Morgunblaðið - 07.03.2014, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
Dagný Hildur Leifsdóttir er sextug í dag, fædd. 7. mars 1954.Hún mun halda upp á stórafmælið í kvöld í góðra vina ogættingja hópi.
„Ég ætla að vera í fríi í vinnunni á afmælisdaginn og taka á móti
ættingjum og vinum í kvöldmat í sal úti í bæ. Ég hef haldið upp á af-
mæli mitt á tíu ára fresti en alltaf verið með veisluna heima þangað
til núna,“ segir Dagný Hildur og kveðst ekki halda upp á afmælið
sitt nema á fimm til tíu ára fresti.
Dagný Hildur vinnur hjá sjóðnum Vestnordenfonden og um
helgina fer hún til Kaupmannahafnar í vinnuferð. „Ég ferðast einn-
ig mikið til Grænlands og Færeyja vegna vinnunnar því Vestnorden-
fonden lánar til Grænlands, Færeyja og Íslands,“ segir Dagný Hild-
ur sem hefur unnið hjá sjóðnum í 24 ár og er eini starfsmaður hans á
Íslandi. „Eina manneskjan sem kemur til mín á skrifstofuna er póst-
urinn, svo ég hef mjög góðan vinnufrið,“ segir hún og hlær.
Dagný Hildur er úr ætt sem er með arfgenga heilablæðingu og er
ein eftirlifandi af átta manna fjölskyldu. Foreldrar hennar og fimm
systur eru öll látin, auk nokkurra systkinabarna hennar. Hún er í
stjórn Heilaverndar sem eru samtök sem voru stofnuð til þess að
styrkja rannsóknir á þessum arfgenga sjúkdómi.
„Ég er þakklát fyrir það að hafa átt heilsu þessi sextíu ár sem eru
að baki, ég gleðst á þessum degi. Svo verður maður að horfa fram á
við og vona að það komi önnur tíu,“ segir Dagný Hildur. Hún er gift
Þorvaldi B. Sigurjónssyni, á þrjú börn og þrjú barnabörn.
Dagný Hildur Leifsdóttir er 60 ára
Sextug Dagný Hildur Leifsdóttir heldur upp á stórafmælið í kvöld.
Er þakklát fyrir
lífið og heilsuna
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akranes Ares Freyr fæddist 22. júní
kl. 5.30. Hann vó 3685 g og var 53 cm
langur. Foreldrar hans eru Hafdís
Gunnarsdóttir og Reynir Valdimar
Freysson.
Nýir borgarar
Reykjavík Theodóra Kristín fæddist
29. júlí kl. 2.20. Hún vó 3.380 g og var
52 cm löng. Foreldrar hennar eru Jó-
hanna Kristín Jóhannesdóttir og
Þröstur Bragason.
M
agnús fæddist í
Reykjavík 7.3. 1974
og ólst þar upp
fyrstu sex árin en
flutti þá í Kópavog-
inn. Hann gekk í Ísaksskóla 1980-83
og Digranesskóla í Kópavogi 1983-
90, lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti 1994 og
BSc-prófi í viðskiptafræði frá HÍ
2001.
Á skólaárunum vann Magnús á
sumrin hjá Búnaðarbankanum frá
18 ára aldri og síðan hjá SPRON.
Hann flutti til Sauðárkróks 2001,
var lánasérfræðingur hjá Byggða-
stofnun 2001-2004 en varð þá for-
stöðumaður rekstrarsviðs Byggða-
stofnunar og hefur gegnt því starfi
síðan.
Magnús sat í stjórn knattspyrnu-
deildar Tindastóls 2002-2006, hefur
setið í aðalstjórn Tindastóls frá
Magnús Helgason, forstöðumaður hjá Byggðastofnun – 40 ára
Með systkinafjölskyldum Magnús, ásamt bróður sínum og systur, mökum þeirra og börnunum, síðustu jól.
Einhleypur fjallagarp-
ur hjá Byggðastofnun
Gengið á Hornströndum Magnús á toppi Skálarkambs, séð ofan í Hlöðuvík.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
JAVA 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is