Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014 HEIMURINN PEITAÍ Þ naman ktuflyk á þriðju við þingh Taípei, höfu Taívans.Vil mngkið sýn mælaundlag segjangi v ÚRÚGV MONTEV Úrúgvæ, Jo j segir að rí við bón Baracks O Bandaríkjaforseta og við fimm föngum sem hafa í fangabúðunum leystir úr haldi. Enn HOLLAND HAAG Hópur Marokkómanna sem búsettir eru í Hollandi ætlar að höfða mál gegn Geert Wilders t, leiðtoga Frels gegn auknu múslíma. E undir andú DAM mingurhel efnavopna lendinga hefur nú veriðSýr ttur frá landinu, að sögnflu ofnunar sem framfylgirst banni við efnavopnum, OPCW. Stofnunin stefnir að ví að hafa fjarlægt öllþ þeim 30. júní. Trans-Dnéstría er svæðið á milli árinnar Dnéstr og landa- mæra Moldóvu að Úkraínu. Moldóva var lengi hluti Rúm- eníu, hét þá Bessarabía. En Sovétleiðtoginn Jósef Stalín hrifsaði svæðið af Rúmenum í upphafi seinni heimsstyrjaldar eftir að hafa samið um ýmsar landamærabreytingar við nas- istaleiðtogann Adolf Hitler. Þ vert á spár varð ekki blóðbað í Sovétríkj- unum gömlu þegar þau hrundu 1991 en nú velta menn fyrir sér hvort reikningsskilunum hafi bara verið frestað. Vladímír Pútín Rúss- landsforseti hefur „leiðrétt“ skyss- una frá 1954, lagt Krím á ný undir Rússland. En hann vill meira. Sumir sérfræðingar um málefni Rússlands segja að hann muni ekki endilega gera innrás í Austur-Úkraínu þótt ekki megi úti- loka þann möguleika. Líklegra sé að hann reyni fyrst að auka áhrif Rússa á afmörkuðum svæðum þar sem þeir standa þegar vel að vígi. Og fyrr í vikunni sendi þingið í Tíraspól, höfuðstað Trans-Dnéstríu, ósk til forseta rússneska þingsins um að sett yrðu lög sem myndu auðvelda héraðinu að verða hluti Rússlands. Rússar lofuðu að kanna málið. Trans-Dnéstría er landlukt spilda á stærð við Reykjanesskagann, hún er í austasta hluta Moldóvu, lands þar sem flestir tala rúmenska mál- lýsku. Liðlega helmingur íbúa Trans-Dnéstríu er annaðhvort rúss- nesku- eða úkraínskumælandi en alls býr liðlega hálf milljón manna á svæðinu. Þegar Moldóva varð sjálfstæð óttuðust Rússar í Trans- Dnéstríu að Moldóva yrði gerð að hluta Rúmeníu, þeir gerðu upp- reisn og hundruð manna féllu í átökunum áður en samið var um vopnahlé. Rússar og þar áður sov- étmenn voru með herlið í landinu, enn eru þar sennilega þúsundir hermanna undir stjórn Kremlverja, margir nú með titilinn friðar- gæsluliðar. Héraðið er að nafninu til hluti Moldóvu en í reynd hefur ríkis- stjórnin í Chisinau þar engin völd. Áfallið var mikið fyrir Moldóvu, fá- tækasta ríki Evrópu, vegna þess að 40% af iðnaði landsins voru í Trans-Dnéstríu (Nafnið merkir Héraðið handan við ána Dnéstr). Miðstöð glæpanna Svæðið hefur að sumu leyti notið þess að vera á áhrifasvæði Rússa, íbúarnir fá gas á lágu verði og hafa getað selt iðnaðarvörur sínar til tuga ríkja þótt staða ríkisins sé óljós. En stjórnarfarið er í anda sovéttímans, þinghúsið er skreytt hamri og sigð, stór stytta af Lenín er á torginu og mannréttindi fótum troðin. (Helsti leiðtogi héraðsins um margra ára skeið, Ígor Smírn- ov, fékk 103,6% atkvæða í forseta- kjöri í einu kjördæminu 2001!) Oft hafa verið sagðar miklar fréttir af vopnasmygli frá Trans-Dnéstríu en ekki hefur tekist að staðfesta þær. Trans-Dnéstría er alræmd fyrir að vera öflugasta miðstöð glæpa í álfunni, áðurnefndur Smírnov var talinn vera einn áhrifamesti maf- íuforingi héraðsins. Mikilvægustu atvinnuvegir íbúanna er oft sagðir vera smygl, mansal, peningaþvætti og eiturlyfjaviðskipti. Tengslin við mafíuhópa annarra ríkja eru öflug og tekjurnar eru miklar. Lífskjörin eru því betri en í Moldóvu. Pútín beitti sem kunnugt er Úkraínu miklum þrýstingi til að hindra að landið gerði samning um aukin tengsl við Evrópusambandið. Moldóvar undirrituðu í fyrra vilja- yfirlýsingu um sams konar samning og ekki hefur staðið á svörum í Moskvu: Verði hann að veruleika geti Moldóvar gleymt öllum vonum um að fá aftur yfirráð í Trans- Dnéstríu. Enn uggvænlegri eru þau ummæli Rússa að vegna þró- unar mála í Úkraínu sé Trans- Dnéstría nú í „herkví“. Kremlverjar hafa heitið því að tryggja öryggi allra rússneskumæl- andi manna í grannríkjunum og sýndu á Krím að þeir láta ekki orð- in duga. Ráðamenn í Rúmeníu hafa hvatt til þess að öryggi Moldóvu verði tryggt með því að taka landið þegar inn í Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið. En hvað eiga Trans-Dnéstría og svæðin Ab- kazía, Suður-Ossetía og Nagorno- Karabak sameiginlegt? Þau voru öll hluti Sovétríkjanna en eru nú eins konar sjálfsstjórnarsvæði sem ekki hafa fengið viðurkenningu sem sjálfstæð ríki. Nagorno-Karabak er að nafninu til hluti Aserbaídsjans en héraðið var bitbein Azera og Ar- mena í stríði fyrir um 25 árum. S- Ossetía og Abkazía voru svæði sem Rússar hernámu í Georgíu 2008. Vopnuð átök hafa verið á öllum þessum fjórum svæðum en sæmi- legur friður ríkt síðustu árin. Deil- urnar hafa verið frystar – en nú gæti Pútín séð sér hag í því að þíða þær upp og nota upplausnina til að efla áhrif Rússa. Rússar segja mafíubælið í „herkví“ RÚSSAR GÆTU NÚ FARIÐ AÐ ÝTA UNDIR „FRYSTAR“ DEILUR Á AFSKEKKTUM SVÆÐUM SEM ÁÐUR HEYRÐU TIL SOVÉTRÍKJUNUM. EITT AF ÞEIM ER TRANS-DNÉSTRÍA SEM ENN ER AÐ NAFNINU TIL HLUTI MOLDÓVU. Stjórnandi lúðrasveitar í fullum ham í Tíraspol þegar þess var minnst að liðin voru 20 ár frá því að Trans-Dnéstría lýsti yfir sjálfstæði frá Moldóvu. Ekkert ríki hefur þó viðurkennt sjálfstæði héraðsins, þar eru um 30% íbúanna Rússar. AFP Trans-Dnéstría Trans-Dnéstría Chisinau Grunnkort: Google M oldóva Rúmenía Úkraína Krím Svartahaf Tiraspol Dnéstr SPILDA Í TÓMARÚMI * Ástandið yrði enn flóknara ef Moldóva undirritaðisamning við Evrópusambandið.Dímítrí Rogozín, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.