Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 12
Í myndum
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Kjartan Hallgeirsson
sími 824 9093
Þröstur Þórhallsson
sími 897 0634
Dan Wiium
sími 896 4013
jöreign ehf
Sundagarðar
Húseignin, er sjö hæða skrifstofubygging ásamt geymslum í kjallara og lokaðri bifreiðageymslu.
Einnig eru stæði fyrir framan og aftan húsið. Vandað skrifstofuhúsnæði með tveimur lyftum.
1. hæðin skiptist í tvennt, annars vegar 145,1 fm og hins vegar 186,7 fm skrifstofurými, auk
hlutdeildar í sameign. 4. hæðin er 464,3 fm skrifstofurými, auk hlutdeildar í sameign. Húsið er klætt
að utan. Mikið og fallegt útsýni er frá hæðunum. Langtímaleigusamningar eru í boði.
Upplýsingar hjá eftirtöldum löggiltum fasteignasölum:
Til leigu Sundagarðar – tvær skrifstofuhæðir!
V ið erum í sælu- og gleði-vímu eftir þetta,“ segirSoffía Dóra Sigurgeirs-
dóttir, framkvæmdastýra UN Wo-
men á Íslandi, en í hádeginu á
föstudag fór fram átakið Milljarður
rís þar sem hátt í 3.500 manns
mættu saman í Hörpu og dönsuðu
fyrir breyttum heimi. Einnig var
dansað á Ísafirði, Akureyri og víðar
um land. „Þetta er fyrst og fremst
vitundarvakning til þess að upp-
ræta ofbeldi gegn konum. Öll vit-
undarvakning hefur áhrif á sam-
félagið í heild sinni og það er í raun
viss hvatning og stuðningur við þol-
endur. Það er skilvirkasta leiðin til
að ná fram breytingum og hafa
áhrif á viðhorf sem skilar sér svo
aftur í lagasetningu. Til að mynda
hafa átt sér stað framfaraskref á
Indlandi í kjölfar hópnauðgunar þar
í landi í lok árs 2012.“ Eftir hóp-
nauðgunina áttu sér stað fjöldamót-
mæli sem varð til þess að róttækar
breytingar urðu á allri löggjöf er
varðar hvers kyns kynferðisofbeldi.
„Konur eiga ekki að þurfa að lifa í
ótta við að vera áreittar, barðar eða
brenndar fyrir það eitt að vera kon-
ur. Milljarður rís-átakið á að vera
út frá gleði og jákvæðni að þetta
geti gerst, og það er hægt – að
breyta heiminum!“
Það var líf og fjör á samkomu UN Women sem stóð fyrir átakinu Milljarður rís í Hörpu á föstudag. Morgunblaðið/Ómar
Krakkarnir létu sig ekki vanta og notuðu hádegishlé sitt til að stíga saman flottan dans.
MILLJARÐUR RÍS
Dönsuðu
fyrir breytt-
um heimi
Hátt í 3.500 manns dansaði hér á landi í hádeginu.
Hulda Stefánsdóttir og Þóra Jónsdóttir frá Barnaheillum.