Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 15
og síðan hef ég verið fram-
kvæmdastjóri félagsins. Ég hef
aldrei fundið fyrir því neins stað-
ar að það skipti máli að ég er
kona. Ég hef ekki þurft að berj-
ast til að fá framgang í starfi.
Ég hef brennandi áhuga á því
sem ég er að gera og held að
það skipti sköpum. Ef maður hef-
ur virkilega áhuga á starfi sínu
þá lætur maður ekkert stöðva
sig.“
Lærðirðu kannski snemma að
treysta á sjálfa þig?
„Ég ólst upp á Akranesi og
þar var afskaplega gott að vera
en þegar kom að því að fara í
framhaldsskóla fór ég sextán ára
gömul að heiman og varð að
bjarga mér sjálf og það markar
mig að vissu leyti, en ég fékk
vissulega allan þann stuðning sem
foreldrar mínir gátu veitt mér.
Ég fór í Verslunarskólann og síð-
an í Háskólann og lærði þjóð-
hagfræði og tölvunarfræði. Ég
vann sem forritari fyrstu árin eft-
ir að ég útskrifaðist og svo gerð-
ist ég fjármálastjóri í Versl-
unarbankanum. Síðan fór ég til
Jóns Helga Guðmundssonar í
Byko og allt frá því hafa leiðir
okkar legið saman og hefur það
verið mjög farsælt samstarf.
Þegar ég var ráðin til BYKO
árið 1991 fannst mér mjög til eft-
irbreytni að Jón Helgi spurði mig
ekki hvort ég ætti börn. Auðvitað
var það mitt verk að sjá til þess
að bakland mitt væri í lagi og í
hádeginu skellti ég mér heim og
gaf ungu barni brjóst. En það er
ekki eins og ég hafi staðið ein í
því að ala upp börnin mín þrjú
því ég er vel gift. Ég reikna með
að ungir menn í valdamiklum
störfum taki meiri þátt í heim-
ilshaldi en tíðkaðist áður fyrr,
þannig að ég held að staðan sé
ekkert öðruvísi fyrir þá en ungar
konur þegar kemur að því að
sameina heimilishald og vinnu.“
Ertu fylgjandi kynjakvóta í
stjórnun fyrirtækja?
„Nei, mér finnst að fólk eigi að
komast á eigin verðleikum í
stjórnir fyrirtækja, eins og í öll
önnur störf. Ég vil að stjórnir
séu samsettar af hæfileikamiklu
fólki af báðum kynjum og hafi
ekki kynjakvóta á bak við sig.
Við Íslendingar þurfum alltaf að
gera allt svo harkalega. Önnur
lönd sem skoða mál eins og þetta
velta fyrir sér aðlögun eftir mörg
ár en við þurfum að gera allt
strax.“
Myndirðu flokka þig sem fem-
ínista?
„Ég myndi ekki kalla mig fem-
ínista. Allt sem maður gerir og
framkvæmir er á persónugrund-
velli og það skiptir ekki máli
hvort viðkomandi er karl eða
kona.
Ég kann ekki við þetta orð
femínisti, mér þykir betra að tala
um jafnrétti, ekki bara jafnrétti
kvenna heldur jafnrétti allra.“
Áttu þér eitthvert sérstakt tak-
mark í lífinu?
„Já, að koma börnum mínum
til manns og standa við skuld-
bindingar mínar.“
„Ég myndi ekki kalla mig femínista.
Allt sem maður gerir og framkvæmir
er á persónugrundvelli og það skiptir
ekki máli hvort viðkomandi er karl
eða kona,“ segir Brynja.
Morgunblaðið/Ómar
23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
*Netverð á mann miðað við staðgreiðslu, lágannatímabil.
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Komdu út að keyra
Berlín · Amsterdam · París
Róm · Barcelóna?
DANMÖRK
2 fullorðnir
með fólksbíl
Netverð á man
n frá
69.500*
FÆREYJAR
2 fullorðnir
með fólksbíl
Netverð á mann frá
34.500*