Morgunblaðið - 07.03.2014, Blaðsíða 38
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Skáldsaga enska rithöfundarins
Marks Haddon, The Curious Inci-
dent of the Dog in the Night-Time,
Furðulegt hátta-
lag hunds um
nótt í íslenskri
þýðingu, kom út
árið 2003 og sló í
gegn. Haddon
hlaut m.a. Whit-
bread-bók-
mennta-
verðlaunin og
barnabókaverð-
laun dagblaðsins
Guardian fyrir bókina það ár og níu
árum síðar var frumsýnt í kon-
unglega breska þjóðleikhúsinu,
Royal National Theatre, leikrit Sim-
ons Stephens byggt á bókinni. Leik-
ritið hlaut í fyrra sjö verðlaun á
Olivier Awards, bresku sviðs-
listaverðlaununum, fleiri en nokkurt
leikrit hafði áður fengið og var fært
yfir í Apollo-leikhúsið á West End
þar sem það hefur notið mikillar að-
sóknar og vinsælda.
Í verkinu segir af 15 ára pilti á ein-
hverfurófinu, Christopher Boone,
sem býr yfir einstökum stærðfræði-
hæfileikum. Dag einn finnur hann
hund nágranna síns dauðan úti í
garði, rekinn í gegn með garðkvísl
og ákveður að rannsaka drápið og
skrifa út frá því leynilögreglusögu.
Christopher finnur við rannsókn
sína dularfull bréf sem tengjast fjöl-
skyldu hans og leiða til þess að hann
heldur í hættuför til Lundúna.
Vandað til verksins
Á morgun kl. 20 verður uppfærsla
Borgarleikhússins á þessu vinsæla
leikverki, í þýðingu Guðrúnar Vil-
mundardóttur og leikstjórn Hilmars
Jónssonar, frumsýnd á Stóra svið-
inu. Blaðamaður ræddi við Hilmar í
vikunni og spurði fyrst hvernig hon-
um þætti leikgerðin samanborin við
bókina. „Mér finnst leikgerðin mjög
góð, fanga það sem er skemmtilegt
og athyglisvert í bókinni og setja það
á skemmtilegan hátt fram í leik-
verki. Mér finnst hvort um sig
skemmtilegt verk, leikgerðin og
bókin. Það hefur tekist mjög vel til
og þessi leikgerð er mjög skemmti-
legt úrvinnsluefni fyrir okkur í leik-
húsinu,“ segir Hilmar.
-Nú fer bókin að miklu leyti fram í
hugarheimi Christophers og það
hlýtur því að hafa verið snúið að
vinna leikgerð upp úr henni?
„Já, þetta var örugglega ekkert
auðvelt en það tókst vel til. Þetta var
skrifað fyrir breska þjóðleikhúsið og
vandað til verksins, algjörlega frá-
bært leikhúsverk sem kemur út úr
þessu,“ segir Hilmar. Frumupp-
færslan hafi vakið mikla athygli og
notið mikilla vinsælda í Lundúnum.
Hilmar segist hafa séð þá sýningu og
spurður að því hvort mikil líkindi séu
með uppfærslu Borgarleikhússins
og þeirri á West End segir Hilmar
svo ekki vera. „Við förum aðra leið.
Uppfærslan okkar er á Stóra sviðinu
og þeirra uppfærsla var búin til upp-
haflega í „black boxi“ í þjóðleikhús-
inu og það eru önnur lögmál sem
gilda í því rými sem verkið okkar er
sett upp í. Það er hröð framvinda í
sögunni, örar skiptingar milli staðar
og stundar í framsetningunni á verk-
inu og við ákváðum að notfæra okk-
ur öll meðöl leikhússins til að stað-
setja okkur í tíma og rúmi verksins.“
Sérstakur drengur
-Leikmyndin í sýningunni úti er
tæknilega flókin, svartur kassi með
fjarstýrðum ljósabúnaði ýmiss kon-
ar. Hvernig er ykkar leikmynd?
„Við beitum ýmsum meðölum við
að setja sýninguna á svið og segja
söguna. Það er erfitt að bera þetta
saman, það er allt önnur pæling í
leikmyndinni okkar sem er erfitt að
lýsa. Við ákváðum bara að lesa verk-
ið á okkar forsendum og þó ég hafi
séð sýninguna úti fyrir rúmu ári hef-
ur það engin áhrif á okkar útfærslu.
Það var skemmtileg og vel leikin
sýning og maður sá að leikritið virk-
aði,“ segir Hilmar og bætir við að
leikmyndin í Borgarleikhúsinu sé
margslungin og fjölnota.
-Nú er þetta fyrsta burðar-
hlutverk Þorvalds Davíðs Kristjáns-
sonar eftir að hann var fastráðinn
við leikhúsið. Þetta er mjög krefj-
andi hlutverk, hvernig hefur tekist
að leikstýra honum?
„Okkur samstarf hefur verið mjög
gott og gengið mjög vel. Það er stórt
verkefni að setja sig inn í aðstæður
drengs af þessu tagi, sérstaks
drengs eins og Christopher Boone
er. Okkur hefur gengið vel, við höf-
um leitað til sérfræðinga og þeirra
sem til málanna þekkja, skoðað
heimildir, lesið bækur og viðað að
okkur efni,“ segir Hilmar. Þeir hafi
tekið þann pól í hæðina að skoða
hagi fólks á einhverfurófinu. „Það er
margslungið fyrirbæri, flókin grein-
ing og mjög einstaklingsbundið
hvernig þetta kemur fram. Við sönk-
uðum að okkur fróðleik og notuðum
það sem við töldum hæfa við úrlausn
þessarar sögu. Það er skemmtileg
saga og framvinda í verkinu, saga
þessa drengs og fjölskyldu hans og
þær kringumstæður sem skapast í
heimi sem er ekki búinn til fyrir
„drengi eins og þig“,“ segir Hilmar.
Það hafi verið skemmtilegt verkefni
fyrir leikhópinn að skoða átökin í
verkinu.
Samhent teymi
Hilmar segir málefnið mjög verð-
ugt verkefni fyrir leikhús að takast á
við, að kynna sér hagi fólks sem
þekki til í þessum heimi, heimi ein-
hverfra. „Samhæfingarhlutverk
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Sérstakur Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir miðju í hlutverki Christopher Boone í leikritinu Furðulegu háttalagi
hunds um nótt. Leikgerðin er byggð á vinsælli og heillandi verðlaunabók enska rithöfundarins Marks Haddon.
„Verðugt verkefni fyrir leikhús“
Furðulegt háttalag hunds um nótt frumsýnt í Borgarleikhúsinu Piltur á einhverfurófinu rann-
sakar hundsdráp „Stórt verkefni að setja sig inn í aðstæður drengs af þessu tagi,“ segir leikstjórinn
Hilmar Jónsson
leikstjórans er mikið í stórum sýn-
ingum eins og þessari þar sem
margir þættir þurfa að vinna saman.
Hlutverk leikstjórans, fyrir utan að
vera listrænn stjórnandi og velja
leiðina að útfærslu sýningarinnar, er
að samhæfa alla þætti leikhússins
þannig að úr verði heildstæð sýning.
Það eru margir góðir listamenn sem
standa að þessu og þetta er auðvitað
krefjandi. Þetta er gott og samhent
teymi og við höfum gert fjölda leik-
sýninga saman þannig að þetta hef-
ur gengið mjög vel. Það hafa allir
þurft að taka vel á því og gera sitt
besta.“
-Þið eruð með sama danshöfund
og vann við söngleikinn Mary Popp-
ins í Borgarleikhúsinu, Lee Proud.
Það er enginn dans í verkinu, er
það?
„Nei. Hann kom inn í þetta á
fyrstu stigum og við völdum atriði
sem hann hjálpaði okkur að útfæra
og það er mikil prýði að þeim í sýn-
ingunni,“ segir Hilmar.
Höfundur
Furðulegs
háttalags
hunds um
nótt er Sim-
on Stephens
og leikstjóri
Hilmar
Jónsson.
Leikarar í
verkinu eru
Þorvaldur Davíð Kristjánsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Bryn-
hildur Guðjónsdóttir, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, Nína Dögg
Filippusdóttir, Jóhann Sigurð-
arson, Arnar Dan Kristjánsson,
Sigurður Þór Óskarsson, Marí-
anna Clara Lúthersdóttir, Álf-
rún Helga Örnólfsdóttir. Leik-
gerðina þýddi Guðrún
Vilmundardóttir og um hönnun
leikmyndar sá Finnur Arnar
Arnarsson. Um búninga sá
Þórunn María Jónsdóttir, lýs-
ingu Björn Bergsteinn Guð-
mundsson og tónlist Frank
Þórir Hall.
Titillag sýningarinnar samdi
Ásgeir Trausti, um hljóð sér
Thorbjørn Knudsen og leik-
gervi Margrét Benediktsdóttir.
Danshöfundur er Lee Proud og
um myndbönd sér Petr Hlou-
šek.
Ásgeir samdi
titillagið
AÐSTANDENDUR
Ásgeir Trausti
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2014
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n