Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 36
FYRSTI ÍSLENSKI TÖLVULEIKURINN VAR GERÐUR 1986.
SÍÐAN HEFUR GRÍÐARLEGA MIKIÐ VATN RUNNIÐ TIL
SJÁVAR OG ÍSLENSKIR TÖLVULEIKIR, EVE ONLINE OG
QUIZ UP ERU ALÞJÓÐLEGAR STJÖRNUR. ALLS VINNA
620 MANNS VIÐ ÍSLENSKA TÖLVULEIKJAGERÐ EN SAMTÖK
LEIKJAFRAMLEIÐANDA, IGI, ERU LEIÐ Á AÐ SJÁ EFNILEGT
FÓLK FLYTJA BÚFERLUM VEGNA ERFIÐS REKSTRARUM-
HVERFIS. FIMM VINSÆLUSTU TÖLVULEIKIRNIR Í IPHONE
Á SÍÐASTA ÁRI VORU GERÐIR Í SKANDINAVÍU.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Í
slenskir tölvuleikir eru ekki gaml-
ir. Fyrsti íslenski tölvuleikurinn
sem vitað er um var gerður 1986
og hét Sjóorrusta, gerður á
gagnakassettu fyrir Sinclair Spectr-
um-tölvur. Síðan leið tíminn þangað
til EVE Online kom á markaðinn.
„Fyrsti alvöruleikurinn – sá sem er
markaðssettur á alþjóðamarkaði er
Eve Online frá CCP. Þeir einfalda-
lega komu Íslandi á kortið. Eitthvað
sem við eigum að vera stolt af,“ seg-
ir Ólafur Andri Ragnarsson hjá
tölvufyrirtækinu Betware en hann
situr í stjórn samtaka leikjaframleið-
anda eða Icelandic Game Industry,
skammstafað IGI. IGI voru stofnuð
formlega 2009 eftir að nokkrir ein-
staklingar í leikjafyrirtækjum, þá-
verandi og verðandi, fóru að ræða
saman hvort ekki væri hægt að
stofna samtök í kringum þessa ört
vaxandi grein. Á hinum löndunum á
Norðurlöndum eru sambærileg sam-
tök en Norðurlöndin eru mjög fram-
arlega í tölvuleikjum.
Tölvuleikir fyrir alla
400 manns vinna hér á landi við
tölvuleikjagerð en allir starfsmenn
innan IGI eru 620, hluti starfs-
manna vinnur erlendis enda eru fyr-
irtæki eins og CCP og Betware al-
þjóðafyrirtæki en með höfuðstöðvar
sínar á Íslandi.
Ólafur Andri segir að ákveðin
bjartsýni ríki innan tölvuleikjafram-
leiðanda enda sé hér meðbyr sem
þurfi að nýta. „Núna spilar alls kon-
ar fólk tölvuleiki en ef þú spyrð það
þá kannast það ekkert við slíkt.
Tökum sem dæmi konu á besta
aldri sem hefur gaman af því að
spila Candy Crush Saga, FarmVille
2 eða Bubble Safari á Facebook.
Aldrei myndi hún viðurkenna að
hún spilaði tölvuleiki. Nei, þetta er
bara Facebook, myndi hún segja.“
Fljótlega eftir að IGI var stofnað
kom fram áhugi á að halda keppni í
gerð tölvuleikja. Hugmyndin var að
virkja þá sem höfðu alltaf viljað búa
til tölvuleik en aldrei haft tækifæri
eða hvatningu til þess. Fyrsta
keppnin var um vorið 2010 og alls
tóku 11 hópar þátt. Hópurinn
Clockwork Alien vann verðlaunin
fyrir leikinn Path to Ares. Keppnin
var haldin aftur haustið 2011 með
breyttu sniði, bæði styttri og með
meiri stuðningi. Þá vann Lumenox
með leikinn Aaru’s Awakening sem
kemur á markað með vorinu. Í ár
er því þriðja keppnin.
Ólafur Andri segir að Norð-
urlöndin standi mjög framarlega
þegar kemur að tölvuleikjagerð.
„Nokkur af helstu og öflugustu
fyrirtækjum heims á þessum mark-
aði, eru stofnuð og starfrækt á
norðurslóðum. Til marks um þenn-
an árangur má til dæmis nefna að
undir lok ársins 2013 voru allir
fimm mest sóttu iPhone-leikirnir í
Bandaríkjunum, búnir til á Norð-
urlöndunum. Þetta voru leikirnir
QuizUp frá Íslandi, Candy Crush
Saga frá Svíþjóð, Angry Birds Go,
Angry Birds Star Wars og Clash
of Clans frá Finnlandi. Tölvuleikir
eru orðnir stærsti menning-
artengdi útflutningur Norður-
landanna.“
Vantar nokkra milljarða upp á
Íslensk stjórnvöld mættu styðja bet-
ur við fjárfestingar í nýsköpunarfyr-
irtækjum segir Ólafur en umhverfið
hér á landi fyrir tölvuleikjafram-
leiðslu sé allt annað en í nágranna-
löndunum. Hann segir að Finnar,
sem eiga heiðurinn af Angry Birds
leikjunum meðal annars, starfræki
sjóð, svokallaðan Tekes sjóð sem sé
líkur tækniþróunarsjóði. „Við höfum
kynnt okkur hvernig Finnar hafa
byggt upp sinn leikjaiðnað. Það er
ekki ofsagt að þar er bullandi upp-
sveifla í leikjagerð og fjárfestar
nánast banka upp á hjá áhugaverð-
um leikjafyrirtækjum í von um að fá
að fjárfesta. Hér er þessu öfugt far-
ið, það er varla hægt að ná í nokkra
fjárfesta. Finnar stofnuðu sinn Te-
kes-sjóð til að fjárfesta í nýsköpun
og skapandi greinum. Sá sjóður er
ekki ósvipaður tækniþróunarsjóði
nema að sá finnski er um 90 millj-
araðar íslenskra króna á meðan
tækniþróunarsjóður er mun minni,“
segir hann og hlær. „Ef sá íslenski
ætti að vera sambærilegur væri
hann um 5,3 milljarðar króna á ári.“
Fjárfestar forða sér við
íslenska umhverfið
Ólafur Andri nefnir að gjaldeyr-
ishöftin hafi fráhrindandi áhrif og
séu skaðleg fyrir minni fyrirtækin.
Frá Sjóorrustu til QuizUp
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
Græjur og tækni
hafs og í Finnlandi æfingamælir í armbandi sem kallast Polar Loop og
er ódýrara en þau tæki sem fyrir eru en að mörgu leyti fullkomnari.
Polar Loop-æfingamælirinn kom svo á markað um heim allan í byrjun
þessa árs og er nú fáanlegur hér á landi. Fyrirtækið Altís í Hafnarfirði
er með umboð fyrir Polar og flytur mælana inn.
Æfingamælirinn, Polar Loop-armbandið, lætur ekki mikið yfir sér
þegar hann er tekinn úr kassanum, afskaplega stíhreinn og nettur.
Það er þó fleira í kassanum en armbandið því þar er málband og leið-
beiningar um hvernig á að stytta armbandið með skærum og sérstöku
tóli sem fylgir til að það passi sem best á úlnliðinn, enda er það með
klemmu en ekki bara smellt saman. Þetta er óneitanlega smá umstang,
en fyrir vikið er ekki hætta á að maður missi mælinn af sér. Með í
kassanum er líka USB-snúra sem smellt er aftan á græjuna til að
hlaða hana og líka til að tengja hana. Rafhlaðan endist vel og sam-
kvæmt mælingum sem ég hef rekist á á netinu ætti hún
að duga í allt að viku.
Eftir að búið er að klippa armbandið til,
stofna (ókeypis) aðgang hjá Polar og sam-
stilla græjuna við tölvu þá er ekki annað eftir
en að smella mælinum um úlnliðinn og byrja
að hreyfa sig. Polar Loop kostar 19.900 hjá
Altís sem stendur (er reyndar uppselt), en
fæst hjá Nova á kynningarverði á 16.990 kr.
Undanfarin ár hefur æfingamælum vaxið fiskur um hrygg, enslíkum mælum krækir fólk ýmist í fatnað, eða ber um úlnliðinn.Þeir eru ekki nýir af nálinni, en eftir því sem snjallsímar hafa
orðið útbreiddari hefur og aukist áhugi fólks á að nota æfingamæla og
þá ekki bara til að kortleggja íþróttaæfingar, heldur líka til að mæla
hreyfingar dagsins og næturinnar, ef vill, því
fjölmargir mælar eru þeirrar gerðar að geta
metið hve vel viðkomandi sefur með því einu
að skrá hreyfingar hans í rúminu.
Vestan hafs hafa Nike, Fibit og Jawbone
verið ráðandi, Nike með Nike+ Fuelband,
Fibit með ýmsar græjur, nú síðast Fitbit
Force, og Jawbone með UP24 armbandið. Æf-
ingamælar þessara framleiðenda hafa fengist
öðru hvoru hér á landi og til að
mynda man ég eftir að
hafa séð Nike-
æfingamæla til sölu hjá Nova á síðasta ári
(og eru reyndar fáanlegir þar í dag líka).
Gamalreyndur æfingatækjaframleiðandi hefur
svo blandað sér í þennan slag, finnska fyrir-
tækið Polar, sem er þekkt fyrir púlsmæla og
GPS-úr. Seint á síðasta ári kom á markað vestan
Í SVEFNI SEM VÖKU
ÆFINGAMÆLAR, SEM ERU ÝMIST ARMBÖND EINS OG POLAR LOOP EÐA TÆKI SEM SMELLT ER Á FATNAÐ, VERÐA SÍ-
FELLT VINSÆLLI ENDA PASSA ÞEIR UPP Á AÐ MAÐUR HREYFI SIG RÉTT NÁNAST ALLAN SÓLARHRINGINN.
Græja
vikunnar
* Það að vera með farsímaer náttúrlega eins og að vera
með nettengda tölvu í vas-
anum (eða hendinni) og kjör-
ið að tengja æfingamæla við
símann til að skoða gögn eða
senda þau jafnharðan inn á
vefinn. Athugið þó, aðeins er
til iPhone-app sem stendur,
Android-app væntanlegt í
mars.
* Æfingamælirinn sér umað skrá hvað maður er að
gera allan sólarhringinn, á láði
og í legi, og mælir hve vel
maður sefur líka. Ef maður
situr of lengi kyrr á sama stað
sendir hann svo áminningu í
farsímann: Af stað!
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Polar Loop-æfinga-mælirinn hefur það framyfir
keppinautana að hægt er að
tengja hann við púlsmæli (frá
Polar) og þá ná mun nákvæm-
ari mælingu en ella; betra yf-
irliti yfir álag og brennslu.
Morgunblaðið/Ómar
Ólafur Andri Ragnarsson hugbún-
aðararkitekt sem situr í stjórn IGI.
* Það skemmti-lega við íslensk-an leikjaiðnað er að
flestir framleiðendur
eru að horfa á
erlendan markað.
Þeir sem eru 21 árs í dag eru að jafnaði búnir að eyða um
10 þúsund klukkustundum
í tölvuleiki - jafnlöngum tíma og í grunnskóla.
45%
af tölvuleikjum
eru spilaðir á síma.
93%
foreldra spá í hvað
börnin þeirra eru að spila.
79%
foreldra eru með ákveðinn
tímaramma þegar kemur að
tölvuleikjaspilun barna sinna.
Íslensku jólasveinarnir fengu um
150 bréf
víðs vegar að úr heiminum fyrir jólin
og helsta óskin að þessu sinni var að fá
tölvur og tölvuleiki í jólagjöf.
Mannkynið hefur eytt 5,93 miljónum ára
í að spila leikinn World of Warcraft sem er jafnlangur tími og það tók
mannkynið að þróast frá apa yfir í þá tegund sem nú gengur um á jörðinni.
Fólk eyðir um
55 mínútum
að meðaltali á dag á
Facebook.
10.000
klst.
Leikjaspilun
eftir aldri:
Undir
18 ára
18-35
ára
+36
ára
32% 32%
36%
Könnun ESA (entertainment software
associaton) frá 2013:
42%
þeirra sem spila tölvuleiki eru konur