Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 23
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Í
þróttakempur leynast víða í samfélaginu og þær eru á ýmsum aldri. Þær
koma í öllum stærðum og gerðum en eiga það það sameiginlegt að vera
eða hafa verið í góðu líkamlegu formi einhvern tímann í lífinu. Kemp-
urnar eru sem betur fer til í að deila reynslu sinni með okkur og veita
okkur góð ráð. Kempa dagsins er Pálína María Gunnlaugsdóttir, landsliðs-
kona í körfubolta og leikmaður Grindavíkur.
Gælunafn: Pálí – en það eru ekki allir sem fá að nota þetta nafn, aðeins út-
valdir.
Íþróttagrein: Körfubolti.
Hversu oft æfir þú á viku? Það eru skipu-
lagðar æfingar sex sinnum í viku en ég
reyni að komast í lyftingasalinn a.m.k.
fjórum sinnum í viku.
Hvernig æfir þú? Ég fer í lyftingasalinn og
tek ólympískar lyftingar ásamt því að skjóta
mikið.
Henta slíkar æfingar fyrir alla? Ég held því
fram að þessar ólympísku séu svona alhliða, taki
á öllum vöðvum. Auðvitað eru misjafnar skoðanir
á þessu, en mér líkar þetta og það er það sem
skiptir máli, að maður sé ánægður í því sem maður
er að gera.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Svefn, heilsa, mataræði,
hugarfar og markmiðasetning.
Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Ég veit ekki hvað
maður hleypur ca. langt í einum körfuboltaleik, en það lengsta
sem ég hef tekið í útihlaupi eru 11 km. Það var bara núna á síð-
asta ári, á sunnudeginum eftir Reykjavíkurmaraþonið – ég var
svo fúl því ég þekkti svo marga sem fóru í hlaupið og hlupu 10
km. Ég gat hreinlega ekki verið minni kona og ekkert hlaupið
þannig að ég stökk út um kl. 21:00 á sunnudeginum og hljóp 11
km á 58 mín.
Líður þér illa ef þú færð ekki reglulega útrás fyrir hreyfiþörf-
ina? Já sbr. sunnudaginn eftir Reykjavíkurmaraþonið – ég
hreinlega gat ekki látið vinna mig. Ég tapa aldrei.
Hvernig væri líf án æfinga? Úff, ég get ekki ímyndað mér það.
En væri þá ekki bara eitthvað annað sem kæmi í staðinn, ég
myndi líklega alltaf vera að þrífa – einhvers staðar þyrfti ég að
eyða orku! Það er ágætis brennsla í skúringum.
Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá
þér? Núna í meiðslunum hreyfði ég mig ekki í fimm vikur
og tók það mjög mikið á andlega. Bæði fyrir sjálfa mig og
þá sem standa mér næst, því ég var ekki sú hressasta í
skapinu. En mér leið rosalega vel eftir fyrstu útrásina sem
ég fékk eftir meiðslin.
Ertu almennt meðvituð um mataræðið? Já, ég er mjög
meðvituð um það sem ég læt ofan í mig.
Hvaða óhollustu ertu veik fyrir? Ég elska súkkulaði og
ég er sjúk í nammiland!
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið?
Vera meðvitað um það sem það lætur ofan í sig. Minnka
skammtana og borða oftar. Reyna frekar að fá sér eitt epli í stað súkkulaðis.
Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig? Mjög mikið, það skipt-
ir mig miklu máli, bæði fyrir andlega og líkamlega heilsu, að fá útrás. Ég er
mjög orkumikil að eðlisfari og einhvers staðar þarf þessi orka að leysast úr
læðingi, annars er ég bara leiðinleg og óþolandi, öll á iði, alltaf að standa upp
og gera eitthvað annað.
Hver eru erfiðustu meiðsl sem þú hefur orðið fyrir? Núna á þessu tímabili
sleit ég innra liðband í hnénu ásamt því að það kom gat á liðpokann.
Hversu lengi varstu að ná þér aftur á strik? Ég er enn að ná mér á
strik en þetta gerðist síðustu vikuna í nóvember 2013. Ég hvíldi
fyrst alveg í fimm vikur og byrjaði þá að hjóla og gera svona
grunnhnéæfingar. Ég spilaði minn fyrsta leik fyrir tveimur vikum.
Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfingar? Ekki næg fjöl-
breytni og/eða ofþjálfun. Líkaminn þarf líka hvíld og hún er
ekki síður mikilvæg.
Hver er erfiðasti mótherjinn á ferlinum? Þegar við vorum
að spila í Evrópukeppninni hitti maður fullt af góðum og efni-
legum stelpum. Það var mjög erfitt að spila við þær og ég
held að ég hafi oft fengið verðugt verkefni að spila vörn á
móti bestu leikstjórnendum í Evrópu. Eins fannst mér mjög
erfitt að mæta vinkonum mínum í Keflavík í fyrsta leik á þessu
tímabili, en ég skipti yfir til Grindavíkur. Það var mjög erfitt að
spila við gömlu liðsfélagana, mjög tilfinningaríkur leikur.
Hver er besti samherjinn? Besti samherji sem ég hef átt er
Helena Sverrisdóttir, við leiddumst í gegnum alla yngri flokkana
og svo spilum við saman í landsliðinu. Hún er alveg magnaður
leikmaður.
Hver er fyrirmynd þín? Mamma og pabbi, stórkostlegt fólk.
Ég er ótrúlega stolt af þeim, þau hafa kennt mér margt í
gegnum tíðina, ekki kannski mikið í körfubolta, heldur um líf-
ið sjálf, ásamt því að vera ómetanlegur stuðningur í öllu sem
ég tek mér fyrir hendur.
Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Ég hef alltaf haft
mikið dálæti á Michael Jordan og Chris Mullen. En mér
finnst Usain Bolt líka mjög duglegur.
Skemmtileg saga/uppákoma frá ferlinum? Ég á nokkrar
góðar sögur af ferlinum; bæði af því sem hefur gerst innan
vallar sem utan hans. Þær eru nú yfirleitt meira krassandi
sem gerast í góðum hópi eftir leik eða keppni og ég held að
það sé best að geyma þær. En ég er með eina sem lýsir mér
pínulítið. Það var þannig að við vorum að spila í Grafarvogi
fyrir þremur árum og ætluðum að hafa eitthvert húllumhæ
eftir leikinn. Ég mætti með fjögur pör af skóm í leikinn –
en ekkert af þeim var körfuboltaskór heldur allt 10 cm
hælar! Ég hef alltaf sagt „always look your best“ – ég
hef greinilega ætlað að skarta öllu í leiknum og körfu-
boltaskór óþarfir.
Skilaboð að lokum? Ég heyrði mjög gott kvót um
daginn sem mér finnst æðislegt og ætla að fá að
setja hérna inn: „Losers quit when they’re tired.
Winners quit when they’ve won.“
ÍÞRÓTTAKEMPA VIKUNNAR PÁLÍNA MARÍA GUNNLAUGSDÓTTIR
Ætla bara að hvíla mig
þegar ég er gömul
Morgunblaðið/Ómar
Á hverjum degi missir meðalmanneskja 60-100 þræði úr hári sínu
nema hún sé sköllótt. Hárlos breytist í samræmi við árstíðabreyt-
ingar, meðgöngu, veikindi, mataræði og aldur.
Hárlos á hverjum degi* „Ef þú heldur að þú sért ofsmá/r til að hafa áhrif áeitthvað, prófaðu að sænga hjá
moskítóflugu.“ Dalai Lama
Hátt uppi í Andes fjöllum í Perú
vex planta sem ber heitið Maca. Úr
Maca rótinni er unnið duft sem
eykur orku, er fullt af B vítamíni,
kalsíum og magnesíum og kemur
jafnvægi á hormóna. Maca duft er
fremur sætt á bragðið og er því
fullkomið út í ávaxtaþeytinga, út í
vatn eða í matargerð. Maca duft
fæst í flestum matvöru- og heilsu-
búðum.
OFURFÆÐI
Maca duftið kemur jafnvægi á horm-
ónastarfsemina.
Maca rótin
Ný rannsókn frá Colorado há-
skólanum í Bandaríkjunum bendir
til að of feit börn séu líklegri til
að fá krabbamein, glíma hjarta-
sjúkdóma og fá sykursýki þegar
þau eldast. Skiptir þar engu hvort
þau grennist þegar þau verði full-
orðin. „Svo virðist sem þetta
vandamál hverfi ekkert, það er
nánast ómögulegt fyrir líkaman að
rétta sig af,“ segir Dr. Kristen Na-
deau við US Today en hún stýrði
rannsókninni.
Fimmta hvert barn er of feitt í
Bandaríkjunum.
RANNSÓKN Á OFFITU
Of feit börn í
meiri hættu
Offita hefur þrefaldast í heiminum
á síðustu þremur áratugum.
Pálína Gunn-
laugsdóttir