Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 14
E
yþór Arnalds hyggst hætta í bæj-
arstjórn Árborgar og býður sig
ekki fram í næstu bæjarstjórnar-
kosningum. Undanfarin fjögur ár
hefur hann verið formaður bæj-
arráðs og setið í átta ár í bæjarstjórn sem
oddviti D-lista. Áður hafði hann verið í fjögur
ár í borgarstjórn í Reykjavík.
„Einhvern tíma verða allir menn að kveðja
sviðið og ég er svo heppinn að geta valið tím-
ann sjálfur,“ segir Eyþór. „Ég fékk drauma-
tækifæri ásamt góðu fólki til að vinna að upp-
byggingarstarfi í Árborg. Við fengum
meirihluta atkvæða í síðustu kosningum og
skýrt umboð kjósenda. Við lögðum höf-
uðáherslu á fjármál og skipulagsmál og höfum
náð að laga öll aðalatriðin í báðum málaflokk-
um. Í fjármálunum skárum við niður í stjórn-
kerfinu, lækkuðum fasteignaskatta og skuldir.
Í skipulagsmálum hefur mikið áunnist þar
sem horfið var frá umdeildum áformum og
leitað í grunninn og söguna. Bærinn átti ekki
miðbæjarreitinn á Selfossi en í kreppunni
keyptum við hann á hagstæðu verði og höfum
unnið að því að gera hann sem manneskjuleg-
astan.“
Hvaða verkefni taka við nú þegar þú kveð-
ur stjórnmálin?
„Meðfram starfinu í bæjarstjórn hef ég öll
árin unnið í atvinnuuppbyggingu og mun nú
snúa mér alfarið að þeim störfum, auk þess
að sinna fjölskyldunni. Ég mun áfram vinna
hjá Strokki sem hefur staðið að verkefnum
eins og Becromal í Eyjafirði, sem er orðið eitt
helsta útflutningsfyrirtæki landsins og fram-
leiðir hátæknivörur úr áli. Strokkur hefur
unnið að uppbyggingu GMR-stálverksmiðju á
Grundartanga sem sinnir álverunum og end-
urvinnur stál. Af öðrum verkefnum má nefna
kísilmálmverksmiðju ThorSil í Helguvík.“
Hörð en holl lexía
Finnst þér að þú hafir náð því fram sem þú
vildir á þínum stjórnmálaferli og af hverju
viltu ekki stefna hærra á þeim vettvangi?
„Í Árborg var ég búinn að gera það sem ég
ætlaði mér. Ég held að ég hefði bætt litlu við
það sem ég var búinn að gera þar með því að
halda áfram. Ég hefði farið að endurtaka mig
og þá er betra að hætta sáttur og hleypa öðr-
um að.
Ég tel að viðhorfið til stjórnmálanna sé
breytt. Áður ríkti þar eins konar tröppu-
gangur og menn biðu eftir að komast hærra
í metorðastiganum, dálítið eins og í embætt-
ismannakerfinu. Í dag er meiri hreyfing á
bæði kjósendum og stjórnmálamönnum.“
Ef ég spyrði þig um erfiðasta tímann þinn
í pólitík þá geri ég ráð fyrir að þú myndir
nefna atvikið þegar þú varst tekinn fyrir
ölvunarakstur.
„Já, það var aðfaranótt 14. maí 2006. Í
slíkri stöðu er um tvennt að velja; að kenna
öðru um eða læra af mistökunum. Á þessum
tíma var of mikill hraði á mér og ég var of
hrokafullur. Það er sagt að maður læri af
reynslunni og stundum þarf hún að vera erf-
ið. Þetta mál reyndi á þá sem voru í kring-
um mig. Sjálfstæðismenn í Árborg reyndust
mér á vel erfiðum tímum og fjölskylda mín
sérstaklega. Og það gerði mér gott að horf-
ast í augu við galla mína.“
Var áfengi vandamál í þínu lífi á þessu
tímabili?
„Sá maður sem sest undir stýri og ekur
drukkinn á við áfengisvandamál að stríða.
Hann verður að taka á sínum málum og ég
gerði það.“
Þetta mál var í kastljósi fjölmiðla. Þér
hlýtur að hafa fundist það erfitt.
„Það eru ekki allir sem upplifa það að
mistök í einkalífinu komist í kastljósið. En
þeir sem eru í kastljósinu verða líka að
svara fyrir allt í kastljósinu. Lexían var því
hörð en holl.“
Aðalatriðið hvað gert er
Þú talaðir fyrr í viðtalinu um að það væri
hreyfing á kjósendum og stjórnmálamönn-
um. Þessi hreyfing kjósenda virðist hafa
áhrif á Sjálfstæðisflokkinn sem er ekki leng-
ur sá 40 prósenta flokkur sem áður var talið
svo sjálfsagt að hann væri.
„Það er ljóst að á árinu 2008 lenti Sjálf-
stæðisflokkurinn í tilvistarkreppu og glataði
bæði trausti og fylgi og þó að flokkurinn
hafi náð hluta fylgisins til baka hefur hann
ekki gert það að fullu. Ástæðurnar eru ým-
iskonar og staðan er ekki eins alls staðar á
landinu. Í Árborg fórum við úr 24 prósent-
um í 40 prósent 2006 og úr 40 prósentum yf-
ir í 50 prósent eftir hið fræga hrun. Meðan
verið var að berja á Sjálfstæðisflokknum á
landsvísu fékk hann lélega kosningu í
Reykjavík og galt afhroð á Akureyri en
hlaut mjög góða kosningu víða í Suður-
kjördæmi.
En þetta er líka spurning um það fyrir
hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur. Flokkar
sem eru lengi við völd þurfa að minna sig á
fyrir hvað þeir standa. Að mínu mati stukku
Píratar inn í ákveðið tómarúm. Þeir tala fyr-
ir einstaklingsfrelsi og persónuvernd sem
borgaralegur flokkur eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur löngum staðið vörð um, en
af einhverjum ástæðum sáu kjósendur ekki
þessar áherslur Sjálfstæðisflokksins. Flokk-
urinn þarf að vera með trúverðuga sýn á það
fyrir hvað hann stendur. Í Reykjavík hefur
til dæmis ekki verið ljóst fyrir hvað flokk-
urinn stendur þegar kemur að skipulags-
málum, skattamálum og fjármálum.“
Heldurðu að umræðustjórnmálin hafi
kannski átt þátt í því að flokkurinn var með
of mikla málamiðlun við pólitíska andstæð-
inga?
„Alveg örugglega. Umræða er góð en aðal-
atriðið er hvað gert er en ekki hvað rætt er.
Kjósendur eiga að geta treyst því að flokkar
svíki ekki helstu stefnumál sín. Vinstri-
grænir eru gott dæmi um þetta. Þeir sendu
kjósendum þau skilaboð að þegar kæmi að
andstöðu við inngöngu í Evrópusambandið
væru þeir eini flokkurinn sem treystandi
væri, en þeir stóðu svo sjálfir með Samfylk-
ingunni í því að sækja um inngöngu í sam-
bandið. Um leið myndast trúnaðarbrestur
milli kjósenda flokksins og stjórnmálamann-
anna.“
Skrýtin forgangsröðun
Náttúrverndarmál verða örugglega áberandi
í þjóðfélagsumræðunni næstu árin en Sjálf-
stæðisflokkurinn er ekkert sérstaklega
kenndur við náttúruverndarsjónarmið.
„Ég er mikill náttúruunnandi og nátt-
úruverndarsinni og ég veit að það sama á við
um fjölmarga sjálfstæðismenn. En það er
eins og flokkurinn hafi ekki haldið þessu
sjónarmiði nógu vel fram. Hitaveita Reykja-
víkur varð að veruleika undir stjórn Sjálf-
stæðisflokksins og sjálfbær nýting auðlinda á
Íslandi hefur vakið athygli um allan heim.
Nú er stefnt að olíuvinnslu á Drekasvæðinu
en það var hreinræktaða vinstristjórnin sem
beitti sér fyrir fyrstu leyfunum í olíunni en
setti rammaáætlun með vistvæna vatnsafls-
kosti í uppnám og biðstöðu. Það var skrýtin
forgangsröðun. Við eigum að ljúka við
rammaáætlun og nýta vistvæna vatnsafls-
kosti. Við höfum þekkingu á vatnsafli og að
einhverju leyti á gufuafli. Fjölmargir útlend-
ingar sjá Ísland sem grænt land og við ætt-
um að einbeita okkur að því að efla þá
ímynd.“
Hvernig finnst þér ríkisstjórnarsamstarfið
hafa tekist fram að þessu?
„Mér finnst margt hafa verið mjög vel
gert. Það er eðlilega óþolinmæði í fólki, til
dæmis vegna úrlausna í skuldamálum, en
mér finnst ríkisstjórnin hafa farið rétta leið í
því að leiðrétta húsnæðislánin. Ef sá sem
skuldar í húsinu sínu getur notað skattkerfið
til að borga niður höfuðstólinn þá er það
heilbrigður hvati. Við erum með of marga
mjög óheilbrigða hvata í kerfinu. Vaxtabætur
eru til dæmis verðlaun fyrir að skulda en
menn fá fasteignaskatt fyrir að eiga. Það er
miklu heilbrigðara að fólk sem leggur sig
fram við að vinna fái umbun frekar en fólk
fái greitt fyrir að skulda. Þannig getur fólk
eignast á nýjan leik.
Síðan held ég að sú ákvörðun að afnema
undanþáguna fyrir fjármálafyrirtæki í slita-
meðferð hafi verið mjög mikilvæg. Banka-
kerfið er alltof stórt og skapar ekki verð-
mæti í sjálfu sér heldur er milliliður.
Ríkisstjórnin hefur svo sýnt metnað í að
bæta Landspítalann og gera betur við aldr-
aða. Hún á hins vegar eftir að taka á kerfinu
og skera niður. Vonandi gerir hún það.
Reynsla okkar í Árborg sýnir að það er
hægt.“
Hvernig heldurðu að þér gangi að lifa án
stjórnmálanna sem hafa verið svo stór þáttur
í lífi þínu?
„Það er ekki víst að ég læknist af pólitíska
vírusnum. Ég þekki enga lækningu. Það er
sennilega hægt að halda þessum sjúkdómi
niðri, en það er ekki hægt að lækna hann.“
Þannig að endurkoma þín í stjórnmálin
einhvern tímann í framtíðinni er ekki óhugs-
andi?
„Það er ekkert útilokað í því sambandi.“
Ólæknandi
pólitískur
vírus
EYÞÓR ARNALDS HÆTTIR Í STJÓRNMÁLUM EN VIÐURKENNIR
UM LEIÐ AÐ ÓVÍST SÉ AÐ HANN LÆKNIST AF PÓLITÍSKUM
VÍRUS. Í VIÐTALI RÆÐIR HANN MEÐAL ANNARS UM
NÆSTU VERKEFNI SÍN, STÖÐU SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS,
NÁTTÚRUVERNDARMÁL OG ERFIÐASTA TÍMA SINN Í PÓLITÍK.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Svipmynd