Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 39
Tæki þeirrar gerðar sem stytti greinar- höfundi stundir í öskunni forðum daga. F yrir aldarfjórðungi vann ég eitt sumar sem ösku- karl norður í landi, ætli það heiti ekki „sorp- tæknir“ í dag. Synd væri að segja að það sé skemmtileg- asta starf sem ég hef gegnt um dagana enda þótt í því fælist mikil og holl hreyfing. Líklega hef ég aldrei verið í betra líkamlegu formi. Alltént. Besti vinur minn þetta sumar var vasadiskóið mitt, Sony Walkman, litla einkakassettutækið sem ég festi við beltið og hlustaði á daginn út og inn meðan ég hljóp um bæinn og affermdi úrgang. Það stytti mér stund- ir. Ekki voru allir eins ánægðir með vasadiskóið en bílstjóri öskubílsins kvartaði reglulega undan því að hann næði ekki sambandi við mig. „Helvítis pönkarinn heyrir aldrei neitt þegar ég kalla á hann út af þessu drasli sem hann er með í eyrunum!“ Bílstjórinn gerði engan greinarmun á pönkurum og þungarokkurum. Hafði líklega ekki forsendur til þess. Vasadiskóið nýttist víðar. Þegar farið var út að hlaupa eða á lang- ferðum, eins og með skóla eða íþróttafélagi. Þá sátu menn upp til hópa með vasa- diskóið í kjöltunni og heyrnartól í eyrum. Í eigin heimi, feykjandi flösu. Motorbreath. It’s how I live my life. I can’t take it any other way. Motorbreath. The sign of living fast. It is going to take your breath away. Ekki man ég fyrir mitt litla líf hvenær ég eignaðist fyrsta vasadiskóið, ugglaust hefur það verið snemma á níunda áratugnum. Í það minnsta man ég ekki eftir minni unglingstilveru öðruvísi en vasadiskóið hafi verið partur af henni. Tæki tækið upp á þeim óskunda að bila voru góð ráð dýr. Og það var ósjaldan enda álagið á græjuna mikið og meðferðin eflaust ekki til eftir- breytni. Seigt hefur alla vega verið í græjunni hafi hún lifað öskusumarið af. Einhver hefur rafhlöðukostnaðurinn verið. HVAÐ VARÐ UM VASADISKÓIÐ? Ómissandi í öskunni Fyrsta Walkman- vasadiskóið sem Sony setti á markað 1979. VASADISKÓIÐ VAR EIN HELSTA EINKENNISGRÆJA NÍUNDA ÁRATUGARINS ENDA VEITTI ÞAÐ TÓNÞYRSTUM UNGMENNUM AUKIÐ FRELSI VIÐ HLUSTUNINA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Höfundurinn barðist fyrir viðurkenningu Það var brasilísk/þýski uppfinningamaðurinn Andreas Pavel sem hannaði fyrsta vasadiskóið, Stereobelt, árið 1972 en sótti ekki um einkaleyfi fyrr en fimm árum síðar. Þeirri beiðni var hafnað í Bandaríkjunum og Bretlandi. Árið 1979 hóf Sony að selja keimlíkt tæki og samdi við Pavel um höfundarlaun til málamynda enda þótt fyrirtækið viðurkenndi hann ekki sem hönn- uð vasadiskósins. Þessu undi Pavel ekki og höfðaði mál gegn Sony. Þeirri rimmu lauk ekki fyrr en árið 2003, þegar Sony samþykkti loksins að greiða Pavel þóknun, tíu milljónir Bandaríkjadala, að talið er, og viður- kenndi að hann væri faðir vasadiskósins í sinni upp- runalegu mynd. Þá hafði vasadiskóið, það er kassettuformið, löngu runnið sitt skeið á enda. Ferðageislaspilarinn leysti það af hólmi. Nú gegna iPodar og snjallsímar vita- skuld þessu hlutverki. 23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Smáralind | Sími 512 1330 Opið Sunnudaga 13-18 AppleTV iPhone Verð frá:67.890.- FERMINGARTILBOÐ Tilboð:15.990.-* Fullt verð: 18.990.- *T ilb o ð g ild ir til 1 2 .a p ríl 2 0 1 4 . Þaðerbúiðað ferma iPhone í verslanirokkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.