Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.03.2014, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.3. 2014 B rynja Halldórsdóttir er framkvæmdastjóri Norvikur en félagið rekur Bygginga- vöruverslun á Íslandi, BYKO, og timburiðnað og flutn- ingastarfsemi og þjónustu í Evr- ópu. Umsvifin eru því allmikil, bæði hér á landi og erlendis. Ný- lega vakti athygli þegar stjórn- arformaður Össurar sagði Ísland ekki góðan stað til að reka al- þjóðlegt fyrirtæki og Brynja er fyrst spurð að því hvort hún taki undir þau orð. „Ég tek undir þessi orð,“ segir hún. „Það er afar erfitt að vera með fyrirtæki í alþjóðarekstri hér á landi. Ástæðurnar eru margar, gjaldeyrishöftin hafa mjög haml- andi áhrif á fyrirtæki í alþjóða- rekstri og torvelda þeim að styðja við starfsemi sína erlendis sem getur verið mjög bagalegt. Und- anþáguferli Seðlabankans hefur reynst langt og ekki endilega gagnsætt. Það er ekki síður erfitt að gengissveiflur íslensku krón- unnar eru allt of miklar og erf- iðar fyrirtækjum í alþjóðarekstri sem gera upp í íslenskum krón- um, sem og íslenskum fyrir- tækjum í inn- og útflutningi. Á undanförnum árum hefur rekstur fyrirtækja á Íslandi verið erfiður. Eftir árið 2008 yfirtóku bankar mörg fyrirtæki og héldu þeim áfram í rekstri með fjár- hagslegum stuðningi sem ég veit alls ekki hvort stenst samkeppn- islög. Bankar eiga ekki að taka þátt í samkeppnisrekstri. Þetta hefur ekki verið farsælt. Þrátt fyrir að markaður hér hafi dreg- ist saman þá hefur fyrirtækjum á markaði ekki fækkað í samræmi við það. Ég er ekki endilega hlynnt því sem er að gerast á Ís- landi, að fyrirtæki eru í vaxandi mæli að verða eign banka og líf- eyrissjóða – mér finnst það slæm þróun. Mig langar líka til að benda á vaxtamuninn á Íslandi sem hefur verið allt of mikill, en lítið hefur verið fjallað um það. Mér finnst líka vanta umfjöllun um peninga- málastefnu á Íslandi – við höfum búið við sömu peningamálastefnu sennilega frá 2000. Ég held að peningamálastefnan sé rótin að mörgum þeim vandamálum sem við höfum lent í, en það er of langt mál að fjalla um það hér. Það hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með uppbyggingu fyr- irtækja frá því að fjármálakrepp- an skall á. Samkeppnisumhverfið hefur ekki verið Norvik hagstætt og við höfum þurft að keppa við fyrirtæki sem hafa fengið skulda- niðurfellingar að miklu eða öllu leyti. Þar af leiðandi hefur rekst- urinn verið erfiðari en okkur hef- ur ávallt tekist að standa við skuldbindingar okkar og gott bet- ur. Ég vil taka fram að viðskipta- bankarnir okkar hafa reynst Nor- vik afar vel, enda höfum við alltaf unnið vel með þeim og verið heiðarleg í samskiptum við þá og það hefur reynst okkur vel.“ Bægslagangur hjá Samkeppniseftirlitinu Hvernig stóð síðasta ríkisstjórn sig þegar kom að því að skapa fyrirtækjum gott umhverfi og hvernig heldurðu að ný ríkisstjórn muni standa sig? „Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru gerðar miklar breytingar á skattalöggjöfinni og kollsteypur á kerfum eru ekki alltaf til góðs. Ég geri ekki lítið úr því að síð- asta stjórn tók við á erfiðum tíma þegar allir þurftu að stíga varlega til jarðar, en mér fannst fráfar- andi stjórn ekki til þess fallin að efla atvinnulífið almennt. Ég er hins vegar ekki að segja að það sé miklu betra í dag því ég sé ekki miklar breytingar hjá nýrri ríkisstjórn. En hún boðar breyt- ingar og við verðum að vona það besta. Stjórnvöld þurfa að skapa öruggt umhverfi þar sem fyr- irtækjarekstur getur blómstrað. Stöðugleiki í umhverfi fyrirtækja er það sem skiptir mestu, sem og heimila. En varðandi stjórnmálin almennt þá er mjög alvarlegt hvernig þau eru að þróast. Það væri farsælla fyrir þjóðina ef mál væru afgreidd með þokkalegri sátt í stað þess að knýja lög og lagbreytingar í gegn með látum.“ Samkeppniseftirlitið hefur haft afskipti af félögum hjá Norvik. Hvernig myndir þú lýsa þeim samskiptum? „Ég man eftir fundi hjá Sam- tökum verslunar og þjónustu sennilega í nóvember 2008 en þá var Páll Gunnar Pálsson einmitt á þeim fundi og taldi að Sam- keppniseftirlitið ætti að leika lyk- ilhlutverk við fyrirtækjauppbygg- ingu á Íslandi til framtíðar. Ég gæti ekki verið meira ósammála. Ég hef því miður þurft að glíma við Samkeppniseftirlitið en það tekur allt of langan tíma að fá úrskurð þaðan. Sem dæmi var upphaf rannsóknar hjá einu Nor- vikur félagi árið 2007 og fyrst nýverið berst bréf þess efnis að málið sé niður fallið. Ég hef þurft að geta um það í ársreikningum allt frá 2007 að óútkljáð mál sé hjá Samkeppniseftirliti. Þetta er ekki boðlegt fyrir fyrirtæki á Ís- landi. Ég hef á tilfinningunni að Sam- keppniseftirlitið sé að rannsaka alltof mörg mál og mörgum sinn- um fleiri en það kemst yfir að ljúka. Ég held að skynsamlegra væri að sinna færri málum og ljúka þeim fyrr. Ég tel að farsælla væri hjá Samkeppniseftirlitinu að vinna meira með fyrirtækjum í að fyr- irbyggja brot á samkeppnislögum í stað þess að vera með húsleitir og bægslagang sem skila engum niðurstöðum fyrr en mörgum ár- um síðar og skapa fyrirtækjum stórfelld vandræði, skila oft und- arlegri niðurstöðu og síðast en ekki síst, valda stórfelldum kostn- aði.“ Efasemd um aðra mynt Það er hiti í Evrópuumræðunni og forsvarsmenn atvinnulífsins eru margir á þeirri skoðun að halda eigi viðræðum við Evrópusam- bandið áfram. Hver er þín skoð- un? „Þarna finnst mér vera of heit- ar trúarskoðanir á báða bóga og umræðan því of tilfinningarík. Fyrst við á annað borð fórum í aðildarviðræður, sem ég var reyndar ekki sérlega hlynnt, þá finnst mér skynsamlegast að ljúka þeim. Mér finnst margir hafa tengt umræðuna um Evrópu- sambandið alltof sterkt við mynt- ina okkar. Miðað við þá óöguðu hagstjórn sem við höfum búið við hef ég haft efasemdir um upp- töku á annarri mynt.“ Heldurðu að það verði annað efnahagshrun? „Ég hef verið að skoða hag- tölur frá öðrum löndum og sé að bólumyndun er á ýmsum stöðum. Hins vegar finnst mér að við Ís- lendingar höfum í of miklum mæli litið svo á að kreppa hafi einungis orðið á Íslandi en þetta var alþjóðleg fjármálakreppa og ef hún skellur á aftur mun hún bitna á litla Íslandi eins og öðr- um. En ef slík kreppa skellur á þurfa menn að læra af þeirri síð- ustu. Það er mjög slæmt að stilla stórum hópi fólks upp sem glæpamönnum og meðhöndla þá sem glæpamenn til að sefa reiði þjóðarinnar. Því miður er búið að kippa úr umferð stórum hópi af miklu hæfileikafólki sem er aðeins sekt um það að hafa verið að vinna vinnuna sína. Það er í raun alveg hræðilegt og ég held að sagan muni dæma þetta á annan hátt en gert er í dag.“ Ekki femínisti Konur eru ekki mjög áberandi í störfum eins og þínum. Hefurðu fundið fyrir neikvæðum viðhorfum vegna þess að þú ert kona í ábyrgðarmiklu starfi? „Ég hóf störf sem fjár- málastjóri hjá BYKO árið 1991, fyrirtækið hefur vaxið mjög síðan þá og varð að Norvik árið 2000 Brennandi áhugi skiptir sköpum BRYNJA HALLDÓRSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI NORVIK- UR, RÆÐIR UM VANDANN SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ REKA FYRIR- TÆKI Í ÍSLENSKU UMHVERFI. HÚN ER EKKI HLYNNT KYNJA- KVÓTA Í STJÓRNUM FYRIRTÆKJA OG SEGIST EKKI KUNNA VIÐ ORÐIÐ FEMÍNISTI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolla@mbl.is * Það er mjög slæmt að stilla stórumhópi fólks upp sem glæpamönnum ogmeðhöndla þá sem glæpamenn til að sefa reiði þjóðarinnar. Því miður er búið að kippa úr umferð stórum hópi af miklu hæfileikafólki sem er aðeins sekt um það að hafa verið að vinna vinnuna sína. Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.