Morgunblaðið - 14.03.2014, Page 39

Morgunblaðið - 14.03.2014, Page 39
við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningar um traustan og góðan samstarfsmann munu lifa áfram. Helga Eymundsdóttir, Þorsteinn Hjaltason, Baldvin Valdemarsson. Kveðja frá Höldi Kær vinur og samstarfsfélagi er fallinn frá í blóma lífsins og far- inn til nýrra starfa í öðrum heimi. Það veit ég og skal vitna fyrir hverjum sem er að betri vin, fé- laga og samstarfsmann er vart hægt að hugsa sér. Teitur steig sín fyrstu skref hjá Höldi árið 1983, þá rúmlega 13 ára gamall, sem bensíntittur eins og það var kallað. Síðan tóku við önnur störf bæði á skrifstofu og úti á örkinni, og alltaf jókst ábyrgðin hjá vax- andi fyrirtæki. Um aldamótin tók Teitur við sem rekstrarstjóri bíla- þjónustusviðsins okkar, en þegar hann greindist með krabbamein fyrir rétt um sjö árum tókum við saman þá ákvörðun að nú væri rétt að hægja aðeins á og hann tók við starfi mannauðsstjóra fyr- irtækisins, starf sem átti að vera ívið léttara en í sívaxandi fyrir- tæki hlóð alltaf meiru á hann. Ekki kvartaði Teitur undan því heldur leysti störf sín af alúð og lagni svo aðdáunavert var. Ég leitaði mjög oft til Teits til að ræða hin ýmsu mál sem í raun komu starfi hans ekki beint við, það var bara svo gott að geta rætt málin við Teit sem þekkti fyrir- tækið betur en lófann á sér. Sam- starf okkar hefur varað í um 28 ár og löngum verið afar náið. Ég veit hreinlega ekki hvernig ég hefði komist í gegnum marga hluti án samráðs við Teit. Það hlýtur að teljast einstakt að aldrei nokkurn tímann greindi okkur á um hlut- ina. Við gátum alltaf rætt okkur saman að bestu lausninni, byrj- uðum kannski hvor á sínum end- anum, eða ekki, og enduðum á sama punkti og báðir alltaf sáttir. Hetjulegustu baráttu sem ég hef kynnst er lokið og í raun gafst Teitur aldrei upp, það orð var ekki til í orðabókinni, um það vor- um við sammála. Við töluðum oft um að þetta væri eins og að ganga yfir Vaðlaheiðina, það kemur allt- af ný brekka gamli, nýtt verkefni sem þarf að sigra, og Teiti tókst það alltaf, þar til nú að lengra varð ekki komist. Við sem eftir sitjum erum tóm að innan, skilj- um ekki af hverju svona góður maður eins og Teitur er tekinn frá eiginkonu sinni og þremur börnum, ástvinum og samstarfs- mönnum sem allir sakna hans sárt. Þau eru mörg tárin sem hafa fallið undanfarna daga, bara fal- legt lag fær mann til að hugsa til Teits og tárast. Hann var svo yndisleg manneskja, og þegar ég velti því fyrir mér, þá held ég svei mér að ég hafi aldrei séð þennan góða vin minn reiðast, eins ótrú- legt og það er á svo löngum tíma. Það verður erfitt að vera án Teits, og stórt skarð höggvið í góðan hóp, en ég veit að hann fylgist áfram með okkur og við munum reyna að breyta rétt og halda áfram að byggja upp gott fyrir- tæki með sama anda og við höfum gert hingað til og með þeim hætti heiðra minningu Teits sem best við getum. Fyrir hönd Hölds og samstarfsmanna Teits þakka ég fyrir öll árin sem við fengum með honum sem samstarfsfélaga og vini. Við sendum Ruth, Andra, Al- mari og Thelmu, foreldrum, systkinum og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, megi Guð styrkja ykkur í sorginni. Hvíldu í friði kæri vinur. Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds. Komið er að kveðjustund þrátt fyrir þann ótrúlega baráttuvilja sem Teitur hefur sýnt. Aldrei á minni lífsleið hef ég áður kynnst öðrum eins viljastyrk og æðru- leysi og hjá honum þessi ár frá því hann greindist með krabbamein. Það virtist vera sama hvað kom upp á í veikindum hans, alltaf var hann jafn ótrúlega hress og já- kvæður. Við kvörtum yfir smá- vandamálum sem upp koma en mikið höfum við lært af honum. Hann var öllum frábær fyrir- mynd um það hvernig taka skal slíkum áföllum. Þótt við getum einungis vonað að sá lærdómur þurfi aldrei að nýtast okkur er hann dýrmætur og fyrir það er- um við þakklát. Þetta hafa verið erfiðir tímar hjá Teiti og fjölskyldu hans, þá sérstaklega síðastliðnir þrír mán- uðir. Þrátt fyrir það stappaði hann stálinu í okkur hin. Sagði hann til dæmis við mig: „Það er ástand á kallinum, en þetta kem- ur allt.“ Hann var sannanlega góð fyr- irmynd, með mikla kímnigáfu og mikið baráttuþrek. Vildi enga vorkunn og var bjartsýnn til hinstu stundar. Teitur vann hjá Höldi á Akur- eyri með skóla sem ungur maður og síðan í fullu starfi eftir að skólagöngu lauk þar til hann lést að kveldi 1. mars, aðeins 44 ára gamall. Við samstarfsmenn hans og vinir hjá fyrirtækinu í Reykja- vík vorum lánsamir að kynnast vel þessum duglega dreng og frá- bæra samstarfsmanni þrátt fyrir fjarlægðina á milli okkar. Hann var nákvæmur og pottþéttur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Þótt fjölskyldan hafi ver- ið honum efst í huga þá var vinn- an, vinnufélagar og vinir hans honum ofarlega í huga því varla leið sá dagur að ekki væri hann í sambandi, jafnvel á meðan erfið- um meðferðum stóð. Það eru mik- il forréttindi að hafa fengið að vinna við hlið þessa góða félaga allan þennan tíma. Nú er margs að minnast og í sorginni rifjast upp þær góðu stundir sem við áttum með Teiti í vinnu, vinnuferðum, árshátíðum, á golfvellinum og fleira sem var baukað. Við sem vorum svo heppnir að fá að vera með honum í golfferð- unum til Flórída þar sem við átt- um ómetanlega daga munum allt- af minnast þess tíma með miklu þakklæti. Áttum við þar frábærar samverustundir. Á golfvellinum, við sundlaugina, í blaki eða bara við eldamennskuna og uppvaskið. Allt er þetta okkur ómetanlegt. Þegar ljóst var að hann kæmist ekki með okkur í Flórídaferðina síðastliðinn vetur vegna veikinda var ekki um annað að ræða af hans hálfu en að við færum en þó með því skilyrði að við sendum honum myndir og sögur á hverj- um degi. Lýsir það honum og hans styrk. Við vottum Ruth, börnunum, foreldrum og ástvinum Teits okk- ar dýpstu samúð. Megi guð vera með ykkur og veita ykkur styrk við fráfall þessa góða drengs. F.h. samstarfsfólks í Reykja- vík, Bergþór Karlsson. Ég á fá orð til þess að lýsa því hversu ósanngjarnt það er, að þú sért farinn elsku Teitur. Við þekktumst í um 20 ár og á þeim tíma gerðist svo margt yndislegt sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu. Á þessum árum fann ég svo sterkt fyrir hjartahlýju þinni og vináttu og hversu vel og fallega þú barst virðingu fyrir fjölskyldu þinni, vinum og bara lífinu öllu. Í veikindum þínum varstu alltaf svo jákvæður og umfram allt hetja. Ég mun sakna þín og vin- áttu þinnar en hugga mig við það að geta yljað mér við yndislegar minningar. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ég bið góðan Guð að styrkja Ruth, Andra Leó, Almar, Telmu Rut og alla ástvini í þessari miklu sorg. Guð blessi ykkur. Eydís Einarsdóttir. Elsku yndislegi frændi minn, hér sit ég og skrifa og tárin streyma. Það er svo rosalega sárt að kveðja þig elsku vinur, sér- staklega þar sem ég er engan veginn tilbúin að sætta mig við það að þú sért farinn frá okkur. Þú sem hefur verið partur af lífi mínu frá því ég fæddist og ég hef alltaf litið upp til þín og ávallt litið á þig sem fyrirmynd og sem stóra bróður minn þó svo þú værir móð- urbróðir minn. Það er virkilega erfitt að trúa á æðri mátt þegar hann getur verið svona ósanngjarn. Daginn sem þú kvaddir okkur sagði Ruth að þeir færu ungir sem guðirnir elska og að þú værir búinn að gera svo margt gott á þessum tíma sem þú varst hjá okkur. Ég reyni að hugsa um þessi orð til að berjast á móti reiðinni þar sem reiðin er jú engum holl og ég veit að þú værir ekki sáttur við frænku þína ef hún léti reiðina vinna. Sjálfur horfðir þú alltaf á lífið í björtu ljósi og naust þess til hins ýtrasta að vera til. Vandamál voru aldrei hindranir heldur voru þau verkefni til að takast á við og það gerðir þú ávallt áreynslulaust og með bros á vör. Ég gat leitað til þín hvenær sem var og með hvað sem var og alltaf var svarið það sama, „jájá- jájá, ekkert mál Brynja mín, við reddum því bara“. Ég mun aldrei geta endurgoldið allt sem þú hef- ur gert fyrir mig og krakkana en ég mun gera mitt besta til að vera alltaf til staðar fyrir Ruth og krakkana þína líkt og þú varst fyrir mig. Ég er endalaust þakklát fyrir allar góðu stundirnar sem ég fékk með þér, alla „grautana“ á laug- ardögum, afmælin, veislurnar, jólin, áramótin og Benidorm. það var alveg sama hvað við vorum að gera, það var alltaf stutt í brosið og hláturinn enda varstu með ein- stakan húmor og mikill stríðnis- púki. Oftar en ekki varð ég fyrir barðinu á stríðninni og það hlakk- aði í þér þegar þú sást færi á að skjóta á litlu frænku en alltaf þó í góðu gamni. Þú varst svo duglegur og til fyrirmyndar við allt sem þú tókst þér fyrir hendur, í sambandi ykk- ar Ruthar, í öllu sem tengdist krökkunum, við allt sem tengdist fallega heimilinu ykkar, við vinnu og í samskiptum við alla í fjöl- skyldunni og vini þína. Þú skip- aðir stóran sess í lífi svo margra. Nú kveð ég þig elsku Teitur minn, þó ekki í hinsta sinn því ég trúi því að við munum hittast aft- ur. Söknuðurinn er ólýsanlegur og þær verða margar stundirnar sem verða tómlegar og skrítnar án þín en minningarnar um ein- stakan mann hleypa hlýjunni inn í hjartað þar til við sjáumst næst. Þangað til, þá veit ég að þú munt vaka yfir okkur. Elsku Ruth, Andri, Almar, Telma, amma, afi, mamma og Gígja, þið eigið alla mína samúð. Megi Guð gefa ykkur styrk í gegnum þessa erfiðu tíma. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlögin þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst samt aftur á ný Megi algóður guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Brynja Jóhannsdóttir Möller. MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2014 ✝ Oddný Sigríð-ur Nicolaidótt- ir fæddist í Reykja- vík hinn 2. desember 1930. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 5. mars 2014. Foreldrar Odd- nýjar Sigríðar voru Sigríður Ólafs- dóttir húsmóðir, f. 3.1. 1898, d. 15.6. 1997, og Ni- colai Þorsteinsson bifvélavirki, f. 30.6. 1896, d. 2.8. 1965. Önnur börn þeirra: Nicolai, f. 20.7. 1920, d. 25.4. 1997, Edith Elsa María, f. 24.3. 1923, Þorsteinn, f. 6.3. 1927, d. 3.9. 1984, Ólafur, f. 1.1. 1932, d. 5.3. 1976, og Guðni Þór, f. 12.11. 1935, d. 29.7. 2009. f. 1959, maki Jóhanna Vélaug Gísladóttir, f. 1962, þeirra börn Hanna Lilja, f. 1990, og Matt- hías, f. 1993. 5) Guðlaugur, f. 1960, maki Guðrún Axelsdóttir, f. 1962, þeirra börn Jónas, f. 1981, Þórir. f. 1987, Fannar, f. 1995. og Sindri, f. 2000. 6) Sig- urður, f. 1966, maki Bjarnþóra María Pálsdóttir, f. 1971. Börn Sigurðar: Ísak Aron, f. 1996, Sigríður Agnes, f. 1997, og Oddný Soffía, f. 2008. Börn Bjarnþóru: Páll Axel, f. 1991, og Ásdís María, f. 1998. Oddný Sigríður bjó lengst af í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Á yngri árum fékkst hún við ýmis störf og einnig vann hún við bókband hjá Prent- smiðjunni Eddu þar til hún gift- ist eftirlifandi eiginmanni. Hún starfaði svo stærstan hluta starfsævinnar í fyrirtæki þeirra hjóna ásamt því að sjá um heim- ilishald og uppeldi barnanna. Útför Oddnýjar Sigríðar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 14. mars 2014, og hefst at- höfnin kl. 15. Oddný Sigríður giftist Jónasi Guð- laugssyni frá Eyr- arbakka 19. apríl 1951. Foreldrar Jónasar voru Ingi- björg Jónasdóttir húsmóðir, f. 22.3. 1905, d. 4.11. 1984, og Guðlaugur Páls- son kaupmaður, f. 20.2. 1896, d. 16.12. 1993. Börn Odd- nýjar og Jónasar eru: 1) Ingi- björg, f. 1950, maki Gísli Ólafs- son, f. 1946, þeirra börn Lilja, f. 1971, Aðalheiður, f. 1974, og Ólafur, f. 1981. 2) Garðar, f. 1951, d. 1955. 3) Nicolai, f. 1954, maki Ásta Bjarney Péturs- dóttir, f. 1955, þeirra börn Dagný Rós, f. 1975, og Bjarni Garðar, f 1980. 4) Jónas Garðar, Vetrarbarnið móðir mín, sem fæddist í Reykjavík 2. desember 1930, átti góð æsku- og upp- vaxtarár í sex systkina hópi. Sem barn og unglingur var hún hlédræg og feimin en svo geisl- andi að fólk laðaðist að henni. Ung giftist hún pabba og saman gengu þau lífsins veg í tæp 65 ár. Börnunum sínum öllum sinnti hún af ást og umhyggju, saum- aði, prjónaði, eldaði og bakaði og alltaf var næringarríkur og góður matur á borðum, við allra hæfi. Þegar við börnin uxum úr grasi naut pabbi aðstoðar henn- ar á verkstæðinu og þar gekk hún í verkin af sama krafti og áhuga og öllu öðru sem hún tók sér fyrir hendur. Heimilið bar vott um ein- staka smekkvísi þeirra hjóna og ef mamma væri ung kona í dag hefði hún örugglega uppfyllt öll skilyrði þess að bera titilinn of- urkona. Hún var mjög skipu- lögð og vinnusöm, hafði enda- lausa orku og sinnti skylduverkum jafnt sem áhuga- málum af alúð og natni. Hún var falleg, góð og með einstaka kímnigáfu. Hún var hlý og gefandi og hvers manns hug- ljúfi og fann alltaf leiðir til að njóta lífsins. Mamma átti góðar vinkonur á öllum aldri, hún átti samleið með öllum kynslóðum og hér er við hæfi að minnast á æskuvinkonurnar, Fimmurnar og Curves-leikfimisystur hennar þar sem hún átti sinn sess í sóf- anum, alls staðar var hún miðj- an, hafði frumkvæði, var fyndin og skemmtileg og ræktaði vin- áttuna af alúð og kærleika. Hún var líka tilbúin að til- einka sér nýjungar, fór á dans- námskeið, í enskuskóla, lærði á tölvur, sinnti líkamsræktinni af ótrúlegri elju, og gleðin og húm- orinn voru alltaf til staðar. Hún elskaði að ferðast og ófáar eru ferðirnar um víða veröld sem henni auðnaðist að njóta. Að kveðja hana skilur eftir hafsjó af minningum sem birt- ast hver af annarri og ylja og gleðja. Hún var kona sem gaf af sér hvar sem hún kom. Það er erfitt að finna nægilega falleg og sterk orð til að lýsa móður minni og það var lærdómsríkt að fylgjast með bjartsýninni, baráttugleðinni og æðruleysinu þau tæpu þrjú ár sem hún tókst á við þann gest sem settist að í líkama hennar og neitaði með öllu að víkja. Hún sagði gjarn- an: „Ég er búin að eiga góða ævi, heil 83 ár. Ég get nú ald- eilis þakkað fyrir það.“ Ég get seint fullþakkað að hafa átt mömmu fyrir bestu vin- konu og mína sterkustu fyrir- mynd og ég minnist með gleði allra skemmtilegu samveru- stundanna þar sem við hlógum þar til tárin streymdu niður kinnarnar. Nú þegar leiðir skil- ur eru minningarnar dýrmæt- asti fjársjóðurinn. Missir pabba er þó mestur og samúð okkar hjóna á hann alla. Ingibjörg og Gísli. Þá er hún Addý amma lögð af stað í lokaferðalagið sitt. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga ömmu okkar að vini og félaga langt fram á fullorðinsár. Amma var nefni- lega einn af okkar bestu vinum. Hún tók virkan þátt í lífi okkar alla tíð, mætti manna fyrst í mannfögnuði og fór oftar en ekki með þeim síðustu, enda ótrúlegur gleðigjafi og hrókur alls fagnaðar. Hún elskaði að skemmta sér, elskaði lífið og allt sem því fylgdi og naut þess til hins ýtr- asta að vera til. Hún var amma fram í fingurgóma, jafnt gagn- vart okkur og börnunum okkar. Við minnumst ömmu ætíð með bros á vör enda var hún alltaf að gantast. Það leið ekki það heimboð að stríðnisbrosið læddist ekki yfir andlit ömmu. Það skemmtilegasta við grínið var að oftar en ekki var erfitt að meta hvort um háalvarlegan hlut eða góðlátlegan hrekk var að ræða, svo flink var hún í stríðninni. Henni fylgdi alltaf einstök gleði og með nærver- unni einni saman gerði hún dag- ana alltaf skemmtilegri. Amma var rómaður fagurkeri í einu og öllu, alltaf stórglæsi- lega til fara, sama hvað stóð til. Heimilið bar þess einnig merki að þarna byggju mikil smekk- hjón. Ekki var hægt að sjá á heimilinu að þau hjón væru á níræðisaldri, enda einstaklega módern í einu og öllu og nutu þess að lifa í núinu. Allir sem sóttu þau heim kynntust einstakri hlýju, gest- risni og veitingum af bestu gerð. Amma var þekkt fyrir ein- staklega ljúffenga dúnmjúka púðursykurstertu sem ætíð var bökuð ef eitthvað stóð til. Hún hvatti alla til að æfa sig í „púðr- arabakstrinum“ og eftir standa börn og barnabörn sem eru orð- in fær um að baka dýrindis dún- mjúka púðursykurstertu í anda ömmu Addýjar. Tertan mun skreyta ófá veisluborðin í fram- tíðinni til minningar um frá- bæra konu. Við sáum það hvað best síð- ustu árin hversu mikil Pol- lýanna amma var. Hún sá alltaf jákvæðu hliðarnar, þrátt fyrir veikindi. Alltaf var stutt í brosið og grínið aldrei langt undan, alltaf mátti gera gott úr hlut- unum. Amma var ævarandi þakklát fyrir æviárin sín og rifjaði oft upp hversu vel hún náði að njóta lífsins, ferðast, skemmta sér og njóta félagsskapar vina og ættingja. Eftir stendur minningin um alveg einstaka ömmu sem mun vera okkur systkinunum fyrirmynd út lífið. Elsku afi okkar, innilegar samúðarkveðjur frá okkur. Lilja, Aðalheiður, Óli og fjölskyldur. Í dag kveðjum við okkar kæru vinkonu, hana Addý. Vin- skapur okkar er búinn að vara frá æsku- og unglingsárum. Margs er að minnast frá þeim tíma. Farið var í útilegur og ferða- lög eins og ungt fólk gerir. Svo kom að því að allar stofnuðum við heimili og fjölskyldur og minnkaði sambandið þá. Fyrir rúmum 25 árum var vinskap- urinn endurnýjaður og síðan höfum við vinkonurnar hist reglulega, tvisvar á ári, heima hjá hver annarri og farið seinni- part sumars út að borða á góð- um veitingastöðum. Þetta hafa verið yndislegar samverustund- ir hjá okkur gömlu vinkonunum og höfum við farið í sumarbú- staðarferð og þar hefur verið hlegið dátt og rifjaðar upp gamlar minningar frá æskuár- unum. Nú er hún Addý farin og eftir sitjum við með minningar um þessa yndislegu vinkonu og þökkum fyrir að hafa átt hana sem vinkonu öll þessi ár. Bless- uð sé minning Addýjar. Innilegar samúðarkveðjur til Jónasar og fjölskyldu. Ágústa, Laufey, Nanna og Valgerður. Blessaðir séu þeir sem gefa sér tíma til að strjúka vanga og þerra tár af kinn bara með því að faðma og vera. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þessi orð skáldsins lýsa tengdamóður minni einkar vel að mínu mati. Hún var einfald- lega góð kona að upplagi. Leiðir okkar lágu saman fyrir rúmum þrjátíu árum er ég var að stíga mín fyrstu skref inn í fullorðinsárin. Vegferð okkar saman hefur verið ljúf og margs er að minnast. Um hugann svífa ótal minningabrot. Mikið óskap- lega á ég eftir að sakna samver- unnar yfir latte-bollanum og Baileys-glasinu. Með sorg í hjarta en þakk- læti fyrir gott líf sem við áttum saman kveð ég tengdamóður mína og trúnaðarvin. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín tengdadóttir, Guðrún. Oddný S. Nicolaidóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.