar að hún verði áfram óskipt
höfuðborg Ísraels.
Þriðja málið sem lengi hefur orð-
ið að ásteytingarsteini er réttur
brottfluttra Palestínumanna til að
endurheimta eignir sínar, jarðir og
hús, á svæðum sem nú eru hluti
Ísraels. Hundruð þúsunda Palest-
ínumanna hröktust á brott 1948 og
næstu ár, afkomendur þeirra víða
um heim skipta núna milljónum.
En Ísraelar benda á að þá verði
einnig að huga að því að hundruð
þúsunda gyðinga voru á sömu ár-
um hraktir á brott frá araba-
ríkjum og Íran, þeir misstu
líka eigur sínar. Einnig sé svo
langt um liðið að flækjurnar
yrðu óleysanlegar ef allt flótta-
fólk sneri aftur heim til
fyrri heimkynna. Finna
verði því búsetu í hinu
nýja Palestínuríki eða
annars staðar.
Aðstæður Palest-
ínumanna eru víðast hvar slæmar,
ekki síst valda vanda allar skorð-
urnar sem það setur að vera ekki
borgarar í viðurkenndu ríki, eiga
hvergi tryggan samastað. Og at-
vinnuleysið á Vesturbakkanum er
19%, yfir 50% á Gaza. Ísraelar
hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að
nýta vatnslindir svæðisins fyrst og
fremst í eigin þágu en láta Palest-
ínumenn og þarfir þeirra sitja á
hakanum. En auðug olíuríki, eink-
um Sádi-Arabía, hafa lengi styrkt
Palestínustjórn árlega með geysi-
miklu fé, mikið af því hefur þó
horfið í alræmda spillingarhít
Fatah.
Margir Palestínumemn
vinna fyrir Ísraela
Einnig hafa Sameinuðu þjóðirnar
séð fólkinu í flóttamannabúðunum
fyrir nauðþurftum og tryggt þar
lágmarks heilbrigðisþjónustu og
skólahald. Palestínumenn fá auk
þess margir þjónustu á sjúkra-
húsum Ísraela þótt sjaldan sé á
það minnst í áróðri Palestínu-
manna.
Tugþúsundir Palestínumanna á
hernumdu svæðunum stunda at-
vinnu í Ísrael. Fram kemur í grein
í New York Times að margir af
þessum Palestínumönnum vinna
við að reisa mannvirki í land-
tökubyggðunum sem sífellt eflast.
Þessi uppbygging gerir um leið sí-
fellt erfiðara fyrir Palestínumenn
að endurheimta hernumdu svæðin.
„Ég neyðist til að vinna hér af því
að ég á hús, er með fjölskyldu,“
segir einn verkamannanna, Jalaita,
sem á fimm börn, þar af tvö í há-
skóla. En það sé niðurlægjandi að
vinna fyrir Ísraela. Fyrir hina síð-
arnefndu er einnig umhugsunarefni
að með þessu útvega þeir þjóð sem
berst gegn landtökubyggðunum
tekjur, hjálpa erkifjendum sínum
að komast af.
Draumurinn
um frið lifir
enn
BANDARÍKJAMENN HVETJA NÚ ÁKAFT ÍSRAELA TIL AÐ
REYNA AÐ TRYGGJA AÐ PALESTÍNUMENN GETI FENGIÐ
AÐ BÚA Í EIGIN RÍKI VIÐ HLIÐ ÍSRAELS. FREMUR ÓLÍKLEGT
ER ÞÓ AÐ SAMNINGAR NÁIST Á NÆSTUNNI.
ÁFRAM LÝÐRÆÐI?
Forseti þings Evrópusambandsins, Martin Schultz, var nýlega í heimsókn í Ísrael. Hann tók þá fram að hann væri sjálfur
andvígur öllum hugmyndum um að ESB beitti efnahagslegum refsiaðgerðum til að fá Ísraela til að hætta að efla land-
tökubyggðirnar. En í ræðu á þinginu, Knesset, gagnrýndi hann Ísraela fyrir að mismuna Palestínumönnum með því að
nýta sjálfir megnið af vatnslindum svæðisins og tóku sumir þingmenn þessa gagnrýni óstinnt upp.
AFP
* Það er algerlega útilokað að hægt sá að viðhalda nú-verandi stöðu, hún getur ekki verið viðvarandi.John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
BRET
LO ysilegt tj
síðuBret
erset-héraði og nokkrirSomvik
hafa verið látnir hlaðarmeafa tý nn
verjast vatninu.um til að
V
að
fo
BANDARÍKIN
WASHINGTON E
vetrarstor
og suðurh
og valdið m m
samgöngu
er að rekja
veðurham
rsk
átið
s sem
ráðist á
Xinjiang-
uta lands-
nn sögðui
rka-
ð að
enjulegaæð
rmenntt v
rbrotsúr