Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014 Erlendir ferðamenn hafa sumir hverjir heimsótt Ísland í þeim eina tilgangi að stunda brimbretti. Morgunblaðið/Ómar Sveitarfélagið Ölfus hefur fengið erindi þess efnis að komið verði upp aðstöðu fyrir brim- brettaiðkendur við fjöruna í Skötubót við Þor- lákshöfn. Brimbrettaiðkun hefur tíðkast í mörg ár hér á landi og sumstaðar á landinu eru aðstæður eins og þær gerast bestar í heiminum. Brimað í Þorlákshöfn Kunningi minn sem er á öndverðum meiðivið mig í pólitík er á sama máli og ég í and-stöðu við Evrópusambandsaðild. En á gerólíkum forsendum. Hann er maður markaðar, ég félagslegra lausna. Honum finnst Evrópusam- bandið vera pólitískt og miðstýrt. Mér finnst það draga taum stórkapítalsins. Báðum finnst skorta á lýðræðið. Þessir þræðir liggja langt aftur. Evrópu- sambandið, eða Efnahagsbandalagið eins og það hét á fyrri stigum, var stofnað með Rómarsáttmál- anum árið 1957. Þremur árum síðar voru Fríversl- unarsamtök Evrópu, EFTA, stofnuð, að vissu marki sem mótvægi við Efnahagsbandalagið. Ís- land gekk í EFTA árið 1970. Það var eftir nokkar deilur. Andstæðingar töldu sýnt að íslensk fram- leiðsla myndi eiga undir högg að sækja. Það reyndist rétt, íslensk iðnaðarframleiðsla, skipa- smíðar, húsgagnaframleiðsla og fataiðnaður lögð- ust nánast af. Verslunarhagsmunir urðu ofan á. Eftir inngöngu í EFTA slíðruðu menn sverðin og löguðu sig að nýjum veruleika. Það tókst bæri- lega. En heimurinn stóð ekki kyrr. Nú vildu menn að Efnahagsbandalagið yrði ríki. Nafninu var breytt úr bandalagi í samband og tekið til við að miðstýra sífellt fleiri málaflokkum að hætti sam- bandsríkis. Og sambandið stækkaði. Að sama skapi kvarn- aðist úr EFTA. Þau ríki sem þar stóðu eftir tóku nú að færa sig nær ESB. Til varð hið Evrópska efnahagssvæði, EES, sem er eins konar brú á milli EFTA-ríkjanna og Evrópusambandsins. Þessi brú var í upphafi fyrst og fremst á viðskipta- forsendum. En jafnt og þétt jókst umferðarþung- inn um brúna og eðli umferðarinnar tók breyt- ingum. Mál til afgreiðslu á vettvangi EES gerðust æ pólitískari og meira krefjandi um kerfisbreyt- ingar í átt að ESB-stöðlum. Þetta er ekkert und- arlegt því frá því Rómarsáttmálinn leit dagsins ljós hefur stjórnskipan ESB tekið stöðugum breytingum og er á fullri ferð í átt til miðstýrðrar samræmingar. Áhrifanna gætir í EES. Áfanga á þessari vegferð þekkjum við, svo sem þá sem kenndir eru við Maastricht ogLissabon. Það eru heitin á pökkunum sem forvitnir geta kíkt í vilji þeir fræðast um hvað biði okkar í ESB! Er nú svo komið í Evrópusambandinu að nánast allt sem stríðir gegn markaðshyggju er bannað. Og ekki nóg með það, reynt er að greiða götu fjár- magnsins inn í sjálfa velferðarþjónustuna og að innviðum samfélagsins. Þetta minnir á gamla um- ræðu um alræði markaðarins. Nema nú er það al- vara. En viti menn, fyrrnefndum markaðsmanni hrýs einnig hugur við þessari þróun. Honum hugnast ekki að Brussel-fingur haldi um alla þræði í sam- félaginu. Þarna erum við á einu máli. Og erum við þó ekki byrjaðir að ræða um fisk. Söguþræðir *Áfanga á þessari vegferðþekkjum við, svo sem þásem kenndir eru við Maast- richt og Lissabon. Það eru heitin á pökkunum sem for- vitnir geta kíkt í vilji þeir fræð- ast um hvað biði okkar í ESB! ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Viðtal Monitor við Vigdísi Hauks- dóttur, þingmann Framsóknarflokks og formann fjár- laganefndar, vakti mikla athygli í vikunni. Eins og oft er tóku liðar Facebook við sér og höfðu margt um viðtalið að segja. Sérstaka eftirtekt vöktu ummæli Vigdísar um að hún hefði upplifað Alþingi þegar „virðing þess var sem mest“ og nefnir að því er virðist sem dæmi um þá virðingu að þá hafi starfsfólk Alþingis ekki ávarpað þingmenn. Katrín Júl- íusdóttir, þing- maður Samfylk- ingar, segir á Facebook: „Tek fram að ég hef ekki lesið allt viðtalið en mér finnst þetta skrýtin nálgun. Ég hef alltaf litið á þann hóp sem starfar innan veggja Alþingis sem eitt teymi. Þeir sem ekki eru þjóðkjörnir eru engu að síður samstarfsmenn mínir, jafn- ingjar. Ég vil ekki sjá stéttskipt Al- þingi því ég vil ekki sjá stéttskipt samfélag.“ Aðstoðarmaður fjármálaráð- herra, Svanhildur Hólm Vals- dóttir, hafði þetta til málanna að leggja: „Bara svo það sé sagt: Ég hef verið svo heppin að hafa fengið að vera viðloðandi Alþingi frá því árið 2009. Eitt það besta við þingið er starfsfólkið, sem stendur vaktina dag og nótt. Það er ekki bara ákaf- lega háttvíst, hæft og vandvirkt, heldur eru allir ljúfir og greiðviknir með eindæmum og taka allskonar skrýtnum fyrirspurnum, sérvisku og reglulegu röfli með stökustu ró (ég veit það, ég stend stundum fyr- ir öllu framangreindu). Og svo er svakalega gaman að tala við það.“ Elín Hirst, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sá ástæðu til að lýsa stuðningi við þessa yfirlýsinu Svanhildar og hafði þessu við að bæta: „Starfsfólk Alþings eru alger- ir snillingar!“ AF NETINU Ljósmyndavefsíðan Retronaut tístir á hverj- um klukkutíma gamalli mynd. Flestum mynd- um Retronaut er endurtíst nokkrum sinnum en í vikunni brá svo við að þeir tístu mynd úr vikublaðinu Fálkanum frá 1949 þar sem er mynd af manni sem líkist óneitanlega Hómer Simpson. Var færslan ein vinsælasta í sögu Retronaut og mikið rætt um hana á samfélags- miðlunum. Karakterinn sem um ræðir kallaðist Adamson og var eftir Svíann Oscar Jacobsson. Íslenskur Hómer Kynlegt útvarp Kynjahlutfall þáttastjórnenda á X-inu batnar með nýjum þætti sem stjórnað er af konum. Morgunblaðið/Heiddi Nýr útvarpsþáttur, Kynlegir kvistir, hóf göngu sína á X-inu 9.77 á miðvikudagskvöld. Þáttarstjórnendur eru þær Anna Tara Andr- ésdóttir og Katrín Ásmundsdóttir en sú fyrr- nefnda er í hljómsveitinni Hljómsveitt og til- heyrir rapphópnum Reykjavíkurdætrum. Í þáttunum er fjallað um jafnrétti og femín- isma enda segjast stjórnendur gallharðir femínistar. X-ið hefur oft verið gagnrýnt fyr- ir að vera karllæg stöð og ráða nær eingöngu karlmenn sem þáttastjórnendur. Vettvangur Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir mun syngja ís- lenska þjóðsönginn á opnunarathöfn Skandinav- íuhátíðar í bænum Thousand Oaks í Kaliforníu sem haldin verður 5.-6. apríl næstkomandi. Söng- konan greinir frá þessu á facebooksíðu sinni og segist stolt af þessari upphefð og hvetur þá sem eru í nágrenninu til að koma við á hátíðinni. Syngur þjóðsönginn Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.