Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 2
Í fókus
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014
SVAR Mér finnst þau vera aðeins of há. Þau
geta vel lifað með minna.
Hreiðar Jónsson, 79 ára.
SVAR Eru þau ekki úr takti við það sem er
að gerast í þjóðfélaginu, ég spyr?
Bjarni Jóhannesson, 46 ára.
SVAR Allt of há.
Katrín Þórarinsdóttir, 57 ára.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SVAR Mér finnst að það eigi ekki að vera
svoleiðis. Af hverju eiga þau að fá svona há
laun þegar aðrir lækka?
Ásgerður Felixdóttir, 42 ára.
Morgunblaðið/Þórður.
SPURNING VIKUNNAR HVAÐ FINNST ÞÉR UM LAUN BANKASTJÓRANNA?
Ljósmyndari
Morgunblaðsins
fangaði anda mót-
mælanna á Aust-
urvelli á dögunum í
myndum. 52
Í BLAÐINU
Heimild: Hagstofa Íslands
FJÖLDI UTAN TRÚFÉLAGA Á ÍSLANDI
6.941 utan
trúfélaga af 290.570
17.218 utan
trúfélaga af 325.671
2,4%
2004
5,3%
2014
Hvernig kom það til að þú ákvaðst að
syngja óperur? Það var nú reyndar ekki meðvituð
ákvörðun heldur bara gerjuðust hlutirnir þannig að ég
fór að syngja óperutónlist. Ég var alltaf mikið í tónlist
sem barn og unglingur, lærði á gítar í Tónlistarskól-
anum í Búðardal og svo þegar maður stálpaðist tóku
bílskúrsböndin við. Þegar ég var svo kominn undir tví-
tugt fékk ég meiri áhuga á klassískri tónlist og klass-
ískum söng þegar ég gekk til liðs við karlakór og svo
kirkjukór í framhaldinu. Mér datt þá í hug að taka
nokkra söngtíma og þá bara varð ekki aftur snúið.
Hvað stendur upp úr eftir dvöl þína í Hol-
landi? Ætli það standi ekki bara upp úr allt yndislega
fólkið sem ég hef kynnst þar, bæði kollegar og aðrir.
Það er mikið um að vera í klassískri tónlist í Hollandi og
margt fólk sem starfar við tónlist þar og það er alltaf
gaman að kynnast nýju fólki og takast á við ný og fjöl-
breytt verkefni. Svo stand jú upp úr líka allar jákvæðu
móttökurnar sem ég hef fengið bæði þar og annars staðar.
Áttu eitthvert uppáhaldshlutverk? Ég myndi
segja að mitt uppáhaldshlutverk sem ég hef sungið nú þegar
væri Kúdrjás í Kát’a Kabanová eftir Janácek. Þetta var fyrsta
hlutverkið sem ég söng í Maastricht þegar ég fékk fastráðningu
þar árið 2011 og svo söng ég það aftur í Brno í Tékklandi í nóv-
ember 2012 á Janácek-hátíðinni sem haldin er þar á hverju ári. Það
var magnað að standa á sviðinu í sama leikhúsi og verkið var frum-
flutt 90 árum áður og syngja þessa rullu. Annað hlutverk sem mig
dreymir um að syngja er Vladimir Lenski úr Evgeni Onegin eftir
Tchaikovsky. Það kemur vonandi að því fljótlega.
Varst þú í frjálsíþróttum? Aldrei verið í frjálsum íþróttum
nema bara sem barn og unglingur og keppti þá nokkrum sinnum á hér-
aðsmótum í Dölunum í gamla daga. Mig minnir að ég hafi einu sinni eða
tvisvar komist á verðlaunapall en það vildi mér til happs að við vorum
bara þrír í mínum árgangi.
Hvað gerirðu þegar þú ert ekki að syngja? Þegar ég er ekki
að syngja, þá er ég að slaka á einhvers staðar, lesa eða eyða tíma með dóttur
minni sem er tíu ára. Ég er reyndar líka með smáveiðidellu og ég reyni að
fara eins mikið og ég get þegar ég er á landinu á sumrin. Það jafnast ekkert
á við að standa úti í einhverri á eða vatni og kasta flugu … það slokknar ein-
hvern veginn á öllu nema bara þessari grunnhvöt – að reyna að finna fisk og
fá hann til að bíta á.
Morgunblaðið/Ómar
ELMAR GILBERTSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Með mikla
veiðidellu
Forsíðumyndina tók
Þórður Arnar
Þórðarson.
Tíu ár eru liðin frá því Facebook birtist á netinu.
Margt hefur breyst síðan þá en vinsældir samskipta-
miðilsins aukast ár frá ári. Þannig
er einn af hverjum 13 í heim-
inum skráður notandi en sé kaf-
að ofan í tölur síðunnar kemur
margt athyglisvert í ljós. 37
Innlit við Tjörnina Áslaug Heiða býr í björtu og fal-
legu húsi í miðbæ Reykjavíkur. Áslaug sem er með
heldur nútímalegan stíl segir mikilvægt að blanda antík-
munum sem hafa tilfinningalegt gildi inn á heimilið 28
Laddi hefur skemmt
íslenskum fjölskyldum í
áratugi. Heilu kyn-
slóðirnar kunna
textana af barna-
plötunum hans aftur
á bak og áfram. 17
Elmar Gilbertsson tenórsöngvari hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu
sína í hlutverki Daða í óperu Gunnars Þórðarsonar og Friðriks Erlingssonar,
Ragnheiði. Þetta er í fyrsta sinn sem hann syngur fyrir Íslensku óperuna.