Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 34
Söngkonan Katy Perry er vinsælasti
einstaklingurinn á Twitter með 50 milljón
fylgjendur. Í byrjun febrúar fór hún yfir 50
milljón manna markið. Söngvarinn Justin Bie-
ber er næstur með 49,2 milljónir og Barack
Obama bandaríkjaforseti þriðji. Björk er
vinsælasti Íslendingurinn en 500 þúsund
manns fylgja poppstjörnunni. Hljóm-
sveitin Of Monsters and men fær silfrið
og Sigur Rós bronsið.
Mest var endurtíst á Barack
Obama þegar hann tísti hin
einföldu en sterku orð: Fjögur ár
til viðbótar. 770 þúsund manns
endurtístu þessi orð. Leikkonan
Lea Michele fékk 408.266
endurtíst þegar hún tísti
um dauða samleik-
ara síns úr Glee,
Corys Monteiths.
Þá var endurtíst
um dauða leik-
arans Pauls Wal-
kers yfir 400 þús-
und sinnum.
Teiknimyndin Castle in the Sky á
metið yfir flest tíst þar sem minnst er á
ákveðinn viðburð. Teiknimyndin var sýnd í
Japan 2013 og minntust 143.199 tíst á
sekúndu á teiknimyndina.
Leikarinn Ashton Kutcher var fyrsti
maðurinn til að fá yfir milljón fylgjendur. Það
gerði hann árið 2009, þremur árum eftir
að hann stofnaði notendareikning sinn.
Leikarinn Charlie Sheen stofnaði
reikning eftir að hafa verið rekinn úr
sjónvarpsþáttunum Two and a half men
og það tók hann 25 klukkutíma að ná
milljón fylgjendum.
STAÐREYNDIR UM TWITTER
Tíst slær í gegn
Æ FLEIRI ÍSLENDINGAR ERU FARNIR AÐ NOTAST VIÐ TWITTER.
SJÓNVARPSÞÆTTIR EINS OG SUNNUDAGSMORGUNN OG MÍN SKOÐUN
SEM OG BEINAR ÚTSENDINGAR FRÁ ÍÞRÓTTAVIÐBURÐUM
NOTAST VIÐ HASHTAG-MERKIÐ TIL AÐ FÓLK
GETI TEKIÐ ÞÁTT Í UMRÆÐUNNI.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Vinsælasta hashtag Íslands er #boladagur en ár-
lega er keppt í Boladeginum sem gengur út á að angra
erlendar stórstjörnur. Alls voru send um 9.000 tíst
til stórstjarna í síðustu keppni. Það gera 375 tíst á
klukkustund allan sólarhringinn eða tíst á 10 sekúndna
fresti. Sindri Snær Jensson vann keppnina árið 2013 fyr-
ir frábæra frammistöðu. Keppt verður að nýju í mars.
Jack Dorsey, stofnandi Twitter, greindi frá
því í viðtali í lok síðasta árs að það hefði komið til
tals að Twitter ætti að heita Twitch. Fyrsta tístið
kom frá téðum Dorsey í mars 2006. Þá not-
aði hann orðið Twttr því hann vildi höfða til yngra
fólks. Það hins vegar náði aldrei fótfestu.
Skráðir notendur Twitter eru 2,4
milljarðar. Þar af eru 1,2 milljarðar
símanotendur. 215 milljónir
manna eru svokallaðir mánaðar-
notendur og yfir 100 milljónir
manna tísta á hverjum degi.
*Græjur og tækniTölvuleikjageirinn er gríðarlega stór en um 400 manns vinna við tölvuleikjagerð hér á landi »36