Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Page 59
16.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Sjá alltaf kyrrð í vælinu. (6)
4. Ekki jafnt grip í mistökum. (7)
10. Hugsir og setjir í flatir. (8)
11. Ósk bætti heilum við. (10)
12. Vísiljósið sem er aðeins of mikið fyrir gáfumanninn. (8)
13. Kraftur örvaði og opnaði. (7)
15. Ört ota með hluta af frumu í þarmatotu. (6)
16. Ekki vitlausir í gerðum. (6)
17. Ekkert í munni og nefi að sjá, vissulega. (8)
19. Páfugl ber fyrir kaþólskar. (8)
22. Borhrúga hjá lýð. (6)
24. Borga tófu einhvern veginn með hluta af húsgagni. (9)
26. Að lokum Sally segist vera fjögra ára á barnamáli og byrjar að
syngja um íslenska jurt. (9)
29. Mál í gírskafti. (5)
30. Guð gaffla gaf kraft. (7)
31. Aflæra að fella niður. (6)
33. Heimsálfa vítis brenglast í heimsókn. (9)
34. Grýtir dís einhvern veginn skepnu. (9)
37. Belti og æsileiki valda óráðanleika. (10)
38. Rangir fá nefnd til að sjá um þá sem ekki eru kallaðir sínu
rétta heiti. (11)
39. Heilagir maðkar í óveðrunum. (10)
40. Ameríkana meiðið í svikunum. (8)
LÓÐRÉTT
1. Eru þrúguhratsvín slöpp út af fæti? (9)
2. Ofsi við bæ gefur yfirburði. (7)
3. Kemur inn okkar Íslands og er innan í. (9)
4. Merlin „garlakarl“ töfrar fram túnfiska. (9)
5. Herflotann siðið um jól. (8)
6. Ein stara á ílát aftur út af viðkvæmni fyrir vökva. (8)
7. Skordýr yfirtekur bílastæði Arngríms. (5)
8. Skoðuðum að dyrum. (8)
9. Á lagfæring að koma fram með ítrekun. (8)
14. Sagaðar ef hægt er að fá einhvers konar frásögn. (9)
18. Val Lars T. á hesti og tegund af skráarþjöppun kemur fyrir
yfirmenn íþróttamannvirkja. (13)
20. Persónusaga án róna snýst einhvern veginn um frægan hest.
(7)
21. Sé Balta rista flausturslegt listaverk. (12)
23. Sé herra Ólaf bilaðan að skrapa. (6)
24. Ljúf lofti í góðu veðri. (9)
25. Fleiri gullturnar innihalda hljóðfæri. (10)
27. Fáni fyrir töf í tölvu. (5)
28. Fyrir hálfgerða dúsu rómverskur stríðsguð drepi í húsi. (10)
32. Kusk hjá Klaus sem er án sjávarfangs. (8)
35. Óreiðu sýna einfaldlega í ávexti. (6)
36. Stúlka á brúðkaupsnóttinni. (4)
Jón Viktor Gunnarsson er Skák-
meistari Reykjavíkur eftir spenn-
andi keppni á Skákþinginu, sem
hófst í byrjun janúar og lauk í síð-
ustu viku. Jón varð efstur ásamt
Einari Hjalta Jenssyni. Þeir hlutu
átta vinninga af níu mögulegum en
Jón Viktor var sæmdur titlinum eft-
ir stigaútreikning. Einar Hjalti varð
einnig efstur á Haustmót TR og er á
mikilli siglingu. Röð efstu manna á
mótinu var að öðru leyti þessi:
3. Oliver Aron Jóhannesson 7 v.
4.-6. Mikhael Jóhann Karlsson, Loft-
ur Baldvinsson og Haraldur Bald-
ursson 6½ v. 7.-13. Davíð Kjart-
ansson, Lenka Ptacnikova,
Sigurbjörn Björnsson, Þorvarður
Ólafsson, Jón Trausti Harðarson,
Stefán Bergsson og Vignir Vatnar
Stefánsson 6 v.
Ýmsar niðurstöður má lesa úr
þessu móti en athygli vekur góð
frammistaða piltanna úr Rimaskóla,
Olivers Arons og Jóns Trausta, og
hins tíu ára gamla Vignis Vatnars
Stefánssonar. Af efstu mönnum
hækkuðu Jón Trausti, Einar Hjalti,
Loftur Baldvinsson og Vignir
Vatnar myndarlega á stigum.
Af hálfu TR var vel staðið að
mótinu í hvívetna, skákir voru að-
gengilegar degi eftir að umferð lauk,
svo dæmi sé tekið.
Frábær frammistaða
Veroniku á Gíbraltar
Undanfarin ár hefur opna mótið á
„Klettinum“, þ.e. Gíbraltar, verið
það vinsælasta meðal skákmanna og
í ár flykktust þangað nafntogaðir
kappar. Ivantsjúk, Cheparinov og
Vitiugov deildu efsta sætinu, hlutu
allir átta vinninga af tíu mögulegum
í hópi meira en 250 keppenda; eftir
aukakeppni var Cheparinov úr-
skurðaður sigurvegari.
Magnús Kristinsson bauð dóttur
sinni, Veroniku Steinunni, í þetta
ferðalag á framandi slóðir þar sem
apar leika við hvern sinn fingur.
Feðginin voru einu fulltrúar Íslands
á Gíbraltar og Veronika náði eft-
irminnilegum árangri og vann til
góðra verðlauna í flokki keppenda
undir 2.050 elo-stigum. Hún fékk
fjóra vinninga af tíu mögulegum,
tefldi upp fyrir sig allt mótið og náði
árangri sem reiknast upp á 2.010
elo-stig en hennar stig fyrir mótið
voru 1.561 elo.
Veronika tók þátt í Evrópumóti
barna og unglinga í Svartfjallalandi
fyrir áramótin og undirbúningur
hennar fyrir það mót er að skila sér
núna. Eftirfarandi skák sem tefld
var í 3. umferð er til vitnis um það:
Tim R. Spanton (England) –
Veronika Magnúsdóttir
Reti byrjun.
1. c4 Rf6 2. g3 c6 3. Rf3 d5 4. b3
Bf5
Biskupinn er oft hafður á g4 en
þetta er ágætt líka.
5. Bb2 Rbd7 6. Bg2 h6 7. 0-0 e6 8.
d3 Be7 9. Rbd2 0-0 10. He1 Hc8 11.
e4 Bh7 12. e5 Re8 13. d4 Rc7
Þótt svartur standi þröngt á hann
góð færi náist að opna taflið með –
c5. Hér hefði verið best að loka tafl-
inu með 14. c5 en hvítur velur
ómarkvissan leik.
14. Bh3? c5! 15. Hc1 cxd4 16.
Rxd4 Rc5 17. Bf1 Rd3 18. Bxd3
Bxd3 19. He3 Bh7 20. c5 Ra6 21. c6
Db6 22. cxb7 Dxb7 23. a3 Hxc1 24.
Dxc1 Rc5 25. Hc3 Db6 26. Df1
- Sjá stöðumynd -
26. … Ra4!
Skemmtileg vending, annar góður
leikur var 26. … a5.
27. Hc6 Db8 28. Bc1 Rc5!
„Músagildru-þemað“ er hér komið
fram, riddarinn hleypir hróknum inn
til c6 en lokar svo á hann aftur með
því að stökkva til baka. Veikleikinn á
d3 reynist erfiður.
29. f4 Rd3 30. R2f3 Hc8 31. f5
Hxc6 32. Rxc6 Bc5 33. Kg2 Dxb3
34. fxe6 fxe6 35. Rd2 Dc2 36. Rd8
Be4+ 37. Kh3 Rf2+ 38. Kh4 Be7+
– og hvítur gafst upp, 39. Kh5 er
svarað með 39. … Bg6 mát.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
SKÁK
Veronika í verðlaunasæti á Gíbraltar
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgát-
unnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt úr-
lausnum í umslagi
merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úr-
lausn krossgátu 15. febr-
úar rennur út á hádegi
21. febrúar. Vinningshafi
krossgátunnar 8. febrúar
er Erling Þór Pálsson, Áshamri, Akranesi. Hlýtur
hann bókina Kamban – líf hans og starf eftir Svein
Einarsson í verðlaun. Mál og menning gefur út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang