Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 17
Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi eins og hann er
ávallt kallaður, hefur skemmt landanum í tugi ára.
Hann hefur gefið frá sér ógrynni af fjörugu efni fyr-
ir alla aldurshópa og kannast margir við að hafa alist
upp við grínið í Ladda og rödd hans í teiknimyndum.
Nýir þættir hefjast á RÚV um helgina, Grínistinn
– Laddi eins og hann leggur sig, þar sem varpað
verður ljósi á feril hans með hjálp vina og samferða-
manna. Gísli Einarsson er þáttastjórnandi. „Þjóðin
þekkir einhverja tugi persóna sem
Laddi hefur leikið í gegnum tíð-
ina. Markmiðið er að kynnast
Ladda sjálfum, sem einhverjir
hafa þó haldið fram að sé leik-
inn líka,“ segir Gísli og hlær.
„Ég vona að það takist í þess-
um þáttum.“ Um er að ræða
fjóra þætti þar sem farið er
yfir uppvaxtarár Ladda og
starfsferil hans. Laddi hefur
talað inn á gríðarlega margar
teiknimyndir og má þar nefna
hina vinsælu Strumpa, en
þar talaði hann fyrir allar persónur.
Auk þess hefur hann talað inn á teikni-
myndir á borð við Aladdín, Mulan og
fleiri. Laddi hefur leikið í þáttum,
kvikmyndum, leikhúsi og þar fram
eftir götunum. Þá hefur hann
samið mikið af sinni tónlist sjálf-
ur. „Það fer ekki á milli mála að
efnið sem kemur frá Ladda höfð-
ar til heilu kynslóðanna. Ég hef
sjálfur hlegið að Ladda frá því ég
fæddist.“
GRÍNISTI LANDS OG ÞJÓÐAR Á SKJÁNUM
Ótal hliðar Ladda
Morgunblaðið/RAX
HEILU KYNSLÓÐIRNAR HAFA HLEGIÐ AÐ
LADDA UM ÁRATUGASKEIÐ. GRÍNISTINN,
ÞÆTTIR SEM RÚV TILEINKAR STARFSFERLI
HANS, HEFUR GÖNGU SÍNA UM HELGINA.
9.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Hvar og hvenær? Gerðubergi, laugardag kl. 14-16.
Nánar: Spilavinir verða á bókasafni Gerðubergs og
kenna börnum og fjölskyldum þeirra skemmtileg spil
þar sem ýmis tungumál koma við sögu.
Spilum saman!* Þangið virðist alltaf vera grænna í sjávarheimkynnum annarra.Sebastian krabbi
Edda Hermannsdóttir fjölmiðlakona segir fjöl-
skylduna stunda íþróttir mikið og mexíkanskur
matur sé í uppáhaldi hjá öllum.
Þátturinn sem allir geta horft á? Vilji okkar for-
eldranna er nú ekki virtur oft þegar kemur að sjón-
varpsáhorfi þótt það komi einstaka sinnum fyrir.
Það eru ekki margir sjónvarpsþættir sem slá í gegn
hjá öllum en við vorum öll mjög þakklát fyrir Fólk-
ið í blokkinni sem við gátum öll hlegið að. Síðan á
Gói miklar þakkir skildar fyrir að gera úlfatímann á
sunnudögum mjög skemmtilegan.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Mexíkanskur mat-
ur rennur alltaf ljúflega niður hjá öllum fjölskyldu-
meðlimum. Þá er auðvelt fyrir alla að taka þátt í
undirbúningi og þá er líka leyfilegt að borða með
puttunum og subba sig út. Pasta er líka í miklu uppá-
haldi hjá krökkunum, sem er í raun stórmerkilegt því
ég hef aldrei kunnað að elda góða pastarétti.
Skemmtilegast að gera saman? Okkur finnst skemmtilegast að vera úti
saman og þá helst í sundi. Nú er sá yngri líka byrjaður á skíðum, sem er frá-
bær fjölskylduafþreying. Börnunum finnst þó heita súkkulaðið eftir skíðin
næstum því meira sport en skíðin sjálf. Dóttir mín sér síðan um að láta alla
spila reglulega, sem er mjög skemmtilegt.
Borðið þið morgunmat saman? Það er ekki mikil regla á því en um helgar
borðum við alltaf saman. Á virkum dögum borðum við oft saman en allra
þreyttustu fjölskyldumeðlimirnir vilja stundum sofa lengur yfir dimman
vetrartíma. Kvöldmatartíminn er hins vegar okkar tími þar sem farið er yfir
atburði dagsins.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við stundum öll
mikið af íþróttum. Það er því kærkomið að vera heima á náttbuxunum að
spila eða baka sem við gerum nú mikið af til að slappa af. Börnin sjá líka um
að framleiða teiknuð listaverk á hverjum degi.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Dugleg að baka saman
Edda Hermannsdóttir
Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is
SENDUM Í FYRIRTÆKI OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-21
Laddi bregður sér í gervi Æðstastrumps og
Magnúsar bónda á RÚV.