Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Side 47
Móðuramma Árna Más hét Ragnhildur Ólöf Gottskálksdóttir og var vinsæll lækna-
miðill á síðustu öld í um þrjá áratugi, en hún bjó og starfaði í Tjarnargötu 30. Hún
fæddist árið 1903 og lést 1979. Í blöðum birtust nokkur viðtöl við hana og má hér að
ofan sjá bút úr ítarlegu viðtali sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1967. Ragnhildur
var jarðsungin í upphafi árs 1980 frá Dómkirkjunni en séra Þórir Stephensen flutti
þar útfararræðu sem vakti athygli spíritista þar sem kirkjunnar maður þótti sýna
skilning á hæfileikum Ragnhildar. Ræðan birtist í heild í Morgni, tímariti Sálarrann-
sóknarfélags Íslands. Í henni sagði Þórir meðal annars að sérgáfa Ragnhildar hefði
komið snemma í ljós. „Það vita allir, sem hafa viljað vita, að um hug og hendur
Ragnhildar í Tjarnargötunni hafa farið þau öfl, sem miklu góðu hafa til leiðar komið
og jafnvel skilið eftir verksummerki, sem allir er til þekkja hljóta að kalla kraftaverk.“
RAGNHILDUR ÓLÖF GOTTSKÁLKSDÓTTIR
Amman í Tjarnargötu
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47
Árni Már Jensson er barnabarn einsþekktasta miðils síðustu aldar, Ragn-hildar Ólafar Gottskálksdóttur, sem
jafnan var kennd við Tjarnargötu. Árni Már
kynntist þar heimi miðlastarfsemi en Jónas
Jónasson útvarpsmaður var einnig áhrifavaldur
í hans lífi.
„Amma mín skildi við árið 1979 og var starf-
andi sem læknamiðill fram á síðasta dag, köll-
unin var hennar líf og yndi,“ segir Árni Már.
„Ég bjó í sama húsi og hún við Tjarnargötu 30
þar til ég var fimm eða sex ára en var líka hjá
henni oft í viku eftir að við fluttum. Það sem
var sérstakt við lífið í Tjarnargötu var þetta
sérstaka andrúmsloft sem maður varð hvergi
annars staðar var við. Frammi á gangi beið
fólk eins og á læknabiðstofu og amma var svo
að skjótast fram á milli funda til að heilsa upp
á barnabörnin. Þá var póstkassinn fullur af
bréfum, ýmist þakkarbréfum eða beiðnum um
fyrirbænir. Mér er það sérstaklega minnisstætt
hvernig afi minn Eggert Ólafsson létti undir
með henni með því að taka símann sem hringdi
látlaust og skrifa niður fyrirbænir fólks.“
Árni Már snéri til sömu starfa og amma
hans sinnti þegar hann var 37 ára. „Ég var
mjög næmur sem barn, ekki þar fyrir að börn
eru það nú yfirleitt. Ég man eftir spjalli mínu
við fólk, án þess að það væri fólk sem aðrir sáu
og ég greindi aldrei á milli þess hvað væri
hugsanlega ímyndun og hvað ekki. Stundum er
þunn slæða á milli ímyndunar og skyggninnar.
Mig dreymdi fyrir hlutum og fékk fyrirboða.
En ég streittist gegn þessu alla ævi. Maður er
alltaf að glíma við þessar andstæður í sjálfum
sér; annars vegar þess veraldlega og hins veg-
ar þess andlega. Þá fannst mér skrýtið að þetta
væri eitthvað sem mér væri ætlað. Ég var
baldinn unglingur, líklega ofvirkur með athygl-
isbrest og þetta var fjarri þeim hugmyndum
sem ég hafði um sjálfan mig.“
Þegar Árni Már var 37 ára og fékk örlaga-
ríka upphringingu hafði hann beðið í mörg ár
fyrir þeim sem hann vissi að glímdu við veik-
indi eða leið illa, bæði ættingum og öðrum.
Hann segist þó ekki hafa vitað hvort þær bæn-
ir bæru árangur, hann hafi ekki litið á sjálfan
sig sem áhrifavald þótt hann tryði á mátt bæn-
arinnar. Einnig hafi hann í raun ekki haft mik-
inn áhuga á starfsemi miðla.
„Síminn hringdi og á hinum enda línunnar var
maður með djúpa rödd sem kynnti sig sem Jón-
as Jónasson útvarpsmann. Jónas heitinn tjáði
mér að hann hefði áhuga á
að fá mig í spjall. Hann
sagðist hafa fylgst með mér
í einhvern tíma og vissi að
ég hefði beðið fyrir fólki í
laumi og að það hefði hjálp-
að. Hann sagðist líka hafa
þekkt ömmu mína og leitað
til hennar þegar hann var
ungur maður. Hann vildi fá
mig í viðtal og ég sló til.
Þarna hafði ég aðeins einu
sinni á ævinni læðst inn á
miðilsfund, sem mér fannst ekkert sérstakur og
mér þykja slíkir fundir raunar ekki heldur vera
það í dag.“ Árni Már segist hafa bakkað út af
þeim fundi þegar þar komu fram framliðnir
læknar sem sögðust vera að bíða eftir honum.
Úr saltfisksútflutningi í miðilsstörf
Jónas Jónasson tók viðtal við Árna Má sem var
útvarpað á Rás 1. „Á þessum tíma var ég meðal
annars að sinna saltfisksútflutningi, hafði fjárfest
í skipafélagi og lifði og hrærðist í hreinlega allt
öðrum heimi. Síminn hringdi látlaust eftir að
viðtalinu var útvarpað og það varð ekki aftur
snúið. En með því að fara inn í þennan andlega
heim slokknaði mikið á áhuganum á því verald-
lega. Það er tætandi að lifa við tvíhyggju. Ég fór
að hugsa hvernig ég vildi verja lífi mínu í jarð-
vistinni og hverju ég vildi hafa áorkað þegar
kæmi að leikslokum. Eilífðarvitundin var orðin
hluti af mínum daglega veruleika. Hafði ég verið
að sinna þeim verkefnum sem mér voru falin?
Ég átti á þessum tíma hús á Fjölnisvegi en það
tekur ekki nema um þrjár mínútur að ganga yf-
ir á Landspítalann. Ég gerði mér grein fyrir því
næstu fimmtán árin af hverju ég hafði sett mig
niður þar því bæði var fólk að koma trillandi yfir
til mín frá Landspítalanum og eins var alltaf
verið að biðja mig um að koma þangað yfir, en
ég reyndi þó að læðast fremur með veggjum því
á milli þessara heima hefur ríkt andstaða, vís-
indanna og spíritismans þótt mér finnist sá
veggur þynnast.“ Jónas kom oft til Árna Más
eftir viðtalið, í mörg ár, oft með fólk með sér
sem hann taldi Árna geta hjálpað.
Snúinn til baka frá Sviss
Árni Már flutti til Sviss í kringum 2009. Hann
hafði þá árin á undan átt og rekið húsgagna-
og smávöruverslunina 1928, ásamt fyrrverandi
sambýliskonu, og meðfram því tók hann á
móti fólki heima hjá sér. Eftir hrun segir
hann að ekki hafi reynst grundvöllur fyrir
slíkum rekstri og hann fluttist til Sviss en
hann flutti heim aftur rétt fyrir nýliðin jól.
„Ég fór þangað upphaflega í smá viðskipta-
erindum en ílengdist í 2-3 vikur og hugsaði svo:
hérna ætla ég að setja mig niður um tíma. Ég
hef verið á báðum áttum hvort ég ætti að vera á
Íslandi eða fara aftur út. Áður en ég fór út hafði
ég sinnt þúsundum einstaklinga á Fjölnisvegi
þar sem ég var með sérherbergi fyrir miðils-
fundi. Þegar ég fór út ætlaði ég mér að vera í
felum sem miðill, bæði frá Íslandi og í Sviss. En
það er svo merkilegt að maður felur ekki svo
auðveldlega fyrir sjálfum sér og guði það sem
manni er ætlað og eitthvað spurðist út. Ég var
því fljótt byrjaður að taka á móti fólki, fara í
sjúkravitjanir í heimahús og spítala og var að
auki orðinn býsna vinsæll sem skyggnilýsing-
armiðill í matarboðum efnafólks sem hreinlega
hentaði mér ekki. Ég er nýkominn heim núna og
er ekki kominn í símaskrá ennþá en fólk er að
hafa samband við mig í gegnum Facebook og
aðra milliliði. Ég hef aldrei haft atvinnu af þessu,
fyrir mér eru þetta líknarstörf og ég er mjög
þakklátur fyrir að fá að miðla þessari orku og
þeim upplýsingum sem mér er treyst fyrir. En
ég þarf líka að hafa ofan í mig og á og því er ég
alltaf að vinna eitthvað með.“
Þekkirðu til þeirra tíma
sem amma þín var starfandi
miðill?
„Maður þekkir jú aðeins
til. Einar á Einarsstöðum og
Hafsteinn Björnsson voru
sterkir sannanamiðlar. Sann-
anamiðill er miðill sem fer í
djúpan trans, víkur jafnvel
alveg úr líkamanum og svo
koma framliðnir í gegn og
sanna sig með nöfnum,
mannlýsingum og atvikalýsingum. En þetta get-
ur birst í ýmsum myndum. Ragnhildur amma
mín var sterkur sannanamiðill en inntakið í
hennar lífi og starfi var læknamiðlun. Svo verð-
ur það mitt hlutskipti að vera læknamiðill. Ekki
þar fyrir að óvefengjanlegur sannleikur flýtur
oft í gegn. Það tók tíma að læra á mína eigin
skyggnigáfu sem er fjölbreytt en þetta er gef-
andi. Eiginlega er þetta eins og brjálað app!“
segir Árni og hlær. „Þú tengir í gegnum skil-
yrðislausan kærleik og ferð að skynja hluti sem
þú veist ekkert hvaðan koma en í flestum til-
vikum hjálpa þeim sem þörfina hafa. Vegir guðs
eru órannsakanlegir sem er hluti þess heillandi
veruleika sem við lifum í frá degi til dags.“
ÁRNI MÁR JENSSON
Jónas Jónasson
varð örlagavaldur
BARNABARN EINS ÞEKKTASTA LÆKNAMIÐILS SÍÐUSTU ALDAR,
„RAGNHILDAR Í TJARNARGÖTU“, STARFAR EINNIG SEM MIÐILL Í DAG.
„Ég var því fljótt byrjaður að taka á móti fólki, fara í sjúkravitjanir í heimahús og spítala og var að
auki orðinn býsna vinsæll sem skyggnilýsingarmiðill í matarboðum efnafólks sem hreinlega hentaði
mér ekki,“ segir Árni Már um dvöl sína í Sviss. Hann er nýlega fluttur heim til Íslands á ný.
* Það tók tímaað læra á mínaeigin skyggnigáfu
sem er fjölbreytt en
þetta er gefandi.
Eiginlega er þetta
eins og brjálað app!“