Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
Fjórir af nemendunum sexsem liðið skipa eru aðskrifa meistararitgerð ílögfræði og tveir eru á
fjórða ári. Þetta eru þau Lena Mjöll
Markúsdóttir, Ásdís Auðunsdóttir,
Anton Birkir Sigfússon, Grímur Már
Þórólfsson, Eygló Sif Sigfúsdóttir
og Skúli Hakim Mechiat.
Í október síðastliðnum var þeim
úthlutað tilbúnu máli sem þau hafa
undirbúið og flytja í keppninni Wil-
lem C. Vis í næsta mánuði. Þar
verða 250 lið laganema hvaðanæva
úr heiminum. „Allir eru að kljást við
sama vandamál sem við höfum feng-
ið nokkra mánuði til að undirbúa.
Við byrjuðum á að skila inn stefnu
og greinargerð, stefnunni skiluðum
við í desember og greinargerð í lok
janúar,“ útskýrir meistaraneminn
Lena Mjöll.
„Við erum báðum megin, stefn-
andi og verjandi sitt á hvað. Núna
erum við að semja ræður og æfa
okkur að flytja ræðurnar, undirbúa
málflutning og keppa hvert við ann-
að. Við erum líka búin að keppa á
netinu í keppni á vegum Pace-
háskólans í Bandaríkjunum,“ segir
Lena. Þar fengu þau umsögn og tók-
ust á við tvö lið, annað bandarískt og
hitt pólskt. Notast var við fjarfund-
arbúnað svo keppendur gætu séð
mótherjana og dómarana. „Dómar-
arnir grípa inn í og spyrja spurninga
í miðri ræðu og reyna svolítið að slá
mann út af laginu,“ segir hún.
Prýðileg þjálfun
Þjálfari liðsins er Garðar Víðir
Gunnarsson, lögmaður á lögmanns-
stofunni Lex, en hann er einnig
stundakennari við skólann. Æfinga-
ferlið er strangt og tekur liðið þátt í
alls kyns keppnum fram að aðal-
keppninni. Þjálfunin er margs konar
og reynir á marga þætti lögmennsk-
unnar. Lena segir að það sé einstakt
tækifæri að fá að taka þátt í alþjóð-
legri keppni og í þessu langa ferli
felist mikill lærdómur. Það sama eigi
við um allar undirbúningskeppn-
irnar. „Það er gaman að skipta um
umhverfi og fá nýja dómara því þar
sitja aðrir yfir,“ segir hún.
Fyrsti áfangastaður liðsins utan
landsteinanna er París en þar fer
fram æfingarmót. „Svo förum við til
Búdapest og keppum á öðru æfing-
armóti þar en þar á eftir förum við
til Vínar þar sem aðalkeppnin er
þann 10. apríl og það er alveg heil
vika,“ segir Lena.
Dagskráin er vel skipulögð og
hefst með riðlakeppni þar sem keppt
er fjórum sinnum. Komist íslenska
liðið í gegnum riðlakeppnina er það
komið í 64 liða úrslit og útsláttar-
keppnin hefst. Þau setja markið hátt
og stefna að sjálfsögðu á úrslit.
Lögfræði á ensku
Eins og gefur að skilja fer allur
málflutningur fram á ensku og það
er sannarlega stór áskorun að flytja
mál á öðru tungumáli en sínu eigin –
og það í keppni!
„Þetta var dálítið erfitt fyrst
enda ekki tungumálið sem við erum
vön að læra á þó að framboðið af
námskeiðum á ensku hér í HR auk-
ist. Maður þurfti alveg að tileinka
sér nýjan þankagang á ensku og
læra öll þessi flóknu hugtök en það
hefur gengið betur og betur. Ég
Safna fyrir alþjóðlegri
málflutningskeppni
Sex manna lið laganema úr HR æfir stíft þessa dagana fyrir alþjóðlega málflutn-
ingskeppni sem fram fer í Vínarborg í byrjun apríl. Keppt verður í alþjóðlegum
gerðardómsrétti og alþjóðlegum lausafjárkaupum og þurfa liðin bæði að bregða
sér í hlutverk sækjanda og verjanda í erfiðu máli. Það reynir því á ræðusnilld,
sannfæringarkraft og síðast en ekki síst góða röksemdafærslu fyrir málinu.
Æfing Lið HR sem fer í málflutningskeppnina æfir stíft þessar vikurnar.
Í dag flytur Elín Björk Jóhannsdóttir,
MA í almennri bókmenntafræði, fyr-
irlesturinn Kona sem átti að vera
einsog kókflaska í laginu - Mávahlát-
ur og átraskanir. Fyrirlesturinn fer
fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns-
ins kl. 12-13. Í skáldsögu Kristínar
Marju Baldursdóttur, Mávahlátri, er
sjúkdómur Freyju í senn falinn og
hjúpaður þögn. Sjúkdómurinn er
lotugræðgi og meðferð hans í verkinu
kallast á við þá þöggun sem einkennt
hefur átraskanir. Í erindinu verður
varpað ljósi á tengsl ögunar kvenlík-
amans, breyttra neysluvenja og át-
raskana eins og þau birtast í verkinu.
Einnig er skoðað hvernig áhrif ögunar
kvenlíkamans sem endurspeglast í
átröskun Freyju birtast í öðrum kven-
persónum í verkinu, sér í lagi í Öggu
en hún er í þann mund að stíga inn í
kvennaheiminn með öllu því sem
honum fylgir.
Vefsíðan www.rikk.hi.is
Stilla/Úr kvikmynd Ágústs Guðmundssonar Mávahlátri
Mávahlátur Ugla Egilsdóttir og Margrét Vilhjálmsdóttir sem Agga og Freyja.
Mávahlátur og átraskanir
Tónlistarmaðurinn og Ísfirðingurinn
Skúli mennski er einkarekinn í al-
mannaþágu og ætlar hann að heiðra
Strandamenn með nærveru sinni á
morgun, laugardag. Hann verður með
tónleika á Malarkaffi á Drangsnesi og
verður húsið opnað kl. 21. Á undan
Skúla mun tónlistarmaðurinn Borko
leika nokkur lög. Í tilkynningu segir
að gráglettin og vönduð textagerð sé
eitt aðalsmerki Skúla mennska og
mega gestir Malarinnar búa sig undir
að hlæja, gráta, upplifa og opinberast
á góðri kvöldstund með góðum dreng
enda eru kjörorð Skúla frelsi, virðing
og góð skemmtun.
Endilega …
… kíkið á Skúla
mennska
Morgunblaðið/Eggert
Ísfirðingur Skúli mennski skemmtir.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is
Vertu vinur á
Helgartilboð
18.990,-
Helgartilboð
7.990,-
Helgartilboð
18.990,-
Helgartilboð
14.990,-
Helgartilboð
19.990,-
Helgartilboð
14.990,-
HELGAR
TILBOÐ
6.-9. mars
Hver á að fá líftryggingunaþína?“ spurði trygginga-salinn. Ekki hafði éghugsað út í það. Satt best
að segja heimsótti ég tryggingafélag
til þess að festa kaup á bílatryggingu,
og ekkert annað, en kaupin undu upp
á sig. Og allt í einu blasti við þessa
stóra spurning. Raunar er ég nú líka
sjúkdómatryggður. Svona ef mér
tekst að lifa dauðann af – fyrst um
sinn. En þær milljónir munu allar
renna í minn vasa.
„Það gæti til dæmis verið foreldrar
þínir, systkini eða sambýliskona,“
sagði sölumaðurinn.
Ég hafði aldrei leitt hugann
að því hver ætti að njóta
góðs af líftryggingunni,
hugmyndin um líftryggingu
ein og sér var jú ný af nál-
inni.
Við hjúin hófum búskap í
haust og hafði ég frekar
velt vöngum yfir
mun nærtækari
málum, eins og
hvar ég ætti að búa
ef ske kynni að
hún myndi sparka
mér – það tók
fleiri mánuði að
ramba á eignina
sem við erum í
óðaönn að flytja í –
en ekki hvernig
standa ætti að málum
ef ég myndi kveðja
þennan heim fyrir fullt
og allt.
Og það er nú ekki að ástæðulausu
sem ég orða þetta með þeim hætti,
„fyrir fullt og allt“.
Sókrates sagði nefnilega „að allir
þeir, sem iðka heimspeki með réttum
hætti, temja sér það eitt að deyja og
vera dauðir“. Þannig að ég á litla von
á upprisu. Það er eflaust fyrir bestu.
En reynum að halda þræði, jú jú,
það hefði verið andstætt ágætri meg-
inreglu að miða að því að foreldrar
mínir myndu erfa mig og mína
tryggðu sál, á hinn
veginn skal það
vera.
„Það er
auðvelt að
gera
breyt-
ingar á
þessu,“ skaut
tryggingasalinn að, ef-
laust leiður á biðinni.
Eftir stutta umhugsun,
komst ég að því að um
þáttaskil væri að ræða.
Ungi maðurinn hafði
skrifað upp á líftryggingu
til Betu. Og hún vissi
ekki einu sinni af því, var
símalaus uppi á heiði.
»„Hver á að fá líf-trygginguna þína?“
spurði tryggingasalinn.
Heimur Helga Vífils
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is