Morgunblaðið - 07.03.2014, Side 29

Morgunblaðið - 07.03.2014, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014 manna við óblíð náttúruöfl í sjúkraflugi upp á líf og dauða. Með öðrum sögum veitti Karl innsýn í viðskiptaheim fyrri ára- tuga á Íslandi en einkum þó í viðskiptum við Þýskaland 6. og 7. áratugarins. Honum var líka hugleikin hörð lífsbarátta fyrri kynslóða, margt alþýðufólk sem bjó við hörð kjör, og allar slíkar frásagnir voru gegnsýrðar af mannúð Karls, en hennar nutu líka margir. Heimsmaðurinn mikli lét há- an aldur ekki aftra sér frá því að fljúga á milli landa og dvaldi langdvölum síðastliðið sumar í Danmörku með Fjólu sinni. Það er afar sárt til þess að hugsa að Karl sé ekki væntanlegur út í ár. Allt verður svo miklu tómlegra án hans – úti og heima. Við vottum aðstandendum Karls okkar dýpstu samúð. Kristín Ólafsdóttir, Gestur Guðmundsson. Kveðja frá Skógrækt- arfélagi Íslands Heiðursfélagi Skógræktar- félags Íslands, Karl Eiríksson, er látinn, en hann var einn af gegnustu stuðningsmönnum fé- lagsins og studdi starfsemi þess dyggilega um áratuga skeið. Á jörð sinni Stíflisdal í Þingvalla- sveit kom hann, ásamt fjöl- skyldu sinni, upp myndarlegum og fallegum skógi. Um upphaf ræktunar í Stíflisdal, sem hófst um 1967, hafði hann oft á orði að flestir sérfræðingar hefðu ráðið honum frá því að hefja þar rækt- un. Það væri vonlaust mál enda ræktunarsvæðið um og yfir 200 metrar yfir sjávarmáli. Hvatn- ingarorð Hákonar Bjarnasonar urðu hins vegar til þess að hann hélt áfram og hægt og bítandi varð Stíflisdalur að unaðsreit skógræktarmannsins. Karl var einnig frumkvöðull í landgræðslu hér á landi. Eftir að hann kom heim úr flugstjóra- námi frá Bandaríkjunum vildi hann taka uppgræðslu lands föstum tökum, en hann hafði kynnst hvernig unnið var að þeim málum ytra. Flutti hann inn áburðarflugvél og vann í samvinnu við Landgræðslu rík- isins að því að bera á uppblást- ursfláka ofan Gunnarsholts. Í framhaldinu hófst nýr kafli í uppgræðslu lands hér á landi. Skyldurækni Karls var ekki eingöngu bundin við Skógrækt- arfélag Íslands, því ótalin eru störf hans í þágu Skógræktar- félags Reykjavíkur, en þar var hann m.a. stjórnarmaður um langt árabil og gegndi því starfi af einlægum áhuga á skógrækt. Á þeim árum var hann fulltrúi Reykjavíkurfélagsins á aðal- fundum Skógræktarfélags Ís- lands og kom þar færandi hendi, lagði gott til mála og var sannur gleðigjafi meðal skógræktar- fólks. Ósjaldan bauð hann stjórn Skógræktarfélags Íslands í heimsóknir í Stíflisdal, en þar var Karl hrókur alls fagnaðar. Sýndi hann okkur árangur skóg- ræktarstarfsins og sagði skemmtilegar sögur af ýmsum atvikum. Þessar ferðir voru okk- ur um margt ógleymanlegar, gleðistundir sem efldu fé- lagslega samstöðu og aukna trú á möguleikum íslenskrar skóg- ræktar. Á síðari árum, þegar hinum hefðbundna starfsdegi var lokið, var það hans mesta yndi að leita í dalinn og huga að trjágróðri. Og þrátt yfir ýmiskonar áföll í einkalífinu átti skógræktarhug- sjónin fastan sess í hjarta hans fram á síðasta dag. Til marks um það traust sem hann bar til Skógræktarfélags Íslands afhenti Karl félaginu á liðnu ári sérstaka bjúgskóflu til varðveislu og eignar. Sögulegur gripur sem vinur hans Kjartan Sveinsson hafði gefið honum og er hluti af merkilegri skógrækt- arsögu Elliðaárdalsins og tækniþróun ræktunarstarfsins hér á landi. Umrædd bjúgskófla prýðir nú anddyri skrifstofu fé- lagsins. Á aðalfundi Skógræktarfélags Íslands á Lýsuhóli árið 2005 veitti félagið Karli æðstu orðu félagsins, gullmerki, ásamt við- urkenningu, þar sem honum var þakkað ómetanlegt starf í þágu skógræktar. Stuðningur Karls Eiríkssonar við Skógræktarfélag Íslands var einstakur. Magnús Gunnarsson formaður, Brynjólfur Jóns- son framkvæmdastjóri. Karl Eiríksson var flugmaður og skógræktarmaður, hugrakk- ur brautryðjandi og þjóðernis- sinnaður alþjóðasinni. Hann var frjálshyggjumaður af gamla skólanum og einlægur haturs- maður hafta: viðskipti áttu að stjórnast af heilbrigðri eftir- spurn og framboði án íhlutunar. Það var í umhverfi hafta og þröngsýni að Karl stofnaði fyr- irtæki skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina, Flugskólann Þyt. Í þessu umhverfi neyddist hann til að betla innflutnings- leyfi fyrir varahlutum gegnum stjórnskipaðar haftanefndir, þar sem menn tóku ákvarðanir án þess að hafa nokkuð til brunns að bera annað en flokksskírteini og áskrift að happdrættismiðum þess sama stjórnmálaflokks. Við getum ímyndað okkur hvaða áhrif þetta niðurnjörvaða kerfi afturhaldsseminnar hafði á tví- tugan ofurhugann, sem var þá nýkominn úr námi frá Banda- ríkjunum. Karl Eiríksson var aldrei hræddur við að fara ótroðnar slóðir. Í Bandaríkjunum kynnt- ist hann nýjung sem hann vildi innleiða á Íslandi: dreifingu áburðar úr lofti. Það tók hann þó áratug að koma þessu í fram- kvæmd því bæði vantaði fjár- magn og svo innflutningsleyfi frá gæslumönnum Píningar- dóms. Það tókst þó Karli og fé- lögum í Þyti – en ferlið var allt kolólöglegt og framhjá kerfinu. Gæslumönnum til hróss, eins og hann sagði sjálfur, voru þó öll leyfi undirrituð og stimpluð á methraða í þríriti sumarið 1958 eftir að menn sáu árangurinn. Árið 1960 tók hann við rekstri fyrirtækis föður síns. Á þeim tíma komst flokkur hans til valda ásamt krötum og boðaði nýja tíma með afnámi hafta og opnu hagkerfi. Það tók sinn tíma að brjótast úr viðjum vanans, en þessi tími gerði Karl að einörð- um stuðningsmanni frjálslyndr- ar alþjóðahyggju. Þó hann væri einlægur Íslendingur og jafnvel þjóðernissinni – í jákvæðri merkingu – var hann aldrei hræddur við útlönd. Þvert á móti: hann kunni að temja sér það besta sem menn gera í út- löndum. Karl var fagmaður fram í fingurgóma, hvort sem viðfangs- efnið var greining á orkumálum eða viðgerð á vél eða umfangs- mikil skógrækt hans í Stíflisdal – paradís Karls Eiríkssonar. Baráttumaður í öllu sem hann trúði á og óhræddur sem slíkur. Það gleymist seint þegar hann rökstuddi í hópi vinstrisinnaðra hlustenda hvers vegna Davíð Oddsson væri stórmenni. Það gerði hann æsingalaust og studdi svo vel með dæmum að vel má vera að einn og einn hlustandinn hafi kinkað kolli – svo lítið bar á. Móðir mín, Fjóla Magnús- dóttir í Antíkhúsinu, og Karl hófu sambúð nokkrum árum eft- ir að makar þeirra beggja féllu frá. Fráfall eiginkonu hans var ekki eina áfall Karls á lífsleið- inni; hann missti tvö ung börn og svo hann Skúla sinn ekki fimmtugan. Við sem þekktum hann vitum vel hversu djúpur og nístandi sársauki hans var. Karl Eiríksson var margt, en fyrst og fremst var hann ein- staklega góður maður – örlátur, skilningsríkur og hjálpsamur. Við tökum eftir, að barnabörn móður minnar nefna Karl Ei- ríksson aldrei annað en „afa Kalla“. Við kona mín, Steinunn Harðardóttir, og börnin okkar, Fjóla Kristín og Hörður Páll, munum aldrei gleyma Karli Ei- ríkssyni. Magnús Ólafsson, New York. Ég kynntist Karli Eiríkssyni eftir að ég varð samgönguráð- herra 1991. Hann var þá formað- ur Flugslysanefndar og hafði þá eins og endranær látið sig ör- yggismál í flugsamgöngum mjög varða. Má raunar segja, að hann hafi verið meðal frumkvöðla á því sviði og naut trausts. Það var mér mjög mikils virði að hafa hann mér til ráðuneytis, þegar skipan þessara mála var breytt og sett í fastari skorður með Rannsóknarnefnd flugslysa árið 1996. Honum var það kappsmál, að Skúli J. Sigurðarson veitti Rannsóknarnefndinni forstöðu. Með þeim var mjög gott sam- starf, gagnkvæmt traust og vin- átta. Það er mjög mikils virði fyrir ráðherra að eiga slíka menn að sem trúnaðarvini í op- inberri stjórnsýslu. Eftir að ég flutti í Breiðablik fyrir átta árum lágu leiðir okkar Karls aftur saman. Þá kynntist ég nýjum og óvæntum hliðum á þessum vini mínum og sam- starfsmanni. Eins og áður töl- uðum við um flug, orkumál og pólitík en nú kynntist ég rækt- unarmanninum Karli Eiríks- syni. Það er vafalaust að fáir ef nokkur einstaklingur hefur lagt jafnmikið til skógræktar og hann. Jörðin Stíflisdalur er un- aðsreitur, – þar ríkir fegurðin ein. Mér er minnisstæð ferð okkar Kristrúnar með honum þangað sl. haust. Tilfinning mín var sú að hver hrísla, hvert tré, sem við fórum hjá, væri vinur hans. Vafalaust er, að á þessum síðustu vetrardögum hefur hug- ur hans leitað þangað í kyrrð- ina. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Breiðablik er mikið hús. Við hittumst á fimmtudags- kvöldum nokkur og röbbuðum saman. Á síðustu vikum hafa tveir horfið úr hópnum, Þorkell Valdimarsson og Karl Eiríksson. Við söknum vina í stað sem eftir sitjum. Og síðan kemur röðin að okkur. Halldór Blöndal. Góður vinur er genginn á vit feðra sinna, eftir langa og at- hafnasama ævi. Til kynna okkar Karls var stofnað þegar ég var barn í for- eldrahúsum en mikil vinátta var á milli fjölskyldnanna alla tíð eða frá hans fyrstu störfum að flugmálum. Hann var sannar- lega frumkvöðull í eðli sínu og átti ýmis hugðarefni sem hann sinnti af miklum áhuga og fylgni sem honum var svo eiginlegt. Ekki verður annað sagt en að hann hafi verið stór í sniðum og honum var létt að taka ákvarð- anir og koma þeim í verk, enda sjást farsæl spor hans víða og á mörgum sviðum einka- og at- hafnalífs. Hann stofnaði Flug- skólann Þyt og var einn þeirra sem keyptu fyrstu flugvélina til áburðadreifingar svo og tveggja hreyfla flugvél til loftmyndatöku og síldarleitar. Þegar hann hafði starfað um nokkurt árabil sem flugmaður bæði hjá Flugfélagi Íslands og Loftleiðum, stóð hann frammi fyrir því að velja á milli flugsins sem framtíðar- starfs eða taka við rekstri fjöl- skyldufyrirtækisins Bræðranna Ormsson. Sú ákvörðun að velja fyrirtækið var sjálfsagt ekki auðveld og trúlega hefur trú- mennska hans og kærleiki til föður hans átt einhvern þátt í því. Ekki leikur nokkur vafi á því að fyrirtækið naut verulega góðs alla tíð af störfum Karls og eiginkonu hans Ingibjargar sem starfaði þar með honum af lífi og sál ásamt sonum þeirra, Eiríki og Skúla. En hugur hans var aldrei fjarri fluginu og má nefna að reynsla hans á því sviði kom að góðu gagni í störfum hans í flugslysanefnd bæði sem með- limur og síðar sem formaður hennar. Oftast var það svo í samræð- um við Karl að talið barst að hans stærsta áhugamáli sem var uppgræðsla landsins og skóg- rækt. Margur maðurinn hefði lagt upp laupana ef reynt hefði þá byrjunarerfiðleika sem hann mátti stríða við í Stíflisdal og voru margar ástæður fyrir því. Hann naut þar seiglu sinnar og sannfæringar og vann þann sig- ur að í dag gefur að líta skóg- rækt sem ber af vegna fjöl- breytileika og fegurðar svo unun er á að líta. Hann var ótrúlega flinkur í því að vera sannur vin- ur manns, nýtti þau tækifæri sem gáfust eða skapaði tilefni til að rækja vinskapinn og var hrókur alls fagnaðar. Ekki var síst gaman að koma til þeirra hjóna í Stíflisdal, njóta gestrisni þeirra, sigla um vatnið og ganga um skóginn undir leiðsögn Karls þegar hann sagði sögur margra þeirra plantna sem honum hafði borist víða að. Karl fékk að reyna ýmis áföll í lífinu, sem hann tók með æðru- leysi lífsreynds manns. Þeim hjónum varð fimm barna auðið og misstu tvö þeirra ung. Síð- asta áfallið var þegar Skúli son- ur hans lést skyndilega á besta aldri í blóma lífsins og var öllum sem til þekktu sár missir. Karli var fullljóst síðustu misserin sem hann lifði að sjúk- dómur hans var þess eðlis að líf hans hékk á bláþræði. Þetta lét hann ekki á sig fá eða lét það hafa þau áhrif á sig að hann væri ekki glaður og reifur á góðra vina fundi. Eftir að hann missti eigin- konu sína mjög svo ótímabært, var hann svo heppinn að kynn- ast Fjólu K. Magnúsdóttur, sem var honum ómetanlegur föru- nautur, sem vinur og stoð og stytta allt til hinsta dags. Þegar ég minnist Karls koma mér í hug orðin: trúmennska, heiðarleiki og hreinskilni. Þann- ig mun ég minnast hans með þakklæti. Ég votta ættingjum og vinum hans samúð. Sveinn Björnsson. Fallinn er frá einn af okkar kæru félögum í Lionsklúbbnum Baldri. Karl Eiríksson var sá okkar er lengst hafði setið í fé- laginu. Var það stofnað í október árið 1953, en Karl gekk í klúbb- inn í febrúar 1954. Tók hann strax virkan þátt í allri starfsemi félagsins, sat í stjórn þess og gerðist formaður um stund. Sinnti hann þeim viðfangsefnum Baldursfélaga að veita munaðar- lausum börnum stuðning. Hann hóf einnig brautryðjendastarf í að stuðla að bættri umgengni í umhverfismálum. Við félagar vildum vekja athygli á því að al- menningur gæti fegrað umhverfi sitt og reynt að sporna við gróð- ureyðingu landsins. Hófu Bald- ursfélagar þá að skilja eftir á bensínstöðvum plastpoka, sem bílstjórum voru gefnir til að setja í rusl, en henda því ekki út um glugga. Einnig gáfum við þar fötur með fræi og áburði til uppgræðslu við rofabörð, sem farþegar gátu notað í áningar- stað eða við sumarhús. Karl var einnig góður þátttakandi í starfi okkar við uppgræðslu á gróð- urvin milli Svartár og Hvítár- vatns á Kili, sem við nefndum Baldurshaga, en þá torfu tókum við í fóstur árið 1965 til að bjarga henni frá uppblæstri. Karl var þá ötull í þessu rækt- unarstarfi. Hann flaug yfir land- ið og dreifði áburði á torfuna. Karl var reyndar fyrstur til að nota flugvél við dreifingu fræs og áburðar hér á landi. Í vin okkar í Baldurshaga lét Karl flytja skúr, sem hann hafði not- að í starfi við byggingu álversins í Straumsvík. Skúrinn er nú íveruhús Baldursfélaga þegar farið er á Kjöl til uppgræðslu- starfa. Karl var mikill áhugamaður um ræktun. Það vitum við fé- lagar. Því oft höfum við notið þess að heimsækja hann og virða framtak hans í skógrækt á setri hans í Stíflisdal. Við kveðjum góðan félaga með söknuði og sendum fjöl- skyldu hans samúðarkveðjur. Fyrir hönd Baldursfélaga, Sturla Friðriksson. Í dag er borinn til grafar Karl Eiríksson, en hann og móðir mín, Fjóla Magnúsdóttir, áttu samleið í fjórtán ár. Það var gæfuspor, ekki aðeins fyrir mömmu, einnig fyrir okkur systkinin og börn okkar. „Að deyja er að vera allur“ og er fólgin í því djúp alþýðuviska: við erum minnt á að mannsævin er fjöldi sundurleitra brota sem safnast saman í eina mynd á dauðastundinni og þá fyrst verður maður heill þegar hann hefur lokið lífshlaupi sínu; í síð- ustu andartökum innihaldsríkr- ar ævi. Sumt geymist betur í minninu en annað, einkum slóðar bernsk- unnar. Karl Eiríksson mundi vel sína bernsku, var mikill sögu- maður og hafði unun af að rifja upp lífshlaup sitt. Honum var til dæmis minnisstætt hve mikil eftirvæntingin var fyrir fyrstu ferðinni til ömmu og afa, að Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, 1933. Nú, þegar hann hefur lagt í sína hinstu ferð leitar hún á hugann og þannig finnst mér nú að það líf sem Karl átti sem barn, mörg sumur, í Álftaveri hafi haft djúpstæð áhrif á hann, orðið að áttavita sem vísaði hon- um vegaslóðann. Auðvitað er það margt sem mótar einstak- ling, en lífsreynsla bernskunnar varð honum fyrirmynd sem varðaði veginn. Drengurinn hafði beðið lengi eftir að heimsækja móðurafa og ömmu, Jón Brynjólfsson og Sig- urveigu Sigurðardóttur. Allar samgöngur voru erfiðar á þeim árum og þegar þessi ferð var farin var Markarfljótsbrú ekki komin. Hugur var í Karli að komast í sveitina og farkostur- inn Buick-bifreið, árgerð 1930. Það sprakk þrisvar á leiðinni og þá var sest niður við vegbrúnina, límtúba tekin upp og bíldekkið bætt. Að Markarfljóti komu þau síðdegis en Buickinn komst þó ekki yfir fljótið, en farið á hest- um og var lífsreynsla fyrir litla drenginn, að hafa beljandi fljótið fyrir neðan sig. Einhver kallaði til hans að horfa til lands, en ekki niður í fljótið. Einkenndi það ekki Karl Eiríksson, að eygja ávallt landsýn? Líka undir það síðasta. Karl sagði mér að minnis- stætt frá sumrum bernskunnar hefði verið frjálsræðið og í minn- ingunni alltaf bjart sumarveður. Þessi dýrmæta bernska ein- kenndi Karl; náttúrubarnið hreiðraði um sig hið innra, frelsi bernskunnar í farvegi flugs um heiminn, bóndinn sem tók við fyrirtækjabúi föðurins og kapps- fulli trjáræktarbóndinn. Karl miðlaði því góða sem afi og amma gróðursettu í hans bernskusál. Ung föður- og afa- laus dóttir mín, Jóhanna Steina, átti hlýjan væng að skríða undir og hve þakklát ég er fyrir þann afa sem hann gaf henni: hafði svo einlægan húmor fyrir henni og börnum yfirleitt. Dauðinn kemur aldrei á rétt- um tíma en í stóra samhenginu þá eru það allar stundirnar sem skipta máli og sameinast í gang- verki lífsins. Það vissi sá öðling- ur og heiðursmaður sem hefur kvatt, lífsreyndur og kunnugur þeim systrum, gleði og sorg. Fyrir mína hönd og dætra minna sendi ég fjölskyldu Karls Eiríkssonar, ástvinum og vinum, hluttekningu og samúð. Blessuð sé minning Karls Ei- ríkssonar. Steinunn Ólafsdóttir. ✝ Ólöf Cooperfæddist í Reykjavík 4. sept- ember 1943. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 26. febrúar 2014. Foreldrar henn- ar voru Lester Creed Cooper, f. 17.2. 1923, d. 7.11. 1990, og Margrét Björnsdóttir, f. 9.3. 1923. Systkini Ólafar eru Thor B. Eggertsson, f. 28.12. 1945, og Margrét Viderø Joensen, f. 12.1. 1951. Hinn 10. mars 1962 giftist Ólöf eftirlifandi eig- inmanni sínum, Gylfa Ein- arssyni, f. 13.1. 1941, í Reykja- vík. Ólöf og Gylfi eignuðust tvö börn: 1) Konráð Gylfason, f. 15.9. 1962, kvæntur Önnu Maríu Harð- ardóttur, f. 2.8. 1963, eiga þau tvö börn: a) Hörð Svein, f. 1992, og b) Helenu, f. 1995. 2) Margrét Gylfa- dóttir, f. 21.5. 1964, gift Ólafi Sveinssyni, f. 30.1. 1962, eiga þau þrjú börn: a) Fannar Svein, f. 1997, b) Söru Mjöll, f. 2000 og c) Írenu Mjöll, f. 2000. Sonur Margrétar af fyrra sambandi er Gylfi Snær Cooper Salómonsson, f. 1984. Útför Ólafar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 7. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Maður er aldrei viðbúinn and- láti góðra vina. Hún Ólöf vinkona okkar er látin eftir mjög erfið veikindi. Við höfum verið saman í saumaklúbb yfir 50 ár og Ólöf hafði gaman af að rifja það upp þegar henni var boðið að koma í saumaklúbbinn okkar. Þá var hún innan við tvítugt, nýgift og fannst að við, sem vorum nokkrum árum eldri en hún, værum alveg „hræði- lega gamlar“ – það kæmi ekki til greina, en það átti eftir að breyt- ast og hún kom í hópinn okkar og aldursbilið minnkaði með árunum. Við höfum gert ýmislegt skemmtilegt í gegnum árin sem oft er rifjað upp; saumaklúbbs- böllin, sumarbústaðaferðirnar og að sjálfsögðu útilegurnar í Þjórs- árdal og margt fleira. Þau Ólöf og Gylfi voru einstaklega samhent hjón og góðir vinir sem gott var heim að sækja, og fyrir það skal þakkað. Af öllum þeim gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægjuauka er vin- áttan dýrmætust. (Epíkúros) Elsku Gylfi og fjölskyldan öll, innilegar samúðarkveðjur til ykk- ar. Kvöldstjarnan skín inn um gluggann minn glatt. Gamlar minningar ljóma. Fiðrildin svífa í kvöldsins kyrrð, eða kúra á milli blóma. (Elín Eríksdóttir frá Ökrum) Elsku Ólöf, takk fyrir sam- fylgdina. Guð geymi þig. Eyrún, Stella, Guðlaug, Inga, Þóra og eiginmenn. Ólöf Cooper

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.