Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Reglulega eru fluttar fréttir af því að Ísland séneðarlega eða „komi illa út“ á lista Eftirlits-stofnunar EFTA yfir hversu vel EFTA-
löndunum miðar í innleiðingu tilskipana evrópska
efnahagssvæðisins. Fyrir þá sem telja samanburð
við erlend ríki þann mælikvarða sem mestu máli
skiptir þá er rétt að minna á að á listanum eru ein-
ungis þrjú lönd. Ísland kemst því á verðlaunapall
telji menn það sérstakt keppikefli að ná árangri á
listanum. Það sem þó skiptir hér máli efnislega er
að með inngöngu í EES-samstarfið undirgengust
EFTA-ríkin ekki keppni í innleiðingu reglna sem
samningsþjóðirnar hafa sett sér. Það er ekkert til
sem heitir „innleiðingarhalli“ eins og nefnt er í
fréttum af þessum listum.
Eitt meginmarkmiða EES-samstarfsins er að
stuðla að auknu frjálsræði og samvinnu í við-
skiptum um allan heim en um leið að tryggja eins-
leitni á evrópskum markaði. Full þörf virðist vera á
að rifja reglulega upp og árétta að EES-samstarfið
er þó ekki einhliða samband sem rúllar reglum
ESB viðstöðulaust inn í EFTA-ríkin. EES-
samstarfið er tvíhliða samstarf annars vegar
EFTA-ríkjanna og hins vegar ESB. Báðir aðilar
hafa sama rétt við mótun reglna sem varða sam-
starfið og þótt margir haldi að Íslendingar þurfi að
vera algerir þiggjendur evrópskra reglna þá er það
ekki þannig. Innleiðing nýrra reglna á sviði EES-
samningsins fer ávallt fram með aðkomu alþingis
og að undangenginni afgreiðslu í sameiginlegu
EES-nefndinni en í henni fer fram upptaka nýrra
reglna í EES-samninginn og breyting á eldri
reglum. Sameiginlega EES-nefndin hefur einnig
það hlutverk að veita EFTA-ríkjunum undanþágu
frá sameiginlegum reglum ef samningsaðilar eru
sammála um slíkt. Hefur það verið nýtt sem skyldi
af hálfu Íslands?
Það kann að vera að lagafrumvörp renni í gegn-
um alþingi jafnmótstöðulaust og vatnið á suður-
hluta Englands um þessar mundir. Ólíkt rigning-
unni er innleiðing EES-reglnanna hins vegar ekki
hluti af gangverki náttúrunnar. Alþingi hefur fullt
forræði á því hvaða reglur eru innleiddar. Vilji
þingmenn hafa á því skoðun hvaða reglur eru inn-
leiddar geta þeir það. Telji þingmenn sig ekki hafa
tíma til þess að hafa skoðun á EES-reglunum, nú
eða öðrum lagafrumvörpum, eiga menn alltaf þann
kost að gefa þeim ekki lagagildi hér á landi. Bíða
með það þangað til þeir hafa tíma til að kynna sér
málið. Og það er bara alls ekkert að því.
Magn er ekki sama og gæði
* Ef það er óvinnandivegur að fylgjast með og hafa áhrif á reglusetningu
samkvæmt EES-samningnum
í dag hvernig yrði þá staða
Íslands innan ESB?
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
María
Rut Krist-
insdóttir,
formaður
Stúd-
entaráðs,
veltir fyrir
sér hvað
hún ætlar að taka sér fyrir hendur
að loknu starfi. „Er að upplifa þvílíka
tilvistarkreppu akkúrat núna og er
því tilneydd til að deila henni með
ykkur. Ég er nefnilega hægt og ró-
lega að átta mig á því að ég hætti að
vera formaður Stúdentaráðs 1. júní
næstkomandi og þarf að finna mér
vinnu fyrir sumarið! Viljiði plís
hjálpa mér aðeins: HVAR Á ÉG
EIG-
INLEGA
AÐ
VINNA?!
Kveðja,
ein ringl-
uð.“
Skíða-
svæðin
hafa verið opin af og til að und-
anförnu og væntanlega einhverjir
gripið tækifærið og skellt sér. Ekki
er vitað hvort Bragi Valdimar
Skúlason er skíðamaður en hann
veltir fyrir sér græjunum sem þarf
að nota á skíðum: „Hérna, skíða-
gleraugu … eru þau alveg, þið vitið,
eðlile … eða?“ Félagi hans, Jóhann-
es Tryggvason, svarar um hæl: „Ekki
í rúminu, Bragi. Ekki í rúminu.“
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, á
klókan og sniðugan son. „Helgi
Matthías gerði samning við pabba
sinn … fékk 3 flatkökur (uppáhaldið
hans) þegar hann kom úr leikskól-
anum gegn því að lofa að borða all-
an kvöldmatinn sinn. Ægilega fína
fiskisúpu
sem hús-
bóndinn
eldaði. Svo
kom að
skuldadög-
um – súp-
an góða
komin á
borð. Tárvotur með ekkasog þegar
hann sá að hann hafði greinilega
samið af sér reyndi hann að snúa sig
út úr vondri stöðu: „Mamma … ef
það hefði ekki verið súpa í kvöld-
matinn heldur kjötbollur … þá
hefði ég klárað kvöldmatinn. Þetta
er svindl!“
AF NETINU
Vetrar- og útivistarhátíðin Éljagangur fer
fram um helgina á Akureyri og er viðburð-
urinn orðinn árlegur í febrúarmánuði. Dag-
skráin er ansi þétt á hátíðinni og meðal annars
er þar mikið um að vera fyrir brettakrakka. Þá
er ýmsir aðrir viðburðir á dagskrá á borð við
vélsleðaferðir, morgunskokk, troðaraferðir á
Kaldbak og fleira. Nánar á www.eljagangur.is.
Morgunbaðið/Skapti Hallgrímsson
Njóttu
Éljagangs
Japanska útvarpsstöðin J-wave hélt tónleika
með tónlistarmanninum Ásgeir Trausta í jap-
anska sendiráðinu á föstudag. Ásgeir er í
fyrsta sæti japansks vinsældalista. Um 1.500
sóttu um miða á viðburðinn í sendiráðinu en
einungis 40 manns komust að. Hannes Heim-
isson sendiherra í Japan sagði tónleikana hafa
verið flotta og augljóst að Ásgeir hafi snert
einhverja strengi í Japan með skemmtilegri
framkomu og flottum tónleikum. „Við vorum í
sambandi við umboðsmann hans og útgáfufyr-
irtæki hér, við ákváðum að bjóða þeim rými
hér til þess að halda kynningartónleika fyrir
nýju plötuna hans. Allt var tekið upp og verð-
ur sent út á mánudag í þeirra dagskrá.“
Hannes segir Ásgeir Trausta vaxandi
stjörnu í Japan, og miðað við stöðu hans núna
þá lofar hann góðu. „Japanski markaðurinn
er mjög kröfuharður, þetta er 127 milljón
manna þjóðfélag sem fylgist grannt með því
sem er að gerast í tónlistinni um heim allan.
Japanir upp til hópa eru vandlátir, kröfu-
harðir og um leið tryggir.“ Ásgeir Trausti
mun spila á 5.000 manna tónleikum í Japan á
sunnudag og heldur síðan áfram í tónleika-
ferðalagi sínu.
Ásgeir Trausti heillaði Japana þegar hann hélt
tónleika í japanska sendiráðinu á föstudag.
Ásgeir Trausti
vinsæll í Japan
Vettvangur
Íris Dögg Pétursdóttir, ritstjóri Séð & Heyrt,
á von á barni með sambýlismanni sínum Ey-
þóri Einarssyni, en fyrir eiga þau saman tvö
börn.
Íris Dögg hefur ritstýrt tímaritinu í heilt ár
núna. Hún er dóttir Péturs Péturssonar, fyrr-
verandi landsliðsmanns og markamaskínu í
fótbolta og er því ekki ólíklegt að barnið rati í
boltann.
Barnalán hjá
Séð & Heyrt
Morgunblaðið/Ernir