Morgunblaðið - 14.03.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 14.03.2014, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mælingar áafstöðufólks til aðildar Íslands að Evrópusambandinu segja talsverða sögu. Fréttaflutn- ingur af þessum mælingum og af málefnum sem tengjast um- sókn Íslands að Evrópusam- bandinu segja ekki minni sögu. Capacent mældi á dögunum áhuga fólks á aðild að Evrópu- sambandinu. Eins og venjulega er drjúgur meirihluti andvígur aðild en það athyglisverða kem- ur í ljós þegar rýnt er nánar í talnaverkið. Af þeim sem kjósa Framsóknarflokkinn eru 3% fylgjandi aðild að Evrópusam- bandinu og 4% þeirra sem velja Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er af- ar athyglisvert þegar litið er til þess hve sjónarmið þeirra fé- laga í þessum flokkum, einkum Sjálfstæðisflokknum, sem hlynntir eru aðild fá mikið vægi í fjölmiðlum. Sumir fjölmiðlar eru raunar svo uppteknir af þessum 4% flokksmanna að ætla mætti að þau væru í meirihluta. Í fréttum er jafnvel talað fjálg- lega um klofning vegna yfir- lýstrar óánægju einhvers hluta þessara fjögurra prósenta. Þegar horft er á samfylking- arflokkana tvo, Bjarta framtíð og Samfylkinguna, má sjá að skoðanir eru mun skiptari en innan stjórnar- flokkanna. Í báðum samfylkingarflokk- unum eru innan við 80% fylgjandi aðild, en samt er aldrei minnst á hin rúm- lega tuttugu prósentin og aldrei rætt við nokkurn fulltrúa þeirra. Þessi ríflega fimmt- ungur stuðningsmanna flokk- anna á ekki heldur nokkurn kjörinn fulltrúa á þingi eða í sveitarstjórnum og enginn úr þessum fimmtungi hefur náð nokkrum frama innan flokkanna eða gegnir þar ábyrgðarstöðu svo vitað sé. Hvernig má það vera að stöð- ugt sé verið að elta uppi sjón- armið fyrrnefndra þriggja og fjögurra prósenta úr stjórnar- flokkunum sem eru fylgjandi aðild en aldrei reynt að draga fram sjónarmið þessa fimmt- ungs samfylkingarflokkanna sem vill ekki aðild? Og hvernig stendur á því að engin athugasemd er gerð við það að forysta samfylkingar- flokkanna haldi svo stórum hluta flokksmanna algerlega niðri og hlusti aldrei á þá en sí- felld krafa sé gerð til forystu annarra um að taka ævinlega fullt tillit til sjónarmiða fjög- urra prósentanna en hunsa um leið vilja og samþykktir allra hinna? Stuðningur við ESB- aðild er nánast enginn innan stjórnarflokkanna} Fyrirferðarmikil fjögur prósent Í síðasta mánuðivoru liðin 110 ár frá fæðingu George Kennans, föður ein- angrunarstefn- unnar svonefndu, sem lagði grunninn að sigri vesturveldanna í kalda stríðinu. Í stuttu máli gekk sú stefna út á það að einangra Sovétríkin og fylgiríki þeirra þar til þau myndu riða til falls undan þeim veikleikum sem hrjá komm- únismann. En hvað myndi Kennan segja um „nýja kalda stríðið“ sem nú stefnir í á milli Rússa og hins vestræna heims? Hætta er á því að honum myndi þykja aðstaða Evrópuþjóðanna gagnvart Rússum að vissu leyti lakari en hún var í kjölfar síðari heims- styrjaldar, þegar Rauði herinn sat grár fyrir járnum um hálfa álfuna. Því að það sem hefur kannski helst breyst í heim- inum frá dögum kalda stríðsins er hnattvæðingin með tilheyr- andi innreið markaðsbúskapar og viðskipta til Rússlands. Í krafti hennar er stór hluti Evr- ópu, einkum Mið- og Austur- Evrópa, orðin háð viðskiptum austur á bóginn, einkum á orku- gjöfum. Það sést vel af viðbrögðum þjóða eins og Þýskalands hversu mikið þau eiga undir að Rúss- ar skrúfi ekki fyrir orkuna vestur á bóginn, en þriðjungur allrar orku sem neytt er í Þýskalandi kemur að austan. Aðgerðir gegn Rússum gætu því jafnvel hitt Þjóðverja verr fyrir en Pútín. Á móti kem- ur það að Rússar eru líka háðir vestrænu fjármagni, og því er það hættulegur leikur fyrir Pút- ín að reyna að hafa of mikil áhrif á sölu gassins vestur á bóginn. Þrátt fyrir þetta hefur það sýnt sig í Úkraínu, Georgíu og víðar að Pútín skirrist ekki við að beita hinu nýfengna afli Rússlands til þess að fá það sem hann vill. Vilji ríki Evrópu reyna að koma böndum á rúss- neska björninn, verða þau því að leita leiða til þess að verða minna háð honum í orkumálum en nú er í stað þess að stíga jafnvel skref í öfuga átt eins og dæmi eru um. Til að styðja við þetta, að minnsta kosti til skamms tíma, yrðu Bandaríkin að stíga inn í með gasbirgðir sínar. En eru þau tilbúin að láta gjörðir fylgja orðum? Evrópuríkin þurfa að leita leiða til að efla orkubúskap sinn} Virkar einangrun á ný? Þ annig að það er ekki okkar að tjá okkur um það hvað okkur finnst um afstöðu viðkomandi ríkis. Vilji það ganga í Evrópusambandið þá sendir það umsókn og heldur áfram viðræðuferlinu. Ef það vill ekki ganga í sambandið þá annaðhvort hefur ríkið ekki við- ræður eða stöðvar þær.“ Þannig komst Peter Stano, talsmaður stækkunarstjóra Evrópusambandsins, að orði á blaðamannafundi í Brussel í lok ágúst síðast- liðins, spurður um stöðuna á umsókn Íslands um inngöngu í sambandið. Þessi ummæli eru í fullu samræmi við annað sem komið hefur frá Evrópusambandinu í þessum efnum allt frá því að umsóknin var send til Brussel sumarið 2009 af ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Og fyrir þann tíma. Forsenda slíkrar umsóknar er vilji til þess að ganga í sambandið. Bæði pólitískur og almennur. Þegar umsóknin var send sumarið 2009 var þessi for- senda ekki uppfyllt. Ekki var raunverulegur meirihluti fyrir því á Alþingi að ganga í Evrópusambandið og ekki á meðal þjóðarinnar. Enda kom það ófáum innan sam- bandsins, ekki sízt stjórnmálamönnum, mjög á óvart þegar þeir smám saman komust að því á hversu veikum grunni umsóknin væri byggð. Evrópusambandið lýsti fyrir vikið ítrekað yfir áhyggjum sínum á síðasta kjör- tímabili af því að þáverandi ríkisstjórn væri klofin í mál- inu og pólitískur stuðningur við umsóknina af skornum skammti. Með öðrum orðum að nauðsynlegar forsendur fyrir umsókninni væru ekki til staðar. En það er aldrei of seint að leiðrétta mistök og það hyggst núverandi ríkisstjórn gera. Umsóknin sem aldrei átti að senda verður dregin til baka enda ljóst að hvorki ríkis- stjórnin, meirihluti þingsins né meirihluti þjóðarinnar vill ganga í Evrópusambandið. Þar með verður Ísland ekki lengur formlega umsóknarríki. Að öðrum kosti yrði málið áfram á dagskrá og áframhaldandi deilur um það fyrir vikið miklum mun líklegri. Þá yrði örugglega um kosningamál að ræða í næstu þingkosningum. Það er skiljanlegt að Samfylkingin vilji alls ekki að umsóknin verði dregin til baka enda vandséð að flokkurinn hafi mörg önnur stefnumál. Í öllu falli virðist um að ræða einhvers konar allsherjarlausn hans á öllu. Björt framtíð gæti hins vegar grætt á því á kostnað Samfylkingarinnar enda hefur flokkurinn markað sér mun breiðari málefnalega stöðu. Hvað VG varðar er einnig skiljanlegt að flokkurinn vilji ekki draga umsóknina til baka. Áframhaldandi tilvist hennar eykur möguleikana á vinstristjórn. Mun erfiðara yrði fyrir VG að samþykkja að standa að nýrri umsókn um inngöngu í Evrópusambandið eftir allt sem á undan er gengið en einungis að dusta rykið af umsókn sem þeg- ar væri formlega fyrir hendi og flokkurinn hefði hvort sem er staðið að í byrjun. hjortur@mbl.is Hjörtur J. Guðmundsson Pistill Ferð án fyrirheits STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon BAKSVIÐ Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Aldarfjórðungur er nú lið-inn frá því að breski tölv-unarfræðingurinn TimBerners-Lee, sem þá vann við evrópsku rannsóknarstöð- ina í öreindafræði, CERN, í Sviss, setti fyrst fram tillögu, 12. mars ár- ið 1989, að því sem síðar varð að veraldarvefnum. Hann átti eftir að valda byltingu í upplýsingatækni. Ári síðar, í nóvember árið 1990, setti Berners-Lee með aðstoð verkfræðingsins Roberts Cailliau fram nánari útfærslu á hugmynd- inni. Hún gekk út á að nota sér- stakan vafra til að skoða svonefnd stiklutextaskjöl (e. hypertext docu- ments) sem send yrðu á milli vef- þjóns og notanda. Það yrði gert með því að slá inn veffang (e. URL) sem lýsti staðsetningu skjalsins. Verkefnið fékk heitið veraldarvef- urinn (e. WorldWideWeb) Fyrir lok þess árs hafði Ber- ners-Lee búið til fyrsta vefvafrann, notað tölvu sem vefþjón í fyrsta skipti og skrifað fyrstu vefsíðuna. Til að byrja með voru ekki margar vefsíður til, aðeins um 130 talsins árið 1993 en fljótlega náði þetta nýja form upplýsingamiðlunar útbreiðslu sem Berners-Lee hefði ekki getað órað fyrir. Árið 1996 var þeim búið að fjölga í 230.000 og fjór- um árum síðar mátti finna einn milljarð síðna í gegnum Google. Áætlað er að í fyrra hafi um 2,7 milljarðar manna notað internetið. Vinalegra viðmót á netinu Oft eru hugtökin veraldarvefur og internet notuð í sömu merkingu. Internetið er hins vegar í raun inn- viðirnir, fjöldi tölvuneta sem tengj- ast sín á milli en þegar talað er um veraldarvefinn er átt við vefsíður og tengingarnar á milli þeirra. Hann er aðferð til þess að skoða efni sem er geymt á netinu. „Ég man vel eftir þessum tíma þegar veraldarvefurinn kom. Int- ernetið var komið og við notuðum textaviðmót til að flytja skrár og upplýsingar sem var mjög óþjált. Maður þurfti að vera hálfgerður tækninörd til að geta notað þetta,“ segir Yngvi Björnsson, starfandi deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Veraldarvefurinn var fyrst hugsaður fyrir vísindaheiminn en stóra byltingin segir Yngvi hafa orðið þegar hann náði fótfestu hjá almenningi vegna þess hve vina- legra viðmót hans var en það sem áður hafði þekkst á internetinu. Í kjölfarið fóru fyrirtæki að nota hann meira og notkun hans varð al- menn. „Í raun gátu nú allir haft að- gang að öllu sem var á netinu. Þetta varð það einfalt að hver sem er gat farið að setja inn upplýs- ingar á vefinn. Internetið varð eign almennings. Veraldarvefurinn gerði það svo þægilegt í notkun að það varð aðgengilegt öllum,“ segir Yngvi. Græddi ekki á vefnum Hugmyndafræði Berners-Lee var enda að gera upplýsingar sem aðgengilegastar fyrir alla. Hann sóttist aldrei eftir að fá einkaleyfi fyrir uppfinningu sinni og því hefur hann aldrei grætt fúlgur fjár á henni eins og önnur stór nöfn í tölvuheiminum eins og Bill Gates eða Steve Jobs. „Honum er umhugað um að halda þessu opnu. Það er í raun barátta sem stendur ennþá í dag. Það er ennþá ógn af því að ríki og stórfyrirtæki vilja stýra aðgengi að netinu,“ segir Yngvi. Opnaði fyrir aðgengi að upplýsingum Morgunblaðið/Kristinn Fyrsta vefsíðan Myndin er af fyrstu vefsíðunni sem er frekar frumstæð eins og sjá má. Efni hennar er um veraldarvefsverkefnið sjálft. Tim Berners-Lee er enn umhug- að um frelsi á netinu og ber ugg í brjósti vegna njósna stjórn- valda um þegna sína þar. Hann lét meðal annars hafa eftir sér við breska ríkisútvarpið BBC í tilefni af afmæli veraldarvefsins að ef til vill væri ástæða til að útbúa réttindaskrá til að verja netnotendur. „Ætlum við að halda áfram veginn og leyfa ríkisstjórnum að stjórna og hafa sífellt meira eft- irlit? Eða ætlum við að koma okkur upp grunngildum? Ætlum við að setja upp eitthvað í lík- ingu við Magna Carta fyrir veraldarvefinn, nú þegar hann er svona mikilvægur, svona stór hluti af lífi okkar, að hann jafnast á við mannrétt- indi?“ sagði Berners- Lee. Réttindaskrá fyrir vefinn BERNERS-LEE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.