Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Blaðsíða 59
23.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Eftirköstin er skáldsaga eftir
Rhidian Brook en hann byggir
söguna á atburðum úr lífi afa
síns. Sögusviðið er Hamborg
árið 1946 og breska hernáms-
liðið á að reisa borgina úr rúst-
um. Lewis, yfirmaður í hern-
um, og fjölskylda hans fá til
umráða glæsilegt hús en Lewis
leyfir eigandanum og unglings-
dóttur hans að búa þar áfram.
Sambúðin er ekki án átaka, en
þróast síðan í óvænta átt.
Þetta er þriðja skáldsaga
Rhidians Brooks og hefur kom-
ið út víða um heim. Kvik-
myndarétturinn að bókinni
hefur verið seldur, enda margt í
sögunni sem ætti að geta geng-
ið vel upp í kvikmynd. Guðrún
Eva Mínervudóttir þýðir bók-
ina.
Óvænt sambúð
í Hamborg
Tvær bækur eru komnar út um breska njósnarann fræga
Kim Philby, en hann sá Sovétmönnum fyrir leynilegum
upplýsingum í þrjátíu ár en flúði svo til Sovétríkjanna.
Önnur bókin, sem nefnist Kim Philby, er eftir Tim
Milne, sem lést árið 2010, og var vinur Philbys í áratugi.
Milne, sem var háttsettur hjá Bresku leyniþjónustunni,
skrifaði minningar sínar upp úr 1970 en þær hafa ekki
birst fyrr en nú. Þótt Philby hafi blekkt þennan vin sinn í
þrjátíu ár skrifar Milne um hann af hlýju í minningabók-
inni og segist ekki iðrast þess að hafa þekkt hann. Milne
taldi að Philby hefði svikið þjóð sína vegna þess að hann
hefði verið einlægur kommúnisti. Það er hins vegar ekki
skoðun annars höfundar sem skrifað hefur bók um
Philby. Sá er Ben Macintyre og bók hans nefnist A
Spy Among Friends, en hann heldur því fram að
Philby hafi ekki haft nokkurn áhuga á kommúnisma og
nær aldrei rætt um stjórnmál. Philby hafi því ekki verið
rekinn áfram af eldheitri hugmyndafræði heldur séu
ástæðurnar sálfræðilegar. Philby hafi átt afar ráðríkan
föður sem sýndi syni sínum enga ástúð og Philby hafi
verið í leit að athygli sem hann fékk hjá KGB, en einnig
orðið háður spennunni sem fylgdi lífi njósnarans. Hann
hefði notið þess að blekkja og svíkja fólk, þar á meðal vini sína, og ekki haft nokkurt sam-
viskubit þótt upplýsingar sem hann lak til KGB kostuðu mannslíf.
Ný bók um Kim Philby er á met-
sölulista í Bretlandi.
NJÓSNARINN SEM NAUT ÞESS AÐ SVÍKJA
Von er á fyrstu skáld-
sögu Ara Jóhannes-
sonar, Lífsmörk, á
næstu vikum. Þar segir
frá Sölva Oddssyni, ung-
um lækni sem er í mikl-
um metum á Landspítal-
anum, bæði meðal
samstarfsfólks og sjúk-
linga, enda alltaf til í að
taka aukavaktir. Í vinn-
unni fjarlægist hann
stöðugt veruleikann,
eiginkonu og börn og að
lokum verða skilin milli
þess að sefa og valda
sársauka svo óskýr að
eitthvað verður undan
að láta. Hér er á ferð
saga um mannlegan
breyskleika og mörk lífs
og dauða. Ari Jóhannes-
son er sérfræðingur í lyflækningum og starfar sjálfur á Landspítala. Hann hlaut Bókmennta-
verðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir ljóðabókina Öskudagar árið 2007.
FYRSTA SKÁLDSAGA ARA
Ari hlaut árið 2007 Tómasarverðlaunin og þáverandi borgarstjóri Dag-
ur B. Eggertsson samgladdist honum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ljóðasafn Steins Steinars á
heima á hverju heimili og er
reyndar einkar heppileg gjöf
því hver vill ekki eiga bók með
svo góðum skáldskap? Vaka-
Helgafell hefur endurútgefið
ljóðasafn þessa merkilega ljóð-
skálds með sérlega góðum for-
mála Kristjáns Karlssonar.
Þetta er falleg bók með
ógleymanlegum ljóðum sem
heillað hafa þjóðina og munu
halda því áfram svo lengi sem
Íslendingar lesa ljóð.
Ógleymanleg
ljóð Steins
Steinars
Ljósmynd/Jón Kaldal
Ljóð, líkami og
uppgjör í
Hamborg
NÝJAR OG NÝLEGAR BÆKUR
LJÓÐASAFN STEINS STEINARS HEFUR VERIÐ
ENDURÚTGEFIÐ OG ÞÝÐING Á FRÆGRI LJÓÐA-
BÓK TED HUGHES ER Á MARKAÐI. MYND-
SKREYTT BARNABÓK UM LÍKAMANN HEFUR LIT-
IÐ DAGSINS LJÓS OG NÝLEG BRESK SKÁLDSAGA
SEM ÞÝDD HEFUR VERIÐ Á FJÖLMÖRG TUNGU-
MÁL ER KOMIN ÚT Á ÍSLENSKU.
Afmælisbréf, ljóðabók breska lár-
viðarskáldsins Teds Hughes, er
komin út í íslenskri þýðingu Hall-
bergs Hallmundssonar og Árna
Blandon. Hughes lýsir þar á
áhrifamikinn hátt sambandi sínu
við fyrri eiginkonu sína, banda-
ríska ljóðskáldið Sylviu Plath.
Ljóðabókin var gefin út nokkrum
mánuðum áður en Ted Hughes
lést árið 1998, vakti gríðarlega at-
hygli og varð metsölubók.
Marglofuð
ljóðabók
Í bókinni Kroppurinn er kraftaverk – Líkamsvirðing
fyrir börn – er börnum kennt að þykja vænt um líkama
sinn og hugsa vel um hann. Höfundur bókarinnar er
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur og Björk Bjarkadótt-
ir myndskreytti á sinn skemmtilega hátt. Í lokakafla
bókarinnar, sem er skilaboð til fullorðinna, segir: Öll
börn eiga rétt á því að líða vel í líkama sínum og vera
stolt af sjálfum sér eins og þau eru.
Barnabók um líkamann
*Maðurinn er skástur þegar hanner upptekinn við iðju sem á hughans allan. Pétur Gunnarsson BÓKSALA 12.-18. MARS
Allar bækur
1 Hljóðin í nóttinniBjörg Guðrún Gísladóttir
2 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
3 HHhHLaurent Binet
4 Iceland Small World lítilSigurgeir Sigurjónsson
5 Kroppurinn er kraftaverkSigrún Daníelsdóttir
6 5:2 mataræðiðMichael Mosley/ Mimi Spencer
7 Marco áhrifinJussi Adler Olsen
8 5:2 mataræðiðUnnur Guðrún Pálsdóttir
9 Skrifað í stjörnurnarJohn Green
10 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst
Kiljur
1 Sannleikurinn um mál HarrysQuebert
Joël Dicker
2 HHhHLaurent Binet
3 Marco áhrifinJussi Adler Olsen
4 KonungsmorðiðHanne-Vibeke Holst
5 SkuggasundArnaldur Indriðason
6 ÓlæsinginnJonas Jonasson
7 SandmaðurinnLars Kepler
8 MánasteinnSjón
9 Furðulegt háttalag hunds um nóttMark K. Haddon
10 LygiYrsa Sigurðardóttir
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Tvisvar verður gamall
maður barn.