Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.3. 2014 Ú kraína er mikið land, fólkið vilj- ugt og moldin svört og gjöful. Sovétríkjunum tókst þó að koma sér þar upp hungursneyð og hefur þurft töluvert til. Úkra- ína átti þá ríka kröfu á samúð þá eins og stundum endranær, þótt ekki hafi verið að- staða til að veita þeim aðra umbun. En jafnvel smá- samúð var ofverk sumra á þeirri tíð. Bestu menn, jafnvel þeir sem dáðastir voru að verð- leikum fyrir snilligáfu sína, hæddust að hjali um hungursneyð, fjöldamorð og kúgun. Nú er talið eins víst og það getur orðið að 5 milljónir manna hafi fallið í hungursneyðinni 1932-1933. Vitnið Halldór Kiljan Laxness skrifaði árið eftir: „Ég ferðaðist um Ukraine þvert og endilángt í „húng- ursneyðinni“ 1932. Það var yndisleg húngursneyð. Hvar sem maður kom var allt í uppgángi.“ Mikil kvöl hlýtur það að hafa verið gáfuðum manni, sem var meir lesinn í bókum en aðir og víðförull mjög að vita slíkan texta og fleiri áþekka lifa sig. Og breytir engu um þetta, þótt gullkorn, haganlega orðuð hugsun, stílbrögð sem slá flestu við, snilldar persónusköpun og ljóðræn fegurð og hvað annað sem prýða má góða bók eða mikla sé hvarvetna að finna í útgefnum verk- um hans. Fortíð gefur ekki fyrirheit Það er óhjákvæmilegt að hugsa til þessarar fortíðar og þaðan af eldri þegar Úkraína heldur nú dauðahaldi í þá von að eitthvert gagn megi vera af yfirlýsingum leiðtoga vestrænna ríkja, beggja vegna Atlantshafs- ins. Vissulega hefur töluvert verið sagt og vantar ekkert upp á þar. Nei, ekki þar. En ekki verður betur séð en hugrekki og kjarkur Neville Chamberlains hafi verið brytjað niður og deilt á núverandi leiðtoga Evrópusambandsins, þótt það tvennt hafi síst verið til skiptanna. Hinum megin hins mikla hafs virðist Jimmy Carter helsta fyrirmynd núverandi húsbónda í Hvíta húsinu þegar kemur að afskiptum af óvæntum snúningum í alþjóðamálum. Það var þess vegna sem Kasparof skáksnillingur sagði að hefði Obama verið í stað Reagans í Hvíta húsinu væri hann sjálfur enn borgari í Sovétríkjunum. Ógurlegasta styrjöld allra tíma var háð til að sýna að yfirlýsingar þáverandi stórvelda Evrópu um að þau tryggðu öryggi og fullveldi Póllands væru meir en orðin tóm. Þegar hildarleiknum loks lauk, tugir milljóna manna lágu í valnum, var niðurstaðan sú, að sjálft tilefni stríðsins, Pólland, var skilið eftir í hönd- um kúgarans Stalíns. Hans sem hafði samið við Adolf Hitler um það hvenær og hvernig Pólland skyldi brotið á bak aftur. Það var niðurlæging sem lítið var talað um og síst þegar sigurvíman var mest í stríðslok 1945. Lesa sögu, skoða kort En Úkraínumenn kunna vafalítið söguna. Og þeir kunna að lesa landakort. Þar sést að Rússland (og Hvíta-Rússland) eru með því sem næst ¾ landamær- anna við Úkraínu. Vilji Rússland hertaka Úkraínu þá stoppar það enginn. En vonandi gera Rússar sér það ljóst að þótt þeir geti auðveldlega hernumið landið þá er það ekki eftirsóknarvert og getur gert stöðu þeirra verri og veikari á næstu áratugum. Því er ekki ólík- legt að þeir láti sér nægja að „hernema“ hið stjórn- málalega hugarfar, bæði í Úkraínu og hjá meintum bandamönnum þess. Rússar telja að það sé góðs viti þegar Evrópusambandið boðar til neyðarfunda. Þeir felast í seigdrepandi samningaviðræðum við sig sjálft. Þegar þeim er lokið er ekkert eftir handa and- stæðingnum Á neyðarfundunum þeim er framleidd froða, sem ekki er einu sinni hægt að nota í slökkvi- tæki til heimabrúks. Það er örugglega einnig gott merki, að mati Pútíns, þegar Obama á við hann hvert langa símtalið á fætur öðru. Carter var einnig mjög seigur í löngum símtölum og eins og Obama leit hann á þau sem harkalegar aðgerðir af sinni hálfu. Pútín er kominn á Krímskagann þótt hann kannist alls ekki við að vera þar. Enn ólíklegra væri að hann myndi kannast við að vera á förum þaðan. Á kortum sem nú eru birt ótt og títt á sjónvarps- skjáum er skaginn sá ekki að slá í gegn. Virkar eins og smátota út úr stórmyndarlegri Úkraínu. En það er einmitt stærð landsins sem gerir lítið úr Krímskag- anum en sagan sýnir að ekki er ástæða til þess. Mik- ilvægi skagans felst ekki síst í að þar er aðgangur Úkraínu að sjó og þrátt fyrir sjálfstæði landsins, eftir fall múrsins og niðurrif og afhendingu kjarnorku- vopna í kjölfarið, eru Rússar með yfirráð á flotahöfn- inni á staðnum til ársins 2042. Góðverk alkunns sómamanns Mikið er vitnað til þess að Nikita Krústsjov, sem náð hafði völdum sem hinn raunverulegi eftirmaður Stal- íns, hafi gefið Úkraínu Krímskagann með sameining- arbréfi árið 1954. Vitnað er til þess, til skýringar á góðverkinu, að Krjústsjov hafi verið Úkraínumaður sjálfur og því runnið blóðið til skyldunnar. Það er nú svo. En það fer að minnsta kosti mjög vel á því að tala um rennandi blóð í þessu sambandi. Á árunum fyrir heimsstyrjöldina seinni var Krúst- sjov pólitískur kommissar Úkraínu í umboði Kreml- verja. Hann hafði fengið heimild Stalíns til að taka 30 þúsund landa sína af lífi, sem var liður í hreinsunum Stalíns. En þar sem Krjústsjov var alla tíð óhemja til vinnu og hlífði hvorki sér né fórnarlömbunum áttaði hann sig ekki á því fyrr en hann var búinn að láta taka um 36.000 manns af lífi og hafði því brotið heim- ild Stalíns. Krústsjov hraðaði sér til Kremlar og gekk skjálfandi fyrir einvaldinn. Eftir að hafa verið látinn skjálfa þar góða stund huggaði Stalín hann með því Nú er fleira svart en moldin og litlir karlar enn minni en þeir þó sýnast vera *Mikil kvöl hlýtur það aðhafa verið gáfuðummanni, sem var meir lesinn í bókum en aðrir og víðförull mjög að vita slíkan texta og fleiri áþekka lifa sig. Reykjavíkurbréf 07.03.14

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.