Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Qupperneq 26
Stofan er stór og björt. Sófa-
borðið, sem gert er úr mahoní-
rót, er eftir íslenska hönnuðinn
Elísabetu Ingvarsdóttur.
Aðalatriði að
heimilið sé hlýlegt
FRÍÐA S. KRISTINSDÓTTIR, TEXTÍLHÖNNUÐUR OG KENNARI, BÝR Í
FALLEGU EINBÝLISHÚSI Á SELTJARNARNESI. FRÍÐA ER MIKILL FAGURKERI
OG ER HRIFNUST AF EINFALDLEIKANUM OG SÍGILDUM HLUTUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Eldhúsið er einnig
partur af miðrýminu.
BLANDA AF NÝJUM OG GÖMLUM HLUTUM
Á
heimili mínu er að finna sígilda hönnun, ís-
lenska listmuni úr leir og tré, gömul hús-
gögn og ný. Aðalatriðið fyrir mig er að
heimilið sé hlýlegt og notalegt að dvelja
þar,“ segir Fríða og bætir við að hún sé sérlega
heimakær manneskja. Fríða segir mikilvægt að rýmið
sé vel úthugsað, að húsgögnin og hlutirnir hafi tilgang
og heimilið sé hlýlegt og fjölskyldunni líði þar vel.
Fríða blandar saman nýjum og gömlum hlutum. Göml-
um hlutum frá foreldrum sínum og tengdaforeldrum
og sígildri nútímahönnun. „Ég bý í húsi þar sem er al-
rými þ.e. ekki veggir milli eldhúss, borðstofu og stofu.
Borðstofuborðið er miðdepill. Þar er líka sjónvarpið.
Ég fer á milli staða eftir því hvort ég er að borða,
lesa, vinna í tölvunni, horfa á sjónvarpið eða að vinna
eitthvað í höndunum.“
Fríða sækir innblástur meðal annars í náttúruna,
umhverfið, bækur, blöð og hönnunartímarit. „Að hluta
er innblásturinn bara innsæi og minn persónuleiki. Ég
kem úr stórfjölskyldu þar sem mikill áhugi er á hand-
verki, hönnun, listum og menningu. Langamma mín,
Hólmfríður Ebenesersdóttir, var frumkvöðull vefnaðar
á Vestfjörðum. Mikil handverks- og listakona. Ég var
mjög ung farin að hanna, sauma og prjóna alls kyns
fatnað á sjálfa mig með hjálp frá móður minni, sem
var alltaf til staðar.“ Forstofan er sérlega hlýleg. Sófann lét Fríða nýlega bólstra fallega rauðan.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Heimili og hönnun
HÚSGAGNAHÖLLIN V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 O•
125.990
Fullt VeRð: 179.990
STANLEY La-Z-boy stóll.
Svart, hvítt, brúnt og vínrautt
leður á slitflötum.
B:81 D:94 H:103 cm.
Einnig í álæði á tilboðsverði
frá kr. 83.990
139.990
Fullt VeRð: 179.990
69.990
Fullt VeRð: 79.990
EMPIRE
La-Z-boy stóll.
Fæst í 3 litum litum.
B:80 D:70 H:102 cm.
RIALTO
La-Z-boy stóll.
Fæst í fjórum litum.
B:80 D:90 H:105 cm.
Einnig fáanlegur í áklæði
á tilboði frá kr.
REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJAVÍK | AKUREYRI