Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.03.2014, Blaðsíða 57
9.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Hljómsveitin Vök vakti at-
hygli í fyrra þegar hún bar sig-
ur úr býtum í Músíktil-
raunum. Vök kemur fram á
tónleikum á skemmtistaðnum Dillon á
laugardagskvöld og verður þar form-
lega kynntur til leiks nýr meðlimur.
2
Lokasýning Íslenska dans-
flokksins á Þríleik í Borg-
arleikhúsinu verður á
sunnudagskvöld og hefst
klukkan 20. Áhugafólk um listdans
ætti ekki að láta þessa forvitnilegu
sýningu fram hjá sér fara. Hún verður
síðan sýnd í Hofi á Akureyri um
næstu helgi.
4
Á laugardag kl. 17 hefst í
Listamönnum galleríi, Skúla-
götu 32-34, sýning sem
stendur aðeins þann dag:
Pieces of Water, ljósmyndir eftir
Vatn með aðstoð frá Jeremy Lynch.
Sýningin er hvatning fyrir alla til að
taka þátt í að skapa Vatnaverk í
myrkraherberginu á Kex hostel.
5
Skólahljómsveit Kópa-
vogs blæs til vortónleika í
Háskólabíói á sunnudag
klukkan 14. Um 150 nem-
endur á aldrinum níu til átján ára
munu koma fram og flytja leiftrandi
blásaratónlist. Hópnum er skipt í
þrjár sveitir eftir aldri og kunnáttu og
mun allrahanda tónlist hljóma.
3
Hjónin Ellen Kristjánsdóttir
og Eyþór Gunnarsson og dæt-
ur þeirra, Sigríður, Elísabet og
Elín, halda sannkallaða fjöl-
skyldutónleika á Café Rósenberg á
laugardagskvöld, kl. 21.30, og leika
lög úr ýmsum áttum.
MÆLT MEÐ
1
Á tónleikum í Hall-grímskirkju ásunnudag klukkan
17 fagna Mótettukór Hall-
grímskirkju og stjórnandi
hans, Hörður Áskelsson, því
að í ár eru 400 frá fæðingu
sálmaskáldsins Hallgríms
Péturssonar (1614-1674). Á
efnisskrá tónleikanna eru
lög og útsetningar íslenskra
tónskálda við sálma séra Hallgríms auk
tónlistar eftir samtímamenn hans, Þjóðverj-
ann Heinrich Schütz og Danina Mogens
Pedersøn og Thomas Schattenberg.
Fjögur lög verða frumflutt á tónleik-
unum, þrjú eftir Halldór Hauksson við
sjaldséða sálma eftir Hallgrím, og nýtt lag
eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson við hinn al-
þekkta andlátssálm „Allt eins og blómstrið
eina“.
Í tilefni af tónleikunum hefur teiknarinn
Halldór Baldursson dregið upp mynd af
Hallgrími eins og hann ímyndar sér að
hann hafi litið út ungur.
Minning Hallgríms og verk hafa ávallt
verið mikilvægur þáttur í starfi Mót-
ettukórsins og nú er haldið upp á merk-
isafmæli skáldsins með þessari tónaveislu.
Kórfélagar hyggjast reyna að svara á tón-
leikunum spurningunni hvaða tónlist Hall-
grímur heyrði á skólaárum sínum í Kaup-
mannahöfn. Auk þess að syngja vel þekkta
Hallgrímssálma býður kórinn áheyrendum
því í tímaferð til Kaupmannahafnar á fjórða
áratug 17. aldar, þegar hinn skagfirski ung-
lingur gekk um götur borgarinnar.
Hallgrímur hóf nám við Frúarskóla í
Kaupmannahöfn átján ára gamall og sat
þar á skólabekk þangað til þau Guðríður
Símonardóttir felldu hugi saman og sneru
heim til Íslands. Hallgrímur kynntist þar
nýjustu tónlistarstraumum, ekki aðeins sem
áheyrandi, heldur að öllum líkindum einnig
sem söngvari, en skólapiltar í Latínuskól-
anum fengu tilsögn í tónlist og sungu í kór
Frúarkirkju, dómkirkju Kaupmannahafnar.
Á tónleikunum kynnir kórinn meðal ann-
ars verk eftir tvö merk dönsk barokktón-
skáld, Mogens Pedersøn (um 1583-1623),
sem hófst til æðstu metorða í tónlistarlífi
Dana og samdi veraldleg verk og trúarleg
sem standast samjöfnuð við tónlist kollega
hans sunnar í álfunni, og Thomas Schatten-
berg (um 1580-1623) sem var organisti við
Nikulásarkirkjuna í Kaupmannahöfn.
Sálmalög sem Pedersøn útsetti voru
þekkt hér á landi á þessum tíma og Hall-
grímur samdi Passíusálma sína við lög úr
þeim ranni. Á tónleikunum mun Mót-
ettukórinn syngja nokkur erindi úr Pass-
íusálmunum við sálmalagaútsetningar Ped-
ersøns.
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU MINNIST HALLGRÍMS PÉTURSSONAR Á TÓNLEIKUM
Fjórar aldir frá fæðingu skáldsins
Á EFNISSKRÁ MÓTETTUKÓRSINS
ERU LÖG OG ÚTSETNINGAR ÍS-
LENSKRA TÓNSKÁLDA VIÐ SÁLMA
SÉRA HALLGRÍMS PÉTURSSONAR.
Mótettukór Hallgrímskirkju flytur á tónleikunum
lög og útsetningar við sálma séra Hallgríms.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mynd Halldórs
Baldurssonar af
séra Hallgrími.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tommy Emmanuel á sviði
Háskólabíós fyrir tveimur
árum. „Kvöldið þegar ég
lék á Íslandi var bandvit-
laust veður en engu að
síður var húsfyllir og
gestir virtust skemmta
sér vel,“ segir hann.