Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2014, Síða 60
erpool, Bill Shankly sem var knatt-
spyrnustjóri liðsins frá 1959 til
1973, stendur í eilífri sigurstöðu á
hlaðinu, með kreppta hnefa til him-
ins. Fiðrildagerið í maganum er
farið að láta ærlega að sér kveða,
en ég minni mig á að dagurinn í
dag eigi að snúast um staðinn,
stundina og stemninguna. Góð úr-
slit verði bara bónus. Við höskum
okkur inn á völl, finnum sætin okk-
ar og drekkum í okkur andrúms-
loftið. Leikvangurinn fyllist von
bráðar og spennan eykst. Þegar að
því kemur að standa á fætur og
taka undir með Gerry & the Pa-
cemakers þegar einkennislagið
You’ll Never Walk Alone sannast
að ég gerði rétt í því að stinga
vasaklút í úlpuvasann. Eins og við
er að búast bera tilfinningarnar
mig ofurliði, án þess að ég geri
minnstu tilraun til að streitast á
móti. Anfield-kórinn er sá hljóm-
Þ
að mun hafa verið um
það leyti sem ég hóf
skólagönguna í Hlíða-
skóla á því herrans ári
1979 að ég spurði karl
föður minn með hvaða liði við héld-
um í fótbolta. Bjarni Fel fjallaði af
landskunnum myndarskap um
enska boltann í Ríkissjónvarpinu
og deildin var að hefjast. Í minn-
ingunni lagði pabbi frá sér Morg-
unblaðið og tjáði mér að á þessu
heimili styddum við Liverpool. Það
leist mér býsna vel á því þeir voru
rauðklæddir og það var uppáhalds-
liturinn minn. Þess utan var liðið
firnasterkt um þær mundir og
ráðahagurinn því vænlegur. Liðið
var áfram sigursælt með afbrigðum
og gladdi stuðningsmenn sína
reglulega með stórum titlum. Í
gegnum súr og sæt 35 ár hef ég
stutt liðið af talsverðum tilfinn-
ingahita og því tímabært að grípa
gæsina þegar hún gafst um síðustu
helgi og fara á völlinn. Enginn
smáleikur sem fyrir dyrum var;
efsta lið ensku úrvalsdeildarinnar,
Arsenal, á leiðinni og við erfiðri
viðureign að búast. Það er enda
augljóst strax að morgni laug-
ardagsins 8. febrúar að grunnt er á
rafmögnuðu andrúmslofti í borg-
inni. Leigubílstjórinn sem ekur
okkur félögunum frá hótelinu okkar
og að Anfield er ósköp slakur þeg-
ar við setjumst inn í bílinn, en þeg-
ar við látum uppi ákvörðunarstað-
inn grípur hann fastar um stýrið og
hristir lítillega höfuðið, eins og
hann trúi varla spennunni fyrir
þennan mikilvæga leik. „Ertu að
koma í fyrsta skiptið? Þá áttu von
á góðu,“ segir hann. „Þetta verður
án vafa hörkuleikur því hvorugt lið-
ið má við því að missa stig sem
stendur.“ Ég spyr hann varfærn-
islega hvernig hann haldi að leik-
urinn fari. Aftur hristir hann lít-
illega höfuðið. „Ég vil ekki hljóma
eins og ég sé í neinni uppgjöf, eða
hafi ekki trú á sigri. En ég skal
segja þér í hreinskilni að gegn
þessu liði yrði ég ekki óánægður
með stig. Við skulum segja að svo
fremi sem talan þeirra á skorskilt-
inu verði núll þá telji ég úrslitin
ásættanleg.“ Reyndar varð Gareth
– sem hann heitir ef marka má lít-
inn skjöld sem festur hefur verið til
hliðar við mælaborðið – ekki að ósk
sinni með markatölu Arsenal í
leikslok, en ljóst er að hann hafði
ekki yfir neinu að kvarta þegar
dómarinn blés til leiksloka. Vera
má að mörgum stuðningsmanninum
hafi verið eins innanbrjósts og Ga-
reth, en annað var skrifað í skýin
yfir vellinum þann dag.
Stemningin magnast
Við félagarnir erum snemma á ferð
þennan morguninn því við ætlum,
samkvæmt ráðleggingum reynslu-
bolta, að kíkja á pöbbinn fyrir leik.
Öldurhúsið sem stefnan er tekin á
heitir The Park og er handan göt-
unnar frá Anfield-leikvanginum.
Þangað er þegar mættur talsverður
hópur rauðklæddra stuðnings-
manna og við verðum að gera okk-
ur að góðu að standa og sötra
morgunölið. Fljótlega fer að þéttast
innanstokks og þegar við leggjum í
hann yfir götuna þurfum við að
olnboga okkur gegnum þvöguna,
svo ríflega er skipað í plássið. Það
eru talsverðar tilfinningar fólgnar í
því að sækja þennan víðfræga –
nánast goðsagnakennda – leikvang
heim. Styttan af manninum sem
lagði grunninn að stórveldinu Liv-
fegursti sem ég hef heyrt í. Upplif-
unin er ótrúleg. Ég hef ekki sam-
anburðinn svo ég spyr mig: er
þetta hefðbundin stemning á An-
field eða liggur eitthvað í loftinu?
Leiftursókn rauða hersins
Nánast um leið og flautað er til
leiks kemur í ljós að svo sann-
arlega liggur eitthvað í loftinu. Eft-
ir 53 sekúndur hefur Martin Skrtel
skorað eftir aukaspyrnu inn í teig-
inn frá Steven Gerrard og húsið
nötrar af fagnaðarlátum. Þvílík
byrjun! Leikmenn Arsenal virka
slegnir út af laginu, en raunir
þeirra eru rétt að byrja. Leift-
ursóknir Liverpool-menn hvolfast
eins og holskeflur yfir gestina frá
Lundúnum sem virka steinrunnari
með hverju markinu sem bætist
við. Þegar klukkan við hægri enda
hinnar víðfrægu Spion Kop-stúku
segir að nítján mínútur séu búnar
af leiknum, segir markataflan fyrir
neðan að staðan sé fjögur núll. Það
er lygilegt út af fyrir sig, því Ars-
enal er jú liðið sem hefur setið á
toppi deildarinnar lengst af, en
ennþá lygilegri er sú staðreynd að
lærisveinar Arsène Wengers mega
prísa sig sæla að staðan er ekki
7-0. Stuðningsmennirnir syngja há-
stöfum og ljóst að hér eru söguleg
úrslit í uppsiglingu. Stórlið Arsenal
er spilað gersamlega ráðalaust og
leikmenn þess geta sér enga björg
veitt. Ekki einu sinni Mezut Özil,
fastamaður í þýska landsliðinu og
langdýrasti leikmaður Arsenal, get-
ur komið liði sínu til bjargar; ef
eitthvað er virkar hann einna sístur
til afreka þegar hér er komið sögu.
Miðvallarleikmenn Liverpool, þeir
Jordan Henderson, Philippe Cout-
inho og fyrirliðinn Steven Gerrard,
ráða lögum og lofum inni á vell-
inum og leiftursnöggir sóknarmenn
liðsins, Daniel Sturridge, Raheem
Sterling og Luis Suárez, þjóta
næstum óáreittir fram hjá varn-
armönnum gestanna. Á hliðarlín-
unni stendur Wenger þungur á
brún með hendur í vösum dúnkáp-
unnar sem hann klæðist gjarna
þegar svalt er í veðri og gárungar
kalla svefnpokann. En það er sama
hvað hann rótar í vösunum, lausnir
eða svör finnur hann engin.
Eldhringurinn Anfield
Augljóst er að leikmenn Liverpool
og stuðningsmenn nærast hvorir á
öðrum þessar töfrum líku mínútur
og vex ásmegin ef eitthvað er. An-
field hefur um langan aldur verið
sagður sá völlur sem besta hefur
stemninguna og meðal álitsgjafa
þar hafa verið ekki minni spámenn
en Thierry Henry, fyrrverandi
Kjörorð liðsins blasir við fyrir ofan Shankly Gates hliðin við Anfield, en þau voru reist til heiðurs hinum goðsagnakennda þjálfara árið 1982, ári eftir andlát hans.
Pílagrímsferð sem
breyttist í flugeldasýningu
EFTIR RÚMLEGA 35 ÁR SEM STUÐNINGSMAÐUR ENSKA LIÐSINS LIVERPOOL LAGÐI UNDIRRITAÐUR LAND UNDIR FÓT OG FÓR Á VÖLLINN –
SJÁLFAN ANFIELD Í BÍTLABORGINNI. ÚR VARÐ LEIKUR SEM LENGI VERÐUR Í MINNUM HAFÐUR MEÐAL STUÐNINGSMANNA LIÐSINS.
Langþráð jómfrúrheimsókn greinarhöfundar á Anfield varð að veruleika þann
8. febrúar sl. Liverpool átti stjörnuleik sem lengi verður í minnum hafður.
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2014
* Ef þú ert ekki viss um hvað þú átt að gera við boltann, settuhann bara í netið og svo ræðum við aðra valkosti eftir á.“Bill Shankly, fv. knattspyrnustjóri Liverpool. BoltinnJÓN AGNAR ÓLASON
jonagnar@mbl.is