Morgunblaðið - 07.03.2014, Side 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
VINNINGASKRÁ
45. útdráttur 6. mars 2014
31 14533 23329 34056 44657 53521 62087 71937
110 15276 23394 34183 45177 53839 62686 72220
118 15540 23404 34568 45583 54281 62881 72249
152 16101 23702 34933 45588 54326 62968 72290
559 16217 23796 35460 45664 54484 63342 72825
734 16394 23855 35516 45934 54876 64370 72966
1447 16666 24010 36130 46082 55357 64704 72967
1536 17146 24274 36250 46530 56489 64784 73042
1694 17216 25088 37313 46598 56518 65152 73158
3090 17299 25363 37346 47114 56643 65533 73811
3212 17549 25536 37502 47454 57082 65661 73906
3597 17775 25570 37643 47502 57445 65928 75215
3734 18141 25699 38842 47714 57854 65998 75612
4688 18188 25736 39064 48168 57962 66724 75677
4862 18442 26097 39584 48217 58152 67275 75735
7126 18854 26314 40101 48409 58156 67459 75862
7226 19186 27043 40234 48717 58357 67779 76681
7473 19289 27728 40486 48894 58590 68014 76715
7713 19744 27961 40729 48992 58615 68364 77154
8506 19812 28006 41026 49141 58849 69075 77262
9136 19936 28090 41080 49188 59181 69096 77521
9683 20405 28216 41097 49208 59276 69107 77602
9723 20649 28308 41209 49365 59407 69776 78188
10021 20678 28666 41465 49884 59787 69890 78224
10270 20961 29087 42740 50186 60479 69983 78715
10317 21113 29669 42780 50636 60526 70318 79799
10818 21945 29743 43309 51184 60529 70430
11157 22087 30328 43356 51587 60590 70481
11460 22519 32042 43859 52807 61404 70748
12463 22983 32770 43902 53279 61414 70900
13302 23060 32973 44521 53318 61530 71025
13426 23170 33452 44617 53511 61929 71578
881 16895 24138 34241 42181 57882 63533 72165
1417 17592 25297 35066 43173 57973 64497 72898
2333 18661 25340 35931 44519 58036 65148 73480
6861 19064 26323 36331 45808 58572 65199 74122
7492 19856 29124 36449 46559 58621 65456 74431
8127 20511 29291 37317 48345 58895 65909 75190
8300 20609 29955 37497 49215 60160 66531 75497
9254 21146 31119 38121 50065 60171 67800 77995
10148 21173 31814 38249 50161 61317 67815 78244
10822 22551 32691 38431 53266 61996 68815
10958 22611 33560 38995 54532 62137 70282
13188 23484 33588 40380 54749 62204 70559
13333 23806 33856 41415 55979 63246 70740
Næstu útdrættir fara fram 13. mar, 20. mar & 27. mar 2014
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
11504 34557 38562 73151
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3216 10142 15603 35096 53497 70229
3435 14307 15662 35832 59806 71575
4516 14421 27092 39757 65339 74944
5145 14469 31298 49520 67077 76679
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 7 3 9 4
Ráðherra mennta-
mála hefur ítrekað
lýst því yfir í ræðu og
riti að hann hyggist
stytta framhaldsskól-
ann og kennurum
standi ekki annað til
boða en 2,8% launa-
hækkun nema svo
verði. Hann vill koma
á kerfisbreytingu í
framhaldsskólanum.
Hvergi er hægt að nálgast upplýs-
ingar um í hverju þær breytingar
felast enda eru yfirlýsingarnar
ekki samhljóma því sem unnið hef-
ur verið að undanfarið. Í lögum frá
2008 er miðað að auknu frelsi
skóla og þeim ætlað að gera skóla-
námskrár sem öðlast ígildi aðal-
námskrár að fengnu samþykki
ráðuneytis. Innan þess ramma
geta skólar t.d. skipulagt þriggja
ára námsbraut til stúdentsprófs. Í
námskrá frá 2011 segir að skólar
skuli skipuleggja námsbrautir til
3. þreps, þar með talið stúdents-
próf, sem eigi að taka fimm til átta
annir. Ef marka má yfirlýsingar
ráðherra á að hverfa aftur til mið-
stýringar og þessi lög, sem enn
hafa ekki orðið að raun, verða þá
líklega lögð til hliðar, eða hvað?
Ráðherra talar um að stytta
framhaldskólann í þrjú ár. Hvað á
hann við? Vélstjórnarnám er
gæðavottað fimm ára nám sem
veitir alþjóðleg réttindi, verður
það þriggja ára nám? Iðnnám tek-
ur frá tveimur upp í 3,5 ár í skóla
auk vinnustaðanáms, m.a. á sumr-
in, verður það þrjú ár? Er ráð-
herra kannski bara að tala um
bóknám í bekkjarskólum? Núna
geta nemendur sem það kjósa lok-
ið námi til stúdentsprófs á þremur
árum. VMA býður nýnemum svo-
kallaða matsönn þar sem þeir geta
tekið próf í kjarnagreinum og far-
ið beint í framhalds-
áfanga og lokið námi
á þremur árum. Aðrir
skólar hafa þróað
svipaðar leiðir enda er
það í anda þess sem
lagt var upp með í
lögum frá 2008.
Á menntaþingi
Samiðnar 28/2 sl.
flutti ráðherra erindi
undir yfirskriftinni:
Áhrif styttingar á iðn-
nám. Hann hélt tölu
um slaka náms-
framvindu, sagði nemendur of
gamla við töku sveinsprófs, það
þyrfti að bæta stýringu á starfs-
námi og breyta grunnnámi. Eftir
alllanga tölu um hvað væri að tal-
aði hann um að koma á formlegu
samráði og efla áhuga nemenda.
Ekki eitt orð um áhrif styttingar á
iðnnám.
Ráðherra er og tíðrætt um önn-
ur lönd og OECD. Hann heldur
því fram að nemendur séu ári
lengur í námi á Íslandi en í við-
miðunarlöndunum. Hann hefur
aldrei minnst á starfstíma skóla
þessara landa sem má ætla að sé
að meðaltali um þremur vikum
lengri á ári en hérlendis. Ef við
margföldum það með 13, sem er
algengur árafjöldi til stúdents-
prófs, fáum við lengri skólasetu
þar en hér til þeirra námsloka.
Hann hefur heldur ekki nefnt að
nemendur viðmiðunarskólanna fá
skólastyrk, beinharða peninga og
þurfa ekki að greiða fyrir náms-
gögn. Ætlar ráðherra að koma á
kerfisbreytingu sem miðar að því
að fara í svipað kerfi og finnst í
viðmiðunarlöndunum? Ætlar hann
að lengja skólaárið, veita nem-
endum skólastyrk og hækka laun
kennara um 40% til að ná með-
altali OECD? Eða ætlar hann að
hækka þau um 50% til að ná með-
altali Norðurlandanna?
Nú er kjaradeila kennara hjá
sáttasemjara og útlit fyrir harðar
deilur. Ráðherra setur kennurum
þá afarkosti að þiggja 2,8% hækk-
un – þrátt fyrir ákvæði í kjara-
samningi frá 26. maí 2011 um
hækkanir í takt við viðmið-
unarhópa sem í dag eru 17% hærri
en kennarar – ellegar að gangast
inn á kerfisbreytingar sem eru
ómótaðar og hvergi til. Við eigum
að skrifa upp á óútfyllt skuldabréf.
Þessi afstaða ráðherra er með
ólíkindum. Það er líkast því að
hann þekki lítt innviði skólakerf-
isins, hvað þá það þróunarstarf
sem unnið hefur verið á und-
anförnum árum. Hann heldur því
fram að kerfisbreytingu fylgi
sparnaður – ef nemendur fá 50
þúsund króna skólastyrk á mánuði
er það einn milljarður á mánuði –
og notar eingöngu atriði frá út-
löndum sem honum hugnast.
Það væri nær fyrir ráðherra að
horfast í augu við ástandið og gera
eitthvað vitrænt frekar en setja sí-
fellt fram sömu óljósu tugguna um
kerfisbreytingu. Brýn atriði eru að
koma til móts við kröfur kennara,
þó ekki væri nema að standa við
bókanir 1 og 5 í síðasta samningi,
lesa áfellisdóm Ríkisendurskoð-
unar um hvernig ríkisvaldið stend-
ur að rekstri skólanna og bregðast
við því sem þar kemur fram og að
því loknu setja fram mótaðar hug-
myndir um hvernig kerfi hann sér
fyrir sér. Ef miða á við önnur lönd
þarf að skoða heildarmyndina og
meta áhrifin af slíkri grundvall-
arbreytingu sem á sér ekki hlið-
stæðu í íslenskri skólasögu.
Stytting framhaldsskóla
Eftir Baldvin
Ringsted » Yfirlýsingar ráð-
herra um styttingu
náms eru í andstöðu við
lög og aðalnámskrá.
Baldvin Ringsted
Höfundur er kennslustjóri við VMA.
„Þau vilja frekar
vera í verknámi, þau
vilja meira verknám.“
Þetta má lesa úr nið-
urstöðum rannsóknar
dr. Ingu Dóru Sigfús-
dóttur, um hvað unga
fólkið okkar í fram-
haldsskólum vill og
kynntar voru á
Menntadegi atvinnu-
lífsins hinn 3. mars sl. Þar kom skýrt
fram að 36% þeirra sem eru í bók-
námi hefðu frekar viljað
fara í verknám. Það sem
meira er – þau sem eru í
bóknámi eða um 60%
þeirra vilja meira verk-
nám inn í kennsluna.
Í þessu felast skýr
skilaboð sem bjóða upp
á gríðarmikil tækifæri
ef rétt er á málum hald-
ið. Viðhorf til iðn- og
verknáms þarf að breyt-
ast, heima fyrir sem úti í
samfélaginu. Ung-
lingana vantar hvatn-
ingu. Um þetta hefur lengi verið
rætt. Þessu þarf að breyta.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
skilaboð um að iðn- og verkmenntun
er ekki nægilega aðgengileg og að-
laðandi þótt aðrir þættir eins og fé-
lagslíf skólanna spili stóran þátt við
val unga fólksins. Könnunin dregur
líka fram mikið brottfall við lok iðn-
og verknáms. Það er umhugsunar-
efni, sem virðist m.a. tengjast upp-
byggingu námsins og verður að ræða
frekar.
Síðan má segja að krafa þeirra
bóknámsnemenda sem vilja meiri
verknámkennslu gefi skýrt til kynna
að endurskoða verði kennsluhætti á
framhaldsskólastigi og fyrri skóla-
stigum.
Breytinga er þörf
Þessi skilaboð eiga heima í
menntaumræðu samtímans. Hverju
þarf að breyta og hvar er hægt að
gera betur. Á Menntadegi atvinnu-
lífsins kom m.a. fram í máli frum-
kvöðuls í framleiðslu- og þjónustu-
fyrirtæki að menntun sveinsnema og
kerfið í kringum tiltekna sérfræð-
inga endurspeglaði ekki veruleika og
þarfir fyrirtækja. Þarfir fyrirtækja
kalla á meiri umræðu um hvernig við
eigum að byggja iðn- og verknám
upp til lengri tíma. Það er óumflýj-
anlegt að endurskoða kerfið og meta
alla þá möguleika sem stuðlað geta
að auknu faglegu iðn- og verknámi.
Iðnnám verður að sinna bæði eft-
irspurn atvinnulífsins og laða að
unga fólkið í ríkara mæli en nú er,
sér í lagi þegar fyrir liggur að stytt-
ing náms til stúdentsprófs er smám
saman að verða að veruleika. Breyt-
ingar í þessa veru eiga ekki að vera
ógnun heldur tækifæri því krakk-
arnir vilja verknám. Þau eru tilbúin
en kerfið ekki.
Í máli dr. Andreas Schleichers frá
OECD komu fram mikilvægar upp-
lýsingar sem gagnast við að móta
skarpari stefnu í menntamálum er
ýtt getur undir samkeppnishæfni
landsins okkar. Hér verður tæpt á
nokkrum atriðum.
Kennaramenntun
Áherslur um að forgangsraða fjár-
munum innan kerfins, t.d. þegar litið
er til kennarastarfsins og kenn-
aramenntunar, þarfnast ítarlegrar
umræðu. Dr. Schleicher benti á að
stjórnvöld í Singapúr, sem er í einu
af efstu sætum PISA-niðurstaðna,
hefðu ákveðið að forgangsraða með
þeim hætti að fjölga nemendum í
bekkjum og ýta markvissar undir
kennarastarfið, m.a. með aukinni
umbun. Jafnframt var inntak kenn-
aramenntunar endurskoðað.
Umræða um kennaramenntunina
hér á landi er orðin þyngri en áður og
er það fagnaðarefni. Lenging kenn-
aranámsins var skynsamlegt skref,
eins og dr. Schleicher benti á, en há-
skólarnir komast ekki hjá því að
víkka út samvinnu við sveitarfélög og
atvinnulíf um hvernig kenn-
aramenntun við þurfum á að halda.
Óhjákvæmilegt er m.a. að skoða bet-
ur hvernig starfsnám á þessum fimm
árum geti orðið stærri hluti af kenn-
aranáminu. Gæti það farið fram bæði
innan skólanna og fyrirtækja? End-
urskoðun á kennaranáminu og öfl-
ugri símenntun fyrir starfandi kenn-
ara er lykilþáttur í nauðsynlegum
breytingum á kennsluháttunum í
skólunum.
Meiri þungi og fyrr á lestur
Ýmislegt fleira er hægt að ræða í
tengslum við PISA-niðurstöður og
komu dr. Schleichers hingað til
lands. Stóri lærdómurinn af nið-
urstöðunni er sá að við þurfum að
bæta verulega lestrarkunnáttu barna
og unglinga. Fimmtán ára unglingi
sem ekki getur lesið sér til gagns
mun verða það fjötur um fót síðar á
lífsleiðinni hvort heldur í áframhald-
andi námi eða starfi á vinnumarkaði.
Hann mun eiga erfitt með að læra
allt annað hvort sem það er tungu-
mál, stærðfræði eða náttúruvísindi.
Samkeppnishæft atvinnulíf mun í
vaxandi mæli byggja á menntun og
nýsköpun. Störf á vinnumarkaði
munu halda áfram að þróast og gera
aukna kröfu um kunnáttu sem ekki
verður lærð án þess að leskunnátta
komi þar verulega við sögu. Því verð-
ur að taka lestrarkunnáttu fyrr fast-
ari tökum, jafnvel strax í leikskóla. Í
gegnum leik er hægt að læra. Fyrir
utan öll skemmtilegheitin.
Tölfræðin í Noregi sýnir að því fyrr
sem hlúð er að krökkum á skóla-
göngu, ekki síst þegar kemur að
grunnfærni eins og lestri, er líklegra
að þau haldist innan skólakerfisins og
lendi ekki í brottfallshópi. Þau eru þá
einnig líklegri til að finna nám við hæfi
og í samræmi við styrkleika sína.
Engin ástæða er að ætla annað en að
það sama gildi um okkur Íslendinga.
Það er til mikils að vinna fyrir at-
vinnulífið, stjórnvöld, heimili og sam-
félag að vel takist við þær breytingar
sem nauðsynlegar eru á íslensku
menntakerfi. Því er mikilvægt að
gott samstarf og samvinna verði um
næstu skref í breytingum á mennta-
kerfinu. Hef ég trú á að þar vilji
margir leggja hönd á plóg.
Eftir Þorgerði
Katrínu
Gunnarsdóttur
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
» Breytingar í þessa
veru eiga ekki að
vera ógnun heldur tæki-
færi því krakkarnir vilja
verknám. Þau eru tilbú-
in en kerfið ekki.
Höfundur er forstöðumaður mennta-
og nýsköpunarsviðs SA.
Mikilvæg skilaboð á Menntadegi