Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Side 4
HRAUNBÆR 20 Á veggjum frá jarðhæð upp á fyrstu hæð blasa við blóðblettir sem íbúum hefur ekki tekist að þrífa. Félagsbústaðir eiga íbúðina Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni telja þeir að íbúðareigandi og leigutaki eigi að bera kostnað af því að skipt verði um teppi í stigaganginum. Búslóð mannsins var sett inn í geymslu á jarð- hæð. Ekki er hægt að loka dyrunum fyrir dóti. Félagsbústaðir hf. eiga og reka 2.208 leigu- íbúðir í Reykjavík og meðal annars íbúðina í Hraunbæ 20 sem skotmaðurinn leigði. Birgir Ottósson, forstöðumaður Félagsbústaða, segist vilja klára málið sem fyrst því þarna búi annað fólk og algjör óþarfi fyrir það fólk að vera stöðugt áminnt um hvað gerðist. „Komi eitthvað fyrir í okkar íbúðum þá spáum við ekkert í hver eigi að greiða. Við vöðum bara í málið, hreinsum til, græjum og gerum. Ef við eigum rétt á endurkröfu þá förum við í það seinna. Klárum bara málin. Í þessu máli máttum við koma og hreinsa aðeins til en ekkert eins og maður hefði ósk- að. Við höfum ekkert mátt koma síðan því það er enn litið á stigaganginn sem vettvang eftir því sem ég best veit.“ Birgir bætir því við að hann vilji einnig koma íbúðinni í leigu á ný því á meðan hún sé tóm hafi Félagsbústaðir eðlilega ekki tekjur af henni. „Við bíðum bara eftir að fá hana af- henta.“ 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014 A ð morgni annars desember var lögregla kölluð til vegna hávaða að íbúð í Hraunbæ í Árbæ. Þetta átti eftir að vera útkall sem lengi verð- ur í minnum haft. Lögreglan mætti þar skothríð og eftir rúmlega fjögurra klukku- tíma umsátur, þar sem lögreglumaður fékk meðal annars högl í hjálminn sinn og sérsveitarmaður skot í skjöldinn sinn, féll skotmaðurinn fyrir hendi sérsveitarinnar. Lögreglan var búin að skjóta töluverðu magni af gasi inn í íbúðina skömmu áður og var því ekki hægt að gera að sárum skotmannsins inni í íbúðinni. Var hann borinn helsærður niður í anddyrið þar sem sjúkraflutningamenn reyndu að bjarga lífi hans. Þremur mánuðum síðar er stigagang- urinn við Hraunbæ 20 enn litaður af at- burðunum. Íbúar eru orðnir langeygir eft- ir að stigagangurinn verði þrifinn enda blóðsletturnar enn vel sjáanlegar. „Það var allt annað en jólalegt að ganga upp blóðugar tröppurnar á hátíð ljóss og frið- ar,“ segir einn íbúa en enginn vildi koma í viðtal undir nafni. Skömmu eftir atburðina var teppið úr anddyri hússins rifið upp og hent í gám fyrir utan en það var alblóðugt. Anddyrið hefur verið flísalagt en blóð er enn á stigagangi. Íbúarnir segja að atvikið sé greypt í huga þeirra og þótt þeir skilji vel að rannsókn geti tekið sinn tíma vilja þeir fá einhver málalok og að ummerkin verði afmáð. Sjálfir hafa þeir reynt að fá svör í gegnum húsfélagið og sem íbúar en segj- ast hafa komið að lokuðum dyrum. Einn íbúanna segist hafa reynt að fá svör við því hver eigi að þrífa og hvort íbúar megi yfirhöfuð láta þrífa ganginn, en ekki tek- ist. Samskiptin við lögreglu og ríkissaksóknara Blaðamaður upplifði það sama og íbúar þegar leitað var svara við því hver bæri ábyrgð á því að koma stigaganginum í samt horf eftir aðgerðir lögreglu. Starfsmaður embættis Ríkissaksóknara vildi fyrst ekki kannast við að málið væri á könnu embættisins. Starfsmaður tækni- deildar lögreglunnar staðfesti að deildin hefði afhent ríkissaksóknara öll sín gögn fyrir tveimur vikum. Eftir ítrekaðar beiðnir fékkst þetta svar frá Sigríði Friðjónsdóttur ríkissaksókn- ara: „Ríkissaksóknari fer með rannsókn á aðgerðum lögreglu, sbr. 35. gr. lög- reglulaga nr. 90/1996, og er það mál enn til meðferðar við embættið. Lögreglustjór- inn á höfuðborgarsvæðinu sinnir öðrum verkefnum sem varða þá atburði sem þarna urðu.“ Samkvæmt upplýsingum frá lögregl- unni telja þeir að íbúðareigandi, sem eru Félagsbústaðir, og leigutaki eigi að bera kostnað af því að skipt verði um teppi í stigaganginum. Samkvæmt tveimur teppabúðum sem hafa unnið í Hraunbænum við nánast al- veg eins hús kostar 550-650 þúsund að skipta um teppi í öllum stigaganginum. Fjölskyldan fær engin svör Veraldlegar eigur hins látna voru færðar út úr íbúðinni og settar í geymslu í kjall- ara hússins sem er of lítil til að rúma allt þannig að eigurnar flæða fram á stiga- ganginn. Anna Jóna Jónasdóttir, systir mannsins sem féll í aðgerðunum, segir að enginn frá yfirvöldum hafi haft samband við fjölskylduna vegna dótsins í geymsl- unni. „Við vitum minna en ekki neitt. Þetta er mjög skrýtið mál. Okkur var sagt að það væri búið að setja dótið hans í gám. Það hefur enginn hringt í okkur eða ekki neitt. Okkur leiðast þessar fréttir um blóðið í stigaganginum því ég fæ þá á til- finninguna að hann hafi verið dreginn nið- ur stigaganginn.“ Einhver vinna er komin af stað við fjöl- býlishúsið; það er búið að skipta um rúður sem sneru út á bílaplan en það var gert í síðustu viku. Einnig er búið að panta nýja hurð og verður hún sett í íbúðina öðrum hvorum megin við helgina. Óvíst er hve- nær verður skipt um teppi á stigagang- inum. Íbúar í stigaganginum þar sem skotbardagi fór fram í desember fara helst ekki um stigaganginn nema á útiskóm, ekki einu sinni til að sækja póstinn á morgnana. Þeir hafa ekki fengið svör við því hver á að þrífa ummerkin og hver á að bera kostnað vegna þrifanna. Morgunblaðið/Þórður Ummerkin enn til staðar RÚMUM ÞREMUR MÁNUÐUM EFTIR SKOTBARDAGA LÖGREGLU Í ÁRBÆ ERU ENN UMMERKI EFTIR AÐGERÐ- IRNAR Í STIGAGANGINUM Í HRAUNBÆNUM ÞAR SEM HINN LÁTNI BJÓ. BLÓÐ ER Á VEGGJUM OG Í TEPPI. VERALDLEGAR EIGUR MANNSINS VORU SETTAR Í GEYMSLU SEM ER OPIN UPP Á GÁTT. ÍBÚAR HÚSSINS HAFA REYNT AÐ FÁ SVÖR VIÐ ÞVÍ HVER EIGI AÐ BERA KOSTNAÐ VEGNA ÞRIFA EN EKKI TEKIST. ÍBÚÐ MANNSINS HEFUR ENN EKKI VERIÐ AFHENT FÉLAGSBÚSTÖÐUM. Tæknideild lögreglunnar skilaði öllu sínu til ríkissaksóknara fyrir tveimur vikum. Morgunblaðið/Rósa Braga *Milli 15 og 20 lögreglumenn, auk sérsveitarmanna, tóku þátt íaðgerðinni. Tveir sérsveitarmenn slösuðust í aðgerðinni. Stefán Eiríksson á blaðamannafundi eftir atburðina 20. desember. ÞjóðmálBENEDIKT BÓAS HINRIKSSON benedikt@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.