Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 57
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Ég man þig er mjög sennilega
besta bók Yrsu Sigurðardóttur,
yfirnáttúrulegur spennutryllir
sem hefur fengið frábæra
dóma. Independent sagði til
dæmis að í þessari bók sýndi
Yrsa að hún væri jafnoki Steph-
ens King þegar kæmi að því að
skapa óhugnað og ótta hjá les-
andanum.
Nú kemur bókin út í þriðju
útgáfu hér á landi. Þeir sem vilja
góða blöndu af spennu og
hryllingi og hafa ekki lesið bók-
ina fá hér harla gott lesefni.
Bókin fjallar um ung fólk sem
gerir upp hús í eyðiþorpi. Á
sama tíma dregst ungur læknir
á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfs-
morði eldri konu. Af stað fer
óhugnanleg atburðarás.
Draugaleg
Yrsa
Alþjóðlega glæpasagnahátíðin Iceland Noir
sem haldin var í Reykjavík á síðasta ári tókst
svo vel að nú stendur til að endurtaka leikinn
og verður hátíðin haldin í nóvember. Í fyrra
mættu fjölmargir þekktir glæpasagnahöf-
undar til leiks og svo verður einnig í ár. Þegar
hefur verið tilkynnt að hinn heimsfrægi
breski glæpasagnahöfundurinn Peter James
muni mæta, en bækur hans hafa selst í fjórtán
milljónum eintaka víða um heim. Norski rit-
höfundurinn Vidar Sundstøl verður einnig
gestur á Iceland Noir, en hann er þekktastur
fyrir hinn ágæta Minnesota þríleik, sem út
hefur komið á íslensku hjá Uppheimum
(Land draumanna, Hinir dauðu og
Hrafnarnir). Þríleikurinn gerist á slóðum
norskra vesturfara í Minnesota og fyrir
fyrstu bókina í syrpunni hlaut Vidar norsku
Riverton verðlaunin árið 2008, fyrir bestu
norsku glæpasöguna, og í kjölfarið tilnefningu
til Glerlykilsins. Í fyrra sendi Vidar frá sér
nýja spennusögu í Noregi, bókina Besettel-
sen. Vidar Sundstøl mætir á Iceland Noir.
Morgunblaðið/Kristinn
VIDAR SUNDSTØL
Á ICELAND NOIR
Eina skáldsagan sem vitað er til Char-
lie Chaplin hafi skrifað hefur verið
gefin út, tæpum sjötíu árum eftir að
hún var skrifuð. Sagan, sem er stutt,
70 blaðsíðna nóvella, nefnist Foot-
lights og hin afbragðsgóða kvikmynd
Chaplins Limelight sem gerð var ár-
ið 1952 byggði á henni, en þar fór
Chaplin sjálfur með aðalhlutverkið
ásamt Claire Bloom, en myndin gerði
hana að stjörnu. Það er ævisagnahöf-
undur Chaplins, David Robinson,
sem kom handritinu í útgáfuform.
Í bókinni er, eins og í kvikmyndinni
Limelight, sögð saga hins drykkfellda
trúðar Calvero, sem hefur lifað sitt
fergursta, en bjargar ballerínu sem ætlar að fyrirfara sér. Chaplin skrifaði bókina árið 1948 en
hún var ekki ætluð til útgáfu. Á þeim tíma var Chaplin að upplifa erfitt tímabil vegna vinstrisinn-
aðra stjórnmálaskoðana sinna og almenningsálitið snerist gegn honum og var það mikil breyting
í lífi manns sem hafði lengi verið dáður og elskaður. Chaplin varð síðan að yfirgefa Bandaríkin
vegna gruns um kommúnisma. Ævisagnahöfundur hans, Robinson, segir að tilfinningar Chaplins
á þessu tímabili hafi ratað í söguna sem hann segir vera sérkennilega en góða. Ekki ætti að koma
á óvart að Chaplin hafi skrifað skáldsögu því fjölhæfni hans var gríðarleg; hann starfaði sem leik-
ari, leikstjóri, handritshöfundur og tónskáld og gerði þetta allt jafn vel.
SKÁLDSAGA EFTIR CHAPLIN
Óbirt skáldsaga eftir snillinginn Chaplin lítur dagsins ljós.
Sannleikurinn um mál Harrys
Quebert eftir Svisslendinginn
Joël Dicker hefur vakið mikla
athygli, hlotið verðlaun, fengið
afar góða dóma og selst í yfir
tveimur milljónum eintaka. Nú
er þessi snjalla bókmenntalega
glæpasaga komin út hér á landi
í íslenskri þýðingu Friðriks
Rafnssonar. Á tæpum 700 blað-
síðum sýnir höfundurinn mikla
hugvitsemi og kemur lesand-
anum hvað eftir annað gríðar-
lega á óvart. Sannarlega eft-
irminnileg og öðruvísi
glæpasaga sem hittir í mark.
Snjöll bók-
menntaleg
glæpasaga
Snjöll verð-
launabók og
besta bók Yrsu
NÝJAR OG NÝLEGAR BÆKUR
HELSTU TÍÐINDIN Í ÚTGÁFU ÞESSA DAGANA ER
ÞÝÐING FRIÐRIKS RAFNSSONAR Á VERÐLAUNA-
BÓKINNI SANNLEIKURINN UM MÁL HARRYS
QUEBERT EFTIR HINN UNGA SVISSLENDING JOËL
DICKER. ÉG MAN ÞIG, BESTA BÓK YRSU SIGURÐ-
ARDÓTTUR, ER KOMIN Í KILJU OG FERÐALANG-
URINN VALLI GLEÐUR SVO BÖRNIN.
Södd og sátt – án kolvetna er bók
um LCHF-mataræðið, en þar er
áhersla lögð á mat úr hreinu og
náttúrulegu hráefni með fáum eða
engum aukaefnum. Kolvetnaneyslu
er haldið í lágmarki en fita er mik-
ilvægur orkugjafi. Höfundurinn Jane
Faerber hefur lengi starfað í danska
fjölmiðlageiranum og heldur úti vin-
sælasta LCHF-bloggi Danmerkur.
Þetta er fyrsta bók hennar.
Lífsstílsbók frá
Danmörku
Bækurnar um Valla og vini hans eftir Martin Hand-
ford hafa notið mikilla vinsælda víða um heim. Nú
eru komnar út tvær nýjar bækur um ferðalanginn.
Önnur er Hvar er Valli? Hollywood, en þar rætist
draumur Valla um að komast til Hollywood og sjá
stórstjörnur. Hin bókin er Hvar er Vally? Æv-
intýraferðin, en þar leggur Valli upp í dularfulla
ævintýraferð með Hvítskegg töframanni.
Leitin að Valla
og vinum hans
* „Eini munurinn á dýrlingi og syndaraer að dýrlingurinn á sér fortíð ogsyndarinn framtíð.“
Oscar Wilde
BÓKSALA 6.-12. FEBRÚAR
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 HHhHLaurent Binet
2 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joel Dicker
3 5:2 Mataræðið með Lukku í HappUnnur Guðrún Pálsdóttir
4 TímakistanAndri Snær Magnason
5 MánasteinnSjón
6 SandmaðurinnLars Kepler
7 30 dagar - leið til betra lífsDavíð Karlsson
8 Skuggasund - kiljaArnaldur Indriðason
9 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson
10 Iceland Small World lítilSigurgeir Sigurjónsson
Vasabrotsbækur
1 HHhHLaurent Binet
2 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
3 SandmaðurinnLars Kepler
4 SkuggasundArnaldur Indriðason
5 LygiYrsa Sigurðardóttir
6 ÓlæsinginnJonas Jonasson
7 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson
8 Sem ég lá fyrir dauðanumWilliam Faulkner
9 VeiðihundarnirJørn Lier Horst
10 PrjónaklúbburinnKate Jacobs
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Öllu gamni fylgir
nokkur alvara.