Morgunblaðið - 14.03.2014, Side 26

Morgunblaðið - 14.03.2014, Side 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 ALLT á einum stað! Lágmarks biðtími www.bilaattan.is Dekkjaverkstæði Varahlutir Bílaverkstæði Smurstöð Árlegri löggjafarsamkundu kínverska þingsins lauk í gær AFP Stjórnvöld munu ekki umbera spillingu samkomu kínverska þingsins í gær. Li lagði áherslu á að lögin færu ekki í manngreinarálit en athygli vakti að hvergi var minnst á Zhou Kínversk stjórnvöld munu hvorki líða spillingu né spillta embættismenn, sagði Li Keqiang, for- sætisráðherra Kína, við lok árlegrar löggjafar- Yongkang, fyrrverandi nefndarmann í fasta- nefnd stjórnmálaráðs Kommúnistaflokksins, sem ku sæta rannsókn vegna gruns um spillingu. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Jay Carney, talsmaður Hvíta hússins, sagði í gær að nýjar upplýsingar hefðu opnað á þann möguleika að leit- inni að flugvél Malaysia Airlines, sem hvarf á föstudag, verði beint að Ind- landshafi. Hann gaf ekki upp um hvers konar upplýsingar væri að ræða. Bridget Welsh, prófessor í stjórn- málafræði við Singapore Manage- ment-háskóla, sagði í samtali við AFP í gær að svo virtist sem hags- munir er vörðuðu m.a. yfirráð og leynileg gögn hefðu verið teknir fram yfir leitina að vélinni, af Mal- asíu, Kína og öðr- um ríkjum sem að henni standa. Upplýsingum um afdrif flugs MH370 hefur ekki borið saman frá því leitin hófst og gærdagurinn var engin undantekn- ing. Þá hafnaði Hishammuddin Hussein, samgönguráðherra Malas- íu, frétt Wall Street Journal, þar sem sagt var frá því að gögn frá eft- irlitsbúnaði Rolls-Royce-véla flug- vélarinnar bentu til þess að vélin hefði mögulega verið á lofti í allt að fjórar klukkustundir eftir að síðast heyrðist af henni. Yfirvöld í Malasíu játuðu jafn- framt í gær að kínverskum gervi- hnattamyndum, sem virtust sýna mögulegt brak í Suður-Kínahafi, hefði verið dreift af Kínverjum fyrir mistök og að bletturinn á myndunum væri alls ekki flak flugvélarinnar. Yf- irvöld í bæði Malasíu og Víetnam höfðu sent flugvélar til að kanna málið en fundu ekkert. CNN hafði eftir starfsmanni mal- asískra flugmálayfirvalda í gær að síðustu orð áhafnar vélarinnar áður en samband rofnaði hefðu verið „allt í lagi, góða nótt“. Þá sagði eiginkona eins farþega vélarinnar við spjall- þáttastjórnandann Piers Morgan að hver óvissudagur virtist heil eilífð. Leitinni beint að Indlandshafi?  Hvíta húsið segir nýjar upplýsingar liggja fyrir  Hagsmunir einstakra ríkja settir framar leitinni  Misvísandi upplýsingar um mögulegan flugtíma vélarinnar Hishammuddin Hussein Alls sjö hafa fundist látnir í rústum fjölbýlishúsanna tveggja sem hrundu í gassprengingu í austur- hluta Harlem-hverfis í New York á miðvikudag. Meðal látinna eru þrír karlar og fjórar konur en þrjár þeirra voru 21 árs, 44 ára og 67 ára. Samkvæmt upplýsingum frá fjórum sjúkrahúsum, þangað sem fólk var flutt, særðust 63 í sprengingunni, flestir lítillega. Íbúar í nágrenninu vöknuðu klukkan 9.30 að staðartíma við miklar drunur og héldu margir að jarðskjálfti hefði riðið yfir. Nokkru áður hafði verið tilkynnt um mögu- legan gasleka en það tók yfir 200 slökkviliðsmenn klukkustundir að slökkva eld sem barst í nærliggj- andi byggingar. Í gær var enn leit- að að fólki sem var saknað en ná- kvæmur fjöldi lá ekki fyrir. Sjö látnir, 63 slas- aðir í New York Slys Tvö fjölbýlishús hrundu í gas- sprengingu í New York á miðvikudag. BANDARÍKIN AFP Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Formaður þingnefndar rússneska þingsins um samskipti við fyrrver- andi Sovétlýðveldin sagði í útvarps- viðtali í gær að nokkrar rússneskar hersveitir væru í viðbúnaðarstöðu á Krímskaga, ef vera kynni að gerð yrði árás frá Kænugarði dagana sem íbúar Krím ganga til atkvæða- greiðslu um aðskilnað frá Úkraínu. Þetta er í fyrsta sinn sem hátt- settur rússneskur embættismaður gengst við hernaðarbrölti Rússa á Krímskaga en forsetinn, Vladimir Pútín, hefur ítrekað haldið því fram að einkennisklæddir byssumenn, sem standa vörð við herstöðvar í Krím, tilheyri sjálfsvarnarsveitum heimamanna. Varar Rússa við Úkraínska þingið samþykkti í gær að koma á stofn varðsveit sem skipuð verður 60.000 sjálfboðaliðum en markmið hennar verður að koma í veg fyrir að rússneskar hersveitir sæki lengra inn í landið. Í úkraínska hernum eru alls 130.000 hermenn en í þeim rússneska 845.000. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sagði í gær að ef Rússar héldu áfram á þessari braut myndi það ekki einvörðungu valda hörmungum í Úkraínu. „Það myndi ekki ein- göngu breyta sambandi Evrópusam- bandsins í heild sinni við Rússland. Nei, það myndi líka, og um þetta er ég sannfærð, stórskaða Rússland, bæði efnahagslega og pólitískt,“ sagði hún á þýska þinginu. Boðar aðgerðir á mánudag Rússar sendu sex SU-27 orrustu- þotur til Hvíta-Rússlands í gær, að beiðni forseta landsins, en Atlants- hafsbandalagið og Bandaríkin hafa eflt herafla sinn á svæðinu síðustu vikur vegna ástandsins í Úkraínu. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði við því í gær að ef Rússar sýndu ekki merki þess að þeir væru tilbúnir til að taka skref í átt til þess að leysa deiluna sem upp er komin vegna atkvæðagreiðslunn- ar um helgina, myndu Bandaríkin og ríki Evrópu grípa til aðgerða þegar á mánudag. Barack Obama Bandaríkjaforseti fundaði með Arseniy Yetsenyuk, for- sætisráðherra Úkraínu, á miðviku- dag og sagðist fullviss um að alþjóða- samfélagið myndi standa með Úkraínu ef Pútín mildaðist ekki í af- stöðu sinni. Viðurkenna viðbúnað í Krím  Stofna varðsveit 60.000 sjálfboðaliða Uli Hoeneß, forseti knattspyrnu- félagsins Bayern München, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir skattsvik. Hann var ákærður fyrir að stinga milljónum evra undan skatti með því að halda svissneskum bankareikningi leynd- um fyrir skattayfirvöldum í Þýska- landi. Hoeneß hefur eina viku til að ákveða hvort hann áfrýjar dómnum en hann er frjáls ferða sinna í milli- tíðinni. Hann bauðst til að segja af sér sem forseti Bayern í fyrra en fé- lagið hafnaði því boði. Nú er hins vegar viðbúið að hann láti af starfi sínu þar. Forseti Bayern dæmdur í fangelsi ÞÝSKALAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.