Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Ferðalög og flakk
Barinn hans Hemingways var opnaður eftir að hafa verið tekinn í gegn 1994. Hann tekur 34 í sæti.
H
venær sem París er heimsótt er
hægt að lofa því að menningar-
legum órum verður fullnægt og
kannski ekki síður bragðlauk-
unum. Matargerðin í París er auðvitað fyrsta
flokks og það borgar sig að velja veitinga-
staðina vel. Hvort sem það kallast „bistro“
eða „restaurant“ þá eru hér nokkrir staðir
sem gæla við bragðlaukana. The Quartier
d’Aligre, skammt frá Bastillunni, Cantine
Merci, Le Pre Verre, The Boulangerie and
Les Dingues og auðvitað Relais de L’Entre-
côte sem er einn vinsælasti veitingastaður í
París. Það þarf ekkert að panta borð á Rela-
is, heldur bara mæta. Veitingastaðurinn er
ólýsanlega vinsæll, bæði Frakkar og ferða-
menn láta sig hafa það að standa í röð frá
ellefu á morgnana og fram eftir kvöldi á
helstu álagstímum. Það gerir ekkert til því
röðin mjakast fljótt áfram og þjónustan er
afar lipur.
Ef þú vilt fá góða rifjasteik með grænni
sósu og frönskum kartöflum þá fæst hún á
veitingastaðnum Relais de L’Entrecôte í
París. Vinsældir staðarins eru ævintýralegar
og skýrast af frábærri matreiðslu sem end-
urspeglar allt sem er best í Frakklandi: Gott
kjöt sem bráðnar í munni, syndsamlega góð-
ar franskar, einhverja dularfyllstu sósu sem
sögur fara af.
Dularfulla græna sósan
Frakkar eru mikið fyrir kjöt og í uppáhaldi
er nautakjöt en rifjasteik þykir einn besti
bitinn af nautinu. Dýrið er alið á fínu fóðri
og kjötið er því frekar fitulítið, bragðgott og
lungamjúkt. Þetta góða kjöt með ljúffengum
heimtilbúnum frönskum og svo ómótstæði-
lega græn sósa, sem nefnd var hér að ofan,
er einföld samsetning sem hefur slegið í
gegn. Það voru frönsk feðgin sem kokkuðu
upp réttinn árið 1959 og hefur uppskriftin
haldist nánast óbreytt síðan. Þetta þykir afar
sérstakt í veitingahúsageiranum og ætti jafn-
vel heima í heimsmetabókum.
Dularfulla sósan heitir Relais de l’Entre-
côte en er oft kölluð græna sósan meðal Ís-
lendinga út af græna litnum á sósunni. Hún
er ofsalega góð og allir sleikja út um við til-
hugsunina eina. Færustu matreiðslumenn
hafa reynt að finna út innihaldsefni sós-
unnar. Hingað til hefur engum tekist það og
því er hún hulin ráðgáta. Aðeins veitinga-
húsið sjálft þekkir uppskriftina og hefur
einnig náð sér í einkaleyfi. Það er þó ekki
bara sósan sem fólk elskar, heldur líka
meyrt nautakjötið og frönsku kartöflurnar.
Íslendingum sem hafa einu sinni borðað
þarna finnst ómissandi að líta inn á grænu
sósunni séu þeir á leið til Parísar.
Barinn hans Hemingways
Einn áhugaverðasti barinn í París er Hem-
ingway-barinn á Hótel Ritz. Barinn er
kenndur við bandaríska rithöfundinn Ernest
Hemingway en hann gisti reglulega á hót-
elinu og tók miklu ástfóstri við það. Honum
var svo annt um staðinn að 25. ágúst 1944
ruddist hann vopnaður inn á hótelið ásamt
félögum úr andspyrnuhreyfingunni og rak
síðustu Þjóðverjana út af því.
Í París er annars rík hefð fyrir hvers kyns
léttvíni og kampavíni. Fólk fer á kaffihús,
tyllir sér í harða tréstóla og snýr út að göt-
unni til að geta horft á mannlífið á meðan
drykkirnir renna mjúklega niður með salt-
hnetum og ólífum. Andrúmsloftið á Hem-
ingway-barnum er allt annað og innilegra.
Þetta er lítill bar sem tekur aðeins 34 í sæti
og þar ríkir þægileg stemning. Grænir leð-
urstólar bjóða gesti velkomna, safírgræn
teppi eru á gólfum og viðarinnréttingar
gleðja augað. Á veggjunum hanga myndir af
Hemingway og þarna er líka gamla ritvélin
hans.
Barinn er flottur en hefur jafnframt skap-
að sér mikla sérstöðu með fantagóðum kokt-
eilum. Hann var enduropnaður árið 1994 eft-
ir nokkra ládeyðu, og þá undir stjórn
barþjónsins Colins Fields. Vinsældirnar eru
ekki síst þessum frábæra gestgjafa að
þakka. Honum er umhugað um gestina og
blandar kokteila að smekk hvers og eins.
Síðan tyllir hann alltaf rauðri rós í drykkina
hjá konunum á barnum. Margir álíta Colin
Field einn besta barþjóninn í París.
Skoðað á Champs Elysées
Champs Elysées er með fallegri götum Evr-
ópu og margslungin. Á daginn er endalaust
hægt að horfa á iðandi mannlífið, versla, fá
sér kaffi eða eitthvað franskt í gogginn og
færa sig yfir í eðalvínin þegar kvölda tekur,
en óhætt er að segja að Elysées lumi á ið-
andi næturlífi.
Fyrir þá sem hafa áhuga á sögu er París
lukkupotturinn og margt áhugavert að skoða
eins og hallir og fjöldi safna um allt mögu-
legt, hvort sem menn hafa áhuga á miðöld-
um, upplýsingaöldinni eða tuttugustu öldinni.
Hér hafa verið ótal konungdæmi, byltingar
og valdarán og hér urðu til þær lýðræðis-
hugmyndir sem mörkuðu hugmyndafræðileg
vatnaskil um lýðræði á 19. öld og víðar í
heiminum. Skoðaðu endilega Versali Loðvíks
fjórtánda, sem er hin glæsilegasta höll og
ekki er hallargarðurinn síðri yfir sumartím-
ann. Frakkar eru frægir fyrir matargerðar-
list sína. Gjaldmiðillinn er evra og hitinn get-
ur verið frá 3°C um háveturinn yfir í 25°C
um hásumarið.
Rómantík í lofti
Það er varla hægt að óska sér betri innsýnar
í líf Parísarbúa en vetrarmánuðina og ósköp
venjulegur dagur í París er að sjálfsögðu
betri en allir dagar alls staðar annars staðar,
sérstaklega ef ástin er með í för. Parísar-
búar héldu að sjálfsögðu Valentínusardaginn
heilagan eins og flestir aðrir en í borg þar
sem rómantísk stemning er stöðugt á næsta
leiti er hægt að halda sinn eigin Valentínus-
ardag alla daga.
Einn helsti kostur Parísar er hversu auð-
velt það er að ganga um borgina. Í raun er
hægt að eyða heilum degi í að ráfa um,
skoða glæsilegar byggingar, sætar smábúðir
og yndislegt útsýnið sem býðst um alla borg-
ina. Á veturna eru færri á ferli. Í janúar og
febrúar er menningarlíf borgarinnar upp á
sitt allra besta og nóg að sjá og skoða innan-
dyra, t.d. á söfnum, í leikhúsum, óperum,
balletthúsum, galleríum og tónleikahöllum.
Ástin blómstrar innsigluð í lás
Það hefur verið sagt um París að hún sé
borg ástarinnar. Það liggur einhver ástar-
ljómi yfir borginni og allir sem eru ástfangn-
ir vilja fara til Parísar og eyða þar nokkrum
dögum með ástinni sinni. Fara upp í Eiffel-
turninn, sitja á kaffihúsum og horfast í augu,
kaupa croissant og marglitar makkarónur og
heyra frönskuna talaða allt í kring. Eitt af
því sem hefur orðið til í kringum ástina í
París eru ástarlásar á brúnum yfir Signu.
Þar hafa ástfangin pör skrifað nöfnin sín á
litla lása sem þau síðan krækja í brýrnar og
læsa. Því næst fleygja þau lyklinum í Signu,
til merkis um að þau hafi skilið hjörtu sín
eftir í París og ást þeirra verði eilíf. Það er
hægt að sjá ástarlásana á tveimur sögufræg-
um brúm í París; Pont des Arts og Pont de
l’Archevêché. Ástin blómstrar því sem aldrei
fyrr í París og öllum er frjálst að gefa elsk-
unni sinni ástarlás, kyssa hana frönskum
kossi og kasta svo lyklinum í Signu. Wow air
flýgur til Parísar.
UNAÐSSTUND Í FRAKKLANDI
Rómantík í París
ALLIR ÆTTU AÐ HEIMSÆKJA PARÍS AÐ MINNSTA KOSTI EINU SINNI
Á ÆVINNI OG ÞEIR SEM HAFA FARIÐ SNÚA YFIRLEITT AFTUR. ÞAÐ
ER MARGT AÐ SJÁ OG SKOÐA OG ÞAÐ BORGAR SIG EKKI AÐ
SKIPULEGGJA HVERJA MÍNÚTU ÞVÍ HVAR SEM MAÐUR KEMUR
ER EITTHVAÐ SEM GRÍPUR AUGAÐ, ÞANNIG ER BARA PARÍS.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
* Það hefur verið sagtum París að hún sé borg ástarinnar. Það
liggur einhver ástarljómi
yfir borginni.